Morgunblaðið - 13.05.1971, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1971
23
U'pp 511 þau forustustörf, sem
hann var kjörinn til um lengri
og skemmri tíma, til hinztu
stundar.
Óskar kvæntist eftirliíandi
konu sinni Mikikalínu Sturlu-
dóttur, fósturdóttur Jens Guð-
mundssonar kaupmanns á Þing-
eyri, 22. mai 1921.
Það mun hafa verið hans
mesta gæfa, hve ágæta konu
hann eignaðist.
Þau voru mjög samihent hjón
og ber hið aðlaðandi heim-
iIL þeirra órækt vitni þess.
Þau Mikkaiina og Óskar eign
uðust tvær dætur. Þær eru:
Anna Jenss., sem gift er Þórði
Sigurðssyni málarameistara og
Margrét Jensína, sem er gift
Jóhanni Sigurlaugssyni bifvéla-
virkja.
Mikkalína átti tvö börn með
fyrra manni sinurn, sem dó úr
spænsku veikinni. Þau eru:
Ólafía, gift Haraldi Ásmundinus
syni rakarameistara og Þórður
vélsmiður, kvæntur Ragnheiði
Tryggvadóttur.
1 vitund okkar bræðrabarn-
anna voru þau öll börn Óskars,
enda var hann mikill og ástrík-
ur heimilisfaðir. Og heimili þeirra
allra hafa verið tengd miiklum
kærleiksböndum.
Hann bar sérstaka umhyggju
fyrir barnabörnum sinum og
hugsaði um þau, ekki sízt Óskar,
sem stundar verkfræðinám í
fjarlægu landi, en kom heim til
að kveðja afa sinn hinztu
kveðju.
Þegar þessi stóra og óvenju
samhenta fjölskylda Óskars, sér
nú á bak honum svo skjótlega,
getum við, sem þekkjum þau,
ekkert nema drúpt höfði í þög-
ulli sorg.
En í sorg, felst einnig ljós-
geisli. Og þess má fjölskylda
hans vera minnug, að í þeirri
sorg, sem nú hvílir þungt yfir
heimilum þeirra, eru sterkir
geislar minninganna um gæfu-
rika samleið þeirra allra til
hinztu stundar.
Við frændfólkið og fjölskyld-
ur okkar hugsum til ykkar á
þessum reynslustundum og biðj-
um Guð að styrkja ykkur, um
leið og við kveðjum kæran
frænda og þökkum honum allt
og allt.
Blessuð sé minning hans.
Jenna Jensdóttir.
8 fórust
í hótel-
eldsvoða
London, 11. maí — AP
ÁTTA manns týndu lífi í hótel-
bruna í London í nótt, þar á
meðal nakin rauðhærð stúlka,
sem féll af annarri hæð og lenti
á járngrind. Tíu slösuðust, þar á
meðal einn slökkviliðsmaður, og
spænskir hótelstarfsmenn. Eng-
inn hótelgestur mun hafa beðið
bana eða slasazt.
Hótelið hafði nýlega verið
keypt af eigendum hótels við
hliðina og var ætlunin að starfs-
liðið byggi í því. 140 slökkviliðs-
menn fóru á vettvang, en nokkr-
ir höfðu dáið úr reykeitrun er
þeir komu. 30 gestir dvöldust i
hótelinu, sem er í Kensington-
hverfi, og klifruðu niður bruna-
stiga eða voru bornir út af
slökkviliðsmönnum. Gestir hótels
ins við hliðina, New Langham,
voru fluttir á brott, en fljótlega
tókst að stöðva útbreiðslu elds-
ins.
Ég þakka þeim öllum, nær og
fjær, er sýndu mér vinsemd
á áttræðisafmæli mínu þann
8. maí sl.
Helgi Ólafsson,
Hafnarfirði.
Beztu þakkir og árnaðaróskir sendi ég öllum sem glöddu
mig með gjöfum, skeytum og heimsóknum á sjötugsafmælinu.
