Morgunblaðið - 10.07.1971, Side 2

Morgunblaðið - 10.07.1971, Side 2
 2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JOLÍ 1971 Góður hagur Almenna bókafélagsins Karl Kristjánsson kjörinn formaður ALMENNA bókafélagrið og styrktarfélag: þess, Stuðlar hf. héldu aðalfundi sína þriðjudag:- inn 6. júlí sl. í upphafi fundar minntist Jó- hann Hafstein dr. Bjarna Bene- diktssonar, en hann var forgöngu maður um stofnun Almenna bóka félagsins og formaður stjómar þess frá fy-rstu tíð. Risu fumd- anmenn úr sœtum í virðingar- skyni við minningu hins látna. Framkvæmd ast j óri Almenna bókafélagsins, Baldvin Tryiggva- son, lagði fram reikninga félags- ins og skýrði frá starfsemi þess á liðnu ári. Kotn þar meðal ann- ars fram, að sala félagsins hafði aukizt nokkuð á árinu og varð um 21,1 miilj. kr. þrátt fyrir að félagið hafði gefið út nokkuð færri bækur þetta ár en árið á undan. Gekk rekstur félagsins því vel á árirru. í>á ræddi fram- kvæmdastjóri ýmis þau vanda- mál, sem íslenzk bókaútgáfa á við að etja. Þar væri fyrst stöð- ugt vaxandi útgáfukostnaður samfara minnkandi sölu ís- lenzkra bóka, einkum nýrra bóka. Á hinm bóginn héldist sala éldri bóka nokkuð stöðugri, sem stafaði af lægra bókaverði. Þótt verðlag á bókum hafi hækkað þá vantaði mjög á, að Mutur útgefenda væri sá sami og var t.d. fyrir nokkrum ár- um, og útilokað væri að útgef- endur gætu greitt þau ritlaun, sem höfumdar með réttu teidu sig eiga kröfu til. Benti Baldvin Tryggvason á, að söluskattur á bókum væri nú einu prósenti hærri en meðalrit- laun t.d. á Norðurlöndum. Ef útgefendur fengju að ráðstafa söluskattinum til höfunda sinna væri mikill vandi leystur. Formaður fólagsins var ein- róma kosinn Karl Kristjánsson fv. alþingismaður. Meðstjórnendur voru kosnir: Eyjólfur Konráð Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Halldór Halldórsson og Jóhann Hafstein. Varamenn: Davíð Ólafssom og Geir Hallgrímsson. Endurskoðendur: Guðmundur Benediktssori og Ragnar Jónssom. í bókmenmtaráð Almenna bóka félagsins voru kosnir: Tómas Guðmundsson, form., Birgir Kjaraui, Guðmundur G. HagaMn, Höskuldur Ölafsson, Indriði G. Þorsteimsson, Jóhamnes Nordal, Kristján Albertsson, Matthías Johannessen, Sturla Friðriksson. Á aðalfundi Stuðla h.f., en það er styrktarfélag Almenna bóka- félagsins flutti Ejrjólfur Konráð Jónsson framkvæmdastjóri þess Framh. á bls, 19 Karl Kristjánsson. Sýningu á „bláum mynd- um“ að ljúka Á MORGUN, sunnudag, lýkur sýningunni á BLÁUM MYND- UM en hún hefur nú staðið í rúman mánuð hjá Listasafni Al þýðusambands íslands að Lauga vegi 18, III h. — Sýningin drag ur nafn sitt af því, að blái liturinn er uppistaða flestra eða allra verkanna á sýningunni. — Samtals eru þarna verk eftir 16 málara: Landslagismyndir, portrettmyndir, uppstillingar, táknverk og abstraktmyndir. — Sýningarsalur Listasafnsins ar opinn alla daga nema laugar- daga kl. 15—18. Næsta sýning verður væntan- lega opnuð eftir miðjan júlí. Olíuhreinsunarstöd á íslandi: Undirbúningsfélag stofnað RÍKISSTJÓRN íslands var falið með lögum nr. 21 frá 5. apríl 1971 að beita sér fyrlr stofnun hlutafélags er kannaði aðstæður til þess að reisa og reka olíu- hreinsunarstöð á íslandi og stuðl- aði að því, að henni verði komið á fót. Samkvæmt þessu hefur iðn aðarráðnneytið að undanförnu undirhiiið stofnun slíks félags. 