Morgunblaðið - 18.03.1970, Qupperneq 7
MORG>U!NlBLA£>IÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1970
7
ÚR ÍSLENZKUM ÞJÓÐSÖGUM
Sjaldan hef ég flotinu neitað
Sitji maður á krossgötum á ný-
ársnótt, þá verður maður á vegi
fyrir huldufólki því, er flytur sig
búferlum. Kemur það ekki ferð
sinni þá áfram fyrir þeim, er á
götunni situr, og býður það honum
þá alls konar kosti og kjörgripi.
En þegi maður alltaf og sitji kyrr
til dags, þá liggja allar þessar
gersemar eftir. Sumir segja, að
krossgötur þessar eigi að vera svo,
að þær allar fjórar liggi hver um
sig beina leið og án þess að slitna
til einhverrar kirkju. Jón nokkur
settist eitt sinn á krossgötur. Sat
hann þar lengi fyrir álfafólkinu
og þagði, hvað sem í boði var.
Seinast bauð það honum flot, er
Jóni þótti bezt matar. Gat hann
þá ekki stillt sig og mælti: „Sjald-
an hef ég flotinu neitað.” Missti
hann við það allra þeirra gersema,
er honum voru boðnar, og varð
ráðlaus og rænulítill frá þeim tíma,
en hafði þá gáfu að geta sagt fyr-
ir óorðna hluti. Var Jón þessi sið-
að kallaður krukk og er alþekkt-
ur með þvi nafni.
(Nyrðra og syðra. Greinilegast
Gunnhildur Jónsdóttir.)
(Sagnakver Skúla Gíslasonar).
Spakmæli dagsins
Himinninn verður að vera í mér,
áður en ég get verið i himninum.
Stanford.
ÁRNAÍ) HEILLA
70 ára er í dag frú Marta Andr-
ésdóttir, Ránargötu 5.
Þann 27. febr. voru gefin saman
í hjónaband hjá borgardómara,
ungfrú Salome B. Kristinsdóttir
og Unnar M. Andresson. Heimili
þeirra er Walsheim Saar Þýzka-
landi.
Studíó Guðmundar, Garðastræti 2.
FRETTIR
Mæðrafélagið
heldur fund að Hverfisgötu 21
fimmtudaginn 19. marz kl. 8.30.
Félagsmál. Læknastúdent ræðir um
fíknilyf og áhrif þeirra. Gestir eru
velkomnir.
VÍSUKORN
HVÍLD
Svo er það hvíldin sálarró og
friður,
sem oss hentar bezt á hverjum
stað.
í okkar lífi er það okkar stóri
liður
að eiga okkar hvíldar- og
dvalarsamastað.
FARSÆLD
Farsæld eflist, friður haldist
færist líf í þjóð.
Öll hin stóru gjöldin gjaldist
gildan myndi sjóð.
Eysteinn Eymundsson.
Héf ég oft, um bala og börð,
1 Braga túni slegið.
En ekki þiggur andans hjörð,
að eta frá mér heyið.
Ranki.
Á náðina þegar nóg er syndgað
og ndðzt við þolinmæðina,
greipar reiði guðs eru harðar,
er hann grípur í taumana,”
Fornólfur.
GAMALT
OG
GOTT
Stígum við stórum
etundum til grunda,
belg ber eg eftir mér
til barnanna funda.
Hér læt eg skurka
fyrir skáladyrum.
Vaknaðu, Gýgur!
Ei vill Gýgur vakna.
Er orðið framorðið?
Sól á milli augna þinna,
sofa máttu lengur
einn dúrinn, drengur.
Farðu á fætur, Dísa!
úti er kveðin vísa.
Hver er kominn úti?
Björn á brotnu skipi.
Hvað vill hann Björn?
Biðja um nálar.
Hvað vill hann með nálar?
Sauma að segli.
Hvað er að segli?
Slitið af veðri.
Hvað gerðirðu af nálunum,
sem ég fékk þér í fyrragær?
Ég fékk Hala bróður.
Hvað gerði Hali bróðir aí?
Han.n kastaði út á miðjar götur,
og sagðist skyldi brenna
á baki þeim sem ætti,
en ekki sér.
Hvað ertu að gera núna?
Eg er að telja tölur mínar,
og taldi ekki rétt,
eg er að binda skóbönd mín
og batt þau ekki rétt.
Gott bam í kvöld,
heilagt er á morgun.
Eða: Eg er að syngja tölur minar,
bind eg upp á mig skótytjur mínar,
er d skorpnum skinnstakk,
sem skrollir upp á bakinu,
sjóskó á fótunum
og syng ekki hálfvel...
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af séra Guðmundi Guðmunds
syni í Útskálakirkju, ungfrú Ólöf
Hallsdóttir og Jens Sævar Guð-
bergsson. Heimili þeirra er að
Húsatóftum, Garði.
Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af sr. Birni Jónssyni, Kefla-
víkurkirkju, ungfrú Oddfríður Þór
unn Benediktsdóttir, Kirkjuvegi
36, Keflavík og Jóhannes Jóhann-
esson, stýrimaður, Suðurgötu 40.
Heimili þeirra er að Faxabraut 28.
Keflavík.
Gangið úti í
góða veðrinu
Blöð og tímarit
Bjarmi, jan. — febr. 1970, 1.—2.
tbl. 64. árg. er nýkomið út og hef-
ur verið sent blaðinu. Af efni þess
má nefna:
Hún á bangsa og brúðu, Mynd
frá brúðuhátið yngri deilda KFUK
er á forsíðu, Ritstjórnargreinarn-
ar Miskunna þú mér og í örum
vexti, Ég kom til að gerast krist-
inn, Bréf frá Helga Hróbjartssyni,
Konsófréttir, Vitnisburður Kínverj
ans, Úr erlendum blaðagreinum.
