Morgunblaðið - 09.05.1971, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1971
Jeanne Judson:
NAN
lllllílilll litftfjilll,.
II!
legt hungur. Hún leit við, er
hún heyrði til móður sinnar.
— Þ>ú ert áreiðanlega glorsolt-
in. Mary Ross sat hinum megin
í herberginu. Hún hafði verið
þar að lesa við borðlampa.
— Hvað er klukkan?
— Það er komið miðnætti, en
þú fékkst engan kvöldmat.
— Sleppum þvi. Ég þoli við
fram að morgunverði.
— Nei, það gerirðu ekki.
Evans læknir hélt, að þú hefðir
betra af góðri hvíld en mat, en
úr því að þú ert vöknuð, þarftu
að fá eitthvað. Ég ætla að ná í
eitthvað handa þér. Á morgun
vinn ég frá fimm að morgni til
tvö síðdegis, svo að ég fæ að
borða í sjúkrahúsinu, svo að þú
verður að biða eftir þínum mat
þangað til Dilly kemur.
Hún var farin úr áður en
Nancy, sem var frekar svifasein
nú, gæti komið að nokkrum and-
mælum. Henni var meinilla við
að gera móður sinni óþarfa
ómak. Hún hafði aldrei, síðan
hún missti föður sinn, fimm ára
gömul, getað tekið móður sína
sem einhvern sjálfsagðan hlut.
Þær lifðu saman í vináttu, og
enn hafði Nancy aldrei leynt
móður sína neinu, kannski
vegna þess, að hún hafði engu
að leyna.
Mary Ross kom innan skamms
með bakka, og ilmurinn frá
honum minnti ekkert á neina
sjúkrafæðu, og var það heldur
ekki, og Nancy óskaði þess enn
einu sinni, að hún væri jafnvig
á báðar hendur. Móðir hennar
skar steikina fyrir hana, en
samt var ekkert gaman að þurfa
að borða með vinstri hendi.
Hún hafði ósjálfrátt lyft hinni
hægri, en verkurinn gaf henni
fljótt til kynna, að það
hefði hún ekki átt að gera.
— Evans læknir segir, að þú
megir ekki snerta við ritvél í að
minnsta kosti hálfan mánuð.
Móðir hennar hafði verið að
horfa á klaufalega tilburði henn
ar.— Segðu mér frá þessu. Tim
gat ekki sagt mér nema það lít-
ið hann vissi sjálfur.
Nancy sagði henni alla sög-
una. — En ég veit bara ekki
enn, hvernig skotið lenti í mér.
Hann var að segja mér að vera
ekki fyrir, þegar hr. Llewellyn
opnaði dymar. Það var það
seinasta, sem ég vissi.
— Það er eins og þið hafið
bæði þrifið til hans. Og það var
heimskulegt, en reyndar sé ég
ekki, hvað þið hefðuð getað ann
að gert. Þú varst heppin að fá
það í öxlina. Ég er búin að
hringja til Dilly og hún kemur
klukkan átta og verður hérna
þangað til ég er komin heim.
Hún getur hjálpað þér að klæða
þig. Þú þarft ekki að liggja
fremur en þú sjálf vilt. En
hafðu bara handlegginn í fatl-
anum, svo að öxlin verði ekki
fyrir hnjaski.
— Þú færð ekki mikinn svefn
með þessu móti, mamma.
O OOOOOO OOOOO 0
O _ 0
0 ÍS 0
o^o
0 oooooo oooooo
— O, ég þoli það svona einu
sinni. Ég sofnaði snöggvast eftir
að læknirinn fór. Mér þykir
vænt um, að hann skyldi vera
þarna í verksmiðjunni, enda þótt
ég sæi eftir honum, þegar hann
fór af spítalanum. Nú, en hann
hafði nú ekki efni á að setja
upp stofu nema hafa þessa
vinnu í verksmiðjunni, og hún
á að halda honum uppi, þangað
MAÐURINN
SEM HVARF
Sífelidir árekstrar á göngum og gangstéttum. Sér fólk mann ekki? Hurðum skellt á
nef manni. Hvað er þetta? Stelpurnar á skrifstofunni alveg hættar að yrða á mann.
Konan ekki gefið koss frá því í fyrra. ,,Eru allir hættir að sjá mann eða hvað? Eg er
þó hér." Líttu í spegil maður. Hvað sérðu? Eitthvað sérstakt? Nú nú. Hvað ætlastu
þá til að aðrir sjái? Komdu þér í glæsileg föt. Kóróna-föt. Þau fást bæði í Herrahús-
inu og Herrabúðinni við Lækjartorg. Taktu eftir breytingunni. Ekki bara á þér, heldur
öllum sem á þig líta. Lyftu huliðshjálminum drengur, klæðstu Kóróna-fötum.
