Morgunblaðið - 15.08.1971, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.08.1971, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. AGOST 1971 11 skrifar um MYNDLIST Sýningaryfirferð douwe jan bakker: SÚM Snorrí Arinbjamar: Norræna húsið. Vinnan: Listasafn A.S J. Alfred Smidt: Mokka. Bernhöftstorfan: A.l. Iðnaðarmálastofnunin: Esja. Henrik Vagn Jensen: Bogasalur. Alþýðufylkingin: Laugaveaáir. Alda Snæhólm: Mennta&kólinn við Hamrahlið. Jóhann G. Jóhannson: Casa Nova. Eðlilega hefur það ekki ver- ið venja okkar gagnrýnenda, að sýna mikil tiilþrif í skrifum um sýningar yfir hásmmartímann, enda teljum við þá okkar hvild- artíma. En þar sem sjaldan hafa verið jafnmargar sýningar á þessum tíma árs sem nú, væri óréttlátt að þeirra væri að engu getið frá hendi listrýnenda, vil ég þvi vikja lítillega að þeim sýningum, sem nú standa yfir, auk nokkurra þeirra sem nýaf- staðinar eru. Vil ég fyrst vekja afchygli á sýningu hollenzka málarans douwe jan bakker i Galerie SÚM, en sýning þessi er mjöig óvenjuleg fyrir isienzka list- unnendur að ekki sé meira sagt. Hið hugmyndafiræðilega ræð- ur rikjum á þessari sýningu, — nokkurs konar myndræn heim- speki og hugdettur, sem nauð- synlegt virðist að iáta fyiigja skýringartexta til þess að verk- in komi til skila. douwe jan bakker er furðulegt samíbland af húmorista og heimspekingi, myndir hans geta í fyrstu virst mjög erótískar, jafnvel þanniig að það jaðri við kiám, en fljót- lega uppgötvar maður að sMk- ur skilningur á engan beinan rétt á sér. Sýning þessi er for- vitnileg þeim sem viija auka við þekkingu sina á eðld nútímalist- ar, og hér eru vissuiega sýnd- ir hlutir sem ófáir munu hafa haldið að væru ekki til í mynd- Mst, og þvi skal fróðleiksfúsum ráðlagt að láta sýningu þessa ekki fara fram hjá sér. douwe jan bakker sýnir í boði SOM og nýtur styrks frá hoUenzka menntamálaráðuneytinu, en frá því ráðuneyti rennur drjúgur skildingur til lifandi listastarf- semi. 1 anddyrí Norræna húss- ins hefur verið komdð fyrir nokkrum verkum Snorra heitins Arinbjamar, eins af brautryðj- endum íslenzkrar nútímalistar. Þetta er Mtil sýninig en gædd miklum þokka og er til mikillar prýði í anddyrinu, en það sama er ekki hægt að segja um marg- ar sýningar, sem þar hefur ver- ið komið upp, einfaldlega vegna 'þess að anddyrið er ekkí vel fallið til sýninga, svo sein margoft hefur verið bent á. Sýn ing þessd áréttar mikla þörf á að komið sé upp veglegri heildar- sýningu á æviverki þessa lista- manns, s<vo að tækifæri gefist tii að kryf ja list hans rækiiega. í húsakynnuim Listasafns Al/þýðusambands íslands getur nú að Mta myndir tileinkaðar vuinunni. Þetta er hin fróðleg- asta sýning og vel sett upp, og skyldi fólk ætla sér nægan tíma til að skoða hana. Safnið er í þröngum húsakynnum og fé vana og er ekki vanzalaust hverniig Alþýðusambandið býr að veglegustu gjöf sem því hef- ur borizt. Hvað líður saifmbygg- ingunni sem svo mikið var rætt úm og skriíað þegar þessi ve.g- lega g jöf var fiærð ? í Mokka sýnir þýzkur hönn- úður, Alfred Schmidt að nafni, myndriss af ýmsum st-öðum af landinu. Myndimar eru gerðar af leiknii og menningarbrag, sem bera hinum þjálfiaða hönn- uði Ijóst vitni, írekar en skap- andi listamanni. Þetta er nokk- urs konar sannverðugt „dioku- ment“ af stöðum á lándinu sem listamaðurmn hrífst af. Það er sannarlega ólíkt meiri menning- arbragur að þessari sýningu en mörgum þeim, er settar eru upp á þessum stað. Sýning Arkitektafélags Is- lands á tiMöigum varðandi sam- keppnii um framtíðarútlit Bern- höftstorfunnar, olli mér nokkr- um vonibrigðum. Ég hafði búist vrð almennari þátttöku af háifu menntaðra arkitekta, vegna þess að hér var um að ræða mikil- vægt verkefni. Margt athyglis- um sem bárust, en rétt þýfcir mér að gera ekki upp á milli þeirra þar sem dómnefnd hefur enn ekki fjallað um tillögum ar eða skilað áliti sínu. En þó þykir mér einsýnt, að þarna mætti fara fram samWand af margskonar Mfandi menninigar- starfsemi og greiðasölu, með fomu sniði. — Að varðveita eigi húsasamstæðuna er hafið yfir all an efa. Iðnaðarmáilastofnunin er með athyglisverða gluiggasýningu á íslenzkri