Morgunblaðið - 15.01.1971, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1971
21
Svar frá Arkitekta
félagi íslands
Vegna fyrirspurnar í Morgun
blaðinu þann 12. 1. s.l. til Arki-
tektafélags Islands frá fjórum
aðilum í Helsingfors, varðandi
samkeppni um hjónagarða á
vegum Félagsstofnunar stúdenta
vill stjórn Arkitektafélagsins
taka fram eftirfarandi:
Útbjóðandi, þ.e.a.s. Félags-
stofnun stúdenta leitaði á síðast
liðnu sumri eftir aðstoð Arki-
tektafélags Islands við fram-
kvæmd á slíkri samkeppni.
Jafnframt var látin í Ijós sú
ósk, að tryggt yrði, að þeir aðil-
ar, sem tækju þátt í samkeppn-
inni og fengju verkefnið til úr-
lausnar, gætu þegar að lokinni
samkeppni fullunnið verkið og
leitt byggingarframkvæmdir til
lykta.
Af þessum ástæðum var ekki
að þessu sinni hægt að leyfa
nemendum í arkitektúr, einum
sér, þátttöku. Hafa þeir þó að
sjálfsögðu rétt, sem allir aðrir
háskólastúdentar, til að taka þátt
í samkeppninni í félagi við arki-
tekta, sem eru félagar í Arki-
tektafélagi íslands, og þá
vissulega undir sínu nafni ásamt
þeim arkitekt, er þeir ynnu með.
Sjálfsagt þótti að veita há-
skólastúdentum þennan mögu-
leika, því bæði var þeim málið
skylt, og vitað er, að einhverj-
ir þeirra hafa haft náin kynni
af hjónagörðum m.a. búið á slík-
um stöðum og gætu því og
vildu eflaust miðla af reynslu
sinni.
Félagar í Arkitektafélagi Is-
lands gangast undir strangar fé-
lagsreglur, sem stefna að því, að
hagsmunir útbjóðanda (eða
verkkaupa) séu sem bezt tryggð
ir.
Arkitektar, sem ekki eru fé-
lagsmenn eru óháðir slíkum regl
um, og getur félagið því ekki
tryggt hagsmuni útbjóðanda
gagnvart þeim. Einnig getur
Arkitektafélagið ekki borið
ábyrgð gagnvart útbjóðanda á
öðrum aðilum, „er kynnu að
hafa áhuga á að leggja eitthvað
til málanna," við gerð hjóna-
garðanna.
Samkeppnisnefnd og stjórn
Arkitektafélagsins gerði stjórn
Félagsstofnunar stúdenta grein
fyrir þessum sjónarmiðum sínum
við framkvæmd á þessari
keppni, og féllst stjórn Félags-
stofnunar á þau.
Sé um hreina hugmynda-
samkeppni að ræða gegnir öðru
máli. Er þá oft eðlilegt að hafa
samkeppni opna fyrir fleiri að-
ila. Vill stjórn Arkitektafélags-
ins í því sambandi benda á, að
nú er fyrirhuguð samkeppni um
„Bernhöftstorfuna" svokölluðu.
Samkeppni verður um það,
hvernig bezt megi nýta og glæða
nýju lífi í sínu umhverfi þau
gömlu hús, er þar standa, verði
af friðun þeirra. Slík samkeppni
verður öllum opin, sem áhuga
hafa á að leggja þar eitthvað til
málanna.
Með þessu væntir stjóm
Arkitektafélagsins að spurning-
um fjórmenninganna sé fullsvar
að.
(Frá stjórn Arkitektafélags Is-
lands).
Vantar vanan sjómann
á 70 lesta netabát sem rær frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 20028 og 92-8261.
Laust embætti, er
íorseti íslands veitir
Héraðslæknisembættið í Ólafsvíkurhéraði er laust til um- sóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins og önnur kjör samkvæmt 6. gr. læknaskipunarlaga nr. 43/1965. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 13. janúar 1971.
Stórútsalan
heldur áfram. — Nýjar vörur, nýtt verð.
Stórlækkað verð á BUXNADRÖGTUM og PEYSUM.
GJÖRIÐ SVO VEL OG LÍTIÐ INN.
Verksmiðjuútsalan Breiðfirðingabúð
MUSICA NOVA
Tónleikar í Norræna Húsinu sunn udaginn 17. janúar klukkan 16.
MOGENS ELLEGAARD harmonika
TRIO MOBILE INGOLF OLSEN .... rafmagnsgítar
BENT LYLLOFF .... slaghljóðfæri
flytja verk eftir ARNE NORDHEIN samin sérstaklega fyrir TRIO
MOBILE og segulbönd.
Aðgöngumiðar í Norræna Húsinu kl. 9—16 daglega og við innganginn.
MUSICA NOVA.
Sjómenn
Tvo menn vantar á bát sem gerður er út
frá góðum stað úti á landi.
Upplýsingar í síma 97-8258.
Verksmiðjuútsala
Nokkrar gallaðar flíkur, efnisbútar, ásamt
restum af eldri gerðum fatnaðar, verða
seldar í verksmiðju okkar næstu daga.
Sólido' Bolholti 4 — 4 hæð
I.O.O.F. 12 = 1521158y2 = T.L.
E1 Helgafell 59711157 VI. — 2
Læknar f jarverandi
Tek aftur til starfa 15.
janúar.
Kristjana P. Helgadóttir
læknir.
Bræðraborgarstígur 34
Samkoma annað kvöld kl.
8.30. Sunnudagaskóli kl. 11.
Róðraráhugamenn
Aðalfundur Róðradeildar
Ármanns verður haldinn í fé
lagsheimili Ármanns við
Sigtún, laugardaginn 16.
janúar 1971 kl. 4 e.h.
Allir sem áhuga hafa á
róðri velkomnir.
Stjórnin.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Nýársfagnaður eftir messu
n.k. sunnudag 17. janúar.
Sigríður Hagalín, leikkona
les upp, Árni Johnsen syng
ur þjóðlög og leikur með
á gítar. Kaffiveitingar.
Félagskonur er góðfúslega
minntar á að taka með sér
aldrað fólk.
Allt safnaðarfólk velkomið.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundur verður þriðjudag-
inn 19. janúar kl. 8.30. Fé-
lagsvist. Kaffi.
Frá Guðspekifélaginu
Fyrirlestur með skugga-
myndum í kvöld kl. 9.00 i
Ingólfsstræti 22. Gömul gull
gerðarmystik. Sigvaldi
Hjáimarsson flytur. Utanfé
lagsfólk velkomið.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI • eftir John Saunders og Alden McWilliams
Miindu, Perry, að þegar að því kemur
að þú setur upp hringana, skal ég gefa
þér góð kjör. Wendy veit að hún verðiir
að bíða eftir hringnum, herra Berdan, ég
skulda enn fyrir einkennisbúninginn
minn. (3. mynd). Ég var að hugsa um
að biðja Logan um lán, en liann er víst
ekkert hrifinn af náungtim eins og mér.
(3. mynd). Þorpararnir ykkar, þið skuluð
i fangeisi fyrir þetta. I>ú verður að ná
okkur fyrst, ganili minn. Hreyfðu þig nú
ekki í fimm mínútur, það er fylgzt með
þér.
Sigurður íómasson
viðskiptafræðingur
löggiltur endurskoðandi
simi 26760.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar,
púströr og fleiri varahlutir
I margar gcrðir bifreiða
Biiavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168 - Sími 24180