Morgunblaðið - 07.10.1970, Blaðsíða 28
28
MORGUTíBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1970
L
ástæðum viljað láta það liggja i
þagnargildi. Hún var vel efnum
búin, eftir þvi sem um er að
gera hjá þessum sumargistihúss-
höldurum. Skyldi það vera satt,
að hún hafi átt ein sautján þús-
und pund?
— Er það, sagði Raebum.
— Ég vissi, að þú mundir ekki
staðfesta það. Sagði það bara til
þess að sýna þér, að ég heyri
sitt af hverju.
— Hefurðu þá nokkurn tíma
heyrt nokkuð um ungfrú Und-
erwood, sem var einkennilegt
eða grunsamlegt?
— Nei, ég vildi óska, að ég
hefði það. Þá gæti það komið að
gagni og þú mundir muna eftir
mér. En ég veit ekki neitt. Ég
veit, að þið gætuð fyllt bæinn
33.
hann var greindarlegur á svip-
inn. Hver vissi nema hann gæti
orðið að gagni. — Hvað
áttirðu við með því, hvort rétt-
arhaldið hefði verið uppgerð?
Veizt þú eitthvað um fráfall ung
frú Underwood? Sé svo, er það
skylda þín að segja Werner fuli
trúa frá þvi.
— Ég veit ekki neitt —
og auk þess lítur Werner mig
hornauga. Ég er of hnýsinn. Rae
burn smábrosti. — En ég veit,
að ef þetta fráfall væri allt það,
sem það sýnist, værir þú ekki
hérna. Mér var að detta í hug,
að hún hefði verið flækt í ein-
hverja glæpastarfsemi og hefði
svo framið sjálfsmorö, þegar
böndin tóku að berast að henni
og að þú hafir af einhverjum
hérna af lögreglumönnum og lát-
ið þá hamast í bæjarbúum,
en þeir eru bara flestir aðkom-
andi og fólk mundi halda hlífi-
skildi yfir þeim. En með mig ger
ir það ekkert til, þar sem ég er
bæjarmaður og fólk er svo vant
snuðrinu i mér. Heyrðu, þegar
ég kem til London, skal ég
skrifa um þín afrek í hverri
viku.
— Þú ert að minnsta kosti
sæmilega framur, sagði Raeburn
þurrlega.
— Víst svo. Ég kæmist nú
heldur ekki langt án þess. Var
kerlingin drepin? Þú þarft nú
ekki að svara því. En hvar
finnst kannski kerling um fimmt
ugt, sem ekki er áhyggjufull út
af einhverju? Ef ég fyndist
Verkstjóri og verkomaður
óskast til starfa í vörugeymslu okkar.
Upplýsingar í skrifstofunni Mjölnisholti 12
kl 5—7 í dag.
Bananasalan.
CHLORIDE
RAFGEYMAR
HINIR VIÐURKENDU
RAFGEYMAR
ERU FÁANLEGÍR Í
ÖLLUM KAUPFELÖGUM OG
BÍFREIÐAVÖRUVERZLUNUM.
drukknaður á morgun mundi
fólk segja, að það hefði verið af
áhyggjum út af þvi að komast
ekki að við eitthvert blað í
London.
— Þú talar nokkuð mikið,
sagði Raeburn. Warham hætti
öl'lu glensi og gerðist alvöruleg-
ur á svipinn.
— Það mundi ég ekki gera, ef
ég hefði nokkra ábyrgðartilfinn
ingu. Svei mér þá! Ég er eng-
inn blábjáni. Ég vil bara gera
þig hrifinn. Lofaðu mér að
hjálpa þér ef ég get. En ég get
það, mundir þú þá mæla með
mér við eitthvert blaðið? Gæt-
irðu það? Vitanlega yrði það
mest undir sjálfum mér komið.
— Gott og vel, sagði Rae-
bum. Ég segi þér ekki neitt og
viðurkenni ekki neitt. En ég
skal gefa þér nafn og símanúm
er. Haltu áfram að snuðra um
ungfrú Underwood. Ef þú heyr
ir eitthvað um hana eða fráfall
hennar, sem gagn gæti verið i,
þá hringdu í Whitehall 7100 og
spurðu um Raeburn.
— Hvernig finnurðu þessi dui
nefni? sagði Warham. Finn-
ur lögreglan þau handa ykkur,
eða finnið þið þau sjálfir?
— Við fáum alltaf skrá i sokk
unum okkar á jólunum.
— Það skal ég muna. Heyrðu
nú, ef þú ætlaðir að drepa ein-
hvern á bílgasi, hvernig feng-
irðu þann sama til að kaupa
slönguna sjálfur? Eða var hún
bendluð við eitthvað, sem var í
þann veginn að komast upp og
gerði það raunverulega sjálf ?
— Þú hefur símanúmerið,
sagði Raeburn. — Hvenær sem
þú verður einhvers vísari, þá
hringdu mig upp.
XV.
