Morgunblaðið - 07.10.1970, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBBR 1970
23
skáldagáfuna í vöggugjöf. Hún
segir það sjálf svona:
Ljóðþráin ljúfa
lagði um mig arm,
lyfft mér um ljósan heim,
léttd mínum harm.
Það var unun að heyra hana
flytja kvæði og þulur bæði eftir
sjálfa sig og aðra. Hún stóð þar
svo yfirlætislaus, róleg og ör
ugg, meðan orðin streymdu frá
vörum hennar blaðalaust. Rödd
in hennar var hrein og mjúk.
Þá tókst vinátta með okkur og
ánægjustundir urðu margar.
Við vissum öll, að heimurinn
hefur breytzt og við eigum bágt
með að skilja margt í nútíma
félagi, en við vitum líka, að hug
sjón okkar um mannkææleika
og góðvild í daglega lífinu, er
ekki gamaldags en sigild, ef mað
urinn á að vera hamingjusam
ur. Þannig voru okkar samfund
ir.
Núna erum við aðeins þrjár
eftir. Guðbjörg Kristjánsdóttir,
sem var ein okkar, lézt fyrir
hér um bil tveim árum þá 95
ára að aldri en full af lífsvilja,
bein í baki, fín og falleg, mild
og góð. Við söknuðum Guðbjarg
ar mikið úr okkar litla hópi.
Það var eitthvað sérstaklega
hreint yfir Guðrúnu. Hárið var
orðið snjóhvítt. Hörundið var
ljóst og fínt, hendur mjúkar og
hvítar eins og á ungling til síð
ustu stundar. Hún var svip
hrein, heilsteypt og góð. Guð
rún var skáld. Hún sá, heyrði
og hana dreymdi fyrir óorðnum
hlutum. Það var oft eins og hún
væri i öðrum heimi, eins og
stendur í þulunum hennar:
Líðum við um loftin blá
lífið verður heilög þrá
allt um kring má svæðið sjá
sólargeislum vafið.
Þrátt fyrir það vann hún öll
sin skyldustörf og var sérstak
lega verklagin.
Hún minntist oft á bernsku
heimili sitt í Sveinatungu og
foreldra sína. Þar hafði hún
dvalið alla sína tíð, nema þann
stutta tíma, sem hún var í hús
mæðraskólanum á Blönduósi,
þangað til hún giftist Berg
sveini Jónssyni, síðar verzlun
armanni. Þau reistu bú í Reykja
vík og eignuðust þrjár dætur.
Eftirstríðsárin voru erfið, en með
sameiginlegum dugnaði tókst
þeim að skapa sér ágætt heim
ili. Að heimilisandinn hefur ver
ið góður vitum við, sem þekkt
um Guðrúnu og Bergsvein. Þau
höfðu verið sammála um frá
fyrsta degi hjónabandsins, að
enda daginn aldrei ósátt — og
þau efndu það. Þau urðu fyrir
þeirri sorg, að elzta dóttir þeirra
dó af barnsförum og nýfædda
barnið líka, en unga konan bað
móður sína að annast eldra barn
ið, sem var á öðru ári.
Guðrún var elskuð, ekki að
eins af manni, börnum og barna
börnum. Tengdasynirnir vildu
líka allt fyrir hana gera. Það
var eins og hún seiddi til sín
fólk, sem átti bágt. Seinustu ár
in, þegar hún var orðin veik,
fann hún sárt til, að tíminn ent
ist ekki til að sinna öllum þeim,
sem hún vildi hjálpa, og henni
fannst það líka sárt að hafa ekki
tima og næði til að yrkja. Svo
gerðist það, að Bergsveinn veikt
ist og lá lengi á spítala. Alltaf
heimsótti Guðrún hann tvisvar
á dag, hann óskaði þess. Þegar
hann kom heim, var hún orðin
mikið veik, en til hinztu stund
ar vildu þau vera saman, hjálp
uðust við nauðsynleg heimilis
verk á meðan kraftar entust.
Það er nú liðið eitt ár, síðan
Bergsveinn lézt. Okkur fannst
þá, að Guðrún væri líka öll.
Hún var alltaf mild og góð, en
veikindin ágerðust. Hún var hjá
dætrum sínum á meðan mögulegt
var, en lengst af var hún
á spítala, síðast á „Grund", þar
sem allir voru henni góðir.
