Morgunblaðið - 17.06.1971, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1971
Hún víw í Huni;vrsJ«tpi þessi
unsra konn ni«ð nýja stúdonts-
húfu frá Knnnararikóta Islands.
„ÉG býð yður öll velkomin hing-
að í dag. Kftir langun vetur, ekki
strangan, en þunga færð, fagn
ar okkur vor hlýrra og Ijúfara,
en þeir mega minnast, seni
yngstir eru okkar á ineðai í dag,“
mælti dr. Broddi Jóhannesson
skólastjóri Kennaraskóla íslands
við skólaslit í Háskólahiöi í gær
eftir að hátiðieg skólasiitaathöfn
hófst með því að sungin var
sálmiirinn Faðir andanna, Að
lokinni kveðjn dr. Brodila minnt-
ist hann Gnðmundar í. Guðjöns-
sonar, skólastjóra Æfinga- og til-
raunaskólá KÍ, en hann lézt í
lok skólaársins eftir stutta
sjúkralegu. Risu samkomugestir
úr sætiim og minntiist mikilhæfs
og vinsæis kennara,
Meðal gesta við skólaslitin
voru dr. Gylfi 1». Gísiason,
menntamálaráðherra, auk fjölda
gesta annarra.
Síðan rakti dr. Broddi starfs-
atriði skólaársins 1970—1971.
Viku af september hófust nám-
skeið fyrir þá nemendur I.
bekkjar, sem leyft var að end-
urtaka próf um haustið. Um
miðjan mánuðinn hófust haust-
próf, bæði endurtekning prófa
og utanskólapróf. 24.—29. sept.
var haldið námskeið í kennslu-
fræði fyrir 4. bekk og kennara-
deild stúdenta á síðara ári. Skól-
inn hóf að venju reglulegt starf
1. okt. Kennslu lauk hjá öllum
deildum 30. apríl og síðustu próf
um lauk 8. júní.
Sú breyting varð á starfsemi
skólans á árinu að enginn nem-
andi var tekinn inn i 1. bekk
skóians á árinu samkvæmt
fyrra skipulagi. Hins vegar
starfrækti skólinn framhalds-
deild gagnfræðaskóla í uppeldis-
kjörsviðum í sama formi og þær
deildir starfa, sem eru við aðra
skóla. í 1. bekk (framhaldsdeild)
hófu 52 nemendur nám, 50
komu til prófs og 46 stóðust.
Auk þess lauk einn nemandi
prófi utan skóla. Hæstu einkunn
hlaut Sigríður Skúladóttir.
1 2. bekk stunduðu nám 240
nemendur. 228 stóðust árspróf,
en nokkrir eiga ólokið prófum.
Hæstu einkunn hlaut Kristín
Jóhannesdóttir. 1 3. bekk stund-
uðu nám 230 nemendur og 218
luku prófi og stóðust. Hæstu
einkunn hlaut Þorbjörg Arnórs-
dóttir. í 4. bekk stunduðu nám
195 nemendur, 72 í almennri
deild og 23 í handavinnudeild,
og gengu allir undir kennara
Nokferiir nýstúdentíur úr K.í. að lofenum skóteslitum í gær.
*
Skólaslit Kennaraskóla Islands:
lijóam. Mbl. Kr. Ben.
„Til þess gefi Guð ykkur dóm-
greindina og þrekið6í
— „að yður megi auðnast að horfa jafnan
skærum sjónum bæði út og inn“ — 209 kennarar
brautskráðir og 65 stúdentar
próf. í almennu deildinni luku
prófu og stóðust það 154 nem-
endur, en 18 eiga ýmist ólokið
prófi eða stóðust það ekki.
Hæstu einkunn á almennu kenn-
araprófi hlaut Nina Magnús-
dóttir. 1 handavinnudeild stóð-
ust allir 23 próf og hæstu eink-
unn hlutu Fjóla Bender og Fríða
Kristinsdóttir.
