Morgunblaðið - 29.03.1969, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 196»
17
Frá kennslutæknifundinum um skólarannsóknir — Ljósm. Kr. Ben.
Efla ber skólarannsóknir
Frásögn af þriðja Kennslutœknifundinum r Hagaskóla
KÖKUBAZAR
verður haldinn á morgun kl. 2.00 e. h.
í Ingólfsstræti 19.
Ágóðinn rennur í barnaskólasjóð Aðventista.
VeiðijÖrð
Landmikil veiðijörð um 6 klst. akstur frá Reykjavlk er til sölu.
Heppileg fyrir félagssamtök.
Jörðinni tilheyrir veiðiá og mikið berjaland, 17 ha tún og
góð gripahús.
Upplýsingar gefur ,
Sigurgeir Jónsson
Sími 41175.
allar byggingavörur á einum stað
ÞRIÐJI Kennslutæknifundurinn,
sem haldinn er í Hagaskóla, var
í fyrrakvöld og var umræðuefn-
ið skólarannsóknir. Frummælend
ur voru Andri ísaksson, sálfræð-
ingur, forstöðumaður Skólarann-
sókna og Haukur Helgason, skóla
stjóri, í Öldutúnsskóla í Hafnar-
firði. Fundurinn var alivel sótt-
* ur og stóðu umræður fram und-
ir miðnætti.
Ásgeir Guðmundsson, formað-
ur Kennslutækni bauð í upphafi
fundarmenn velkomna, en síðan
tók Andri ísaksson til máls.
Hann sagði að með auknum
(hraða í nútímaþjóðfélagi hefði
þörfin á að bæta skólakerfið
■aukizt og orðið æ brýnni. Með
Bkólaranns'óknum leituðust menn
við að gera skólakerfið hæfara.
Skólarannsóiknir eiga sér óra-
tuga sögu og hefjast í Banda-
ríkjunum um 1916. Þó má segja
að rannsóknir fransks sál'fræð-
ings í Parí.s nokkuð fyrr megi
telja til s’kólarannisóikna.
Andri fsaksson rakti síðan
'Skólarannsóknir í Noregi, en
þær hófust þar í landi árið 1933
með því að skólanefnd barna-
kennara sendi bænaskrá til
menntamálastjórnarinnar um að
endurskoða skólakerfisins yrði
byggð á reynslu. 1936 var þetta
síðan samþykkt í norska Stór-
þinginu og sett var á fót upp-
eldisfræðirannsófcnarstofnun við
háskólann í Osló 1938. Helztu
verkefni þessiarar stofnunar
haf verið: stöðlun greindar-
prófa, rannsófcn á lestrarerfið-
leifcum barna, rannsókn á fé-
lagslegum viðhorfum og rann-
sókn á hömlum á reikningshæfi-
leika. Þá gat Andri þess að
stofnunin gæfi og út norrænt
tímarit.
Norska stofnunin hefur all-
fjölmennt s'tarfslið — nokkra
tugi manna. Hún er háskóla-
■stofnun og verkefni hennar eru
valin með vísindalegu tilliti.
Andri ræddi rnokkru nánar um
morsku skólarannsóknirnar, en
sneri sér síðan að hinum ís-
lenzku.
Aðdragandi íslenzkra skóla-
rannsókna hófst árið 1063, er
skipuð var nefnd til þess að
fjalla um menntaskólanám. —
Nefnd þessi safnaði gögnum og
síðar urðu til 2 undirnefndir,
önnur sem fjallaði uon tengsl
menntaskólanna við lægri skóla
og hvatti hún síðar til stofnun-
ar iskólarannisókna. Hinn 27.
marz 1966 var svo tilkymnt um
að Skólarannsóknum hefði verið
fcomið á fót og var Andri ísaks-
son gerður að forstöðum-ahni, en
hann skyldi hafa sér til aðstoð-
ar dr. Wolfgang Edelstein og Jó-
hann Hannesswn, .skólameistara.
Skyldi stofnunin annast fræði-
lega rannsókn á íslenzka skóla-
fcerfinu og verði hún undirstaða
tillögugerðar um nauðsynlegar
breytingar á skólakerfinu, svo
að saimræma megi það breyt’tum
þjóðfélagisháttum og nýjum sjón
armiðum í skóla- og uppeldis-
fræðum. Andri sagði að með
þeirri manmfæð, sem innan stofn
unarinnar væri, hefði ekki verið
unnt að vinna að eiginlegum
skólarannsóknuim, en athugun
hefur þó fairið fram á gildi
prófa.