Nú er hún horfin okkur, og
við söknum hennar sárt. Við vilj
um ljúka máli okkar með henn
ar eigin orðum úr einni þulu
hennar:
Og það er einmitt þessi stund,
þegar ég er að bíða
eftir dauðans einkafund,
að ég veg mitt lífsins pund.
Löndin hverfa, lokast sund
lægir angri og kviða.
Allir skuggar út í geiminn líða.
Huganum birtist helgisýn
herrans náð og miskunn skín,
hann borgaði fyrir brotin mín,
úr benjum sé ég drjúpa,
við krossinn vil ég krjúpa.
Hér er enduð ævin min,
ekki er þörf að kvarta.
Ég sé nú inn á sólarlandið bjarta.
Vinkonur.
Fi'ú Guðrún Jóhannsdóttir,
skáldkona, andaðist snemma
morguns þann 29. september s.l.
Ungur kynntist ég Guðrúnu,
vegna tengsla hennar við fjöl
skyldu mína og var hún mér
strax kær og góður vinur. Ég
var heimagangur á heimili henn
ar og Bergsveins eiginmanns
hennar og naut þar i ríkum mæli
þeirrar gestrisni og hlýju, sem
jafnvel barnssálin ein finnur
bezt og sáði Guðrún þar mörgum
frækornum, sem ég mun seint
gleyma.
Skilningur hennar á börnum
og heimilislífi var einstakur
enda var Guðrún trúuð kona.
Mér fannst hún gefa svo mikið.
Kærleikur og hjartahlýja voru
þar í öndvegi. Maður varð ósjálf
rátt betur þenkjandi eftir hverja
samverustund með henni. Hún
var starfsöm kona, sem féll
aldrei verk úr hendi, enda kunni
hún bezt við sig við skriftir eða
hannyrðir að dagsverki loknu
og liggur þar margt fagurt lista
verk eftir hana.
Hún sendi m.a. frá sér fimm
ljóðabækur og er þar að finna
mörg gullkorn úr penna Guðrún
ar.
Móður minni og systkinum var
Guðrún einkar kær og eigum við
margar minningar um ánægjuleg
ar samverustundir liðinna ára.
Fyrir allt það vil ég nú þakka
af heilum huga og það er hugg
un harmi gegn dætrum hennar,
tengdasonum og barnabörnum,
hugljúfar minningar um góða
móður og ömmu, sem að vissu
leyti var sérstök sakir mann
kosta sinna og hæfileika.
Frú Guðrún Jóhannsdóttir var
fædd 21. júní 1892 í Sveinatvngu.
Foreldrar hennar voru sæmdar
hjónin Ingibjörg Sigurðardóttir
og Jóhann Eyjólfsson, sem síðar
bjuggu að Brautarholti á Kjal
arnesi, en við Brautarholt var
Guðrún lengst af kennd þó að
hún flyttist þangað ekki fyrr en
1915 og væri alla tíð sannur
Borgfirðingur. Hún var elzt átta
systkina og þurfti því snemma að
taka til hendinni, því mannmargt
var löngum á hennar heimili.
Eftir lifa nú aðeitns fjögur systk
ina hennar. Þau Helga, Lára,
Vagn og Skúli og fósturbróðir
Jóhann.
Hún giftist Bergsveini Jóns
syni, 7. júní 1919. Þar tengdust
tvær sálir svo sterkum böndum,
að ég tel fátítt. Er Bergsveinn
andaðist fyrir tæpu ári síðan má
segja, að Guðrúnu hafi þá fund
izt jarðvist sinni lokið, svo mjög
unni hún honum, að söknuður
inn bar hana ofurliði. Þau áttu
saman 3 dætur, sem allar hafa
borið foreldrum sínum og
bernskuheimili fagurt vitni.
Guðrún var þeirra elzt. Hún
dó á bezta aldri og var öllum,
sem til þekktu, mikill harmdauði.
Hún var þá nýlega gift Jóni Hall
dórssyni og áttu þau eina dótt
ur, Steinunni, sem þá var
tveggja ára. Steinunn ólst síð
an upp á heimili ömmu og afa og
er nú gift Árelíusi Harðarsyni.
Hinar tvær dæturnar eru Guð
björg, gift Halldóri Þórhalls
syni og Ingibjörg, gift Magnúsi
Erlendssyni.
Góð kona er gengin, en minn
ingin mun lifa um góðan sam
ferðamann.
