Morgunblaðið - 10.02.1972, Side 20

Morgunblaðið - 10.02.1972, Side 20
20 MORGONBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1972 [■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I I KVIKMYNDA HÚSUNUM UUUJ LIXKJ OUJ ** góð, * sæmileg, Sig. Sverrir Pálsson ★★★ mjög góð, ★★★★ Frábær, léleg, Björn Vignir Sæbjörn Sigurpálsson Valdimarsson Nýja bíó: APAPLÁNETAN Jarðarbúar hafa náð þelrrl tsekni, að þeir geta sent geimfar út i geiminn. sem ferðast með hraða ljóssins. 1 geimfarinu eru fjórir visindamenn — þrir karl- ar og ein kona. Geimfarið spreng ir öll lögmál timans, þar sem það hefur iagt að baki rúml. 1006 iarðarár, er það lend- ir á hrjóstugri plánetu. Karl- mennirnir komast klakkiaust írá lendingu, en konan verður tím- anum að bráö. Við könnun reynast apar vera vitsmunaver- urnar á þessari plánetu, en mennirnir skynlausar skepnur. Jarðarbúar lenda brátt 1 kasti við apana, sem ekki viija við- urkenna að menn geti tjáð sig 1 máli og hreyfingum. Ghugnanleg lífsreynsla bíður jarðarbú- anna......... *★★ í>essi mynd byggir á tnjög einfaldri hugmynd, og þó að aparnir láti ekkesrt djúp 3tætt upp úr sér, leynist í fasi þeirra og masi oft bitur ádeila á takmarkanir mannskepn- unnar. Apagervin eru frá- bæriega unnin og kvikmynda taka Shamroys oft mjög sterk. ★ ★ Dágóð dellumynd. Aug- Ijóst að smásagnaformið hef- ur verið hatft til hliðsjónair við gerð myndarinnar, og lop- inm því teygður óþarflega um miðbik myndarinnar. Loka- atriðið ex sérlega frumlegt og kemur sem köld gusa í andlit áhorfenda. A'kif Hugmyndin að bakl tnyndarinnar er líklega ekki jafn fráledt og ýmsa grunar. Allavega er boðskapur henn- ar ærið hittinn á köflum. En fyrst og fremst skemmti- mynd — og mjög góð sem slík. Förðun, búningax, leik- svið, taka og leikstjórn fram- úrskaramdi. Laugarásbíó: " .......* „KYNSLÓÐABILIÐ' Larry Tyne og frú eru amerlsk ir millistéttarborgarar og eiga sér eina dóttur, 15 ára. Er hún hverfur af heimilinu einn góðan veðurdag, án þess að nokkur viti um hana, verða foreldrarnir áhyggjufuliir og Larry fer ásamt kunningja sinum að leita að henni. Þegar þeir koma heim aft- ur, vel kenndir, hefur dóttirin komið heim I millitiðinni. En þeg- ar hún sér fööur sinn 1 þessu ástandi, hverfur hún strax aftur. Foreldrarnir halda áfram að leita, þau komast i kynni við „Félagsskap foreldra stroku- barna", prófa marihjúana og tapa spjörunum utan af sér heima i stofu i fatapóker. Dóttirin kem- ur hins vegar aftur heim af sjálfsdáðum. Hún hafði dvalið innan um hóp unglinga, sem eins og hún höíðu hlaupið að Ueiman i bili. ★ ★★★ Milos Forman er vax- andi leikstjóri og Taking Off er bezta mynd hans til þessa. Hann hefur kvikmyndamálið fullkomlega á valdi sínu og ber frábært skyn á „rythma“ og klippingar. Tónlist er not- uð á mjög skemmtilegan og áhrifarikan hátt. ★★★★ Þetta er tvímælalaust bezta skemmtimynd ársins. Hún er meira en skemmti- mynd einvörðungu, því hún kafar undir yfirborðið og sting ur broddum sinum í banda- rískt þjóðlífskýli, sem er Bandaríkjamönnum sjálfum talsvert feimnismál. Sérlega vönduð mynd að allri ytri gerð. ★★★★ Alvarleg og bráð- skemmtileg í senn, full áleit- inna spurninga. Frábærlega gerð að öllu leyti. Forman er vafalaust einn snjallasti leik- stjóri okkar tíma. Hafnarbíó: SOLDIER BLUE Myndin byggir á sannsöguleg um atburði, er 500—600 indián- um var slátrað vægðarlaust, þrátt fyrir friðarsamninga við bandarisk yfirvöld. — Raunar spannar það atriði aðeins yfir 10 siðustu minútur myndarinnar, en forleikurinn og megin hluti myndarinnar, greinir írá brösu- legu ferðalagi hvitrar stúlku, sem er nvsloppin úr haldi indíána, og bandarisks