Morgunblaðið - 29.03.1969, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1969
tíitgieÉandi H.f. Árvakur, Reykjavíik.
Fnamkvæmdastj óri Haraldur Sveinsson.
■Ritatjórar Sigurður Bjarnasoan frá Viiguir.
Matthias Joliannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsaon.
Ritstjómarfulltrúi Þiorbjöm Guðmundsson.
I'réttaistjóri Björn Jóhannssoní.
Auglýsingastjóri Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími ÍO-IÖO.
Auig]ý®in'gar AðaLtræti 6. Síxni 22-4-80.
Asfcriftargjald kr. ISiO.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 10.00 eintakið.
EISENHOWER LÁTINN
o
hkv'&b II' wí v u ÍAN ÚR H EIMI
KÍNA:
Hvað skeður næsta ár í Varsjá?
Hversvegna œtli Kínverjar hafi rfít Bandaríkjamönnum
„bambus-stöng" en dregið hana svo snögglega að sér aftur?
Tkwight Eisenhower, fyrr-
um forseti Bandaríkj-
anna er látinn. Með honum
er genginn einn þeirra
manna, sem voru kvaddir til
forustu í baráttunni gegn
nazistum í heimsstyrjöldinni
síðari og jafnframt einn
. fremsti leiðtogi frjálsra þjóða
heims á erfiðustu árum kalda
stríðsins.
Eisenhower varð frægur
um víða veröld sem yfirhers-
höfðingi bandamanna í heims
styrjöldinni síðari. Þá komu
f ljós yfirburða hæfileikar
hans til þess að laða ólík öfl
saman til samvinnu i barátt-
unni gegn sameiginlegum
óvini. Síðar varð Eisenhow-
er fyrsti yfirhershöfðingi At-
lantshafsbandalapsríkjanna
og átti ríkan þátt í að tryggja
varnir þeirra gegn yfirgangi
kommúnismans í Evrópu eft-
ir stríð. Leikur enginn vafi á
því, að Atlantshafsbandalagið
hefur jafnan síðan búið að
því starfi, sem Eisenhower
* lagði fram í þágu Atlantshafs
bandalagsríkjanna þá.
Dwight Eisenhower var
kjörinn forseti Bandaríkj-
anna árið 1952 og hann var
endurkjörinn með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða
1956. Enn er of snemmt að
leggja dóm á forsetatíð Eis-
enhowers en sú staðreynd er
þó öllum ljós, að á árunum
1952—1960 var meiri friður
innanlands í Bandaríkjunum
: en verið hefur síðan, er marg
; víslegir erfiðleikar í innan-
landsmálum hafa skapað
f* sundrungu og leitt til hinna
ótrúlegustu ofbeldisverka.
Eisenhower tók við forseta
embætti þegar kalda stríðið
stóð sem hæst. í forsetatíð
hans var friður saminn í
Kóreu og framsókn komm-
; únismans var stöðvuð. Þegar
Eispnhower lét af embætti
haffii andrúmqloftið á aiþjóða
| vettvanm hatnað verulega og
hætf^n á nvrri heinic:«tyriö]d
var fiarlænari { hugum fólks
en áður.
Eisenhower lifði það að sjá
þann mann. sem alizt hafði
upp undir handariaðri hans,
verða forseta Bandaríkjanna.
Og bað er táknrænt að ein-
mitt á fvrstu vikum forseta-
ferils síns hefur Richard
Nixon lagt áherzlu á að bæta
tengsl Bandaríkjanna við Ev-
j rópu en þau tengsl átti Eis-
; enhower meiri þátt í að
| treysta en flestir aðrir banda-
. rískir stjórnmálamenn.
