Morgunblaðið - 03.04.1969, Page 19

Morgunblaðið - 03.04.1969, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1969 19 - SKIPULAG Framhald al bls. 14 Auk þeas létti Seðlabankinn greiðslustöðu bankanna aUveru- lega með verðbréfakaupum, er á árinu 1968 námu nær 100 millj. kr. Staða fjárfestingarlánastofn- ana versnaði einnig mjög gagn- vart Seðlabankanum á þessu tímabili, og kom það fram bæði í lækkuðum innstæðum við Seðlabankann og auknuim útlán- um Seðlabankans til fjárfesting- arlánasjóða, er nauðsynleg reyndust til að þeir gætu stað- ið við útlánaikuldbindingar sín- ar, en ráðstöfunarfé þeirra rýrn- aði mjög vegna vaxandi van- skila atvinnufyrirtækja, einkum fyrirtækja í sjávarútvegi, er orðið höfðu fyrir þungbærum rekstrartöpum. Loks versnaði staða ríkissjóðs og annarra opinberra aðila um 573 millj. gagnvart Seðiabank- anum á þessu tímabili, og var meginoriíök þess hinn sívaxandi stuðningur, er ríkissjóður varð að veita útflutnings atvinnuveg- upum til þess að forðast rekstr- arstöðvun vegna hins mikla tekjumissiis. Þótt sú stefna, sem rekin var í peninga- og fjármálum á þessu tímabili, hafi verið óihjákvæmi- leg, eins og komið var í þjóðar- búskapnum, gat hún að sjálf- sögðu ekki staðizt nema í vi'ss- an tíma, þar sem afleiðingarnar voru síversnandi staða þjóðar- búsins út á við og eyðing gjald- eyrisforðans. Þégar allar vonir um það, að útflutningsþróunin mundi snúa;t við vegna bættra aflabragða á síldveiðum og hækkunar erlends verðlags, höfðu orðið að engu, varð rót- tæk breyting á gengisskráningu íslenzku krónunnar ekki lengur umflúin. Er varla um það að sakast, þótt Seðlabanki og ríkis- stjórn hafi viljað þrautreyna aðr ar leiðir, áður en gúpið yrði tii þess ráðs. Ég vii nú að lokum víkja stutt lega að gangi mála eftir gengis- breyúnguna ,en ástæða er til að ætla, að hún muni marka þátta- stkil í þróun íslenzks þjóðarbú- skapar. Á tilgang gengislækkunarinn- ar má líta frá tveimur hliðum. Annars vega.r er með henni horfzt í augu við afleiðingar þess, að tekjumii;sir útflutnings- atvinnuveganna hefur stórrýrt gjaldeyristekjur þjóðarinnar og valdið 17% lækkun þjóðartekna á mann á tveimur árurn. Með hækkun á verði erlends gjaideyr is er stefnt að því að þrýsta nið- VELJUM ÍSLENZKT ur eftirpurn eftir innfluttum vörum og þjónustu og um leið heildarverðmætaráðstöfun þjóð- arbúsinis, svo að hvort tveggja sveigist til jafnvægis við þau raunveruleg verðmæti, sem þjóð in hefur til ráðstöfunar. Kalla mætti þetta hin neikvæðu áhrif gengisbreytingarinnar, en það eru þau, sem fyrst koma fram, eins og þegar hefur sýnt edg í lækkun innflutnings og gjald- eyrisnotkunar síðustu fjóra mán- uði. En gengislækkunin hefur sem betur fer aðra og jákvæðari hlið, en það er sú hvatning, sem hún veitir til framleiðsluaukningar og aukinnar gjaldeyrköflunar. Með því að bæta samkeppnisað- stöðu íslenzkra atvinnuvega, bæði á erlendum mörkuðum og innanlands, hvetur gengislækk- unin til aukinnar framleiðslu og verðmætasköpunar. Því sterkari og fljótvirkari, sem þessi áhrif eru, þeim mun fyrr verður unnt að vinna upp að nýju þá lífs- kjaraskerðingu, sem tekjurýrn- un útflutningsatvinnuveganna hefur valdið. Eitt þeirra vandamála, sem þarf að yfirstíga, ef þetta á að takast, eru þeir fjárhagsörðug- leikar, sem fjöldi íslenzkra fyr- irtækja var kominn í vegna tap- rekstrar og samdráttar í