í kennaradeild stúdenta fyrra
árs voru 13 nemendur sem allir
luku prófi. Hæstu einkunn
hlaut Valdís Magnúsdóttir, 9,12,
en það var jafnframt hæsta
einkunn við skólann á þessu vori.
1 kennaradeild stúdenta síðara
árs voru 34 nemendur. 32 luku
prófi, en tveir eiga ólokið kenn-
araprófum. Hæstu einkunn hlaut
>yrí Huld Sigurðardóttir. 209
nemendur ljúka því kennara-
prófi frá Kl á þessu vori.
í menntadeild voru 62 nem-
endur og komu 58 til prófs og
11 nemendur utan skóla. 65 hafa
lokið prófi, en hæstu einkunn
hlaut Guðrún Þ. Guðmanns-
dóttir.
Þá rakti dr. Broddi nokkr-
ar af verulegum breytingum í
starfi skólans. 1. Felld var niður
kennsla i 1. bekk almennu kenn-
aradeildarinnar með hliðsjón af
væntanlegri endurskoðun á lög-
gjöf og heildarskipulagi hans.
2. Tekin var upp kennsla á upp-
eldiskjörsviði í 1. bekk fram-
haldsdeilda gagnfræðaskóla. 3.
Kennaradeild stúdenta lauk í
fyrsta sinn tveggja ára námi.
4. Leitazt var við að ná hlið-
stæðu marki í einum bekk
menntadeildar og gert er í
stærðfræðideildum menntaskóla.
5. Haldið var áfram kennslu og
þjálfun sérkennara í framhalds-
deild skólans og undirbúið starf-
ið fyrir sumarið, en senn lýkur
að þessu sinni 14 mánaða náms-
ferli sérkennara tornæmra og
treglæsra barna. 6. Jafnframt
var undirbúið og hafið viðlíka
langt nám fyrir kennara i stærð-
fræði við barna- og gagnfræða-
skóia. I námi þessu eru 49 kenn-
arar tomæmra barna, en 65
stærðfræðikennarar, alls 114.
Þá gat dr. Broddi þess að í
desembermánuði hefði mennta-
málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gisla-
son skipað arkitektana Helga og
Vilhjálm Hjálmarssyni til þess
að gera uppdrætti að stækkun
á Kennaraskólahúsinu og
íþróttamannvirkjum fyrir Æf-
ingaskólann og Kennaraskólann.
Jafnframt var skipuð bygging-
arnefnd til að hafa umsjón með
undirbúningi þessara mann-
virkja. Teikningum að íþrótta-
húsi, sundlaug og leikvöllum er
nú langt komið og munu fram-
kvæmdir hefjast á þessu sumri.
Þá nefndi skólastjóri einnig mik-
ið aukastarf skólamanna við
undirbúning frumvarps þess, er
af þróaðist Löggjöfin um Kenn-
araháskóla íslands, en skipuð
hefur verið nefnd til þess að
setja Kcnnaraháskólanum reglu-
gerð samkvæmt hinni nýju lög-
gjöf.
Þakkaði dr. Broddi öllum sem
unnið hafa að málum skólans,
nemendum, kennurum og öðr-
um, og sagðist vona og biðja
að allir mættu vel njóta, bæði
þess er betur fór og einnig hins,
er miður vel fórst úr hendi.
„Lángefinn maður og námfús
getur lært af flestum hlutum,
hvort heldur eru eftirdæmi eða
víti,“ sagði hann.
Að lokinni skýrslu skólastjóra
fluttu ávörp Jón Sigurðsson,
fyrrverandi skólastjóri, fyrir
hönd 50 ára kennara og afhenti
hann skólanum bókagjöf. Þá
flutti ávarp Jóhann Sveinsson
frá Flögu og síðast talaði Guð-
Dr. Broddi Jóhtnnnceson flytur
sfeólasl ti'í-a-ðuira í gær.
mundur Kristmundsson úr hópi
nýstúdenta. Talaði hann fyrir
hönd nemenda og þakkaði kenn-
urum fyrir samveruna.