hermanns til byggða eftir að indiánar höfðu gjöreytt herflokki, sem þau áttu sam- fyigd með. ★★ Raunsæ slátrunaratriði fara nú að verða hversdags- leg og lýsing á vondu hvítu mönnunum og góðu indiánun- um er ekki ný bóla. En stærsti kafli myndarininar sem ekki er um dráp, er settur saman af stolnum og stældum stíl- brigðum, án þess að það örli á samhangandi listrænni sköpun, sem þó virðist vera markmiðið. ★★ Ágætlega gerð mynd og prýðileg skemmtimynd lengst af eða þar til að fjölda morðunum kemur. Hins vegar er hún gjörsneydd frumleika og stælingar augljósax, þar sem atriði úr Elviru Madigam og Wild Bunch gamga aftur hvað eftir annað. Stjörnubíó: „OLIVER“ „Oliver'* er byggð á samnefnd- um söngleik sem sýndur var við mikla aðsókn fyrir nokkrum ár- um. Var hann létt útfærsla á hinni frægu bók Dickens. 1 stuttu máli fjallar hún um munaðar- lausan dreng, sem strýkur af hæli og heldur til London. Lend- ir hann þar I þjófaflokki, sem stjórnað er af forhertum Gyð- ingi, Fagin. — Fljótlega er hann gripinn af lögreglunni og þá er farið að grennslast fyrir um að- standendur hans. Þá fyrst fer að rofa til I lifi hins hrjáða drengs. ★★★ Oliver er einkar faglega og smekklega unnin mynd, að mestu laus við þá væmni, sem annars einkennir þessa tegund mynda. Sviðsetning oft lífleg og stórbrotin. Ann- ars er það dálítið broslegt, að það sem Dickens skrifar upp- haflega sem raunsæja ádeilu, skuli nú vera snúið upp í sak- lausan söngleik ★★★ Dickens mundi senni lega seint gamgast við þessari útgáfu á Oliver Twist. Sið- ferðisleg tilfinningavæmni 19. aldarinnar hefur verið máð burtu að mestu, og jafnvel ó- hræsið hann Fagin verður við kunnanlegur karl í frábærri túlkun Ron Moody. Vönduð skemmtimynd, sem óhætt er að mæla með. *★★★ „Fagin“, væri réttlát- ari nafngift á þessari mynd, oar sem að frábær leikux Ron Moody yfirgnæfir allt annað, enda hlutverkið bitastæðast. Samt sem áður er „01iver“ stórkostlegasta söngvamynd, sem mig rekur minmi til að nafa séð. Frábær mynd fyrir alla fjölskyldumeðlimina. Gamla bíó: MARLOWE Einkaspæjarinn Philip Mar- lowe er ráðinn af Orfamay Q. til að finna týndan bróður henn- ar. Tvö morð eru framin á sama hátt og kemst P. M. að þvi, að annar hinna myrtu er viðriðinn ijósmyndir af Mavis nokkurri Wald, sem er fræg sjónvarps- stjarna, en myndirnar sýna hana í faðmlögum við einn mesta glæpamann borgarinnar, Steel- grave. P. M. ætlar að reyna að koma Mavis til hjálpar, en allir leggjast á móti honum. Steel- grave lætur lemja hann og múta honum, og sjálf er Mavis hin óþýðasta. Læknir að nafni Lag- ardie kemur inn 1 spiliö og heima hjá honum finnur P. M. bróður- inn, en hann hefur verið skotinn til bana. Hjá honum finnur P.M. sannanir, sem sýna að bróðirinn hefur tekið myndimar. Sam- hengið milii persónanna fer nú smám saman að koma I ljós. ★ Flókinn söguþráður og hröð atburðarás einkenna þessa sögu Chandlers, en einhvern veginn passar James Garner ekki inn í þessa heild. Hann vantar alla slægð í andlitið. Hins vegar er myndinni ekki alls varnað, t.d. er atriðið með Marlow og Orfamay við smack-barinn á járnbrautar- stöðinni mjög gott. kif Chandler er óumdeilan- legur meistari harðsoðinna glæpasagna, og í kvikmynd- unum tók Humphrey heitinn Bogard við þeim og gerði per- sóniur hans að sögulegum verðmætum. í þessaxi útgáfu heldur Chandler nokkurn veginn sínu, en Ganer skort- ir persónuleika til að lyfta myndinni upp úr meðal- mennskunni. Háskólabíó: POKERSPILARARNIR Utanbæjarmaður gerir sig sek- an um að hafa rangt við I spil- um i smábænum Rincon i Kolo- rado. Flestir spilamennimir vilja taka hann af lífi, aðeins einn, Van Morgan, reynir að