Morgunblaðið - 18.02.1971, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐEE), FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1971
23
Flugb j ör gunar
sveitin 20 ára
FLUGBJÖRGUNARSVEITIN
í Reykjavík átti 20 ára af-
mæli 27. nóvember sl. og var
í því sambandi unnið að marg-
víslegum endurbótum á
tækjum og útbúnaði sveitar-
innar, félagsheimili hcnnar
málað og lóð þess snyrt og
girt. Á afmælisdaginn fór
stjóm sveitarinnar ásamt
fiugmálastjóra, Agnari Ko-
foed Hansen, og formönnum
allra flugbjörgunarsveita á
á Suðurlandi að minnisvarða
þeirra, sem með flugvélum
hafa farizt og lagði flugmála-
stjóri blómsveig að minnis-
varðanum. í tilefni afmælis-
ins var Agnar Kofoed Han-
sen sæmdur gullmerki F.B.S.
í Reykjavík og er hann þriðji
maðurinn, sem það hlýtur.
Að 'kvöldi aiflmæiiisdagsins
hélt Fkigbjörgunarsrveitiii al-
mælishóf í Þjóðleikhúskjál'l-
aranum og sófctu það uim 200
manrus, FBS báruist margar
gjafir og þar á meða'l eitt-
humdrað þúsund krónur frá
Kven.nade.ild Flugbjörgunar-
sveitarinnar, sikeyti og kveðj-
ur báruist frá félögum og ein-
staklingum. Eftirtaldir aðilar
flengu heiðursskjal FBS fyrir
góðam stuðning við FBS. Flug-
ráð, Loflfcieiðir, Fkugfélag ís-
lands og F.I.A., Félag íálenzkra
atvinnufilugmanna.
Flugbjörgunarsveitin var
köMuð fjórum sin'num út ti’l
leitar á árinu 1970. Skráðar
eru 273 mætingar til æfiniga
og starfa í félagsheimilinu.
Útiæfingar hafa farið fram á
þessum stöðum: Skjáldbreið
og Hlöðufelli, Snæfellsnesi,
Langjökli, Eyjafjalllajökli,
ÞingvöL'lum, Bláfjöillum og
víðar. Á þessum æfingum er
þjálfuð ferðatækni, meðferð
áttavita, klifur, flutningux á
slösuðum og fll.
Stjórn FBS skipa þessir
menn: Form. Sigiurður M.
Þorsfceinsson, aðrix í stjóminni
eru Sigurður Waage, Magnús
Þórarinsson, Árni Edwinssoni,
Haukur Hallgrknsson, Gunn-
ar Jóhannesson og Pétur
Þorleifsson, varastj., Ingvar
Valdimarsson, Hörður Sig-
urðsson, og Gustav Óslkarsson,
endurskoðendur Svednn Ólafs
son og Jón Magnússom.
Fundarstjóri á öflum aðal-
fundum FBS, hefur verið
Þeir hafa hlotið gullnierki Flugbjörgunarsveitarinnar: Sigurður
M. Þorsteinsson, Haukur Hallgrímsson og Agnar Kofoed Hansen
Minnisvarði í Fossvogi um þá,
sem með flugvéium hafa farizt.
Baldvin Jónsson, hri., og í til-
efni afmaelis hanis og FBS, var
hanm sæmdur silfurmertki FBS
fyrir góða fundarstjórn og
margvísileg önnur störf.
Þrátt fyrir það að störf fé-
laganna er sjálfboðavinna,
var rekstrarkostnaður 295.988,
00 krómur. Styrkir voru 120,
000,00 króniur. FBS á þrjár bif
reiðar rneð drifi á öllum hjól-
uim, þrjár beltisbifreiðar og
tæki og útbúnað til björgunar-
starfa, sem metin eru á 1.200.
000,00 krónur.
