Morgunblaðið - 10.07.1971, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLl 1971
1 GÆR ♦oru kunngerð úrslit
í samkeppni um hjónagarða
fyrir Iiáskóla íslands, sem
staðsettir verða við Suður-
götu sunnan við prófessora-
bústaðina. Fyrstu verðlaun,
krónur 250 þúsimd, hlaut til-
laga eftir Hrafnkel Thorla-
cius, arkitekt. Dómnefnd hef-
ur lagt til, að höfundi tillög-
unar verði fengið verkefnið
til frekari útfærslu. Á fundi
með blaðamönnum og gest-
um í Félagsheimili stúdenta
í gær sagði Björn Bjarnason,
formaður dómnefndar, að
samkvæmt áætlun, sem gerð
hefði verið, myndi undirbún-
ingur að hyggingafram-
kvæmdum taka 40 vikur, og
þær ættu því að geta hafizt
Gestir skoða sýningu á tillögunum, sem opnuð var í gæ r í Félagsheimili stúdenta.
Samkeppni um tillögur
að hjónagörðum lokið
Tillaga Hrafnkels Thorlacius
Reytnslan á þó vafalaust eftir
hlaut fyrstu verðlaun að skera úr um það, að full
• þörf €r á hjónagörðum við Há
Jhramkvæmdir geta hafizt ao vori slkóla íslands. í trausti þess er
ykkur boðið hingað í dag.
Samkvæmt lögum sínum ber
Félagsstofnun stúdenta að eiga
frumkvæði að byggingu stúd-
entagarða. Hún getur ekki leyst
þetta verkefni sitt nema með
fullum skilningi almennings og
í náinni samvmnu við aðra að-
ila, stúdenta, háskólayfirvöld,
rikiisvaldið, sveitarfélög og fjár
magnsstofnanir.
Þegar háskólaráð á liðnu ári
Framh. á bls, 19
í maí næsta ár, en í fyrsta
áfanga væri gert ráð fyrir 60
íbúðum. í tillögunni er gert
ráð fyrir þremur húsum með
60 íbúðum í hverju; meðal-
íbúð er um 40 fermetrar, tvö
herbergi og eldhús.
Alls bárust tíu tillögur og hef
Björn Bjarnason, formaðnr dóm-
nefndar skýrir frá iirslitum sam-
keppninnar.
ur sýningu á þeim verið komið
upp í Félagsheknili stúdenta;
hún verður opin á hverjum degi
næstu viku. Önnur verðlaun, kr.
150 þúsund, hlaut ti'llaga arki-
tektanna Ingimundar Sveins-
sonar og Garðars Halldórssonar.
Þriðju verðlaun, kr. 100 þúsund
hlaut tillaga Geirharðs Þor-
steinssonar, arkitekts og Magn
úsar Gunnarssonar, stud ark. —
Dómnefndin samþykkti að kaupa
tillögu arkitektanna Onmiars
Þórs Guðmundssonar og Örnólfs
HaD. Dómnefndina skipuðu
Björn Bjarnason, formaður,
Ragnar Ingimarsson, Bárður Dan
íelsson, Þorsteinn Gunnarsson og
Hilmar Ólafsson. Trúnaðarmað
ur nefndarinnar var ólafur Jens
son.
Við verðlaunaafhendinguna
sagði Björn Bjarnason, formað-
ur dómnefndar, m.a.: .
„Lengi hefur það verið ósk
stúdenta við Háskóla íslands, að
við skóla þeirra risu nýir stúd-
entagarðar og við nánari íhug
un hjónagarðar. Nauðsyn hjóna
garða má rökstyðja á margan
hátt, t.d. með því að vísa til
stöðugt hærra hlutfalls stúdenta
í hjúskap. Eins má vafalítið
finna þeim margt til foráttu. —
Hrafnkell Thorlaeius lieldur á líkani af tillögu sinni, sem lilaut
f jTStu ve rðlaun.
FJORIE ,
>, FERÐAFELAGAR
KASSETTUTÆKI
ERÁ PHILIPS
1. Et 3302 — rafhlöðu kassettu segulbandstæki,
2. N 2202 —„DE LUXE" rafhlöðu kassettu segulbandstæki
3. N 2204 — rafhlöðU/220 v kassettu segulbandstæki,
4. N 2205 — ,,DE LUXE" rafhlöðu/220 v kassettu
segulbandstæki.
Auðvhað 4 gerðtr, svo þér getið valið rétta ferða-
félagann til að hafa með, hvert sem yður hentar.
