Morgunblaðið - 15.01.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1971
17
Prestafélag íslands
— mótmælir kjarasamningum
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt eftirfarandi greinargerð frá
stjóm Prestafélags íslands vegna
nýgerðra kjarasamninga rikis-
starfsmanna. Það skal tekið
fram, þar sem greinargerðin er
dagsett 22. des. sl., að blaðinu
barst hún í hendur 13. janúar.
Greinargerðin er svohljóðandi:
Prestafélag Islands mótmælir
samningum þeim, er nú hafa
gerðir verið um kjör prestastétt
arininar.
Prestafélag fslands ásakar
samninganefnd ríkisins og
B.S.R.B. um vanþekkingu á kjör
um prestastéttarinnar og lítils-
virðingu í hennar garð, þar eð
samninganefnd ríkisins og
B.S.R.B. hafa verzlað með kjör
hennar og skipað prestum í
launaflokk, sem með engu móti
hæfir menntun og starfi þeirra,
ef miðað er við starfsmat það,
er þessir aðilar létu gera. Sam
kvæmt þessu svonefnda starfs-
mati ber sóknarprestum staða í
hærri launaflokki. Munu þessir
aðilar ekki treystast til að bera
brigður á það.
Auk þessa var starfsmat þetta
svo úr garði gert, að erfitt var
að fella það að prestsstarfinu
almennt, þótt menntunaratriði
fari ekki milli mála.
Telur Prestafélag íslands, að
vanþekking þessara aðila á
preststarfinu, sem margoft hefir
sýnt sig í orðum og gjöirðum,
hafi ráðið miklu um þessa nið-
urstöðu. Starfslýsing var þeim í
hendur fengin, en samninga-
nefndir virðast ekki hafa kunn
að að lesa úr henni sakir van-
þekkingar og annarlega sjónar-
miða.
í orði kveðnu er svo látið
heita, að prestastéttin hafi ver-
ið færð niður vegna aukatekna.
Þetta atriði sýnir mjög greini-
lega vanþekkingu samningsaðila
eða skort á réttsýni.
Ráðuneytum þeim, sem fjalla
um málefni prestastéttarinnar,
er svo vel kunnugt um þau atr-
iði, sem að aukatekjum lúta, af
viðtölum og skýringum forsvars
manna prestastéttarinnar um
árabil, að það er hrein ósvífni
að nefna þær i sambandi við
k j arasamninga.
Ráðuneytum þessum er vel
kunnugt um það, að allur þorri
prestastéttarinnar hefir vart
annað en kostnað við svonefnd
aukaverk. Þetta veit almenning-
ur einnig, sem nýtur þjónustu
presta. Undantekningar á þessu
eru prestar í þéttbýli. Árstekj-
ur þeirra eru þó vart meiri en
mánaðartekjur héraðslæknis af
aukaverkum sinum. Héraðslækn
ar eru 3 flokkum (26. flokkur)
hænri í embættislaunum og vita
allir fyrir hvað þau eru greidd.
Með þessum orðum er engri
rýrð kastað á héraðslækna, —
þeir eru vel að sínum embættis-
launum komnir —, heldur er
sýnt með þessgri ábendingu, að
ekki er litið með sanngirni á
starf og starfsaðstöðu sóknar-
prestanna.
Prestastéttin var svipt embætt
isbústöðum í þéttbýli með lög-
um frá Alþingi árið 1968, en í
reynd voru þeir sviptir þeim
fyir. Meðal raka fyrir kjara-
skerðingu þessari voru auka-
tekjur. Þær virðast koma ærið
oft við sögu, þegar prestar eiga
í hlut. Auk þessa má geta þess,
að samin var reglugerð um húsa
leigu presta í embættisbústöð-
um, og átti hún að taka gildi 1.
apríl 1970. Hún hefði náð til
þeirra presta, er tekið hefðu við
embætti, skipt um prestaköll
eða embættisbústaði eftir þann
tíma. Við samningu reglugerðar-
imnar tókst ekki betur til en svo,
að nokkrum prestum, einkum
þeim, sem hlotnazt hefði að búa
í mannsæmandi húsnæði, var
gert að greiða meir en helming
mánaðarlauna í húsaleigu á
mánuði. Undir þessa smíð setti
fjármálaráðherra nafn sitt. Þessi
reglugerð kom þó ekki til fram
kvæmda vegna þess að fyrrv.
kirkjumálaráðherra og fjármála
ráðherra var bent á þessa óhæfu
af stjórn Prestafélags íslands og
stúdentum í Guðfræðideild.
Þetta var freklegt tilræði við
prestastéttina. Þá var ný reglu-
gerð samin um húsaleigu, og
leigukjör lækkuð um nær helm-
ing, þar sem hæst hafði verið.
Þessi vinnubrögð á fyrri reglu
gerð sýna ekki lit'la líitilsvirð-
ingu og vanþekkingu á kjörum
sóknarpresta auk skorts á rétt-
sýni og heiðarlegum vinnu-
brögðum.
