Morgunblaðið - 06.10.1971, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.10.1971, Blaðsíða 6
MOItGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1971 VEL MEÐ FARI1MN 1SSKAPUR, minnsta gerð, ósikast keypt- ur. Sömuleiðis vélritunarborð. Uppl. í síma 33488. SENDIFERÐABlLL Sendiferðabíll til sölu með atvinnuleyfi. Sírrvi 38994. PlANÓ Óska að kaupa gott píanó. Viosamlega bringið í síma 34332. HÚSEIGENDUR — HÚSFÉLÖG Getum baett við okkur máln- mgavrnnu. Við önnumst al1a málingarvinnu fljótt og vel. Uppl. ! síma 83546. KEFLAVlK 2ja tfl 3ja herb. íbúð óskast til leigu sem fyrst. Uppl. í síma 2584. KEFLAVlK Vantar svein og aðstoðar- mann í rafvirkjun nú þegar. Sími 1978, Keflavík. SNIÐHNlFUR Viil kaupa sniðhníf. Uppl. í síma 93-2040 eftir kl. 7. KEFLAVlK Höfum kaupanda að góðri 3ja berb. íbúð. Góð útborgun. — Fasteignasala Vilhjábns og Guðfinns, símar 1263 og 2376. TIL SÖLU 6 cyl. Chevrolet mótor ný- upptekinn á mótorverkstæði. Sfmi 52160. HAFNARFJÖRÐUR Óska eftir að taka bam f gæzfu. Uppl. f síma 51495. PAR UTAN AF LANDI óskar eftir 2ja berb. íbúð sem fyrst, helzt í nágrenni Háskótans. Nokkra mánaða fyrirframgreiðsla. — Uppl. í síma 30272. PARLEYGARNIÐ nýkomið fyrir prjónavélar, gott litaúrval, ódýrt. G-J.-búðin, Hrrsateig 47. KENNSLA Stúlka óskast til að lesa með tveimur börnum 12 og 13 ára. Tilboð sendi'st Mbl. fyrir 10. þ. m. merkt „Kennsla — 4370". INNFLYTJENDUR - VERKSTÆÐI Tek að mér toflskýrslugerð, verðútreikning og bókhald. (Geymið auglýsinguna). — Uppl í síma 25793. iBÚÐ ÓSKAST 3ja herbergja fbúð óskai&t til leigu strax. Sími 41893. ' JL iwæi B j argrar stelnn. GATA GÓÐU K0NUNNAR Þetta er ósköp venjuleg gata — viðkunnanleg gata — eins og raunar margir al þessum gömlu stígum, sem upphaflega voru hálfgrasivaxnir troðningar milli torfbœjanna — áður en umferð margmennisins krafðist malar og síðan malbiks, svo að aMt væri ekki útvaðandi í bleytu og for. Það er raunar furða að þess- ari litlu götu skyldi vera gefið sérstakt nafn. Hún er ekki ann- að en þessi skammi spölur — framhald Skálholtsstígsins frá Grundarstíg og upp að Óðins- götu, og við hana eru ekki núm- eruð nema örfá hús. Af þeim ber mest á hinni gerðarlegu byggingu á syðra homi Grund- arstígs, og er skipt til helminga milli hans og Bjargarstígsins. En við staðnæmumst samt aðal- lega við önnur hom — þau sem myndast við mæstu gatnamót Bergstaðastrætis. Hér standa lít il og lagleg hús, sem bera svip mót síns tíma — áranna fyrir aldamótin, þegar þetta var „suðaustur-jarðar bæjarins" eins og það er orðað í Þjóðólfi þegar sagt er frá íkveikjunni í Bjargarsteini. Það hús stendur hér enn, nr. 24 við Bergstaða- stræti, og af fróðum mönnum sagt elzta steinhúsið — hlaðið — á þessum slóðum. Ef steinar þess hefðu mál, gætu þeir sagit okkur sitt af hverju, eins og sviðnar gólffjaiir suðurstofunn ar bera vitni um enn í dag. GAMALT OG GOTT Kveðið var um smið, sem ekki þótti sérlega duglegur: Hann er látast hrinda i lag, hann er að fáta og leita, hann er að máta heilan dag, hann er að játa og neita. Þegið gætni, heknska, hik, héðan þó ég víki. Ég ætla að skreppa augnablik inn í himnariki. Jóhanna Friðriksdóttir ljósmóðir. (Úr bókinni Ég skal kveða við þig vel eftir Jóhanm Sveinsson frá Flögu). _____ Spakmæli dagsins Hann var svo gáfaður, að það var ekki hægt að skilja það, sem hann sagði. — Ummæli am- erísks veiðimanns um háskóla- kennara. ÁRNAl) UKILLA Sextugur er í dag Jens Joen sen Hásteinsvegi 22, Vestmanna- eyjum. Nú skyldi maður ætla, að nöfnin Bjargarsteinn og Bjarg- arstígur ættu sama uppruna. En gamlir menn segja að svo muni þó ekki vera. 1 viðtalsþáttum V.S.V. „Við sem byggðuim þessa borg,“ segir Ólafur G. Einars- son frá því, að afi hans Ólafur