Morgunblaðið - 09.05.1971, Blaðsíða 1
52 SÍÐUR (TVÖ BLÖÐ)
103. tbl. 58. árg.
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hröktust á
f leka í 24 daga
Balboa, Panama, 8. maí.
NTB.
ÞRÍR Vestur-Þjóðverjar
sögðu blaðamönnum frá því
í morgun, hvernig þeim hefði
tekizt að lifa af 24 daga á
björgunarfleka á Kyrrahafi,
en hvalur hafði ráðizt að
seglbát þeirra og brotið
hann. Gerðist það hinn 5.
apríl og sögðu mennirnir að
það hefði verið herkjum
að þeim tókst að koma sér
á tveggja metra langan
björgunarfleka.
Á flekanum var bæði
drykkjarvatn og matföng af
skornum skammti, og öll sjó-
kort, svo og áttaviti týndust
með seglbátnum. Þeir tóku
þá ákvörðun að reyna að ná
til Marquesaseyja meðþví að
sigla eftir stjörnunum. Mat-
arskammtur mannanna á dag
var að hver fékk þrjá desi-
lítra af vatni blandað hafra-
mjöli og á kvöldin borðuðu
þéir eina rúgbrauðssneið og
tvær sveskjur hver.
Það var sovézkt skip, sem
fann mennina á flekanum
þann 28. apríl, og voru þeir
þá 500 km vestur af Mar-
quesaseyjum.
Frá kveðjustundin ni hjá Svíakonungi.
Hlýhugurinn vottur
um vináttu Svía
— sagði Kristján Eldjárn við lok
heimsóknar forsetahjónanna
Stokkhólmi, 8. maí.
Frá blaðamanni Mbl.
Freysteini Jóhannssyni.
„MÉR hefur þótt mjög vænt um
allan þann hlýhug, sem við hjón-
in höfum mætt hér í Svíþjóð,“
sagði forseti Islands, herra Kristj
&n Eldjárn við Morgunblaðið við
lok opinberrar heimsóknar hans
til Svíþjóðar í dag. „Og ég skil
Lous Armstrong.
Louis
útskrif-
aður
New York, 8. maí. NTB.
SÖNGVARINN o.g hljómilist-
armaðurinn Louis Armisitrong
var í gærkvöldi útfcskrifaður
aí sjúkrahúsi þvi i New York,
sem hann hefur dvalizt á utnd
anifamar sjö viikur. Hatnn var
®uWur á sjúkrahúsið, eftir
að haifa fengið aðkenmingu af
hjartaislagi oig var liemgi tvi-
Býwt um Mf hans. Armisitronig
er sjötiugur að aldri. Kona
hans sagði fréftamönnum, að
hann viirtiisf hinn sprsekasti.
þennan hlýhug ekki aðeins sem
vináttuvott við mig og konu
mína, heldur fyrst og fremst sem
vott um vináttu Svía i garð ís-
lenzku þjóðarinnar."
Síðasta dag Svíþjóðarheimsókn
arinnar voru forsetahjónin gestir
samsku ríkisstjórnarinnar í Upp-
sölum, þar sem forsetamun var
fært að gjöf eintak af ljósritaðri
viðhafnarútgáfu Uppsalarhá-
skóla á Keisarabiblíunni; Codex
Caesarius Uppsalaensis, en hvert
eintak þeirrar útgáfu kostar 36
þúsund krónur íslenzkar.
Klukkan tíu i morgun, kvöddu
forsetahjónin gestgjafa sinn Gust
av sjöltta Adolf Svíakonung og
aðra meðlimi konungsfjölskyld-
unnar, en héldu síðan frá Kon-
ungshöllinni til Uppsala, og var
komið þangað um hálf tólf leyt-
ið.
Forsetahjónin skoðuðu fyrst
Bókasafnsbyggingu Uppsaiahá-
skóla, þar sem forsetanum var
afhent fyrrnefnd gjöf. Handrit-
ið að Codex Caesarius er frá því
um 1050. Það var gert i klaustr-
Framhald á bls. 2.
Geimskot Rússa og
Bandar ík j amanna
Moskvu og New York, 8. maí.
AP.-NTB.
SOVÉZKA fréttastofan Tass
skýrði frá þvi í dag, að sovézkir
vísindamenn hefðu skotið á loft
8 gervihnöttum af gerðinni Kos-
mos með einni og sömu eldflaug.
Að því er heimildir herma með-
al vestrænna sérfræðinga er
þetta mesti fjöldi gervihnatta,
sem skotið hefur verið upp með
einni eldflaug. Sovétríkin hafa
nú sketið alls inn 400 gervihnött
um í Kosmosáætliminni. Gervi-
hnettirnir eru búnir ýmsum
tækjum til veðurathugana, geim
rannsókna, símasambands og
njósnastarfsemi.
