Morgunblaðið - 14.07.1971, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLl 1971
11
-1
Vistheimilið
Sólborg vígt
Vistmenn nú um fimmtíu
AKUREYRI 10 j-úlí. —
VISTHEIMILIÐ Sólborg var
vígt með viðhöfn í dag að við-
St: Jdum fjölda gesta, þar á með-
al mörgrum vandamönnum vist-
manna. Jóhannes Óli Sæmunds-
son, formaður Sty r ktarf élags
vangefinna á Norðurlandi og
framkvæmdastjóri Sólborgar,
stýrði athöfninni, en félagar úr
Kirkjukór Lögmannskirkju önn-
uðust söng undir stjóm Áskels
Jónssonar. M. a. var sungið lag
eftir Birgi Helgason, söngkenn-
ara, við kvaAi eftir Kristján frá
Djúpalæk, hvort tveggja gefið og
tileinkað Sólborg.
Séra Pétur Sigurgeirsson,
vigslubiskup, vígði vistheimilið
og lagði út af orðunum: „Þér er-
uC ljós heimsins." Aðrir ræðu-
menn voru Albert Sölvason, sem
verið hefur í stjóm Styrktarfé-
lags vamgefinna frá stofnun þess
vorið 1959, Þóroddur Jónasson,
Séra Pétur Sigurgeirsson,
vígslubiskup, vígir vistheimilið.
(Ljósm. Sv. P.)
Jóhannes ÓIi Sæmundsson
framkvæmdastjóri Sólborgar.
héraðslæknir, formaður stjórn-
ar Sólborgar, Hjálmar Vilhjálms-
son, rá ð uney ti sst j ó ri, formaður
stjómar Styrktarsjóðs vangef-
inna, sem flutti kveðjur Emils
Jónssonar, félagsmájaráðherra,
og Sigurðar Sigurðssonar, land-
lœknis, Jón G. Sólnes, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, sem
tiikynnti um 50 þús. kr. gjöf
Ákureyrarbæjar í tilefni vígsl-
unnar, og sé 'a Pétur Ingjaldsson,
prófastur.
Jóhannes Óli Sæmundsson var
sérstaklega hylltur og honum
þakkað mikið og óeiginigjamt
brautryðjandastarf, en svo vildi
til, að hann á 65 ára afmæii
I dag. Einnig var sérstaklega
fagnað sem gesti Sesselju H.
Sigroundsdóttur, forstöðukonu á
Sóiheimum, Grímsnesi, mikilli
áhugakonu um hag vangefinna.
Að vígsiuathöfn lokinni var gest-
um boðið að skoða húsakynnin
og starfsemina og að lokum
bomar fram veglegar kaffiveit-
ingar.
Byggingaframkvæmdir við Sól-
borg hófust 22. júni 1967. Arki-
tektar voru bræðumir Vilhjálm-
ur og Helgi Hjálmarssynir, og
hefur þeim að sögn kunnugra
tekizt afar vel upp. Verkfræðing-
ur var Vifill Oddsson, en bygg-
ingameistarar Ingólfur Jónsson
og Guðmundur Valdemiarsson,
sem jafnframt var verkstjóri.
Kostnaðarverð heimiiisins full-
frágengnu, aðalhúss, þriggja
starfsmannahúsa og lóðar, sem
hefur verið girt, snyrt og fegruð
Sérfræðingar vara
við soðinni mjólk
— handa börnum með
meltingartruflanir
LÆKNAR vlð Children's Ho-
Spital í Boston hafa varað
mæðnr við því að gefa ung-
um börnum sínum soðna
mjólk, þegar þau fá niður-
gang og segja, að það geti
leitt til banvænnar saltsöfn-
unar i Iíkarna bamanna.