Magnús Sigurðsson,
Melgerði 22, Kópavogi.
ÆVAR KVARAN
hefur FRAMSAGNARNÁMSKEIÐ fyrir fólk á öllum aldri um
næstu mánaðamót.
Framburður, framsögn, raddbeiting og upplestur
bundins máls og óbundins. Upplýsingar í síma 34710.
Laxveiðimenn
Nokkrir stangveiðidagar til leigu í Langá, neðsta svæði,
í júlí og ágúst.
Upplýsingar í SPORTVAL við Hlemmtorg.
Verkamenn óskast
Óskum eftir verkamönnum, vönum byggingarvinnu.
Mikil vinna.
Upplýsingar veittar á skrifstofu okkar, Grettisgötu 56 í dag
kl. 9—5 (ekki í síma) og kl. 7—9 í kvöld í síma 19403.
BYGGINGAFÉLAGIÐ ARMANNSFELL H.F.
T ollpóststofan
óskar eftir starfsmanni karli eða konu nú þegar.
Þarf að vera vanur skrifstofustörfum.
Upplýsingar hjá yfirdeildarstjóra Tollpóststofunnar Hafnar-
húsinu.
Saumakonur
Getum bætt við vönum saumakonum nú þegar.
Upplýsingar á skrifstofunni.
SJÓKLÆÐAGERÐIN H.F.
Skúlagötu 51,
Frá Sumarbáðum
þjóðkirkjunnar
Innritun haldið áfram.
Laus pláss í nokkrum flokkum.
Sumarstarf þjóðkirkjunnar,
Klapparstíg 27. Sími 12236
VERKAMENN
Viljum ráða tvo verkamenn i sementsafgreiðsluna.
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
Ártúnshöfða, sími 83400.
Lokuð vegna jarðarfnrur
föstudaginn 14. maí.
Rakarastofa Hallbergs Guðmundssonar
Laugavegi 128.
Lokað kl. 12-4
fimmtudaginn 13. maí vegna jarðarfarar.
VERZLUN O. ELLINGSEN HF.
Ford Falcon Coupe 1967
Til sölu mjög góður og lítið ekinn FALCON FUTURA BÍLL.
SÝNINGARSALURINN
SVEINN EGILSSON,
FORD-HÚSIÐ, Skeifan 17.
Skrifstofumaður
Heildverzlun vill ráða ungan, regiusaman mann með Verzl- unarskólamenntun eða hliðstæða, til bókhalds- og almennra skrifstofustarfa. Framtíðaratvinna fyrir traustan mann.
Umsókn með upplýsingum um aldur, menntun sendist Mbl. merkt: „Reglusemi — 7613". og fyrri störf
UPPBOÐ
Á opinberu uppboði sem fram fer á bifreiðaskemmu á Hval-
eyrarholti nr. 24—26 við Melabraut í Hafnarfirði í dag
fimmtudaginn 13. maí kl. 5 síðdegis verða meðat sölumuna:
Bifreiðar, fatnaður, snyrtivörur, leikföng, ónotaður barnavagn
ásamt barnarúmi og barnastól, kælikistur, handlaugar, gler,
notaðir hjólbarðar, málningavörur, Ijósmyndavörur, veiðiáhöld
og sjónvarpstæki.
Kaupmenn sem hyggjast kaupa verzlunarvörur hafi með sér gilt
söluskattsskirteini en aðrir sem kaupa verzlunarvörur greiði
söluskatt.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
e. u.
Steingrímur Gautur Kristjánsson.
SUMARFATNAÐUR
Stuttbuxur með
og án smekks.
Síðbuxur í úrvali.
Skyrtublússur,
Bómullarbolir,
Stuttermapeysur,
Prjónavesti,
Sokkabuxur
og hnésokkar
í tízkulitum.
t
Laugavegi 19