Visindiamenn á Cape Kennedy
tilkynntu í daig, að þeir myndu
skjóta á loft annað kvöld geim-
fáirf af gerðinni Mariner, sem
För Rogers lokið
Varar við of mikilli bjartsýni
Róm og Tel Aviv, 8. maí
—AP—NTB—-
WILLIAM P. Rogers, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
kom til Rómar í dag frá ísra-
el að Iokinni heimsókn sinni
til 5 landa fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Stjórnmálafrétta-
ritarar, sem fylgzt hafa með
ferð og viðræðum ráðherrans,
segja, að ekkert hendi til
þess, að miðað hafi í sam-
komulagsátt meðal deiluað-
ila.
Talsmaður Rogers, Robert Mc
Closkey sagði á fundi með frétta
mönnum að viðræður Rogers og
Goldu Meir, forsætisráðherra Is-
raels, hefðu verið mjög gagnleg-
ar hvað snerti hugsanlega opn-
un Súezskurðar. Er fréttamenn
spurðu hvort samkomulag þess
eðlis væri á næsta leyti, svaraði
McCloskey því til, að aðeins tím-
inn myndi skera úr um það.
Rogers skýrði frá því í dag,
að hann myndi á næstunni senda
William Sisoo, aðstoðarutanríkis-
ráðherra til Kaíró, til að skýra
frá ýmsum atriðum, er komu
fram i viðræðum Rogers við ísra-
elska ráðamenn. Rogers varaði
fréttamenn við að gera of mikið
úr árangrinum af ferðinni og
lagði áherzlu á, að enn bæri mik-
ið í milli hjá deiluaðilum.
Rogers verður í Róm í dag,
og ræðir við italska valdamenn
og gengur á fund páfa. Hann
flýgur siðan heim, þar sem hann
mun gefa Nixon forseta ítarlega
skýrslu um ferðina.
Moskvublaðið Pravda heldur því
fram í dag, að að lokinni heim-
sókn Rogers hafi aldrei ríkt eins
mikil andúð i gárð Bandaríkja-
manna meðal Araba eins og nú.
Sagði blaðið að Arabar hefðu
ekki látið blekkjast af „aðferð-
um stjórnarinnar i Washington."
fara á tiil Marz. Tiiligangur ferð-
arinnar er að kanina hvort hugs-
anlliegt sé að líf leyndist á Marz.
Öðru sams konar geimfari verð-
ur skotíð á loft 18. maí og eiga
bæði geiimiförin að fara á braut
umhverfis Marz. Ferð gedmfar-
anna mun taka um 6 mánuði.
Eiga geimförin að senda sjón-
varpsmyndir af yfirborði reiki-
stjörnunnar.
Dauða-
dómur
yfir Hrkac
Beligrad, 8. maí. NTB.
DAUÐADÓMUR var í dag stað-
festur í Serbíu yfir Júgóslavan-
uni Miljenko Hrkac, sem er fé-
lagi í aðskilnaðarlireyfingunni
Ustachi, sem hefur látið tals-
vert að sér kveða og staðið að
ýmsum hermdarverkuni. Fylgis-
menn lireyfingarinnar liertóku
í febrúar ræðismannsskrifstofu
Júgóslavíu í Gautaborg og kröfð
ust þess þá að Hrkac yrði lát-
inn laus. Hann hefur verið nefnd
ur í sambandi við skipulagningu
á morðinu á ambassador Júgó-
slavíu í fyrra mánuði.
Hrkac er dæmdur til dauða
fyrir að hafa sett sprengju í
kviikmyndahús fyrir þremur ár-
um. Lézt einn er sprengjan
spraikk og 77 meiddust. Nokkr-
um mánuðum seinna eir hann
sagður hafa komið sprengju fyr-
ir á aðaljárnbraufcarstöðlnni i
Belgrad og særðust þá fjórtán
manns.
Schiller leggur til að öll EBE-
löndin láti gjaldmiðilinn ,fljóta‘
Brússel, 8. maí AP—NTB
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR
Efnahagshandalagsríkjanna 6
komu saman til aukafundar í
Briissel í dag til að ræða
gjaldeyrisvandamálin. Á fund
inunt lagði Karl Schiller, f jár-
málaráðherra V-Þýzkalands,
að öll löndin hættu skráningu
gjaldmiðils síns og létu hann
fljóta, til að kanna hvort
gengið hækkaði eða lækkaði
gagnvart dollaranum. Hann
sagði, að tíminn, sem gjald-
miðlarnir fengju að fljóta,
skyldi takmarkaður eins og
ráðlegt þætti.
Valery Giscard fjármálaráð-
herra Frakklands var andvígur
þessari tillögu og kvað þaðekki
heppilegt að láta gjaldmiðla
alira landanna fljóta. Hann sagði
við verðum að gera okkur grein
fyrir að við erum að ræða áhrif
vandamálsins en ekki orsakir
þess. Italir eru einnig andvigir
tiilögu Schillers, en fréttaritar-
ar telja að ef Þjóðverjar láta
markið fljóta, muni Hollending-
ar og Belgar fylgja á eftir. Auk
fjármálaráðherranna sátu marg-
ir háttsettir embættismenn fund-
inn svo og evrópskir fjármála-
sérfræðingar. Búizt er við að mál
in skýrist strax eftir helgina, ar
peningastofnanirnar opna aftur.
eftir helgina.
r