Peter Loder var slituppgefinn
og þurfti sýnilega að taka sér
frí, en beinlínis veikur var
hann ekki lengur. Hann hallaði
sér nú aftur á bak í hæginda-
stólnum i skrifstofu Mark Rae-
burns.
— Við skulum byrja á grund-
vallaratriðunum, sagði hann, —
á því, sem við vitum fyrir víst.
1 fyrsta lagi: Theotoeopoulis
myrti Edith Desmond. Hann leit
á Raebum, sem stóð úti við
gluggann og reyndi að sjá á
svipnum á honum, hvort hann
væri samþykkur eða ósamþykk-
ur en andlitið á Raeburn var
álíka svipbrigðalaust og á Indi-
ána. Loder yppti öxlum. — Já,
andskotinn hafi það — hann
hlýtur að hafa gert það. Hann
er þannig maður og hann hefur
haft svipað á samvizkunni áður.
Hann laug að okkur og reyndi
að búa sér til fjarverusönnun.
Klúturinn hans fannst á staðn-
um. Og hann hefur auk heldur
játað. Við skulum nú ekki fara
að vera alltof klókir. Að mínu
viti er enginn vafi á þvi, að
hann framdi morðið. En hann
var fenginn til þess. Aftur leit
— Jlamraa, nú hef ég sýnt bangsa hvemig á að opna ísskáptnn.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Þeir, sem eru leiðitamir hafa það sýnum betra í dag, en þeir, sem
halda um stjórnvölinn.
Nautið. 20. apríl — 20. maí.
Haltu þig heima við, svo að þú farir cinskis á mis.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Haltu áfram fast um pyngjuna og reyndu að slétta úr misfeilum.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Það er vandalaust að eiga við vini sína, en samstarfsmenn eru
ekki eins þjálir í meðförum.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Fljótt greiðist úr viðskiptaflækjum, en ágreiningur er meðal vina
og vinnufélaga.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þolinmæði er það haldbezta, sem þú átt til I dag. Sparaðu eins og
þú frekast mátt.
Vogin, 23. september — 22. október.
Það gerist lítið í dag, en þér gefst tækifæri á að hressa upp á
mannþekkinguna.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Það skiptir höfuðmáli að fara ekki með fleipur, og vera um leið
háttvís á hirðmannavísu.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Tillitsleysi kunningjanna veldur smávegis ruglingi.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Alls kyns tilfæringar í sniði og á yfirborði krefjast tíma þíns.
Einkamálin reyna á taugarnar og þú færð kannski fréttir, sem gera
lítið til að gleðja þig.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Óvænt atvik breyta ýmsu, og þar á meðal leyndustu vonum þín-
um. Haltu áfram eins og ekkert hafi í skorizt.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Forðastu allt kák í fjármálum. Þú færð styrk ef þú reynir að
bæta ráð þitt.
Loder upp, og enn gat hann
ekkert fundið í svip Raeburns,
hvorki uppörvandi né hið gagn-
stæða. Og enn hélt hann áfram:
— Allt andrúmsloftið kring-
Æsláttapfapgjöld
innanlands «k
Jlfsláttup fypip tiópa
Hópum 10—15 manna og stærri, er
veittur 10%—20% afsláttur.
Skrifstofur flugfélagsins og
umboðsmenn um land allt veita
nánari upplýsingar og fyrirgreiðslu.
FLUGFÉLAG /SLAJVDS
um morðið gefur þetta til
kynna. í fyrsta lagi er það of
hæpið, að Edith Desmond skyldi
hafa verið myrt fyrir hreina til-
viljun, rétt eins og einhver
stelpugarmur að koma heim úr
skrifstofunni sinni. Edith Des-
mond var flækt í eitthvað og
var þess vegna myrt. Að baki
þessu morði liggja mörg og marg
vísleg atvik. Þau ráku Evelyn
Underwood út í sjálfsmorð. Hún
hefur eitthvað verið við þetta rið
in. Kannski hafa þær verið í
félagi um einhverja fjárplógs
starfsemi. En þar með er ekki
allt upptalið. Einhver annar hef
ur verið með þeim. Einhver, sem
sigaði Theotocopoulis á Edith.
Hamingjan má vita, hvernig að
því hefur verið farið. Hvernig
farið þið með kynæðinga? Nú
talaði Raeburn I fyrsta sinn á
tíu mínútum.
— Er enginn vafi á að Theo-
tocopoulis sé það?
— Enginn mínnsti vafi. Við
höfum farið gegnum skýrsl-
urnar um hann í smæstu smá-
atriðum. Hann kom hingað til
lands fyrir sjö árum, og hann
var fyrst kærður fyrir fimm ár-
um. Hann réðst á stúlku við veð
hlaupabrautina í Brighton og
fékk þá sex mánuði. Ég hef les
ið hraðritaða skýslu um réttar-
höldin. Það var sérkennilegt
mál. Vottorð báru það með sér,
að hann væri vitgrannur og geð
veikur. Honum var gefin ávísun
á sjúkrahús, en auðvitað fór