Morgunblaðið - 09.05.1969, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.05.1969, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1969 um aírvum, en því hafði hún nú annars lokið kvöldinu áður, svo að henni hefði verið vorkuninar- laust að laga avolítið til kring um sig, áður en hún fór. Ég tók af rúminu og setti í það hrein lök. Ég ryksaug teppið og þurrkaði af húsgögnunum. Mér datt í hug, hvað þetta vist- lega litla herbergi liti nú befur út, og fór að velta því fyrir mér, hvers konar húsmóðir Kay mundi verða, þegar hún eignað- ist sjálf heimili, úr þvi hún léti herbergið sitt líta svona út. En um leið minnti ég sjálfa mig á það, að ef hún giftist John, mundi hún hafa húshjálp á hverjum fingri. Jafnvel nú á dögum, þegar húshjálp var ekki að finna fremur en glóandi gull, þótt ríkisbubbar vaeru annars vegar. Ég tók upp bréfakörfuna, til þess að fara með hana niður og tæma hana í ruslatunnuna. En þegar ég hvolfdi úr henmi, rak ég augun í pappírsblað. Það var sýnilega hulti af bréfi, og á því mátti lesa: „Um þetta ieyti að viku liðinni, verðum við orðin saman, fyrir fullt og a-llt, elskan mín“. Ég þekkti svo sem rithöndina. Sú var tíðin, að John hafði_ skrif að mér, hvað eftir anmað. Ástar- bréf, sem ég hafði ekki kært mig um og hafði aldrei svarað. En síðan Nick stal frá honum pen- ingunum, hafði algjörlega tekið fyrir þær bréfaskriftir. En svo virtist sem nú fengi Kay bréfin í minn stað. Ég var ekkert sérlega forvitin og hafði lítið tekið eftir, hvort hún fengi nokkur bréf. Og svo var hún lika vön að fara á móti póstinum, þegar hanm kom til okkar, um leið og hún flýtti sér að ná í vagninm í vinmuna. Ég leit aftur á þetta tortryggi- lega skrif. „Um þetta leyti að viku liðinmi, verðurn við orðin saman fyrir fullt og allt, elskan mín“. Það var ekki nema ein skýr- ing á þessu. Kay hlaut að hafa logið að mér, að hún ætlaði að verða hjá Jenny Gray yfir hvíta- sunnuna, þess í stað var hún farin eitthvað burt með John. Gat ég virkilega trúað þessu? Það var ekki annað að ge’-a. Hvað gat mér dottið annað í hug? Og ef svo væri, hafði hún hlaupizt á brott með honum til þess að giftast honum, án þess að víkja að því einu orði við mig? Mundi ég kannski fá skeyti frá henni, þar sem hún segði mér fréttirnar? Eða var hvorugt þeirra neitt að hugsa um hjónab„nd? — Jú, Kay hlauf að gera það, þóttist ég viss um. En ég efað- ist um, að John hefði það í huga, þrátt fyrir öll loforð, sem hann kynni að hafa gefið henni. Ég leit á klukkuna. Hún var næstum tólf. Ég hafði verið lengur að húsverkunum og til- tektinni hjá Kay, en mér hafði dottið í hug. — rs et-----sg.... tag 1 1 ' 39 — Og Kay hafði fa.ið klukk- an hálfníu, líklega til að ná í 8.40-vagninn við endann á stígn um. Eða hafði John kannski beð ið hennar þar í bílnum sínum? Hafði hún stigið upp í bílinm í snatri og þau síðan ekið af stað? Ég kvald'ist af hvoru tveggja í senn, vonbrigðunum yfir að Kay skyldi hafa getað gert mér þessa sorg og kvíðanum yfir afleiðing unum af þessu tiltæki hennar. Eitt var þó víst: hún hlaut að vera bálskotin í John. Kannski hafði mér alveg skjátlazt þegar ég hélt, að það væri Don, sem ætti hug hennar allan. Ég leit á bréfasnifsin í rusla- tunnunni. Líklega var hinn hlut inn af bréfinu þarna líka. En ég gat ekki fengið mig til þess að leita að því og bera hlutana sam an. Svo lágt vildi ég ekki leggj- ast. En nú var ég orðin uppfull af reiði við Kay, en þó einkum við John. Ég óskaði þess heitast, að ég hefði þau hérna hjá mér, og enda þótt ég sieppti mér annars sjaldan, þá hefði ég nú rifið þau í mig. En hvaða tilgangi gat það þjónað? Bob mundi benda mér á, að Kay væri sjálfrar sín ráðandi Víð bjödum yður alla ótíkar Ijufengu rétti frá kl. 8-23f30 Sent ef öskað er HAFNARSTRÆTI 19-SÍMI 13835 grenwood UPPÞVOTTAVÉLIN Þér fáið hvergi fullkomnari uppþvott en i KENWOOD upp- þvottavélinni. Fyrst þvœr hún með sistreymi af heitu vatní — heitara en þér getið þolað — svo heitu, að það drepur skaðlega sýkla. Hið hringfarastreymikerfi — sem er aðeins f KENWOOD — sprautar vatninu, ásamt hreinsivökvan- um, sem látinn er i vélina um allt leirtauið með óvenju- legum krafti. Það er ekkert á hreyfingu i KENWOOD, nema vatnið, svo að leirtauið og viðkvæmt postulin er fullkomlega óruggt. Meðan á skolun stendur, þá gláfægir hreinsivökvinn leir- tauið og postulinið, en siðan hefst þurrkun. Það er aðeins KENWOOD, sem veitir fjölbreytt uppþvotta- val. Þér getið stillt vélina á mismunandi uppþvottaraðferð — með þvi að stilla stjórnskifuna. Þér getið stöðvað vélina hvenær sem er, ef þér þurfið að láta i hana eða taka úr henni. Fyrirliggjandi Verb kr. 21.990.