hindra morðið. Daginn eftir held- ur hann á brott til að leita fjár og írama. Hann fer til Danver og þar fréttir hann, að gull hafi íundizt við Rincon og að spilamenn geti grætt vel. Hann heldur þangað aftur og er þá orðin nokkur breyting á staðnum. Þangað er m.a. kominn prestur, séra Rudd, sem ekki kann slður að handleika byssu en Bibliuna. I Rincon hafa manndráp einn- ig oröið tiðari. Þeir, sem tóku forðum þátt I að myrða spilasvik arann, eru myrtir hver af öðrum, án þess að vitað sé, hver hinn seki er. Van á þvi hættutegt verk efni fyrir höndum — að íinna morðingjann. ★ Óvenju slakur og illa unn- inn vestri, og veldur manni sárum vonbrigðum, þar sem Hathaway á í hlut. Lokaein- vígið sígilda (show-down-ið) er með eindæmum máttlaust. * Hathaway er auðsjáanlega engin Hitchcock, að auki hef- ur hanm úr andlitliu efni að moða. Dean Martin ætti að leiða hjá sér öll Romeo hlut- verk í framtíðinni fyrir ald- urssakir. Mitdhum er ágætur eins og fyrri daginn. Tónabíó: TÓLF STÓLAR Sögusviðið er Rússland skömmu fyrir byltinguna. Tengdamóðir hefðarmanns eins trúir presti sin um og tengdasyni fyrir leyndar- máli sínu á banabeðinu: Hún hafði falið alia skartgripi sina 1 einum af 12 stólum, er prýddu óðal hennar, 1 þann mund sem byltingin brauzt út. Með aðstoð ungs iðjuleysingja hefur tengda- sonurinn leit að stólunum 12, og kemst þá brátt að raun um áð hann hefur eignazt hættulegan keppinaut. Leitin verður þvi hin sögulegasta, eins og vænta má. 1 aðalhlutverkum Ron Moody og Frank Langella. Leikstjórí Mel Brooks. k Skv. efnisskrá um mynd- na, er það yfirlýst stefna höfundar, að gera gaman- mynd, sem eingöngu væri gamanmynd. Síðan rembist höf. eins og rjúpan við staur- inn við að fá áhorfendur til að hlæja, en árangurinn aí þessu streði virtist hafa sorglega lítil áhrif á íslenzka kvik- myndahúsgesti. A Brooks gerir örvæntingar- fulla tilraun til að veita lífi í breigðdauft handrit, en verð- ur litið ágengt. Tæknibrellur hans ná sjaldnast tilætluðum árangri, og oft og tíðum er myndiin óþægilega ofleikin. k-k Þó að myndin sé all-bros- leg á köflum, þá hefði maður ætlað að Ron Moody veldi átt fyrsta hlutverk eftir OLI- VER atf meiri kostgæfni. Domde-Louis og Mel Brooks standa sig með ágætum, en súkkulaðidreegurinn Framk Lamgella, gerir áhorfendum meira til bölvunar, en hitt. Fjölda- morð Dacca, Bangladesh, 8. febr. — NTB. FULLTRÚI samtaka Búddatrúar manma í Suður-Asíu er nýkominn tö Dacca úr þriggja vikna ferð um Bangladesh. Skýrði hann svo frá við komuna þangað að pak ietamskir hermann hefðu drepið fimm þúsund Búddatrúarmenn eftir að hernaðarástandi var lýst yfir í þáverandi A-Pakistan í marz 1971, og sært 4.000 til við- bótar. Þá segir fulltrúinn að her memniniir hafí lagt 10 Búdda- klaustur í rúst og unnið skemmdarverk á öðrum tíu, og þeir hafi eyðilagt um 100 Búdda líkneski, stolið fjórum líkneskj- um úr gulli og einum 100 silfur líkneskjum. Vín ald- arinnar Bonn, 8. febrúar. — NTB SUMARIÐ í fyrra var mjög hagstætt fyrir vínyrkjubænd- ur í Rínar- og Moselhéruð- urn Vestur-Þýzkalands, og segja sérfræðingar nú, eftir að hafa bragðað vínin frá i haust að þau séu með þeim foeztu á þessari öld. Uppskeran varð nokkru minni en árin áður, en gæð- in þeim mun meiri. Segja sérfræðingamir að árgangur- inn 1971 sé í flokki með ár- göngunum 1911, 1929, 1945, 1953 og 1959 sem beztu vtn aJdarinnar. TOGARASALA Sléttbakur seldi í gær í Bretlamdi 97 lestir af fiski íyr ir 15.600 sterlingspund. BSRB-DEILAN Sáttaisemjari hafði ekki boð að fund i deilu BSRB og rfkis ins í gær. En talið var líklegt að fundur yrði boðaður í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.