Er hinzti svefninn hjarta
stöðvar mitt,
herra, sál mín þráir ríkið þitt.
í arma þína andinn glaður flýr,
um eilífð sæll í návist þinni býr.
Þannig lýkur Guðrún einu
kvæða sinna.
Blessuð sé hennar minning.
Hermann Bagnar Stefánsson.
Skrifstofumaður
Vanur áhugasamur skrifstofumaður óskast á stóra skrifstofu
í Reykjavík. Hér er um að ræða vellaunað framtíðarstarf
fyrir góðan starfsmann.
Upplýsingar er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist
afgr. Mbl. fyrir 10. október merktar: „Skrifstofumaður — 3692",
Aðalfundur
Aðalfundur Stjómunarfélags Norðurlands verður haldinn að
Hótel K.E.A., Akureyri, sunnudaginn 11. október kl. 14.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf .lagabreytingar o. fl.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
STJÓRNIN.
Stjórnunarfélag IVorðurlands
Greiðsluáætlanir,
Dagana 9., 10. og 11. október 1970 verður haldið námskeið
í greiðsluáætlunum fyrir stjórnendur fyrirtækja og fulltrúa
þeirra. Staður Hótel K.E.A., Akureyri. Tími: Föstudagur 9. októ-
ber kl. 14.
Eftirfarandi atriði verða tekin fyrir:
Hvers vegna gerum við áætlun?
Hver er grundvöllur greiðsluáætlunar?
Ennfremur rekstursreikninga, rekstraráætlanir.
Efnahagsreikningar, fjármagnsstreymi o. fl.
Leiðbeinandi Benedikt Antonsson, viðskiptafræðingur.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í slma (96 ) 2-15-20 eða
(96) 2-16-11.
— Komið — kynnizt — fræðizt. —
Sendisveinar
óskast
hálfan eða allan daginn.
Talið við afgreiðsluna, sími 10100.
Mjólkin er bezt
MEÐ
ROYAL búöing
Reynið ROYAL
„Milk-shake"
Leiðbeiningar
aftan ú
pökkunum
mi 1:19 ■
Vestfirðingar! Vestfirðingar!
Aðalfundir
Klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR á Vestfjörðum verða að for-
fallalausu sem hér segir:
I. Á Patreksfirði — Hótel Sólberg — föstud. 9 okt. kl. 21.00.
II. Á Flateyri — Samkomuhúsinu — laugard. 10. okt. kl. 16.00.
III. Á Isafirði — Mánakaffi — sunnud. 11. okt. kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Ávarp formanna klúbbanna: Jóhannesar Halldórssonar,
Páls Pálssonar og Guðmundar Sveinssonar.
2. Afhending viðurkenningar- og verðlaunamerkja SAM-
VINNUTRYGGINGA 1969 fyrir 5 og 10 ára öruggan akstur.
3. Stutt erindi og umræður — framsögumenn Stefán Jasonar-
son frá Vorsabæ — formaður LKL ÖRUGGUR AKSTUR —
og Baldvin Þ. Kristjánsson.
4. Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum.
5. Kaffiveitingar í boði klúbbanna.
6. Umferðarkvikmynd: „VETRARAKSTUR".
Klúbbfélagar eldri sem yngri, fjölmennum!
Allt áhugafólk velkomið!
Stjómir
Klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR
á Vestfjörðum.
SAUMAVÉL. Þetta nýja model hefur nú verið á markaðinum
í 4 ár og líkað mjög vel. Miklar endurbætur hafa verið gerðar
t. d. fleiri útsaumsmöguleikar, rennilásafóður, ein mynzturskífa
í stað 20 áður.
Sjálfvirk Z.ig Zag, sjálfvirk hnappagatastilling, ný og falleg
taska. Ýmsar nýjungar — eins árs ábyrgð — íslenzkur leiðar-
vísir — kennsla innifalin í verði. Viðgerða- og varahlutaþjón-
usta.
Verð aðeins ................................... kr. 9985,00
.nNnmniHimimim'immmhmiiiimiitiitmiMiitio
aup
imiliiumHiHtNHIHNHIHMtlHHIIlimmimmm
inmitt««.
mntitttittf.
ittmmmtttf.
miimmtmt*
tittmtmttiHi
iintmtttmtm
itmmttitmm
timmitmmi
imttimmtti*
btmtHtiitti*
[tmtmm*