hönnun á neðstu hæð stórhýsis Kristjáns Kristjáns- sonar við Suðurlandsbraut þar sem hótel Esja er til húsa. Mik- ilvægi þess að auglýsa og koma því á framfæri, sem bezt er gert á þessu sviði verður aldrei of oft undirstrikað. Það þarf betra og stærra húsnæði, og helzt mið- svæðis i borginni, til að kynna slíka framileiðslu. Hrein og bein kynningarstarfsemi, þar sem vöruroar eru til sýnis, en ekki til sölu, yrði mikili lyftistöng ís- lehzkri hönnun, og hví skyldi Bemihöftstorfan ekki geta kom- ið hér í góðar þarfir m.a.! Nýlokið er sýningu danska Mstamannsins Henrik Vagn Jen- sen í Bogasalnum á pastelmynd- uim, teiknmgum og grafík. Sýn- aig þessi virtist undarlega llf- laus í heild. Listamanninum virð- ist ósýnt um að igera hin stóru einihæfu forrn sin sannfærandi og festa þau við innri lífæðir myndflatarins. Form flestra mynda hans í BogasaLnum velt einhæft og stirt. Mér virðisit þó áðumefnt alls ekki eiga við hvað snerti mynd hans nr. 26 i sýningarskrá, sem hann nefndr „Sná!kur“, sem mér fannst lang- heillegasta mynd sýningarinnar. Sýning Alþýðufylkingarinnar í gömlu þvottahúsi á Laugaveg- inum var sannarlega lítið upp- örvandi, hvað Mstræn tilþrif snertir, fiyrir hinn háileita mál- stað, er þeir virðast boða. Myndlistarmenn virðast sjá þama taakifæri tii að losna við misheppnaðar myndir, þreyttir á að gefa myndix á slíkar sýn- ingar, og með sama áframhaldi verða þær ágæt útgáia af stræt issýningum stórborganna. Hitt skal ekki véfengt að ágæt verk voru þarna inn á milIL Alda Snæhólm Einarsson sýndi í Menntaskólanum við Hamrahlíð 29 málverk. Frú- in hefur fengist nokkuð við að mála, en eftir myndum hennar að dærna virðist það vera frek- ar til að eyða tómstundum en að sökkva sér djúpt niður í Mst- ræn vándamál En það skal sagt hér till hróss, að hún höfðar ekki tM yfirborðs, — sölumynd- ir eru þetta ekki, og bendir það til vissrar einlægni og hoMustu við máiverkið. Mynd nr. 29 á sýningarskrá „Á rauðum grunmi" var heiMi og öfiugari öðrum myndum hennar, og máski hefur listakonan þar te/kið rétta stefnu á póiiinn. Jóhann G. Jóhannsson sýndi í Casa Nova 27 myndir við kerta- Ijós og reykelsisilm. Það var líkt því að hann notaði rökkrið sem eins konar ,,enviroment“ —■ ramma utan um myndir stnar til að ná fram heiildarstem/ninigu, en á kostnað einstakra mynda, þó mig gruni að aðrar hafi frek- ar hagnast á því að vera ekfci umleilknar meiri birtu. Ég flor- tek ekki að í þessum unga manni lifi Mstrænn neisti, og þar, sem slíkur neisti er fyrir hendi felast möguleikar. En hvernig þeir hagnýtast er annað mál, og um það skal ég engu spá. vert kom þó fram í þeim tilOög- TÍGRIS Beethoven finnst hann vera beztur i Kuba Imperial stereo I I" — Þetta er nú kannski ekki alveg rétt, en hitt verður þó ekki hrakið, að IMPERIAL ST-1500 stereo-samstæðan er hreinasta afbragð. Hún er glæný (árgerð 1971—72) og byggð stereo (þrýsta þarf inn takka fyrir mono). Transis- torar og díóður í útvarpsmagnara eru 37 og afriðlar 3. Lampar eru auðvitað. engir. Mögn- un er 20 W við 4 Ohrri., og er óhætt að full- yrða, að það er kappnóg (a. m. k. fyrir þá, sem búa í þéttbýli). Viðtækið er langdrægt og hefur 4 bylgjur; LB, MB, SB og FM, og er sjálfvirk tíðnisstilling fyrir FM byllgjuna (AFC). Á utvarpi eru 2 leitarar og styrkmælir. Há- talarar eru mjög fyrirferðarlitlir (þó að sjálf- sögðu ekki á kostnað tóngæðanna) eins og samstæðan reyndar öll. Plötuspilarinn er byggður skv. vestur-þýzka gæðastaðlinum •ÐIN 45539. Er hann 4ra hraða og gerður bæði fyrir einstakar plötur og 10 plötur með sjálf- virkri skiptingu. ST-1500 fæst bæði með hvítri polyester áferð og í valhnotu. Verðið á allri sámstæðunni er kr. 38.500,00 miðað við 10.000,00 kr. lágmarksútborgun og eftirstöðv- ar á 10 mánuðum. VIÐ STAÐGREIÐSLU ER VEITTUR 8% AFSLÁTTUR (verðið lækkar i kr. 35.420,00). Að vanda er ábyrgðin í 3 ÁR. Er ekki mál til komið, að þér veitið yður skemmtilega og vandaða stere.o samstæðu?!!! Röskar stúlkur geta líka eignast Kubalmperial stereo ImPERIRL Sjónvarps & stereotæki NESCOHF Laugavegi 10, Reykjavík.Símar 19150-19192

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.