Morgunblaðið - 13.05.1971, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1971
Þessar ung'u og fallegu stúlkur hafa það verk með höndum að
koma erlendum fréttamönnum í samband við fréttastofnanir
sinar eins fljótlega og liðlega og unnt er.
Salurinn, þar sem blaðamannafundirnir eru haldnir daglega. Young blaðafulltrúi EFTA í
forsæti.
miðstöðin, sem segja má að sé
heimur út af fyrir sig. Þar er í
stóru herbergi aðsetur frétta-
mannanna og borð með 46 ritvél-
um eru til afnota fyrir þá sem
vilja. í kjallaranum er svo einn-
ig símstöð með 10 línum og síma-
klefum og geta fréttamenn
hringt þaðan út um allan heim.
Þá eru þar Telextæki til slíkra
nota. Sjónsvarps- og útvarps-
menn eru ekki hafðir útundan,
því að i kjallaranum eru tveir
upptökusalir, annar fyrir sjón-
varp og hinn fyrir útvarp. 1 út-
varpssalnum er aðstaða fyrir
fréttamenn tii að senda viðtöl og
fréttir beint til útlanda og geta
þeir t.d: hringt á fréttatímum
stöðva sinna og útvarpað þannig
beint fréttum eða viðtölum. Is-
land hefur ekki enn samband við
sjónvarpsgervihnetti og því er
aðstaða sjónvarpsmannanna held
ur verri. Þeir geta aðeins tekið
sín samtöl eða fréttir upp á
myndsegulband eða filmu, sem
síðan verður að senda utan með
fyrstu flugferð.
I fréttamiðstöðinni er talsvert
starfslið eða 8 manns með full-
trúum íslenzku ríkisstjórnarinn-
ar, og sér þetta fólk um að veita
fréttamönnum alla þá aðstoð,
sem þeir kunna að þurfa á að
halda meðan á fundinum stend-
ur. Þess má geta, að í herbergi
fréttamannanna er kaffibar, þar
sem hægt er að fá kaffi og með-
læti á flestum tímum sólar-
hringsins, enda má segja að kaff-
ið sé fréttamönnum jafn nauð-
synlegt og ritvélin, sem þeir
skrifa fréttirnar á.
Enska er aðalmál EFTA-fund-
arins, en auk þess verða sex
túlkar starfandi sem þýða ræður
jafnóðum á þýzku og frönsku.
Myndir sýnir fréttamannaherbergiff og nokkra fréttamenn að störfum.
I Loftleiðahótelinu eru tíu símaklefar ásamt telex-sendum til afnota fyrir fréttamenn.
Frá móttökunni í gærkvöldi. Ernst Brugger, efnhagsmálaráð-
herra Sviss og formaður EFTA-ráðsins tekur á móti gestum.
Mikill viðbúnaður vegna EFTA-fundarins:
Hr. Young og hr. Couvreu, blaðafulltrúar EFTA. Þeir bera hita
og þunga dagsins.
Stærsta alþjóðaráð-
stefna sem hér hefur
verið haldin
MIKILL viðbúnaður er nú á
Hótel Loftleiðum vegna ráð-
herrafundar EFTA, sem hefst
þar kl. 10 árdegis í dag. Um
tvö hundruð manns ssékja
fundinn erlendis frá, þar af
50—60 fréttamenn frá öllum
helztu fréttastofnunum, blöð-
um, útvarpi, sjónvarpi og
tímaritum. í gærkvöldi voru
allir fulltrúarnir komnir, að
Geoffrey Rippon undanskild-
um, en hann er væntanlegur
um hádegisbilið í dag með
þotu beint frá Brússel, þar
sem hann hefur setið á mikil-
vægum fundum með ráðherr-
um EBE-landanna sex.
EFTA-ráðstefnan er ein stærsta
alþjóðaráðstefna, sem haldin hef-
ur verið hér á landi, að NATO-
ráðstefnunni 1968 undanskilinni.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í fréttum er hluti hinnar
nýju álmu Loftleiðahótelsins sér-
staklega hannaður með ráð-
stefnuhald í huga. Á jarðhæð
hótelsins er sjálfur ráðstefnusal-
urinn, svo og annar minni salur,
sem notaður verður nú til þess
að halda fundi með fréttamönn-
um. Er sá salur mjög glæsilegur
og velbúinn tækjum og öðru
sliku. Á annarri hæð eru svo
skrifstofur allra aðildarlandanna,
svo og framkvæmdastjóra
EFTA.
1 kjallara er svo fréttamanna-