Starfsmenn ríkisins, sem hafa
ferðalög að kvöð, hafa fengið
greiddan ferðakostnað úr ríkis-
sjóði kr. 7,25 á ekinn km, eða
eftir reikningi. Sóknarprestar
hafa ferðalög í embættisþágu að
kvöð. Þeir hafa ekki fengið slík-
ar greiðslur á sama hátt og aðr-
ir ríkisstarfsmenn til þessa dags,
þótt þeim beri þær og hafi ver-
ið heitið þeim fyrir meir en ári
síðan, en daufheyrzt hefir verið
við beiðni um þessar greiðslur
um árabil, heldur hafa prestum
verið greiddar kr. 600.00 — sex
bundruð — á mánuði. Loforð
um réttmætar greiðsilur hefir
ekki verið efnt og ofan á það
bætist, að sannanlegan kostnað
við ferðalög í embættisþágu
hafa prestar ekki fengið frá-
dreginn til skatts. Sóknarprestar
hafa þannig rekið embætti sitt
af embættislaunum sínum að
verulegu leyti auk risnu, sem
þeir hafa látið í té um gjörvallt
landið og allur þonri manna
kannast við.
Sóknarprestar reka þessi við-
skipti að gefnu tilefni. Þeir óska
ekki eftir ívilnun í kjöirum um-
íram aðra og kasta ekki rýrð á
aðrar stéttir, þótt þeir bendi á
misræmi og misrétti. Þeir krefj-
ast þess, að þeir séu látnir njóta
réttsýni í kjörum. Prestastéttin
mun ekki láta sitja við orðin
ein í þessu efni, ef þau duga
ekki til þess að heiðarleg vinnu-
brögð og réttsýni verði viðhöfð
í gerð kjarasamninga. Hún átel-
ur þá skipun mála, að hún hefir
ekki tækifæri til að bera hönd
fyrir höfuð sér á vettvangi
kjarasamninga og lýsir fyllsta
stuðningi við sjónarmið BHM
og gagnrýni á gerð núverandi
samninga.
Prestafélag íslands telur, að
vart taki því, að tala um hlut
B.S.R.B. í kjörum sóknarpresta.
Traust prestastéttarinnar á
B.S.R.B. er þorrið og hefir hún
sýnt það með því að segja skilið
við þau samtök.
Prestafélag íslands tekur af
heilum hug undir kröfu BHM
um aðild að kjaragerð og fullan
samningsrétt og telur vansæmd
að því fyrir ríkisvaldið og
B.S.R.B., að hafa ekki tekið til-
lit til réttmætra sjónarmiða
BHM við nýgerða kjarasamn-
inga.
Reykjavík, 22. des. 1970
Stjórn Prestafélags fslands.
Til sölu
Til sölu miðsvæðis í Kópavogi einbýlishús, húsið er á tveim
hæðum Á 1. hæð eru 3 herbergi, eidhús og bað, á 2. hæð eru
3 svefnherbergi. Þá fylgir einnig rúmgóður bilskúr með mjög
góðu geymslurými. Ræktuð og girt lóð. Mjög hagstætt verð
og greiðsluskiimálar ef samið er strax.
Til greina kæmi að taka 3—4 herbergja íbúð uppí.
Allar nánari upplýsingar í síma 18138.
Mótatimbur
Óskum eftir að kaupa notað mótatimbur 1"x6 (um 15000
fet) 1"x4" og 1|"x4" (um 4000 fet).
Upplýsingar í síma 21438 eftir kl. 14.00 laugardag og surinu-
dag. Aðra daga eftir kl. 19.00.
F ramtíðarstarf
Kaupfélag á Suðurlandi óskar eftir vönum
bókhaldsmanni til starfa nú þegar.
Upplýsingar gefur
STARFSMANNAHALD S.Í.S.
hálfan daginn.
Sendisveinn
ósknst
SAMVINNUBANKINN
Bankastræti 7, sími 20700.
Nýja símanúmerið okkar er
8-55-22
VWEYFILL
Lóð — Kópavogur
Óska eftir að kaupa lóð undir einbýiishús í Kópavogi.
Einnig kæmi til greina að kaupa einbýiishús á öllum
gyggingarstigum.
Upplýsingar í síma 41303 í dag og næstu daga.
Málmar
OPNUM Á NÝ LAUGARDAG eftir langvarandi veikindi og
kaupum allan málm nema járn, allra hæsta verði.
Um leið óskum við öllum viðskiptavinum vorum gleðilegs
nýárs með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum.
ARINCO Skúlagötu 55,
símar 2806 og 33821.
NECCHI
Hin heimsþekkta saumavél
VERÐ AÐEINS 11.230 KR.
Saumar m.a. skrautsaum, fangamörk,
útsaum, hnappagöt, festir á hnappa og
stoppar í göt. Algerlega sjálfvirk.
Þusundir nnægðra notendn
um ullt lund snnnu kosti
NECCHl suumuvélu.
35 úrn reynslu hér ú lnndi
FÁLKINN HF.
Suðurlandsbraut 8
Sími: 8 46 70.