Frá þessu segir í „Internati
onal Herald Tribune" fyrir
helgina og kemur þar fram,
að það sé algengt heimilisráð
að gefa börnum soðna mjólk,
þegar þau hafa fengið í mag-
ann en það sé hættulegt, ekki
sízt, þegar mjólkin er óþynnt
og soðin í opnum potti. Get-
ur þetta meðal annars valdið
bömum varanlegum heila-
skemmdum ef ekki dauðsföll-
urru
Ástæðan til þess að svo á-
kaft er varað við þessu nú er
sú, að nýlega létust á sjúkra-
húsinu tvö lítil börn, annað
átta mánaða, hitt fjórtán mán
aða. Hafði verið komið með
þau dauðvona á sjúkrahúsið
eftir nokkurra daga veikindi
þar sem þeim var eingöngu
gefin soðin mjólk heima hjá
sér. Og þriðja bamið, einnig
fjórtán mánaða, liggur þungt
haldið á sjúkrahúsinu. Önn-
ur ástæða til þessarar viðvör-
unar er, að sögn dr. Berengs-
bergs, sérfræðings í barnasjúk
dómum við þennan barna-
spítala í Boston, að melting-
artruflanir eru mjög algeng-
ar hjá börnum yfir sumartím
ann. „Og þótt menn ættu að
vita betu-r," sagði annar sér-
fræðingur, dr. Laurence Fin-
berg, „kemur það enn fyrir að
læknar ráðleggi mæðrum að
gefa börnum sinum soðna
mjólk."
og búin ýmsum tækjum til náms
og leikja, er um 40 milljónir kr.
Meginhluti þess fjár er kominn
úr Styrktarsjóði vangefinna, en
hann hefur að tekjustofni svo-
nefnt tappagjald af öl- og gos-
drykkjaflöskum.
Stjóm Sólborgar skipa nú:
Þóroddur Jónasson, héraðslækn-
ir, formaður (í srtað Jóhanns
Þorkelssonar, sem lézt á síðasta
ári), Albert Sölvason, Jón Ingi-
marsson, Níels Hansson og
Jónina Steinþórsdóttir. Fram-
kvæmdastjóri er, sem áður get-
ur, Jóhannes Oli Sasmundsson
og fjárhaldsmaður f. h. Styrkt-
arsjóðs vangefinna Stefán t>ór-
arinsson. Forstöðukona er Kol-
brún Guðveigsdóttir og aðstoð-
arforstöðukona og hjúkrunar-
kona Valgerður Jónsdóttir. Aðal-
kenr.ari, skrifstofumaður og
gjaldkeri er Bjami Kristjánsson,
en aðrir kennarar Sigriður Garð-
arsdóttir og Bergþóra Gústafe-
dóttir. Matráðskona er Þóra
Kristjánsdóttir, húsvörður Einar
Sigurbjörnsson og heimilisiækn-
ir Baldur Jónsson.
Dagheimili tók til starfa í
október 1969, en fyrstu vistmenn-
imir komu í apríl 1970. Þeir eru
nú 46, en þar að aufki eru 7 fhitt-
ir daglega heiman og heim,
skólaböm á vetruim, en dagvist-
arböm á sumrum.
Margar gjafir og ámaðaróskir
bárust í tilefni vigslunnar. Þar
á meðal var 50 þús. króna
minningargjöf um hjóniin Aðal-
björgu Pálsdóttur og Egil Þór-
láksson, kennara, frá fóstur-
börmiDi þeirra hjóna, Sigríði
Kristjánsdóttur og Agli Benedikt
Hreinssyni, og skal fénu varið
til þess að bæta kennsduaðstöðu
á heimilinu.
Mikili hugur er í forráða-
mönnum Sólborgar að færa enn
út kvíamar, og er efst á óska-
listanum bygging 15 manna ör-
vitadeildar og fleiri og rúmibetri
vinnu- og kennslustofur. Um hitt
efast enginn, sem heimsækir
Sólborg og kynnist starfseminhi
þar, að hér er risin ekki einasta
þörf, heldur einnig stórmerkileg
stofnun, sem létta mun hina
þumgu byrði þeirra foreldra, sem
eiga vangefin böm, og á eftir i
æ rikara meedi að verða hinum
vangefnu émetanlegt vé og
veðrahlé. Maður, sem víða hefur
farið og einmitt kynnt sér mái-
efni og aðbúð vangefinna, lét svo
um mælt í dag, að Vistheimilið
Sólborg stæðist með sóma sam-
anburð við hvaða hliðstæða
stofnun í heiminum sem væri. .
Sv. P.
AÐRIR MICHEUN
í krappri beygju á mikilli ferð
skiptir það máli hvort allur
snertiflötur hjólbarðanna er á
veginum eða hvort hluti þeirra
lyftist frá. Það getur hæglega
gert gæfumuninn.
o>
a
}
Michelin radial hjólbarðar
beygja sig í hliðunum og halda
öllum snertifleti hjólbarðans
flötum á veginum.
Það munar miklu, einnig við
snögga hemlun og í hálku.
RADIAL
„MICHEUN
gerir muninrí
i
Allt á sama Stað Laugavegi 118-Sími 22240
EGILL VILHJÁLMSSON HE