1 fréttatiJkynningu frá ráðu- neytinu segir að fimmtudaginn 8. júli hafi undirbúnimgsféla'gið verið stofnað og nefnist það Uindirbúningsfélag olíuhreinsun- arstöðvar á Islandi h.f. Hluthaf- ar eru ríkissjóður, sem sam- kvæmt lögum á 51% hlutafjár með 5 milijóna króna framlagi, en aðrir stofnendur eru með sam tals 4,8 milljóna króna hlutafé, er skiptist jafnt á miiMi þeirra. Eru þeir: Eimskipafélag Islands h.f., Olíufélagið h.f., Oliufélagið Skeljungur h.f., OMuverzlun Is- lands h.f, Samhand íslenzkra samvinnufélaga og Sameinaðir verktakar hf. Stjóm félagsins skipa tveir fu'lltrúar rikisstjórnarinnar, Thor O. Thors, forstjóri, sem jafn- framt er formaður stjórnarinn- ar og Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri. Þriðji stjómairmaðurinn, Vilhjálmur Jómsson, forstjóri, er sameiginlega kosinn af hluthöf- um. Samkvæmt stofnsamningi er framkvæmdaráð stjóminni tiil ráðuneytis. Stjómarmenn eru sjálfskipaðir meðlimir ráðsins, en þeir stofinendur, sem ekki eiga fuiltrúa í stjóm tilnefna hver sinn meðlim. Samkvæmt þessu eiga eftirtaldir menn sœti í framkvæmdaráði: Thor O. Thors, formaður, Óttarr Mölier, Viilhjálmur Jónssom, Indriði Páis son, önundur Ásgeirsson, Hjört- ur Hjartar og Ha'lldór H. Jóns- son. End'urSkoðendur félagsims eru HaMgrimur Fr. HaMgrims- son og Ámi Þ. Ámason. Öll skil- ríki og Skjöil varðandi þetta mál, sem ummið hefur verið að sið- astliðinin áratug, fyr»t af þar til kjörinni nefnd og síðastliðin tvö ár að frumkvæði for- sætis- og iðnaðarráðherra, Jó- hanns Hafstein, mun iðnaðar- ráðuneytið láta undirbúningsfé- liaginu í té — segir í fréttatil- I iVí.-nniinio'ii iftniaðarráðnnevl-ÍLíainÆ V Hafliöi Jónsson, garðyrkjustjórj; Hollar hendur — græn grös „Þú átt að vemda og verja, þótt virðist það ekki fært, allt, sem er hug þínum heilagt og hjarta þínu kært.“ Þannig yrkir bóndinn og skáldið Guðmundur Ingi. Þessar ljóðMnur korna oft í hugann, er fjöimiðiar segja fréttir af starfi þeirra manna, sem vinna að land- græðslu. Önedtainlega hlýnar manni um hjartarætur, er fregnir berast af eidmóði og bjartsýni, er fýlg- ir athöfnum landgræðsilumanna. Örfoka land er girt, grasfræi er sáð og kemiskum áburði er dreift yfir auðnina. Landíð er þessum sitarfsglöðu mönnum heilagt og kært. Megi voimenn Islands njóta blessunar gruðs og góðs skilnings okkar, sem fylgjumst iweð starfi þeirra úr fjarlægð og vi'tum, að þeir vinna að einu brýmasta og fegursta verkefni, sem um þessar mundir er fram- kvæmanliegt hjá þjóðinni. Að vemda og verja landið á þann hátt sem landgræðslumenn okkar gera, ætti að vera stolt og æra, fyrir þjóð, sem ekki treyst- ir vamir sinar með byssukjöft- um og þjálfuðum dátum. Með hliðsjón af þeirri staðreynd, ætti drjúgur hluti þjóðarteknanna að renna til þessa umtalsverða landvamarstarfs. En því er ekki að heilsa. Landgræðslunni er naumt skammteð og við sjálift liggur, að landgræðslustjóri verði að afla tekna fyrir land- varnarlið sitt með því að senda það á vetrarvertíð í Vestmanna- eyjum eða Grindavík til að tryggja, að hægt sé að halda uppi sumarstarfi með þjálfuðum verkamönnium. Svo mikið er víist, að Land- græðslustjóri virðist þurfa á þvi að haida að sækja tekjur fyrir landvarnarlið sitt, með þvi að halda uppi samkeppnisbúskap við bændur með framleiðslu á kjöti og sölu fóðurvöru fyrir sportbúendur hér í þébtbýlinu. Ennifremur að annost vafa- samar áburðardreifingar úr flug- vél yfir