Morgunblaðið - 11.07.1970, Page 1

Morgunblaðið - 11.07.1970, Page 1
28 SIÐUR 153. tbl. 57. árg. LAUGARDAGUR 11. JlJLÍ 1970 Prentsmiðja Morgunblaðsins „I fyrirsvari 1 þjóðlífi voruu... Sorgarorð forseta íslands, herra Kristjáns Eldjárns við andlát dr. Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, Sigríðar Björnsdóttur og Benedikts Vilmundarsonar, dóttursonar þeirra. ÞAU sorgai’tíðindi spurðust snemma morguns í dag, að forsætisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, kona hans, frú Sigríður Björnsdóttir, og ungur dóttursonur þeirra, Benedikt Vilmundai’son, hefðu látið lífið, er forsætis- ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum brann, þegar skammt var liðið nætur. Slíkur atburður er hörmulegri en svo, að orðum verði yfir komið. í einu vetfangi er í burtu svipt traust- um forustumanni, sem um langan aldur hefur staðið í fylkingarbrjósti og verið í fyrirsvari í þjóðlífi voru, og meö honum ágætri konu hans, er við hlið hans hefur staðið með sæmd og prýði, og ungum sveini, sem var yndi þeirra og eftirlæti. Hér er skarð fyrir skildi, en á þessari stundu kemst ekki annað að í huga vorum en sorg og samúð. Það er stundum sagt að íslenzku þjóð- inni sé helzt að líkja við stóra fjölskyldu. Sannleik þeirra orða skynjum vér bezt á stundum mikilla tíðinda, til gleði eða sorgar. Þjóðin er harmi lostin og syrgir for- sætisráðherrahjón sín. Ég mæli fyrir munn allra lands- manna, þegar ég læt í ljós djúpa hryggð mína og votta börnum og allri fjölskyldu þeirra hjónanna samúð, svo og öllum þeim öðrum, er nú syrgja sveininn unga. %

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.