Lítíð við hjá næsta umboðsmanni og veljið yður
Philips kassettutæki. Það mun henta yður.
HEIMILISTÆKI
HAFNARSTRÆTI 3 - SÍMI 20455
STAKSTEIEVAR
Hreinsanir
Á undanförnum áruin hafa
öðru hvoru borizt fréttir frá al-
þýðulýðveldunum í Austur-
Evröpu um hreinsanir í valda-
stöðum og endurskipulagniiigar-
aðgerðir, sem flestar hafa stuðl-
að að nánari samvinnu við móð-
urskipið í Kreml. Nýverið hafa
rúmenskir kommúnistaleiðtogar
boðað siðvæðingarbyltingu og
félagi Zhivkov í Búlgaríu er um
þcssar mundir að tryggja traust
um vinum Sovétrikjanna aukin
áhrif og völd. Fréttir af þessu
tagi eru engin nýlunda, enda
leyfir stjómkerfið ekki, að hreyt
ingar fari fram með öðrum hæfti.
Nú hefur það hins vegar gerast
hér uppi á Islandi, að ölhi starfs
fólki á dagblaðinu Þjóðviljan-
um, málgagni þjóðfrelsis, sósíal-
isma og verkalýðshrcyfingar,
hefur verið sagt upp störf-
um með þriggja mánaða fyrfr-
vara. Tveir af yfirmönnum blaðs
ins eru hins vegar hættir nú
þegar. Slikar fréttír vekja vit-
anlega nokbra athygli ekki sið-
ur en hreinsanir í alþýðulýð-.
veldum. Framlcvæmdastjóri út-
gáfustjórnar Þjóðviljans hefur
einmitt skýrt frá þvi, að þessar
ráðstafanir séu gerðar til þcss,
að blaðstjórnin fái frjálsari
hendur um þær breytingar &
blaðinu, sem nauðsynlegar teld-
ust. Framkvænidastjórinn hefur
einnig upplýst, að svipaðar ráð-
stafanir hafi verið gerðar áður,
en breytingar hafi þó orðið mjög
litlar í það skiptið. Þessar nýju
ráðstafanir virðast hins vegar
hafa borið betri árangur, enda
hefur einn af ritstjórum blaðs-
Ins og fréttastjórinn þegar látið
af störfum.
Nú verður fróðlegt, að fylgj-
ast með því á næstunni, hvaða
afstöðu ritstjórinn Magnús
Kjartansson og ritstjórnarfull-
trúi hans taka tii aðferða blað-
stjórnarinnar. Það er nær eins-
dæmi í íslenzkum fyrirtækjum
og stofnunum, að endurskipu-
lagning og breytingar séu gerð-
ar með þeim hætti að víkja öllu
starfsfólki frá störfum í einu.
Þó gerist það stöku sinnum, að
starfsfólki er sagt upp í þessu
skyni. Dagblaðið Þjóðviljinn hef
ur sjaldnast legið á liði sínu og
fordómum í slíkum tilvikum.
Magniis Kjartansson og ritstjóm
arfulltriii hans rttuðu ekkl und-
ir mótniælabréf blaðamannanna
á Þjóðviljanum vegna þessara
atburða. Engu að síður verður
eftir því tekið, hvort þeir taka
sömu afstöðu til þessara aðgerða
blaðstjórnar Þjóðviljans og ann
arra áþekkra, en smávægilegri,
sem stöku sinnum hafa skot-ið
upp kolli.
Æfingin skapar
meistarann
Eflaust eru atburðir af því
tagi, sem nú hafa gerzt á Þjóð-
viljanum, ekki fátíðir i alþýðu-
lýðveldunum. Leiðtogar slikra
lýðvelda hafa ugglaust fengið
æfingu í hreinsnnaraðgerðiim,
áður en þeir hafa komizt til
apðstu metorða, þrf að þær verð-
ur vafalaust að framkvæma með
hinni mestu vandvirkni, ef rétt-
ur árangur á að nást.
Það er ekki ólíklegt, að þess
konar æfingar fari fram i minni
háttar fyrirtækjum og flokks-
stofnunum eða jafnvel á dag-
blöðum. Sú reynsla, sem þannig
er fengin, getur eflaust komið
þeim að góðu haldi síðar, sem
ofan á verða í átökununi. Á
þennan hátt má auðveldlega
tryggja, að valdhafar alþýðulýð-
veldanna kunni til verka, þeg-
í>r þeir setjast á valdastóla; æf-
ingin skapar meistarann.