Nám í félags-
fræði í Noregi
FYRIRHUGAÐ er, að fjórum Is-
lendingum verði gefinn kostur
á námi I félagsráðgjöf i Nor-
egi skólaárið 1971—’72, þ. e. að
hver eftirtalinna skóla veiti inn-
göngu einum nemanda:
Noregs kommunal- og sosial-
skole, Osló.
Norske Kvinners Nasjonal-
r&ds Sosialskole, Osló.
Sosialskolen, Stafangri og
Sosialskolen, Þrándheimi.
Til inngöngu í framangreinda
skóla er krafizt stúdentsprófs
eða sambærilegrar menntunar.
Islenzkir umsækjendur, sem
ekki hefðu lokið stúdentsprófi,
mundu, ef þeir að öðru leyti
kæmu til greina, þurfa að
þreyta sérstakt inntökupróf, hlið
stætt stúdentsprófi stærðfræði-
deildar í skriflegri íslenzku,
ensku og mannkynssögu. Lág-
marksaldur til inngöngu er 19
ár, og ætlazt er til þess, að um-
sækjendur hafi hlotið nokkra
starfsreynslu.
Þeir sem hafa hug á að sækja
um námsvist samkvæmt fram-
ansögðu skulu senda umsóknir
til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir
25. marz n.k. á sérstöku eyðu-
blaði, sem fæst í ráðuneytinu.
Reynist nauðsynlegt, að ein-
hverjir umsækjendur þreyti sér-
stök próf í þeim greinum, sem
að framan getur, munu þau próf
fara fram hérlendis í vor.
MYNDAMÓT HF.
AÐALSTRÆTI 6 — REYKJAVlK
PRENTMYNDAGERÐ SlMI 17152
OFFSET-FILMUR OG PLÖTUR
AUGLÝSINGATEIKNISTOFA SIMI 25810
Andreas
J. Olsen,
vélstjóri
Fæddur 4. marz 1899
Háinn 28. desember 1970
(Sálmur nr. 627).
Aldrei mætzt í síðsta sinni
sannir Jesú vinir fá.
Hrellda sál, það haf í minni
harmakveðju stundum á.
Þótt vér sjáumst oftar eigi
undir sól, er skín oss hér,
á þeim mikla dýrðardegi
Drottins aftur finnumst vér.
Þótt vér hljótum hér að kveðja
hjartans vini kærstu þrátt,
indæl von sú oss má gleðja,
aftur heilsum vér þeim brátt.
Hrellda sál, það haf í minni
harmakveðju stundum á:
Aldrei mætzt í síðsta sinni
sannir Jesú vinir fá.
Elsku faðir minn. Ég bið al-
máttugan Guð að veita þér sinn
himneska frið.
Esther Olsen,
Sandgerði.
Cittfpfcr, c« •( a n sbétlt riranH
HEKLAhf.
CATERPILLAR D4D
JARDÝTA
með fullkomnari kraftskiptingu.
VERÐ KR. 2.250.000,oo
CATERPILLAR kraftskipting, „power shift", er búin plánetu-
hjólum og olíustýrðum fjöldiskatengslum. Hægt er að skipta
um gír á ferð og undir álagi. Þrjú hraðastig áfram og þrjú
afturábak.
Innifalið í verðinu er skekkjanlegt ýtublað — hlíf undir hreyfil, beltastýrishlífar — belta-
rúlluhlífar — 20" beltaskór — stærri framhjól. Vökvastrekking fyrir beltakeðjur — Ijósa-
kerfi 24 volt — 2 Ijós — dráttarbeizli — stálhús með öryggisgleri — regnvari á afgasrör.
Afgreiðslufrestur 4—5 vikur
Þetta sérstaklega hagstæða verð getum við boðið til næstu mánaðamóta, febrúar—marz.
Vinsamlega hafið samband við okkur strax
CATERPILLAR ÞEKKJA ALLIR, SEM ÞEKKJA VINNUVÉLAR -
HJÓL
SÓLMJÖL
HRINGHJÓL
RÆKTUNARSAMBOND - VERKTAKAR
Laugavegi 170—172 — Slmi 21240.