VIÐTÆKAR AÐ-
GERÐIR TIL ÚT-
RÝMINGAR
ATVINNULEYSI
OG EFLINGAR
ATVINNULÍFSINS
Oæða sú, sem Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráð-
herra, flutti á Alþingi í fyrra-
dag um störf Atvinnumála-
nefndar ríkisins hefur vakið
mikla athygli enda sýnir hún
glögglega, að Atvinnumála-
nefndinsem Bjarni Benedikts
son er formaður fyrir, hefur
beitt sér fyrir mjög víðtækum
ráðstöfunum til þess að efla
atvinnulífið í landinu og út -
rýma atvinnuleysi.
Forsætisráðherra lagði á-
herzlu á það í ræðu sinni að
margvíslegar ráðstafanir
hefðu verið gerðar til þess
að bæta úr rekstrarfjárþörf
atvinnufyrirtækjanna og örva
þannig atvinnu í landinu.
Fyrir tilstuðlan Atvinnumála
nefndar ríkisins voru afurða-
lán til sjávarútvegsins hækk-
uð í samræmi við verðhækk-
anir vegna gengisbreytingar-
innar. Seðlabankinn ákvað að
verja 100 milljónum króna til
sérstakra rekstrarlána tilfiski
skipa til að létta byrði af
lausaskuldum þeirra. Við-
skiptabankarnir ákváðu að
auka venjuleg rekstrarlán til
fiskiskipa um 50%. Seðla-
bankinn tók ákvörðun um að
verja 150 milljónum króna til
aukningar rekstrarlána til
iðnaðarins í samvinnu við við
skiptabankana.
í upphafi ársins fengu all-
mörg frystihús sem voru ísér
stökum erfiðleikum fyrir-
greiðslu að upphæð 30 millj-
ónir króna. Þessar aðgerðir
hafa m.a. tryggt að fiskveið-
ar hófust með eðlilegum
hætti þegar að loknu sjó-
mannaverkfallinu og hafa
þær svo sem kunnugt er
gengið vel og orðið til þess
að draga mjög úr atvinnu-
leysi í landinu. Frystihús
hafa verið starfrækt af full-
um krafti eftir því sem hrá-
efni hefur borizt til þeirra,
svo og síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjurnar.
Atvinnumálanefndin hefur
fjallað sérstaklega um ráð-
stafanir til þess að efla tog-
araútgerð frá þeim byggðar-
Það hefur vakið athygli í Var-
sjá, að mánuðum saman hafa am-
bassadorar Kína og Bandaríkj-
anna ýmist gefið hvor öðrum ó-
spart undir fótinn eða ekki virt
hvor annan viðlits. Þessi leikur
hefur, að minnsta kosti í bili,
endað á þann veg að þrettánda
fundi þeirra, sem hafði verið á-
kveðinn þann 20. febrúar s.l. var
aflýst, samkvæmt skipun stjórn-
arinnar í Peking. Þykjast Kín-
verjar með þessu vera að mót-
maela hlutdei'ld sem þeir telja
bandarísku upplýsingaþjónust-
una eiga í flótta fyrrverandi
sendifulltrúa Kínverja í Haag,
Liao Ho-chou til Bandaríkjanna.
Síðastliðinn hálfan mánuð hef
ur kínverska dagblaðið „Ren
Min Ribao“ ráðizt harkalega á
hina nýju stjórn í Bandaríkjun-
um og kemur það því ekki á
óvart, þó slitnað hafi upp úr
viðræðunum í Varsjá. Þróun
mála í heiminum undanfarið hef
ur verið á þann veg, að Kín-
verjar hafa séð sér hag í að
slíta viðræðunum, í bili að
minnsta kosti, og hefur því flótti
sendiful'ltrúans verið þeim kær-
komið yfirskin Vaxandi afskifti
stjórveldanna tveggja, Rússa og
Bandaríkjamanna af málefnum
minni ríkja víðsvegar í heimin-
um, Austurlöndum nær, Evrópu
og sérstaklega Viet-nam er Kín
verjum mikill þyrnir í augum og
vilja þeir nú sjálfir fara að hafa
hönd í bagga
Upphaf þessa máls er að utan
ríkisráðherra Kína ríður á vaðið
og stingur upp á því við Banda
ríkjamenn að þeir taki aftur upp
þráðinn og hefji með sér við-
ræður með aðstoð ambassadora
sinna 20. febrúar 1969, en Kín-
verjar og Bandaríkjamenn
höfðu ekki ræðst við síðan 1955.
