Morgunblaðið - 29.03.1969, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 39. MARZ 1960
5
B litla: A litla og Anna Gréta Arngrímsdóttir.
AB og BA
Esther Gunnarsson með A og B
Tvennir tvíburar
Tvennir tvíburar litu dags-
ins ljós á Sólvangi núna í
vikunni, og þótti okkur til-
hlýðilegt að skreppa og kanna
vorkomuna nánar suður þar.
Frú Anna Gréta Arngríms
dóttir heitir önnur móðirin.
Hún var hin hressasta. Hún
eignaðist tvser stúlkur 22.
marz, og var hin fyrri 13 %
mörk og 51 cm, en hin síð-
ari 11% mörk og 50. cm.
Hún og maður hennar, Grét
ar Þorleifsson húsgagnasmið-
ur, Smyrlahrauni 31 í Hafn-
arfirði áttu tvo drengi fyrir,
annan tæplega 2ja ára, en
hinn fjögurra ára.
— Bjóstu við tvíburum
núna?
— Já alveg eins. Það er
heilmikið af tvíburum í ætt-
inni, ég á til dæmis tvíbura-
bræður.
— Er þetta eins skemmti-
legt og að eignast „bara eitt“?
— Þetta er meira spennandi.
Nú kemur Fríður ljósmóðir
inn með litlu dömurnar.
— Hérna er hún A litla. Og
B litla er vakandi.
Svo er smellt af. Við för-
um yfir ganginn, en þar er
önnur tviburamamma. Það er
frú Esther Gunnarsson, kona
Guðna Gunnarssonar, skrif-
stofumanns, Framnesvegi 12,
Reykjavík. Þeirra tvíburar
fæddust 24. marz með 18 mín.
mi'llibili.
Ester er amerísk. Fædd
í Aiton borg í Illinoisfylki.
— Hvar kynntistu manni
þínum, Esther?
— Við vorum í sama skóla
í Chicago.
— Bjóstu við tvíburum?
— Alveg eins. Mér var sagt
að það væri hugsanlegt, en
ekki alveg víst. Það eru tví-
burar í ætt minni. Afi var
tvíburi og fleira af frænd-
fólki mínu sömuleiðis.
— Áttu fleiri börn, Esther?
— Nei, þetta eru fyrstu
börnin mín.
Drengirnir, sem ennþá heita
bara A og B, voru svipaðir
á þyngd eða um 9 % mörk
hvor og jafnlangir, 51 cm.
Og nú kemur ljósa, Fríður
Sigurjónsdóttir, með A litla
og B lit'la (en hún tók á móti
þeim) og fær mömmu þá, svo
að hægt sé að mynda þá. Við
smellum af, og flýtum okkur
burt, þótt gaman sé, því að
nú á að fara að gefa únga
fólkinu mat sinn og engar
refjar.
Bárnplast
í plötum og rúllum margar stærðir glært og litað.
Verð mjög hagstætt
BYGGINGAVÖRUVERZLUN KÓPAVOGS
Simi 41849.
Hárgreiðsla
Munið hinar vinsælu FERMINGARHÁRGREIÐSLUR.
Hef opið alla SUNNUDAGA
SIGURÐUR JÓHANNSSON, Sólheimar 23
Sími 82745.
Keflavík—Suðurnes
LAUGARDAGUR EÐA SUNNUDAGUR?
nefnist erindi, sem flutt verður í Safnaðar-
heimili Aðventista við Blikabraut sunnudag-
inn 30. marz kl. 5 síðdegis.
Litmyndir frá Katakombunum í Róm og
þingstað Rómverja.
Einsöngur — Anna Johansen.
Allir velkomnir.
Vymura vinyl-veggfóður
ÞOLIR ALLAN ÞVOTT
|JI UTAVER
Grensdsvegi 22-24
Simi 30280-32262
Maðurinn frá
NEW YORK TIMEs
sagði:
New York Times er álitið eitt ábyggilegasta og víðlesnasta dagblað í Ameríku.
„Starf mitt er að ferðast um hin
ýmsu lönd, kynna mér menningar-
ástand viðkomandi þjóða, meðal
annars í viðskiptalífinu. Það kom
mér mjög á óvart þegar ég leit inn
í eina helztu matvöruverzlun í
Reykjavík, að sjá þar saman komið
fjölbreyttasta úrval af því bezta,
sem völ er á á heimsmarkaðinum.
Þetta sýnir að íslendingar eru í
fremstu röð um kröfur til vöru-
úrvals og vörugæða.“