Morgunblaðið - 06.10.1971, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.10.1971, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐie, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1971 31 72 þús. kr. í vikulaun George Best tekjuhæstur enskra knattspyrnumanna AÐ undanförnu hefur heyrzt frá Eng-Iandi um svimandi háar tölur, er knattspyrnu- menn hafa verið keyptir frá einu félagi til annars. I»annig var t.d. Leicester nýlega að kaupa einn af leikmönnum Chelsea-liðsins, Keith Weller og greiddi fyrir hann 100.000 pund. Var Weller þriðjl leik- maðurinn, sem Leicester greiddi 100.000 pund fyrir síð- an liðið komst upp í 1. deild. Hinir tveir voru John Samm- els, sem keyptur var frá Ars- enal og Alan Birchznall, keypt ur frá Crystal Palace. En það er ekki nóg að háar tölur heyriat nefndar þegar félögin eru að verzla með leik menn sín á milli. Beztu knatt- spymumennimir í Englandi hafa mun rneiri tekjur held- ur en stærri fyrirtækin á ís- landi. Mestu laundn mun hinn kunni leikmaður Manchester United, George Best hafa, en honum eru greidd í árslaun frá félaginu um 3.6 milij. ísl. kr., eða um 72 þúsund krónur á viku. Næstir í röðinni koma svo Bobby Moore, West Ham, Denis Law, Manehester United, Peter Osgood, Chels- ea og Martin Peters, Totten- ham, en allir höfðu þeir á þriðju millj. kr í árslaun sl. ár. Fjöldi leikmanna hefur svo rúmlega 50 þús. kr. í viku- laun, en meðallaun leikmanna í beztu félögunum munu vera um 36 þúsund krónur á viku. Auk þeirra 3.6 millj. kr., sem George Best fær greitt frá Manchester United, vinn- ur hann sér inn hundmð þúsunda fyrir að lána auglýs- endum nafn sitt, og það em heldur engir smápeningar sem hann hefur í hagnað af tízku- verzlun sinni i Manchester. En Best fær einnig peninga fyrir fleira. Einu sinni í viku „skrifar" hann stutta grein í dagblaðið Daily Express, og fyrir hverja sQíka fær hamn um 24 þúsund krónur. Þessi tekjuöflunarleið er Best ákaf- lega auðveld, þar sem hann skrifar aldrei sjálfur einn ein- asta staf. Það eina, sem hann þarf að gera er að hafa síma- samband við eimn af bLaða- mönnum blaðsina, tala við hann í 5-10 mínútur, og játa faðerni þess sem blaðamaður- inn setur á þrykk. Margir leikmanna í ensku knattspymunni hafa lagt þá miklu fjármuni sem þeir vinna sér inn í margs konar fyrirtæki til að tryggja fram- tíð sina þegar þeir verða að leggja skóna á hilluna. Meðal þeirra er Peter Osgood. Hann hefur stofnað fyrirtæki sem heitir einfaldlega Peter Os- good h.f. Fyrirtæki þetta hef- ur sett á stofn nokkrar fisk- verzlanir, þar sem viðskipta- vinirnir fá bakka með nafni hins fræga knattspyrnumamins á, þegar þeir kaupa sér „fish and ships“. Þá hefur einn af leikmönnum Chelsea einnig áform um að setja á stofn fisk verzlanir víða um Londom, en einmitt slíkar verzlanir hafa gengið mjög vel að undan- förnu og gefið eigendum sán- um drjúgan skilding í aðra hönd. Georg Best — írski tröllkarliinn, sem er launahæsti leikmaður ensku knattspymunnar. Um hann hafa jafnan leikið misjaín- ir vindar, og þessi mynd var t.d. tekin fyrir skömmu, er dóm stólar fjölluðu um agabrot hans i knattspyrnuleikjum. Flest- um á óvænt var knattspyrnulietjan náðaður og getur þvi hald ið áfram að leika með liði sínu Manchester United. „Sjálfsvarnaríþróttin göfuga u Hnefaleikaiþróttin hefur stundum verið kölluð „hin göfuga sjálfsvarnaríþrótt“, þótt menn hafi reyndar ekki verið sammála um ágæti hennar og t.d. Islendingar bannað hana. Ótaldir eru þeir hnefaleikamenn sem hlotið hafa ævilöng örkuml á ferli sínum, og allmargir hafa verið drepnir í hringnum. Fyrir skömmu fór fram í Festival Hall í London keppni þeirra Alberto Jangalay frá Filipseyjum og Kid Snow- ball frá Suður-Afríku um heimsmeistaratitilinn í bantam vigt. Suður-Afrikubúinn hafði leikinn í hendi sér og þjarm- aði óþyrmilega að keppinaut sínum. Sló Snowball Jangalay hvað eftir annað í gólfið með heljarhöggum. En Filipsey- ingurinn skreiddist lengi vel á fætur og dómarinn stöðvaði ekki leikinn. Svo fór þó að lokum að Jangalay var dreg- inn meðvitundarlaus út í liorn hringsins og Snowball dæmdur sigurinn. Þrátt fyrir ýmsar tilraunir til þess að koma Jangalay til meðvitund ar tókst það ekki og var hann þá fluttur á sjúkrahús, þar sem hann andaðist klukku- stundu siðar. Á efri myndinni er Snowball að senda keppi- naut sinn í gólfið rétt einu sinni, en neðri myndin var tekin er Jangalay lá meðvit- undarlaus úti í köðlunum og aðstoðarmenn hans eru að reyna að drösla honum á fæt- ur. Markvörður í vanda GARY Sparke, aðalmarkvörð ur Leeds, lenti í bifreiðarslysi í fyrriuótt. Hann var þá á heimleið af næturklúbbi i Leeds, en ók út af og stöðvað ist bifreið hans á hvolfi í skurði, 37 metrum utan veg ar. Sparke meiddist sjálfur lít- ið, en þrir farþegar sem voru með honum í bifreiðinni meidd ust allir meira eða minna eink um þó stúlka, sem sat í aft- ursætinu. Þegar að var kom- ið var Sparke á bak og burt, og kom hann ekki fram fyrr en nokkru síðar og þá alllangt frá slysstaðnum. Bar hann það fram að hann hefði gengið þessa vegalengd í leit að hjálp. Vera kann, að þetta mál eigi sér nokkurh eftirmálla fyrir markvörðirm, og vist er að Leeds má sízt við slíku áfalli nú, þar sem margir beztu leik manna liðsios eru á sjúkra- lista. Thistle í úrslitum Thistle sigraði Falkirk í undan úrslitum skozku bikarkeppninn- ar í knattspyrnu með 2 mörkum gegn engu. Leikurinn fór fram á Hampden Park í Glasgow. Getraunaþáttur Getraunasérfræðingur Morgun blaðsins, R. L., hefur dvalizt er lendis sl. hálfan mánuð, en kom til landsins í gærkvöldi. Tekur hann upp þráðinn þar sem frá var horfið og birtist spá harw fyrir 30. leikviku i blaðinu á morg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.