Morgunblaðið - 29.03.1969, Page 17
AUKABLAÐ
3
Eisenhower i „Gullfaxa,“ á leið frá Reykjavík til Keflavík
ur. Með honum er Kristín Snæhólm, flugfreyja.
Atlantshafsþjó'ðanna. Ég lagði
ekki upp í þessa ferð til að
safna saman smáatriðum,
staðreyndum og hagfræðileg-
um tölum og fyrírætlunum,
heldur til að kynna mér, hvort
öllum ríkisstjórnum og öllum
þjóðum bandalagsins,. sem
mér að vinna þetta verk. Mér
hefur verið það til uppörvun-
ar í öllu ferðalaginu, að mér
virðist það vera fastur ásetn-
ingur allra þjóða í þessum
höfuðborgum að tryggja að
við getum búið við öryggi og
fríð og eftir því sem sam-
Við komu Eisenhowers til Reykjavíkur 26. jan. 1951. Við hlið hans stendur Bjarni Benedikts
son, utanríkisráffherra.
Eisenhower á Islandi
— hann kom til islands í janúar 1051, er hann var yfirhershöfðingi ISiATO
DWIGHT D. Eisenhower kom
í heimsókn til íslands í janúar
1951, en hann var þá yfirhers
höfðingi Atlantshafsbanda-
lagsins. Eisenhower hafði ver
ið á ferðalagi um ýmis lönd,
m.a. Norðurlönd og kom það-
an til íslands.
Það var um hádegisbilið
þann 26. janúar, að Eisen-
hower kom flugleiðis frá Par-
ís. Hann átti viðræður við
ýmsa forystumenn þjóðarinn-
ar, en hélt sfðan til Keflavík-
ur með vélinni „Gullfaxa".
Með Eisenhower var tíu
manna fylgdarlið, auk áhafnar
flugvélarinnar, sem var í eigu
bandarsíka flughersins.
Meðal þeirra sem tóku á
móti Eisenhower voru þeir
Bjarni Benediktsson, utanríkis
ráðherra, Agnar Kl, Jónsson,
ráðuneytisstjóri, Gunnar Thor
oddsen, borgarstjóri og Sigur-
jón Sigurðsson, lögreglustjóri.
stjóri.
1 móttökusal farþegaaf-
greiðslu ræddi Eisenhower
við blaðamenn og flutti stutt
ávarp. Þar sagði hann m.a.
„Þetta er næst síðasti áfanga-
staður minn á ferðalagi til 12
höfuðborga varnarbandalags
Eisenhower, þá forseti Bandaríkjanna, kom viff á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir jólin 1957 áleiff
vestur um haf af fundi Atiantshafsbandalagsins í París. Forseti íslands, Ásgeir Ásgieirsson, var
meffai þeirra, serni tóku á móti honum á flugvellinum. Þessi mynd var þá tekin. Á milli for-
setanna er Dýrfinna önnfreffsdóttir, sem bar þeim veitingar.
höfðu trúað mér fyrir þessu
verkefni væri jafn hugleikið
að varðveita friðinn og gera
varnarvegg umhverfis vest-
ræna menningu og mér er það
hugleikið og þjóðinni sem fól
vizkan býður okkur. Ég vil
leggja sérstaka áherzlu á, að
til grundvallar stofnunar liðs-
sveita varnarbandalaga At-
lantshafsþjóðanna liggja ekki
neinar árásarfyrirætlanir og
enginn styrjaldarhugur. Það
er einungis og einfaldlega ör-
yggisráðstöfun og til þess að
þjóðir okkár — allar þjóðir
— geti lifað í friði og notið
ávaxtanna af því starfi, sem
þær vinna með huga eða
hönd.
Ég hef kynnzt fjölda manns
og ég er þess fullviss, að
þeir hafa sömu skoðanir og
það er að mínum dómi þýð-
ingarmesta atriðið.
Hugrekki er hermanninum
allt og ég trúi því, að hug-
rekki hinna frjálsu þjóða
fari vaxandi með hverjum
degi.“
Að loknu ávarpi sté Eisen-
hower í bifreið og ók til fund
ar við forsætisráðherra og
ræddi við hann um stund.
Allmikill mannfjöldi hafði
safnazt saman á Lækjartorgi
til að sjá hershöfðingjann.
Morgunblaðið segir frá því
í sömu frétt, að kommúnistar
hafi veri'ð með stóryrði og
haft uppi ýmsar hótanir, er
akveðin var koma Eisen-
howers. Ekkert varð þó af
neinum mótmælum og fór allt
fram með mestu spekt.
Frá stjórnarráðinu hélt
Eisenhower til Bessastaða og
sat hádegisverðarboð herra
Sveins Björnssönar, forseta,
ásamt nokkrum fleiri gestum.
Síðan ræddi Eisenhower á ný
við íslenzka ráðherra og stóð
fundur þeirra í nokkrar
klukkustundir.
Eisenhower flaug að því
búnu til Keflavíkur og dvaldi
þar um nóttina, en hélt för
sinni áfram snemma næsta
morguns.
Eisenhower heilsar Gunnari Thoroddsen borgarstjóra.
Ljósm. Mbl. Ól. K. Magn. tók allar myndirnar.