skreðari hafi átt heima í Sigur- bjargarbæ. Sá baar stóð við Bjargarstíg þar sem nú er húsið Bergstaða stræti 22 og við hann er Bjarg- arstígurinn kenndur. Hann var einn af Mið-Grundarbæjunum. Áður en Sigurbjörg fluttist í bæ þennan átti hún heima á Látlu-Grund en hafði maka- skipti við Halldór ökumann Sig urðsson. Sjálfsagt er þetta sú sama Sigurbjörg og Bjöm kaup maður Kristjánsson bjó hjá á Miðgrund (fyrst) þegar hann fliuttist til Reykjavíkur. „Smám saman varð Sigurbjörg þessi eins og bezta móðir mín," segir Björn í minningum sínum og verður tæpast betra vitni borið um sanna hjartagæzku. Sigur- björg var ekkja Ólafs Einarsson ar tórrrthúsmanns Einarssonar sem dó innan við fimmtugt 1871. Síðan bjó hún með syni sinum og stundum var hjá henni fólk sem leitaði sér lækninga hér í bænum. Sýnir það, að hún hef ur átt líknarhendur handa þeim sem lasnir voru. Bjargarstigurinn verður aldrei taMnn ein af stórgötum Reykjavikur. En nafn hans á samt ekki að gleymast heldur geymast svo að þessi nafngift minni okkur á að þar mátti sín meira hið hlýja hjarta heldur en kaldur steinn. G. Br. HÉR ÁÐUR FYRRI VÍSUKÖRN Bæn Guðs almáttugs höndin hún ávaiit mig styðji. Guðs almáttugs kraftur æ streymi mér mót. Burt örðugleikunum öllum hann ryðji svo öllu á bölinu fái ég bót. Eysteinn Eymnndsson. FRÉTTIR Frá Kvenfélagi Haf narf jarðar kir k jn Basar kvenfélagsins verður í Alþýðuhúsinu föstudaginn 8. DAGB0K Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upplokið verða (Lúk. 11-9). 1 dag er miðvikudagurinn 6. október. Er það 279. dagur árs- ins 1971. Fidesmessa. Eidadagrur. Árdegisháflæði i Reykjavík er kl. 07.11. Störstreymi. Eftir lifa 86 dagar. Næturlæknir i Keflavík 5. 10. Jón K. Jóhannsson. 6. 10. Kjartan Ólafsson. 7.10. Arnbjörn Ólafsson. 8., 9., 10. 10. Guðjón Klemenzson 1110. Jón K. Jóhannsson. Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74 er opið sumniudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar (gengið inn frá Eiríksgötu) er opið £rá ki. 13.30—16. Á sunnu- dögum frá 15.9.—15.12. Á virk- uim dögum eftir samicomulagi. Náttúrutrripasafiiið Hverfisgötu 116, OpiO þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 13.30—16.00. Háðgjafarþiónusta Geðverndarfólags- ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30 slðdegis að Veltusundi 3, slmi 12139. ÞJónusta er ókeypis og öllum heimil. Sýning Handritastofunar tsiands 1971, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók, er opin á sunnudögum Kl. 1.30—4 e.h. I Árnagarði við Suður götu. Aðgangur og ■ýnlnsarskrá ókeypis. Gróðurinn daf nar í skjóli gamalla húsa. Skin og skuggar á Bjargarstíg. október kl. 20.30. Þess er vin- samlega óskað að konur, sem vilja gefa á basarinn geri að- vart í síma 5P781 eða 50295. Kvenfélagið Seltjörn Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn i félagsheimilinu mið- vikudaginn 6. október kl. 20.30. Ófeigur Ófeigsson læknir verð- ur gestur fundarins og ræðir um vandamál í sambandi við neyzlu nautnalyfja. Einnig verða sýndar litskuggamyndir úr hnattferð. Nýjar félagskonur velkomnar. Athugið að fundur- inn byrjar stundvíslega. Stjórn in. Kvenfélagið Hrönn heldur sinn fyrsta fund í kvöld kl. 20.30. Spilað verðúr bingó. Stjórnin. ÁHEIT 0G GJAFIR Guðmundur góði Kristín 100, G.S. 300. Áheit á Strandarkirkju K.K. 100, V.K. 25, B.B. 100, I.O.B. 100, G.Þ. 1000, Hulda Einars 100, G.Þ. 200, G.G. 200, G.G. 600, Guðmunda Jakobsd. 100, I.M. 200, K.Á. 300, Karli 300, G.A. 300, L.P. 100, María 200, J.K.S. 500, Óóa ÍÓ0, G.J. 100, Jóhanna 200, Þ.Þ. og J.Ó. 300, N.N. 100, G. 50 N.N. 265, S.G.L. 700, E.M. 1000, S.S. 360, P.H. 50, Þakklátur 150, Bára Jóhannsdóttir 100, G.Þ. 500.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.