Smáhenti Anderson, Hátíðir og
happdrætti, Særðum hjúkrað, Úr
bréfi frá Helga Hróbjartssyni,
„Mér fannst þetta vera kall til
mín”, Úr endurminningum Stein-
unnar Guðmundsdóttur ljósmóður,
Gjafir, Frá heimsborg til hjara
veraldar, Framhaldssaga um
Georg Williams. Lækningabæn etft-
ir Bjarna Brekkmann. Þar hefur
misritazt heimilisfang Bjarna, sem
er að Laugavegi 27 B.
Dýraverndarinn, 6. tbl. des. 1969
er nýkomið út og hefur verið sent
blaðinu. Af efni þess má nefna:
Á náðina þegar nóg er syndgað
eftir ritstjórann, Gömul og ný öfug
mæli eftir Magnús Runólfsson, Villi
dýr og vinir þeirra, Frá aðalfundi
Sambands dýraverndunarfélaga ís
lands, Æðarungarnir eftir Rögnu
Guðmundsdóttur á Ásmundarnesi í
Strandasýslu. Margar myndir
prýða heftið. Ritstjóri er Guð-
mundur Gíslason Hagalín. Prentað
í prentsmiðjunni Odda. Afgreiðslu
maður er Ágúst Vigfússon, Hjarð-
arhaga 32.
FÓRNARVIKA
KIRKJUNNAR
HJÁLPUM KIRKJUNNI
AD HJÁLPA
SÁ NÆST BEZTI
„Er smálest af kolum mjög mikið, pabbi?”
„Það fer eftir þvi, hvort þú ert kaupandi eða seljandi.”
Á faraldsfæti
(Einfalt ráð, sem e.t.v. gæti sparað nokkrar skemmdir á fatnaði, með
tilheyr. gremju og blótsyrðum!).
Ef sléttur frá umferð þú ei vilt fá,
einna bezt verður ráðið þá:
Að staðnæmast þar, sem þurrt er á móti,
þurr munt þú verða, þótt bifreiðin fram hjá þjóti.
Að skammast á eftir er einskisvert,
engan fá skammirnar þurran gert.
Nei, sjáðu einn við sérhverjum vanda,
þá síður munt þú sem glópur á leiðinni standa!
Guðm. Ág.
Góðor vörur - Tryggð verðbréi
Vil selja góðan vörulager gegn greiðslu með tryggum verð-
bréfum.
Þeir, sem hafa áhuga á þessum viðskiptum leggi nöfn sín
inn á afg. Mbl. sem fyrst merkt: „Góðar vörur — 426"s
Viöskiptavinir athugið
Vegna þrengsla verður fatnaður, sem ekiki hefur verið sóttur
úr hreimsun undanfarin ár, seldur.
Fatapressan Úðafoss, Vitastíg 12.
Bændur í Kjulurnesþingi
Almennur bændafundur verður haldSnn á vegum Búnaðarsam-
bends Kjalarnesþings laugardaginn 21. marz kl 13.30 að Fólk-
vangi,. Kjatarnesi. Framsögumenn Gunnar Guðbjartsson for-
maður Stéttarsambands bænda talar um verðlagsmál. Magnús
Sigsíeinsson ráðunautur talar um rafmagn og rafmagnsverð.
Stjómin.
1 nnheimtumaður
Ein af stærstu bygaingarvöruverzlunum borgarinnar óskar eftir að ráða innheimtumann, sem hefur bifreið til umráða.
Tilboð er greini kaupkröfur og uplýsingar um sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 20. marz merkt: störf — 2663", fyrri störf, .Innheimtu-
Til sölu
3ja herb. íbúðir í f jölbýlishúsi við Erluhraun
í Hafnarfirði íbúðirnar seljast í fokheldu
ástandi Bílskúr fylgir einni íbúðinni. íbúð-
irnar eru staðsettar í góðu íbúðahverfi rétt
hjá Öldutúnsskóla. Beðið verður eftir Hús-
næðismálaláni út á íbúðirnar.
Arni grétar finnsson, hrl.,
Strgndgötu 25 — Sími 51500.
Til sölu
Óskað er eftir tilboðum ! eftirtáldar bifreiðar og tæki:
R. 14973 Land-Rover diesel '63 model.
R. 13944 VW rúgbrauð '63 model.
R. 13579 VW pallbíll með 6 manna húsi, '63 model.
Galion 358 valtari 7—9 tonna.
Ofantalið verður til sýnis ! porti Vélamiðstöðvar Reykjavíkur-
borgar, Skúlatúni 1, i dag og á morgun.
Tilboðin verða opnuð ! skrifstofu vorri kl. 11.00 föstudaginn
20. þ.rn.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirlcjuvegi 3 — Sími 2S800
Fasteignir til sölu
Nær fullbyggt einbýlishús á Arnarnesi, 210 ferm. á hæð og
70 ferm. i kjallara. Tvöfaldur bilskúr. Hagstætt verð og góðir
greiðsluskilmálar. Skipti á einbýlishúsi, raðhúsi eða sérhæð
í Reykjavík æskileg en önnur eignaskipti koma og til greina.
4ra herbergja íbúð 116 ferm. að stærð i nýlegu sambýlishúsi
viö Bræðraborgarstíg. Ibúðin lítur mjög vel út og er laus til
afnota strax. Hagkvæm íbúð á sanngjörnu verði.
stefAn hirst
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 18 — Sími 22320.