— Sími 11687 21240 Jfekla Laugavegi 170-172 — Einmcnnisklefa. — Nei, ég ætla að koma með mín föt ókrumpuð. og gæti lifað og látið eins og hún vildi. Eins og hún líka sjálf hafði ótvírætt gefið mér til kynna undanfarna mánuði. En að hlaupast svona burt með John og ljúga því að mér, að hún ætlaði að verða hjá vin stúlku sinni í Cambei . . . Ég minntist þess nú, að hún hafði virzt hlakka afskaplega til þessarar heimsóknar. Það hafði verið einhver spenningur í henni, í gærkvöldi, þegar hún var að láta niðui í töskuna sína og svo aftur í morgun, þeg ar hún var að flýta sér að Ijúka við morgunveröinn. Og þegar hún kvaddi mig. hafði hún faðm- að mig að sér og sagt, að það væri fallega gert af mér að lofa sér að fara þetta, einkum þó af því, að Lucy var ekki htima. Kay hafði verið óvenjulega ást úðleg, því áttaði ég mig á núna. Jafnvel Nick hafði tekið eftir þessu, þvi að þegar hún fór út hafði hann horft á eftir henni, þegar hún hljóp niður eftir stígruum og sagt; — Það er meiri blessaður sólargeislinn hún Kay er í dag! Hvað er eiginlega hlaupið í hana? Hún er þó ekki vön að vera í sérlega góðu skapi á þessum tíma dagsins. En nú áttaði ég mig á því, hversvegna hún hafði verið svona mikill sólargeisli og í svo góðu skapi, og ég xór að spyrja sjálfa mig að því hvort hún hefði getað farið svona að heim an án nokkurs samvizkubits. Ég var alveg í vandræðum, hvað til bragðs skyldi taka. Ég hafði enga hugmynd um það, hvert Kay hefði farið, og ef út í það var farið. hafði ég heldur enga óyggjandi vissu fyrir því, að hún hefði yfirleitt farið með John. Hann gat vel hafa skrifað henni þetta, en þar með var ekki sagt, að hún heíði samþykkt það. Og jafnvel þótt svo hefði verið, gat henni hafa snúizt hugur á síðustu stundu. Kannski hafði Jenny raunverulega boðið henni til Camber, og hún þegið boðið, án þess að láta John vita. hvert hún ætlaði. Ég var í svo mik'lu uppnámi, að ég gat alls ekki hugsað, skipu lega. Ég óskaði þess heitast, að Bob væri einhvers staðar nálæg- ur, en ég vissi, að hanm hafði farið á nautgripauppboð í Ash- ford og mundi ekki koma aftur bráðlega. Mig langaði að segja honum, hvernig ástatt væri og hvernig mér væri innanbrjósts. Hann var alltaí svo rólegur og skynsamur. Hann mundi ráða mér heilt. En skynsemi mín sagði mér, að hann mundi aðeins, ráða mér til að hafast ekkert að. Ég gekk að símanum og hringdi á númerið hjá John. Að minnsta kosti gat ég komizt að því, hvort hann væri heima. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl Nú skaltu hagnýta þér tækni, sem |iér hefur nýlega orðið ljós. Nautið, 20. apríl — 20. mai Það er mikill hraði á málunum, og vinir þinir skilja ekki vel, hvað þú ert að fara. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní Allir tala mikið, en vinna lítið. Það er allt í lagi, hvað snertir laga- stapp. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí Gerðu sérstakar fyrirspurnir meðal vinnufélaga, en láttu ekki skoðanir þínar i ljós. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst Leggðu tilfinningamálin á hilluna um sinn, því að það eru ekki allir, sem skil.ja, hvað þú ert að fara. Meyjan, 23. ágúst — 22. sept. Það eru margir dómharðir núna. Vogin, 23. sept. — 22. okt. Farðu eftir leikreglum I dag. Allt er brcytingum undirorpið. Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv. Von er um úrbætur í peningamálum. Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des. Þótt fjárhættan sé töfrandi skalt heldur líta í aðra átt. Steingeitin, 22. des. — 19. jan. Þér kemur ekki saman við einhvern vegna skipulagstilfinningar þinnar. Bíddu því átekta. Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr. Byrjaðu snemma og komdu lagi á allt, en gerðu ráð fyrir einhverri flækju og misskilningi. Fiskamir, 19. febr. — 20. marz Nú skaltu ekki ofgera neinu, en hlustaðu vel á aðra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.