Fréttamenn túlkuðu þetta tilboð
Kínverja á þann veg, að Kína
yndi því nú ekki lengur að sitja
hjá og horfa á stórveldin berj-
ast um bitana. Kínverjar vildu
að Bandaríkjamenn og Kínverj-
ar gerðu með sér samþykkt varð
andi 5 grundvallaratriði er snert
ir sameiginlega hagsmuni þeirra
á Kyrrahafi, grundvallaratriði'er
Kínverjar samþykktu á fundin-
um í Bandoung í apríl 1955. Skil
lögum, sem togaraútgerð er
nú rekin frá en það eru
Reykjavík, Hafnarfjörður,
Akureyri og Siglufjörður.
Hefur Reykjavíkurborg ver-
ið boðið lán að upphæð 26
milljónir króna til viðgerðar
á þremur gömlum togurum,
sem legið hafa ónotaðir frá
1966 og jafnframt hefur ver-
ið ákveðið að veita svipaða
fyrirgreiðslu til þeirra
byggðarlaga annarra, sem
byggja mjög á togaraútgerð.
Viðgerð togaranna þriggja í
Reykjavík mundi veita veru-
lega atvinnu.
Þá skýrði Bjarni Benedikts-
son frá því, að lögð væri
sérstök áherzla á að efla
skipasmíðarnar, enda væru
þær mjög til þess lagaðar að
stórauka atvinnu. Eru uppi
áform um að gera skipasmíða
stöðvunum kleift að halda
yrði það sem Kínverjar setja nú
fram gegn framlengingu sam-
þykktarinniar er að Bandaríkja
menn hefjist þegar handa um
brottflutning bandarísks her-
lið frá Taiwan héraði, það er að
segja Formósu, sem er eins og
kunnugt er, síðasta vígi Ghang
Kai-chek.
Þó þetta tilboð Kínverja sé
skilyrðisbundið er það samt í
fyrsta sinn sem þeir láta í veðri
vaka að þeir kynnu að vera fáan
legir til samstarfs. Dean Rusk,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
Mao Tse-tung
anna sagði: „Kínverjar rétta
okkur bambusstöng". Viðræðu-
tíminn er óneitanlega kænlega
valinn, eða um sama leyti og Nix
on í upphafi valdatíma síns hittir
að máli Bresnev og Kosigyn,
til að ræða við þá um eldflaug-
ar, eldflaugavarnir, kjarnorku-
stríð og málefni Mið-Austur-
ýlanda. Mao Tse-tung lætur
í það skína, að það séu ekki að-
eins Bandaríkjamenn og Rússar,
semn hafi rétt til. að fjalla um
landamæri kommúnistablokkar-
innar og Vestur-Evrópu, Kín-
verjar hafi líka ýmislegt til mál
anna að leggja.
Sovjetmenn, sem eru kvíðnir
og gramir vegna ummæla Kín-
verja svara þeim þó fullum hálsi
og segja að kínverski drekinn
sé ekkert annað en pappírsdreki
áfram smíði fiskiskipa þótt
kaupendur séu ekki fyrir
hendi, þannig að ný og hent-
ug fiskiskip verði til staðar,
þegar eftirspurn eykst á ný,
sem gera má ráð fyrir að
verði þegar áhrifa aðgerða
ríkisstjórnarinnar í efnahags-
málum fer verulega að gæta.
Bjarni Benediktsson benti
á í ræðu sinni, að aukin bygg
ingarstarfsemi væri mjög
þýðingarmikil til þess að
draga úr atvinnuleysinu og
sagði hann, að auk þeirrar
100 milljón króna fyrir-
greiðslu, sem Húsnæðismála-
stjórn hefði fengið til þess
að flýta lánum til húsbyggj-
enda, væru aðrar aðgerðir í
athugun til þess að örva
byggingarstarfsemina.