Starfskraftar stofnunarinnar
hefðu hins vegar beinzt að til-
raunum með nýja stærðfræði-
kennslu, tilraunum með dönsku
í 12 ára bekk, og tilraunum með
ensku í 4, til 7. bekk Lang-
holtsskóla. Allar þessar tilraunir
hefðu þó verið gerðar af frum-
kvæði annarra. Af frumfcvæði
skólarannsóknanna hefði þó ver
ið ráðizt í athugun á eðlis- oig
efnafræðikennslu í barna- og
unglingaskóluim, líffræðikennslu
athugun ®ama eðlis væri nú
fyrir nefnd, sem örnólfur
Thorlacius veitti forstöðu og
síðan hefði kenns'la í eftirtöld-
um greinum verið í athugun:
félagsfræði, íslenzku, dönsku.
Farið héfði og fram rannsókn á
forskólum, athugaðar takmark-
anir á ýmsum sviðuim .skóla-
kerfisins og frá upphafi hafa
Skólarannsóknirnar haft með
höndum ráðgjafastarfs'emi bæði
út á við og inn á við.
Haukur Helgason, skólastjóri
var næsti frumimæilandi. Hann
taldi að verkefni skólarannsókn-
anna hefði verið mjög yfirgrips-
mikið í upphafi. Öðru megin
hefði verið á reiðingnum skóla-
rannsóknir — þetta mikla verk-
efni, en hinum megin enn starfs-
maður ásamt tveimur frís'tunda-
ihjálparmönnum, enda hefði
fljótt komið í ljós að leysa varð
verkefnabaggann og skilja að-
eins fáein strá eftir. Haufcur
'Sagði síðan: Skóilarannisókmr
eiga að vera sjálfstæð s'tofnun
til ráðuneytis skólarannsókna
skal skipa 5 m.anna nefnd, starfs
lið skólarannisófcna verði aukið
og fé til rannsóknarstarfa sé
tryggt.
Haukur færði síðan rök fyrir
þessum kröfum sínum. Hann
lagði ennfremur áherzlu á að
kanna þyrfti, hvaða breytingar
er unnt að gera nú þegar til að
tryggja betri árangur uppeldis-
lega og námslega af skólas'tarf-
inu, að fcanna þarf hvers vegna
iskólar í Noregi, Svíþjóð og
Þýzkalandi og nú á Bretlands-
eyjum hafa hætt að raða nem-
endum í bekki eftir getu á
skyldunámsstigi, nú þegar þarf
að taka saman skýrslu um ár-
angur þann, sem náðst hefur
með kennsilu 6 ára barna í Is-
aksskóla, þegar .svo mjög er rætt
um skólagöngu 6 ára barna og
á næsta leyti eru ákvarðanir í
þessu efni, gtuðia þarf að því að
gefin verði út kennslubók í
námstækni og koma þarf
upp gagnkvæmu upplýsinga-
kerfi milli skóla og Skólarann-
isókna. Síðan sagði Haukur:
Stofnun Skólarannsiókna vakti
bjartar vonir í huga allra á-
hugamanna um skólamál. Þar
virtist kominn sá vaki, er leyst
gæti úr læðingi nýja vorkomu í
Menzkum skólamálum. Séu þær
aftur á móti ekki nógu aðgerð-
armikl.a'r og láfi ekfci að sér
kveða, getur farið svo, að þær
verði gkálkaskjól aðgerðarleysis
og fcyrristöðu.
Á eftir framsöguræðum voru
frjálsar umræður. Þeir sem tófcu
til máls voru: Hörður Bergmann,
dr. Wolfgang Edelstein, ólafur
Þórðars'on, Jóna-s Pálsson, Sig-
urþór Þorkelsson, Magnús Magn
ússon Friðbjörn Gunnlaugsson,
Kristján Halldórsson og að lok-
um frumimiælendur.
Ásgeir Guðmundsson, formað-
ur Kenns'lutækni minnti á næsta
fund, laugardaginn 29. marz kl.
14.30 í Hagasfcóla, þar sem rætt
yrði um menn'tun og hagvöxt.
Fruimmælandi verður Torifi Ás-
geirsson, hagfræðingur.
ÞAKJÁRN NR. 24
Þakpappi
Rennubönd
Mjög hogstæit verð
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
^^7 KÓPAVOGS sími41010
SKIÐI
Höfum nú til hin vinsælu
og
VIKING skíði
VIKING SIIPER
fyrir fullorðna og unglinga.
Einnig öryggisbindingar og stálstafi.
KRISTJÁNSSON HF
Ingólfsstræti 12. — Símar 12800 og 14878.
FERMINGARRLÓM
R0R9SKREYTINGAR
SENDUM HEIM
Gróðrarstöðin v/Miklatorg — Sími 22822.
Gróðurhúsið v/Sigtún — Simi 36770.
Gróðrarskálinn v/Hafnarfjarðarveg — Sími 42260.
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 10.00.