Að lokum ávarpaði dr. Broddi
brottfarendur með eftirfarandi
ræðu:
„Á vörum aliþýðu allra landa
og tíma og á bókum þjóðanna
fornum og nýjum eru mörg
dæmi um skarpa grein, sem
gerð er á vitrum manni og ó-
vitrum. Þau hafa borizt okkur
frá vörum Salomons konumgs,
úr höll Háva og skyndisvörum
spunakonunnar við rokkinn, álf
konunnar i hamrinum og sláttu
mannsins á teignum og hásetans
við árina.
Og nýi.r tímar ljá gömlum
hugsunum nýjan búning og
tengja í nýtt samhengi.
í riti sínu Krabbadeildin læt-
ur sovézki rithöfundurinn Alex-
ander Solzhenitsyn aðalisögu-
hetjuna, Kostoglotov, rifja upp
eftirlætisorðtak afa síns sáluga:
Aulinn sækist eftir því að
kenna, en skyniborinn maður
að læra. (A fooi lioves to teach,
but af clever man loves to
learn).
Tungur þjóðanna eru án efa
merkust rmenningararfleiíð
þeirra. Þar þrýtur a.ldrei rann-
sóknar- og leikefni spurulum
huga. Það miá verða fóstrum og
kennurum frjótt og gott undrun
arefni um mörg lýsingarorð t.
d. er taka sérstaklega til per-
sónuleika eða skapgerðarein-
kenna, hvar andstæður eru auð
fundmar og hvar torgætar eða
engar.
Námfús er hverju barn-i tami
orð og auðskilið, en leitun mun
á tömu orði um þann mann,
sem auðkennist af því að vera
veitull á fræði sín og feiunnáttu,
fús að kenna og jafnvel ósýnt,
hver hugblær myndi fylgja
siiiku orði.
Hvort tveggja fúsleikinn að
þig'gja kunnáttu og veita hana
er þó manninum í brjóst borin,
og eigi aðeins manninum, held-
ur og miörgum dýrum, einkum
hinum svoköliluðu æðri tegund-
um þeirra. Myndi þeim ekki
verða lifls auðið án þeirra.
Ef heimilt væri að bera sam-
an orð afans í hinni rússnesku
skáldsögu og orðaforða islenzkr
ar tun<gu um svipað efni, mætti
ætla, að brjóstvit tveggja þjóða,
fjarlægra og ólikra u-m stað-
hætti, hnigi í þá átt, að meira
væri um það vert að nema en
að kenna.
Lengi hef ég trúað þvi, að
Jóhannes Kjarval væri mestur
húmanisti þeirra manna, sem ég
hef haft a,f verulieg persónuleg
kynni, enda haift meira ancllegt
vænghaf en nokkur hinna. Húm
anisti er umburðariyndur mann
eskjunni. Ekki minnist ég þess,
að Kjarval færi i mín eyru lægj-
andi orðum um noklkurn mann.
>ó kom fyrir að hann segði,
með nokkrum keim af vansæld
í rómnum: Hivnn er ákaflega dós
eraindi um þann mann, er sjáltf-
kjörinn þótti'st til að hafa for-
sögn um rétt og gott snið á til-
verunni.
Ég hygg að sá, sem kennir
meira en hanm liærir, sé flíflið að
skilningi afans i sögiu Solzhenit
syns. Sldkir menn eru ekki nám
fúsir, heldur dóserandi.
Margt ungt fólk hefur nú sem
á öilum tinrntm látið sefjast til
þeirrar aðkenningar, að það sé
spillt, að ekki sé sagt gerspillt.
Þessu valda yfirleitt fáir ein-
staklingar, sem hafa það m.a.
sér til ágætis að vera dóserandi
með áhriflaríkum hætti. Og
unga fólkið á einnig nokkra í
sinum flokki.
Aliiur samanburður á siðgæði
kynslóða er erfiður, og vand
fundinn einhiítur mælikvarði í
þeim efnum, því munu un.gir
sem gaml'ir jafnan hætta sér út
Franihald á bls. 31.
Skírteini afhent í II áskólabidi í gser.