Loks vakti Bjarni Bene-
diktsson athygli á því að
sveitarfélög hefðu sýnt mik-
andspænis bandarískri heims-
valdastefnu. Það hefur verið
skoðun Bandaríkjamanna að
Kínverjar eigi hlutdeild í þeim
stirðbusahætti, sem stjórnin í Ha
noi sýnir við friðarsamningana
í Viet-nam og því kviknar sú
von, hvort ekki megi reyna að
fá Mao Tse-tung og Chou En-
lai til að telja stjórnina í Norð-
ur-Vietnam á að sýna meiri samn
ingalipurð. Bandaríkjamenn telja
að eigi Kínverjar möguleika á
mi'kilvægum viðskiptasamning-
um við vesturlönd, myndu þeir
fúsir til að beita áhrifum sínum
í Viet-nam deiilunni í staðinn.
f hvíta húsinu og innanríkis-
ráðuneytinu í Washington hafa
menn verið önnum kafnir við að
gera kostnaðaráætlanir og tækni
legar áætlanir um póst- og síma-
samband milli Kína og Banda-
ríkjanna Þá hafa verið athugað
ir möguleikar á samskiptum á
sViði vísinda milli landanna svo
og hugsanleg skifti milli banda
riskra o g kínverskra háskóla.
Bandaríkin hafa á undanförnum
árum verið mjög andvíg því að
viðskipti hæfust mil'li Kína og
Vestur-Þjóðverja, en þessi við-
skipti aukast nú jafnt og þétt
og eru hergögn þar stærsti þátt-
urinn. Á síðast liðnum mánuð-
um hefur dregið mjög úr áróðri
Bandaríkjanna gegn þessum við
skiptum.
Stjórnir ýmissa landa, sem
hafa haft pólitíska samstöðu með
Bandaríkjunum líta sjálf hýru
auga „markaði" í Kína fyrir vör
ur sínar. Stjórnir Ítalíu og Can-
ada hafa lýst því yfir, að þær
hafi í hyggju að taka upp stjórn
málasambandi við Kína og Belg-
íu og Filippseyjar fylgjast náið
með gangi mála. Bak við tjöld-
in hefur de Gaulle róið að því
öl'lum árum að þessi samskipti
tækjust. Hann er þeirrar skoð-
ar að aukið samneyti við Kína
sé æskilegur mótleikur gegn of
náinni samvinnu milli Banda-
ríkjamanna og Rússa.
Því er það nú að Mao Tse
tung tekur þá ákvörðun að
hætta samningaviðræðum við
Bandaríkin og aflýsa fundinum
20. febrúar. Samningur um
Framhald á bls. 19
inn áhuga á auknum fram-
kvæmdum, ekki sízt hita-
veitu- og vatnsveitufram-
kvæmdum, svo og hafnar-
gerð og væri nú unnið að úr-
lausn þeirra mála en þegar
hefði verið ákveðin lánveit-
ing til Hitaveitu Reykjavík-
ur, sem gerir henni kleift að
ráðast í framkvæmdir sem
nema 70—80 milljónum á
þessu ári.
STJÓRN Stúdentafélags Háskóla
íslands hefur sent Mbl. afrit af
bréfi, sem háskólarektor sendi fé
laginu hinn 9. september 1968
og fjallar um afnot af húsnæði
háskólans.
I bréfinu segir m.a. að „há-
skólaráð samþykkti í júní sl.
ályktun um húsnæðismál Háskól
ans á þá leið, að eftirleiðis þætti
háskólaráði ekki fært að lána hús
næði Háskólans til fundarhalda
eða ráðste'fna, ef það skerti til
muna lögbundna eða venju helg-
aða starfsemi Háskó’.ans.