eftir- spurn undanfarin tvö ár. Þegar við þá bætast kostnaðarhækkan- ir vegna gengisbreytingarinnar, hlýtur niðurstaðan að verða mjög aukin fjármagnsþörf. Eru þessar þarfir langt umfrarn það, sem viðskiptabankarnir geta leyst úr, eins og nú standa sak- ir, enda hefur lausafjárstaða þeirra einnig rýrnað stórlega undanfarin tvö ár. Stjórn Seðla bankans hefur af þessum ástæð- um talið óhjákvæmilegt, að út- lán bankanis yrðu í bili aukin verulega, bæði með almennri hækkun afurðalána í samræmi við verðlhæklkanijr vegna geng- isbreytingarinnar, og með því að veita sérstaka fyrirgreiðslu til þess að leysa úr tímabundnum erfiðleikum vissra framleiðslu- greina ji-vo sem útgerðar og iðn- aðar. Einnig hefur bankinn veitt sérstök lán til nokkurra greina, er urðu fyrir miklu gengistapi vegna viðskiptaskulda erlendis. Neraur sérstök fyrirgreiðsla, sem Seðlabankinn hefur veitt fyrir milligöngu viðskiptabankanna, síðan gengislækkunin var fram- kvæmd, nálægt 300 millj. kr., auk um 100 miilj .kr. láns til að flýta fyrir veitingu íbúða- lána. Við þetta bætist hækkun afurðalána, en hennar er fyrst farið að gæta nú þessar vikurn- ar, eftir að vertíðarframleiðsla er komin í fullan gang. í þessari útlánaaukningu Seðla bankans er óneitanlega fólgin veruleg áhætta, og getur orðið nauðsynlegt að taka aftur í taum ana, ef hún veldur óeðlilegri peningaþenslu innanlandla, er leitt gæti til nýrrar rýrnunar gjaldeyrisforðans. Er hér raunar fyrst og fremst um tímabundnar aðgerðir að ræða, sem ætlað er að brúa bilið, unz útlánageta við skiptabankanna og afkoma fyrir tækja kemst aftur í eðlilegf horf. Einnig er á það að benda, að geta Seðlabankan® til að veita bankakerfinu aðstoð með auknu framboði á lánsfé er mjög kom- in undir þróuninni í stöðu ríkis- sjóðs, en sívaxandi skuldir hans við Seðlabankann hafa mjög þrengt svigrúmið í þessu efm. Hlýtur bættur hagur ríkissjóðs því að verða eitt helzta mark- miðið í stjórn fjármála þjóðar- innar á næstunni, en með því móti yrði bæði stuðlað að hag- stæðari gjaldeyrisstöðu og skil- yrði sköpuð til heilbrigðrar aukn ingar á lánsfé til atvinnurekstr- ar. Ef aulkin útlán Seðlabankans og aðrar ráðstafanir í lánamálum, þar á meðal útlán á vegum At- vinnumálanefndar ríki-iins, eiga að koma að tilætluðum notum, skiptir heilbrigð notkun lánsfjár ins ekki minna máli en upphæð þess. Aðeins með því að beita hinum ströngustu arðsemissjón- armiðum við lánveitingar í hvaða tilgangi isem er, er unnt að tryggja, að fjármagnið komi að fullu gagni og verði til lengd- ar til þess að auka framleiðslu og atvinnu. Tilraunir til þess að halda uppi atvinnu með því að veita lánsfé til óarðbærra fyrir- tækja eða framleiðslugreina hljóta að vera dæmdar til að mistakast. Einnig er rétt að vara við þeirri hættu, sem fóligin er í of mikilli íhalds;emi í atvinnu- og launamálum, er gæti hindrað, að Hafnarf jörður Til leigu glæsileg skrifstofuherbergi í nýju húsi við Strandgötu. