Morgunblaðið - 10.07.1971, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.07.1971, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1971 Undirbúa byggingu elliþorps46 með Ás í Hveragerði að fyrirmynd I ÞÉZKALANDI er nú nnnið að undirbúningi þess, að hægt verði að koma npp sérstökti þorpi fyrir aldrað fúlk og er fyrirmyndin sótt til dvaiarheimilisins Áss í Hveragerði. I því sambandi hef- nr að nndanförnn dvalizt hér 16 manna hópnr úr svonefndri „Ævikvöldshreyfingu" í Þýzka- landi (Lebensabend-Bewegnng) Beztu þakkir til allra þeirra sem sýndu mér vinsemd á 65 ára afmæli mínu 30. júní síðastliðinn. — Lifið heil. Kristján Aðalsteinsson, skipstjóri. Flugf rey j ustörf Flugfélagið Þór hyggst ráða átta flugfreyjur nú þegar til starfa fyrir félagið erlendis. • Umsækjendur þurfa að vera eldri en 21 árs. • Góð enskukunnátta nauðsynleg • Kunnátta í þýzku æskileg • Umsækjendur hafi með sér a) Prófskírteini b) Umsögn tveggja meðmælenda • Stúlkur með reynslu í flugfreyjustörfum ganga fyrir. Umsækjendur komi til viðtals hjá Auglýsingastofunni Argus, Bol- holti 6. Reykjavík, laugardaginn 10. júlí kl. 14—17 e.h. og mánudaginn 12. júlí kl. 17—19 e.h. Upplýsingar eru ekki gefnar í síma. Flugfélagið Þór og kynnt sér rekstur Áss, svo og fleiri heimila fyrir aldrað fólk hér. Stofnandi og stjórnandi Ævi- kvöldshreyfingarinnar, Eduard Ziehmer, boðaði ásamt Gísla Sig- urbjörnssyni, forstjóra, til blaða- mannafundar og sagði Ziehmer þar nokkuð frá starfsemi hreyf- ingarinnar, svo og því, sem hóp- urinn hafði séð hér á landi. — Ævikvöldshreyfingin er samtök áhugamanna, sem vilja stuðla að því að elli allra geti orðið sem ánægjulegust og fólk geti lifað sjálfstæðu og skapandi lifi sem lengst. Það er ekki nóg að sjá þeim öldruðu fyrir mat og húsnæði, þvi eigi þeir að vera ánægðir, þurfa þeir að hafa ákveðið öryggi og finna, að þeir séu ennþá virkir þjóðfélagsþegn- ar. Þau 14 ár, sem Ævikvölds- hreyfingin hefur starfað, hefur víða I íbúðarhúsum verið komið upp aðstöðu fyrir aldraða, þar sem þeir geta komið saman í smærri hópum og stundað sín áhugamál. Einnig hefur verið komið upp orlofsheimilum, sem starfrækt eru allt árið. Þar getur gamla fólkið komið í leyfum sín- um, kynnzt öðrum og unnið með þeim að sameiginlegum áhuga- málum. Nýlega er hafin á vegum hreyfingarinnar bygging 106 íbúða húss fyrir aldraða og næst á dagskránni er „elliþorpið" og hafa arkitektar o.fl. komið hing- að í þvi sambandi og kynnt sér starfsemi Áss í Hveragerði. — Ástæðan til þess að Ás hef- ur svo mjög vakið hrifningu mína er sú, að þar heldur gamla fólkið áfram að lifa sjálfstæðu lífi í litlum húsum, en hefur þó öryggi og umhyggju stofnunar- innar og getur sótt þangað félagsskap, þegar á þarf að halda. Það er ekki þrúgað af and- rúmslofti stórra stofnana, þar Hjartans þakklæti færi ég börnum mínum, tengdabörn- um og öllum skyldum og vandalausum, fjær og nær, sem glöddu mig með heim- sóknum, gjöfum og skeytum í tilefni af áttræðisafmæli mínu 28. júní sl. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur farsæla framtíð. Frú Guðrún Pálsdóttir, Hellu, Rangárvöllum. VYMURA VEGGFODUR Gerið íbúðina að fallegu heimili með VYMURA VINYL VEGGFOÐRI Auðveldasta, hentugasta og falleg- asta lausnin er VYMURA. k Úrval munstra og lita sem fraeg-' ustu teiknarar Evrópu hafa gert. k Auðvelt í uppsetningu. ★ Þvottekta — litekta. Gefið íbúðinni Irf og liti með VYMURA VEGGFÓÐRI. Umboðsmenn: G. S. Júlíusson. JZ LITAVER ___-a Eduard Ziehmer sem allir eru undir sama þaki og einstaklingunum hættir við að týnast. — Ég kynntist Gísla Sig- urbjörnssyni forstjóra fyrir 8 ár- um og síðan höfum við haft sam- band okkar á milli og skipzt á skoðunum um málefni aldraðra og Gísli hefur verið með I ráð- um við frumundirbúning „elli- þorpsins". — 1 Ævikvöldshreyfingunni er það orðin venja að efna árlega til ferða til annarra landa og er tilgangur þeirra tvíþættur: ann- ars vegar að kynnast málefnum aldraðra og sjá hvernig fólk i öðrum löndum eyðir ævikvöld- inu, og hins vegar fá aldraðir þarna tækifæri til að ferðast saman í hóp til annarra landa — því ferðalög eiga ekki að vera einkamál þeirra, sem yngri eru. Ég hafði áður komið til Islands og hafði áhuga á að fleiri úr hreyfingunni sæju hvað hér er gert, og þá einkum Ás í Hvera- gerði, og því var ákveðið að koma hingað í sumar. — Hér á Islandi höfum við auk Áss