Lyftið huIiSshjálminum klœÓist Kórónafötum
j
W'jCAJUL^uÍ
'/vt\
VIO LÆ KJARTORG
Slepptu, það er kona að koina.
til hann getur komið sér upp
stofu. Ég hef kynnzt mörgum
ungum læknum þarna, en hann
var alltaf uppáhaldið mitt. Þú
kunnir vel við hann, var það
ekki?
— Ég er hrædd um, að ég hafi
ekki getað tekið mikið eftir hon-
um, eins og ástatt var.
— Hann kemur hingað á morg
un að líta á þig. Þetta var alveg
hræðilegt. Þú hlýtur að hafa
verið afskaplega hrædd.
— Nei, ég var alls ekki neitt
hrædd. Ég ætlaði bara að aftra
honum frá að fara inn til hr.
Llewellyn. Mér datt aldrei í hug
að hann færi að skjóta. Mér
fannst hann hálfvitlaus og hélt,
að þetta væri bara hótanir.
— En hvemig stóð á því, að
þú varst þarna á staðnum?
— Ég var að vinna fyrir hana
Elaine Baines, eimkaritarann
hans. Hún var veik eða eitthvað
þess háttar.
Mary hló. — Jæja, þú skalt
nú ekki játa fyrir neinum, að
þú hafir ekki haldið hann Dirk
McCarthy vera hættulegan. En
eins og er, þá ertu hetja, og þú
ættir að njóta þess. Vertu ekki
með þennan áhyggjusvip. Þetta
kemur ekki neitt í blöð-
unum. Vitanlega tala allir
i verksmiðjunum um þetta — og
það er sama sem öll borgin. En
þú mátt trúa honum Frank
Dillon til þess, að það kemur
ekki mikið í blöðin. Hana nú,
taktu þetta, svo að þú getir
sofnað. Og sjálf ætla ég að
naHa mér stundarkom.
Nancy bjóst ekki við að
sofna aftur en það gerði hún
samt. Sannast að segja vaknaði
hún ekki fyrr en klukkan níu
— °g fann þá, að frú Dillimg
sat óþarflega nærri rúminu
hennar, og glápti á hana kringl-
óttu bláu augunum, Frú Dilling
var öll hnöttótt. Hnöttótt höfuð
og enginn teljandi háls, á búk,
sem var tveir stórir hnettir.
Stuttu handleggirnir voru tveir
ílangir hnettir með olnboga á
milli. Fæturnir voru hnöttóttir
og digrir í breiðum inniskóm.
Nefið var eins og hnappur og
munnurinn eins og O, venjulega
opinn. Og þrjár undirhök-
ur voru Mka hnöttóttar.
— Nú, þú ert vakandi. Þú
svafst svo fast, að ég
varð hrædd. Ég er búin að
hlaupa fimm sinnum upp og nið-
ur stigann til að gá að þér.
— Það hefðirðu ekki átt að
gera.
Nancy var kunnugt um það,
að frú Dilling hljóp upp og nið-
ur stiga léttfætt eins og grönn
kona, en hún vildi bara aldrei
trúa því. Svona feit hefði hún
ekki átt að geta klifrað neinn
stiga.
—- Ég tek það ekkert nærri
mér. En viltu borða héma eða
niðri? Mamma þín sagði, að þú
mættir fara á fætur ef þú vildir.
Nú var verkurinn í öxlinni
orðinn að stöðugum seyðingi, sem
náði alveg fram í fingurgóma.
Hún reis upp og studdist við
vinstri höndina. — Ég ætla að
koma niður, það er að segja, ef
þú getur komið mér í kjólinn án
Stúlka óskast
nú þegar til starfa í raftækjaverzlun
í Reykjavík. Staðgóð reiknins- og vélritun-
arkunnátta nauðsynleg.
Eiginhandarumsókn ásamt upplýsingum um
aldur og fyrri störf sendist afgreiðslu Morg-
unblaðsins, merkt: ,,X — 7288“.
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands
Kvennadeild
Stjórn kvennadeildarinnar heldur kvöld-
verðarfund fyrir félagskonur miðvikudag-
inn 12. maí n.k. í Átthagasal Hótel Sögu
kl. 7:30.
Skemmtiatriði: Fjórtán Fóstbræður syngja.
Ríó Tríó skemmtir.
Þátttökugjald kr. 250,—
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrif-
stofu Rauða kross íslands — sími 14658 —
fyrir hádegi á þriðjudag.
Stjórnin.