Morgunblaðið - 27.07.1971, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.07.1971, Qupperneq 1
28 SÍÐUR OG 4 SÍÐUR ÍÞRÓTTIR . 165. tbl. 58. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. JtJLÍ 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hjarta- og lungna- flutningur Barnards: Gerður að konu hins látna forspurðri Cape Town, 26. júlí. AP. EIGINKONA mannsins sem hjarta og lungu voru notu'ð úr við lítfæraflutning á Groote Schuur-sjúkrahúsinu síðastliðinn sunnudag, segir að sér hafi ekki verið kunnugt um hvað til stóð, og hún liefði aldrei gefið sam- þykki sitt, hefði hún vitað það. Stjórn sjúkrahússins hefur aft- ur á móti gefið út tilkynningu þar sem segir að það hafi feng- ið öll nauðsynleg leyfi frá yfir- irvöidum áður en að aðgerðin hófst. Líðan sjúklingsins er sögð eft- ir atvikum góð, í>að var skurðlæknirkm frægi Christian Barnard, sem fram- kvæmdi aðgerðina, ásamt sam- starfsfólki sínu. Maðurinn sem líffærin voru tekin úr, var 28 ára gamall svertingi, en þiggj- andinn 49 ára gamall „litaður” tannísmiður frá Cape Town. Framhald á bls. 26. Hafnarháskóli tilnefndi: W estergaard og Widding í nefndina sem ákveður hvaða handritum skuli skilað Geimfararnir .lames B. Irvin, Alfred M. Wor ,ien og David B. Seott eru nú á leið til tunglsins um borð í Apollo 15. Þessi mynd var tekin af þeim skömmu fyrir flugtak fyrir framan likan af tungl- ferjunni Fálkanum. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Kaupmannahöfn. DANSKA utanríkisráðuneytið hefur staðfest að Kaupmanna- hafnarháskóli hafi skipað tvo menn í nefndina, sem á að á- kveða hvaða handritum skuii skilað til íslands. Þeir eru pró- fessor dr. phil. Christian Wester- gaard Nielsen og dr. phil. Ole Widding, lektor. Westergaard er formaður stjórnar Árnasafnis og sem slík- ur, var hann sá, sem átti frum- kvæðið að réttarhöldunum um hvort afhending íslenzku hanid- ritanma væri stjórnacrskrárbrot. Apollo 15: Ferðin gengur vel Skotið var 187 þúsundustu úr sekúndu á eftir áætlun Kennedyhöfða, 26. júlí — AP-NTB FERÐ bandarísku geimfar- anna þriggja til tunglsins gengur alveg samkvæmt áætl un og að óskum eftir tungl- skotið frá Kennedyhöfða kl. 13.34 að ísl. tíma í dag. Sat- úrn 5 risaeldflaugin kom þeim David R. Scott, James B. Irwin og Alfred M. Word- en á braut umhverfis jörðu 121/a mínútu eftir skotið. Segja vísindamenn á Kenne- dyhöfða að niðurtalning fyrir geimskot liafi aldrei gengið jafn vel og snurðulaust fyrir sig og svo mikil var ná- kvæmnin að skotið var aðeins 187 þúsundasta úr sekúndu á eftir áætlun. David Scott, leiðangursstjórinn í ApoIIo 15 sagði eftir skotið: „Vel gert, ferðin út í geiminn var mjög mjúk og þægileg.“ Eftir að vera komnir á braut umhverfis jörðu hringsóluðu geimfararnir í 3 klukkustundir og fóru yfir öll tæki og tengdu tunglferjuna við móðurskipið og kl. 16.30 að ísl. tíma kveiktu þeir á þriðja þrepi Satúrn-eldflaugar- innar, sem þeytti þeim af stað áleiðis til tunglsins með um 24.300 mílna hraða á klukku- stund. Ferðin til tunglsins tekur 78J4 klukkustund ef allt gengur eftir áætlun og .ætlunin er að Framh. á bls. 2 Sem kunmugt er koimst hæsti- réttur að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. Westergaard er 60 ára að aldri, magister i norrænum málvísindum og var við nám á íslandi á Framh. á bls. 2 Petrosjan gegn Fischer MOSKVU 26. júlí — NTB. SOVÉTMAÐURINN Tigran Petrosjan og landi hans A ikt- or Korchnoj gerðu jafntefli í síðustu einvígisskák sinni í Moskvu í kvöld og hefur Petrosjan þar með sigrað í einvíginu og öðlazt réttindi til að tefla við Bandaríkja- manninr. Bobby Fisclier, sem sigraði Bent Larsen 6:0. Níu skákuni Jjeirra Petrosjans og Korclinojs laitk með jafntefji, en Petrosjaji sigraði í 9. skák- inni. Hann hlýtur því 5/'/2 vinning gegn 4/2. Súdan: E1 Noor og Hamdalla skotnir Majoub handtekinn Kaíró og Omdurman, 26. júlí — AP-NTB AFTÖKUM og kommúnista- hreinsunum er haldið áfram í Súdan og voru þcir E1 Noor majór og Hamdalla teknir af lífi í dag. Hafa þá alls níu vinstrisinnaðir herforingjar og forseti verkalýðssam- bandsins í landinu verið tekn- ir af lífi. 1000 kommúnistar hafa verið handteknir, en bú- izt er við að alls verði um 10000 manns handteknir áður en yfir lýkur. Þeir E1 Noor og Hamdalla voru teknir af lífi þrátt fyrir áköf og hörð mótmæli brezku stjórnarinnar, en sem kunnugt er voru þeir teknir frá borði úr brezkri farþegaflugvél á flug- velli í Líbýu, sem var neydd til að lenda þar. Voru þeir hafðir í haldi í Tripolis á meðan gagn- Framhald á bls. 26. m

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.