lyngmóa og mosahraun, þar sem nokkur von er á, að auka vöxt strjálla einkimblöð- unga, í þeirri góðu trú, að of- setnir bithagar skili búpeningi feitari af fjalli. Hitt virðist því miður hafa gtleymzt, að með þessum gegndariausa og nokkuð handahófskennda austri kem- iskra efna, er verið að veikja þann uppistöðugróður, sem lifað hefur af harkaiega beit, æðandi storma og margs konar óáran í gegnum aldimar. Með áburðar- dreifingu á þennan langhrjáða gróður, missir hann forystuna í gróðurlendinu og hin rótditl u grös fá yfirhöndina. Sú kynistóð, sem nú kappkost- ar að búa í haginn fyrir þá, sem landið eiga að erfa, ætti vissu- lega að gera sér það ljóst, að næstu kynslóðir búa ekki við svipaða hjarðmennsku og hér hefur haldizt frá upphafi byggð- ar. Okkur ætti þvi að vera það fu'lllkomið íhugunarefm, hvað við erum að hafast að með þessum gegndarlausa austri köfnunar- efnisáburðar yfir landið. Ef seinni tímar hafa ekki ráð eða vilja á að viðhaida vexti þess- ara bithaga, sem við erum nú að stofna tii, þá veikist rótfesta grasanna og við því má búast, að þeir timar komi, að þar verði auðn ein, er í okkar æsku voru fjölskrúðugir lyngmóar. Spilium ekki gróðri í fljótræði, en leggjum á það áherzlu, að hafa hollar hendur i viðskiptum við náttúru landsins. Frá stofnfundi Undirbúningsfélags oiíuhreinsunarstöðvar á Islandi h.f. hinn 8. júlí. Frá vlnstrl á myndinni: Hjörtur Torfason, hrl.; Einar B. Gnðmiindsson, stjórnarformaður Eimsidpafélags- fslands h.f.; Óttarr Möller, forstjóri; Önundur Ásgeirsson, forstjóri; Ásgeir Jóhannesson, forstjóri; Árni Snævarr, ráðuneytisstjóri; Jóhann Hafstein, forsætis- og iðnaðarráðherra; Ámi Þ. Áraa- son, skrifstofustjóri; Vilhjálmur Jónsson, forstjóri; Hjörtnr Hjartar, forstjórl; Thor O. Thors, forstjóri; Haildór H. Jónsson, arkitekt; Indriði Pálsson, forstjóri og Haligrímur Fr. Hailgrímsson, stjórnarformaður Skeljungs h.f. Satchmo kvaddur: „When The Saints Go Marching Inu NEW YORK 9. júli — AP. Hann hafði spilað það svo oft, við jarðarfarir svo margra ann- arra, að þegar mesti jass-tromp- etleikari heimsins var lagður til hinztu hvíldar var eiginlega óhjákvæmilegt að „Wlien The Saints Go Marching lln“ skyldi enduróma í litlu kirkjunni í Queens. Louis Armstrong lifði Ifyrir tónlist og hún fylgdi honum í dauðann. Tugþúsundii syrgjenda stóðu fyrir utan kirkjuna, en inni voru margir frægustu listamenn Bandaríkjanna, og ali- ir kvöddu með trega litla Jtétt- vaxna manninn sem (hafði komið við svo mörg hjörtu, svo víða í heiminum. „Hann er bezti sendiherra kærleikans og friðar sem Banda- ríkin hafa nokkru sinni átt," sagði útvarpsþuluriinn Fred Ix>uis Armstrong. Robbins, náinn vintur Arm stronigis. „Hann fcalaði við mifflj- ónir með tónlist sinni, og miiil j- ónimar hriifust og elskuðu hann.“ Satohmo sagði sjálfur; „Tónar eru tónar á hvaða tungumáli sem er. Ef þú htttir þá rótbu, þá sikiilja þeir þig.“ Þegar hann var borinn úr kirkjunni stóð mannfjöldinn þög- ull og laut höfði. Meðal þeirra sem báru kiistuna voru Ella Fitzgerald, Guy Lombardo, Benny Goodman, Dizzy Gilliispie, David Frost, Didk Oavett oig John Lindsey. Á leiðinni tit kirkjuigarðsins fór likfylgdin framhjá litlum hópi sem stóð og beið eftir henni. Tvö siðhærð ungimenni héldu á lofti ^ki'lti sem á var krotað: „Við elisskum þi'g öll Louis.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.