skoðað Grund-, Hrafn- istu og elliheimilin á Akureyri og í Borgarnesi og hefur alls staðar verið vel á móti okkur tekið. Ég varð mjög hrifinn af elliheimilinu á Akureyri, því það er mjög nýtízkulegt og vistmenn eru þar hæfilega margir, um 80. Reynslan i Þýzkalandi og viðar hefur sýnt að æskilegasti fjöld- inn á elliheimili, sem er undir einu þaki, er 80—100 manns. Ef þeir eru fleiri er hætta á að heimilið verði ópersónulegt og einstaklingurinn „týnist", en ef f jöldinn fer niður fyrir 60 er ekki hægt að reka heimilið á nógu hagkvæman hátt. 1 Borgamesi eru aftur á móti enn sem komið er aðeins 27 manns og það eru að mínum dómi þrisvar sinnum of fáir vistmenn til að rekstur- inn geti borgað sig. Þess vegna tel ég, að Borgnesingar þurfi hið fyrsta að stækka heimilið veru- lega. ★ Það kom fram hjá Ziehmer að í Þýzkalandi eru nú 7 milljónir manna yfir 65 ára og því væri þörfin fyrir hvers konar heimili fyrir aldraða mikil. Mætti þvi vænta þess, að ef úr byggingu „elliþorpsins" yrði, gæti það orð- ið allverulegt að stærð. Safnahús opnað í Borgarnesi SUNNUDAGINN 4. júM sl. var formlega tekið i notkun Safna hús í Borgarnesi. Þar eru til húsa: héraðebókasafn, héraðs skjalasafn, byggðasafn Borgar- fjarðar og þar er og varðveitt listasafn, er Hallsteinn Sveins- son gaf Borgarneshreppi á sl. vetri. Hús þetta er á efri hæð í bygg'ngu við Borgarbraut 61 og er 300 ferm. að stærð. Bygginganefnd afhenti húsið stjórnum safnanna að viðstödd um allmörgum gestum. Meðal gesta var forseti íslands herra Kristján Eldjárn, forsetafrú Hall dóra Eldjárn, Þór Magnússon þjóðminjavörður og Bjami Vil hjálmsson þjóðskjalavörður. Formaður bygginganefndar Sigurþór Halldórsson afhenti stjórnum safna húsið með ræðu, þar sem hann lýsti húsinu og aðdraganda að_ byggingu þess. Ingimundur Ásgeirsson rakti sögu safnanna. Ávörp fluttu: Herra forseti íslands Kristján Eldjárn, Ásgeir Pétursson sýslu maður, Þór Magnússon þjóð- minjavörður og Bjarni Vilhjálms son þjóðskjalavörður, er færði safninu að gjöf ljósrituð skjöl: svokölluð stríðshjálparskjöl frá 1681 úr báðum sýslum héraðsins. Bændatal Borgarfjarðarsýslu 1733 og 1756. Bændatal úr Mýra sýslu 1734. Jarða- og búendatal i landfógetasafni frá 1753 úr báðum sýslum héraðsins. Mann tal 1762 úr Húsafellssókn og mörgum sóknum Mýrasýslu. Manntal 1801 úr báðum sýslum héraðsins. í ræðum kom fram að Héraðs bókasafnið mun hafa orðið til með þeim hætti að saman runnu þrjú söfn, Lestrarfélag Bongar- ness, Sýslubókasafn Mýrasýslu, og að hálfu Sýslubókasafn Borg arfjarðarsýslu. Að flokkun bóka safnsins hafði unnið Stefanía Eiríksdóttir bókavörður Akra- nesi. Upphafsmaður að Byggðasafni var Haukur Jörundsson fyrrv. skólastjóri, en Ragnar Ásgeirs son garðyrkjuráðunautur, safn aði munum til safnsins úr Borg arfjarðarhéraði. Af munum má nefina: Trésmiðju Þórðar blinda á Mófellsstöðum, elztu veiði- stönig landsins frá árinu 1852, flygil barónsins á Hvítárvöll- um og marga fleiri merka og góða gripi. Uppsetningu safns- ins annaðist Gísli Gestsson safn vörður i Þjóðminjasafni og kona hans Guðrún Sigurðardóttir setti upp og kom fyrir kvenbún ingum. Að skjalasafni hafa haft for- göngu Ingimundur Ásgeirsson, Hæli, Ari Gíslason kennari Akra nesi, ásamt stuðningi frá sýslu mannsembættinu í Borgarnesi. í skjalasafni eru elztu hreppa- bækur landsins, verzlunarbækur allar frá fyrstu tíð verzlunar i Borgamesi og margt merkra skjala. Söfnin hafa alla tið notið mik ils stuðnings þj óðminj avarðar þjóðskjalavarðar og bókatfull- trúa. Safnvörður er Bjarni Bach- mann og hefur hann unnið við söfnin sl. ár. Byggðasafnið verð ur opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. (Fréttatilkynning). Skagfirðingar: Vilja meira til veganna MORGUNBLAÐINU hefur bor- izt eftirfarandi samþykkt frá Búnaðarsambandi Skagifrðinga: „Aðalfundur B.S.S. haldinn að Hólum 2/7 1971 skorar á yfir- stjóm vegamála og fjárveitinga- valdið að hlutast til um að vedtt verði stóraukið fé til viðhalds vega í héraðinu. Tellur fundurinn ástiand vega yfirleitt mjög slæmt en sérstak- léga tilfinnantegar þær ströngu þungatakmarkanir, sem settar eru á vorin vikum saman, þegar fflutningaþörfin er meist hjá bændum. Krefst fundurinn þess að úr verði bætt svo að ekki þurfi að takmarlka öxu'lþunga biíreiða mieira en við 7 tonn, I siðasta lagi vorið 1973.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.