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. HRAFIMKELL ASGEIRSSON, HOL., Standgötu 1, Hafnarfiði — Sími 50318. Dýrtíð? Ekki hjá Michelsen Athugið hinn gifurlega verðmismun á blómum og vorlaukum. Komið við í Blómaskála Michelsens Hveragerði um páskana. þau tækifæri, sem gengisbreyt- ingin veitir til að auka fjöl- breytni og styrk- atvinnulífsins verði notuð til hins ítrasta. Það hefur þegar sýnt sig á þesisum fáu mánuðum, sem liðnir eru frá gengislækkuninni, að fjölmargir möguleikar til nýrrar útflutn- ingsframleiðslu og til innlendrar framleiðslu án tollverndar, geta opnazt ,ef rétt er á haldið. Ef af inngöngu í EFTA verður, munu íslendingar fá enn ný tækifæri til að auka fjölbreytni útflutn- ingsframleiðslunnar og efla iðn- að á grundvelli tollfrjáls að- gangs að nær 100 millj. manna markaði. Þótt miklu megi tvímælalaust koma til leiðar með sem beztri nýtingu þess lánsfjár, sem bank- ar og aðrar lánastofnanir hafa yfir að ráða, fer því fjarri, að öll vandamál verði leyst með auknum útlánum eða bættri lánastefnu. Virðist mér satt að segja athygli manna að undan- förnu hafa beinzt helzt til mik- ið að lánsfjárerfiðleikum, en síð ur að öðrum vandamálum, sem atvinnureksturinin á við að stríða. Sannleikurinn er sá, að vandamál flestra íslenzkra fyrir- tækja er miklu fremur fólgið í ■íkorti á eigin áhættufé og ófull- nægjandi arðsemi en í ónógu lánsfé. Einnig er smæð flestra íslenzkra fyrirtækja þekn veru- iegur fjötur um fót og dregur úr getu þeirra til að nýta nú- tíma tækni, bæði í stjórnun og framleiðslu. Ég vil ljúka máli mínu með því að hvetja til þess, að hin miklu vandamál varðandi skipu lag, arðsemi og fjárhagí'legan styrk íslenzkra fyrirtækja verði sem fyrst tekin til gaumgæfi- legrar afihugunar og úrlausnar af þeim, sem fara með stjórn íslenzkra efnahagsmála. Til dæm is vil ég nefna, að í greinar- gerð, sem samin hefur verið ný- lega fyrir Seðlabankann I sam- bandi við undirbúninig að stofn- un kaupþings, kemur skýrt fram, að ekki sé raunhæft að búast við aukinni þátttöku almennings í hlutafélögum, nema gerðar séu breytingar á skattalöggjöf til þess að gera hlutafjáreign sam- keppnishæfa við aðrar tegund- ir sparnaðar. Einnig er þar bent á mikilvægi þess, að skattaregl- um sé breytt, svo að unnt sé að sameina fyrirtæki án sérstakrar skattlagningar, en það gæti stuðl að mjög að uppbyggingu sterk- ari fyrirtækjaeiniinga hér á landi á sama hátt og átt hefur sér stað í nágrannalöndum okk- ar. Fjármagnið er vissulega afl þeirra hluta, er gera skal, en það er hlutverk fyrirtækjanna að ávaxta það og breyta í nýt- anleg verðmæti. Þes® vegna hef- ur heilbrigði þeirra og styrkur áhrif á hag allrar þjóðarinna. Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl. og Einar Viðar, hrl. Hafnarstræti 11. - Sími 19406. NÆTURÞJÓNUSTAN ER í HAFNARFIRDI að Reykjavíkurvegi 58 Vanti eitthvað matarkyns þá fæst það hjá okkur. Samlokur — pvlsur — öl — gosdrykkir eða tóbak einnig allan sólarhringinn. Næg bílastæði. 6ÍUSTÖÐ IIAFN\HFJ,\RDi\R Op/ð allan sólarhringinn Símar 51666 og 51667. Það erum við sem sjáum um þjónustuna um páskana og alla aðra daga. Talstöðvarbílar um allan bæ, allan sólar- hringinn. RÍLASTÖÐ HAFNARFJARDAR Op/ð allan sólarhringinn Símar 51666 og 51667. FRIMERKJASAFNARAR MYNTSAFNARAR Kynnið ykkur hið mjög fjöibreytta úrval, sem við höfum nú á boðstólum Frímerkja-albúm. Albúm fyrir íslenzku myntina. Innstungubækur Almenn albiim og myntblöð. Fyrstadagsalbúm. Erlend mynt í miklu úrvali. Innlend og erlend frímerki. * Verðlistinn ÍSLENZKAR MYNTIR 1969. 1969 verðlistar. Heildarsafn íslenzkrar myntar. Kynnið yður Tímaritið FRÍMERKI, marzheftið komið út. Skólavörðustíg 21 A Sími 21170 — Reykjavík. Frímerkjamiðstöðin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.