Morgunblaðið - 21.10.1970, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1970
FRÉTTAMYNDIR
úr ýmsum áttum
Þetta er sovézka flug-freyjan Nadejda Kurchenko, 21 árs, frá
Úkraínu, sem skotin var til bana er tveir feðgar frá Litháen
rændu sovézkri farþegaflug-vél í innanlandsflugi í; síðastliðinni
viku og neyddu hana til að Ienda í Tyrklandi.
Hér sést blökkukonan Angela Davis milli tveggja lögreglu-
manna úr bandarísku alríkislögreglunni, FBI, eftir handtöku
hennar í New York í sl. viku. Hennar hefur verið leitað ákaft
frá því 7. ágúst, er blökkumenn rændu dómara úr réttarsal í
Kaliforníu og reyndu að komast undan með hann og tvo saka-
menn, en dómarinn lét lífið í átökum utan réttarsalarins, svo og
mannræningjamir. Angela Davis mun hafa keypt byssur þær,
sem notaðar voru við þetta tækifæri. Hún er yfirlýstur komm-
únisti og hafði áður vakið mikla athygli er henni var vikið úr
kennarastöðu við háskóla í Kaliforníu.
Að undanförnu hcfur verið mjög óeirðasamt í þorpinu Reggio Calabria á ftalíu, og stafar það
af því að ibúar þar eru hinir reiðustu yfir þvíað Reggio var ekki gerð að höfuðborg Calabríu-
héraðs. Þessi mynd var tekin fyrir helgina í borginni cr stórvirk tæki og bifreiðar frá ítalska
hernum voru að hreinsa á brott götuvígi, en alls hafði 200 slikum verið komið fyrir í borginni.
ítaliustjórn sendi 1,800 manna herlið til borgarinnar til að bæla óeirðirnar niður
ísraelskar valkyrjur! — Svo sem kunnugt er gegna stúlkur í fsrael herþjónustu, og eru þvi
margar sveitir fsraelshers hinar föngulegustu. Hér sést sveit ísraelskra stúlkna, búin vélbyssum,
standa hciðursvörð er Golda Meir, forsætisráðherra, lagði í þriggja vikna för til Randaríkjanna.
I farangursgeymslu bifreiðar þessarar fannst lík verkalýðsmálaráðherra Quebec-fylkis i Kanada,
Pierre Laportes, sl. laugardagskvöld. Bifreiðin fannst við St. Hubert-flugvöll, skammt sunnan
Montreal. Laporte var rænt 10. október síðastliðinn af meðlimum Frelsishreyfingar Quebec, FLQ.