Morgunblaðið - 11.02.1972, Page 22

Morgunblaðið - 11.02.1972, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBROAR 1972 Guðrún Hermanns- dóttir — Minning Fædd 23. janúar 1891. Dáin 4. febrúar 1972. Guðrún Hermannsdóttir náði háum aldri, komst á níunda tug ínn. Vinir hennar, sem koma sam an í dag í Fossvogskirkj u til þess að kveðja duftið henr.ar, minnast þess meðal annars, að fyrir rúmu ári áttu þeir með henni stóra hátíð í hópi barn- anna hennar, þegar þau ásamt skylduliði sínu vottuðu henni ást sína i tilefni þess, að hún var áttræð. Þá stóðu af henni hlýir og glaðir geislar ekki síð- ur en áður. Sú silfurkóróna, sem hún hafði lengi borið tiginmann lega, var gulli slegin í augum okkar, sem höfðum vitneskju um það ríki, sem hún átti hið innra með sér, og þekktum og skildum þá lotningu, sem börnin hennar, tengdabörnin og barnabörnin báru fyrir henni. Og hún var okkur áþreifanleg sönnun þess, að orð spaka skáldsins eru sönn: „Fögur sál er ávallt ung undir silfurhærum." Nú er hún horfin úr hópnum, en mynd hennar geymist í minn- ingu okkar allra. Hún átti eng- an þann náinn samferðamann á löngum vegi sínum, að honum hafi ekki þótt betra en ekki að hafa kynnzt henni. 1 þökk er hún kvödd af skyldum og vanda lausum. Guðrún gekk hljóðlátum skref um sinn æviveg. Atriðin í sögu hennar voru byggð upp kring um gamalkiunn og næsta ófrum- leg stef, sem þykja varla lengur efni í frambærilegar sikáldsögur. Ýmsar ágætar konur, sem nú stíga fast til jarðar í mislitum sokkum, mundu telja, að lít- ið hafi lagzt fyrir slika konu, gáfaða og fallega, sem leitaði ekki lengra að gæfu sinni og manngildi en að taka við frum- lægum lífsskyldum og gangast undir þær sem sjálfsagða köllun og þjónustu. En þarna fann hún samt fullnægju og ávann sér þroska, sem margur með mikil skóiapróf eða stór heiðursmerki á hinum ýmsu sýningarsvæðum nútímans, mætti öfunda. En öf- undaraugum er ekki rennt í slík ar áttir nú á dögum. Þó verður því aldrei hnekkt, sem rímna- Könan mín, móðir okkar og systir, Margrét Auðunsdóttir, Fljótshlíðarskóla, andaðist í Landspltalanum fimmtudaginn 10. febrúar. Jónatan Jakobsson, börn og systkini. Systir okkar, Sigþrúður Bæringsdóttir, andaðist á Hrafnistu að morgni 10. þ.m. Laufey Bæringsdóttir, Sessel ja Bæringsdóttir, Þuríður Bæringsdóttir. Eiginmaður minn, Jóhann Helgason, Ósi, Borgarfirði eystra, lézt í sjúkrahúsinu á Egiis- stöðum aðfaramótt 10. febrú- ar. Bergrún Árnadóttir. Bróðir minn og mágur, Kristján Eiríksson frá Bíldudal, lézt að heimiii sínu, Suður- götu 32, Hafnarfirði, að morgni þess 10. febrúar. Jarðarförin ákveðin síðar. Soffía Ólafsdóttir og vandamenn. Eiginmaður minn, GUÐJÖN M. EINARSSON, Vallargötu 10, Keflavík, sem andaðist £ið Brafnistu 6. febrúar, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 12. febrúar klukkan 2.00. Blóm afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hans, láti Slysa- varnafélag islands njóta þess, Fyrir hönd ættingja, Guðrún Sveinsdóttir. Jarðarför föður okkar, tengdasonar og bróður, HALLGRÍMS TÓMASSONAR, Vesturgötu 125, Akranesi, fer fram frá Akraneskirkju laugardaginn 12. febrúar kl. 2 e. h. Blóm vinsamtega afþökkuð. Ólafur og Grétar Hallgrímssynir, Oddrún Jónsdóttir, Ólafur Kristjánsson, Fanncy Tómasdóttir. t Móðir okkar. GUÐRÚN HERMANNSDÖTTIR frá Fremstuhúsum i Dýrafirði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 11. febrúar klukkan 13.30. Erla Þorsteinsdóttir, Agúst M. Þorsteinsson, Aslaug Þorsteinsdóttir, Hermann V. Þorsteinsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Torfi Þorsteinsson. skáldið kvað: „Hamingjan býr í hjarta manns“. Þú getur leitað hennar um alla jörð og svið, þú finnur hana samt aldrei, nema í eigin hjarta, og leitin er vonlaus, ef þú gleymir þessu. Þetta leyndarmál þekkti Guð- rún. Hún komst ekki að því né leysti úr þvi út frá neinni fræði legri uppskrift, heldur sam- kvæmt heilbrigðri, mannlegri eðl istilvísun, sem hlaut veig og vaxtarmegin við lindir kristinn- ar trúar, Guðs orð og bæn. Oft gekk hún erfið spor. Hún var að vísu svo verki farin og öðrum þeim kostum búin, að hún þótti snemma og einlægt hið bezta hlutgeng til allra þeirra starfa, sem í boði voru. Hún eignaðist góðan mann, gegnan lífsþegn, og með honum sex mannvænleg börn. En hún varð að vinna hörðum höndum til þess áð bjargast. Og manninn missti hún frá börrmnum ungum. Þá reyndi á þrek hennar, kjark og trúarstaðfestu. En ekkert af þessu brást. Og þegar hún leít yfir farinn veg, var þakklætið efst og dýpst í huga. Hún gladd ist yfir öllum Guðs gjöfum, sem höfðu fallið henni í skaut, og hið erfiða var umvafið birtu þess máttar, sem hún hafði þreif að á í öllum veikleika og vanda- sporum. Og handan kvöldskugg anna var morgunskin hins eilífa dags í ríki hins upprisna frels- ara. Nýja testamentið, sem Guðrún Hermannsdóttir mat mest allra bóka, taiar um það kvenskart, sem kristnar konur beri sér til heiðurs og Drottni sínum til gleði. Það er ekki ytra skart, heldur hinn huldi maður hjart- ans í óforgengilegum búningi hógværs og kyrrláts anda. Þannig er myndin af Guðrúnu í hugum okkar, sem þekktum hana. Fari hún sæl til fundar við Drottin, sigursæl sakir náð- ar hans. Vinur. GUÐRÚN Hermannsdóttir and- aðist að morgni 4. febrúar að EUiheimilinu Grund. — Hún var fædd við þann fagra fjörð Dýra- fjörð, 23. jan. 1891. Foreldrar hennar voru Guð- Innilegustu þakkir til aUra, sem sýndu okkur hluttekn- ingu við andlát og jarðarför móður okkar, Jónínu Jónsdóttur. Sérstaklega þökkum við starfsfólki á Sólvangi fyrir góða umönnun. Börn hinnar látnu. björg Torfadóttir og Hermann Jónsson. Bjuggu þau aUan sinn búskap að Fremstuhúsum. Eign- uðust þau fimrn börn, þrjá syni og tvlör daetur. Lifa þau öU syst- ur sina, sem jarðsett verður í dag. ÖU þó orðin TttHarðin. En Guðrún var næstyngst Sfa«ia systkina. Tvö systkini Guðrúnar hafa aUan sinn aldúr átt heima í Dýrafirði, þ. e. Guðmundur, elzti bróðirinn og systir hennar Borgný. Hinir bræðumir tveir, Hermann og Torfi, fluttust ung- ir tU Reykjavikur og námu þar trésmíði, sem varð þeirra ævi- starf. Guðrún fluttist og einnig ung til Reykjavíkur. Bernskuár- in og fram yfir fermingu ólst hún upp í foreldrahúsum, en sem unglingur vistréðst hún yfir til Þingeyrar. Hjónin sem hún réðst til á Þingeyri fluttust síðar tU Akureyrar og fór Guðrún með þeim þangað norður. Dvald- ist hún þar á annað ár. Síðan lá leiðin aftur heirn í Dýrafjörð. Var hún þá einn vetur við skól- ann að Núpi. Vann hún við skól- ann, en stundaði jafnframt starf- inu þar nám. Um tvítugt kvaddi hún svo æskustöðvar sínar og fluttist tU Reykjavikur. Þar vistréðst hún tU þeirra sæmdarhjóna Sesselju og Bjama frá Galtafelii. Bjarni var þá trésmiður og einn eig- enda að „Gamia kompaníinu", sem stofnað var af Jóni HaU- dórssyni og fyrirtækið lengi kennt við nafn hans. Bjuggu þau Sesselja og Bjarni þá í húsakynnum trésmiðjunnar við Skólavörðustig. 1 þessu fyrir- tæki voru þá bræður Guðrúnar, Torfi og Hermann, starfandi sem trésmiðir. Þar var og starfandi trésmiður, Þorsteinn Ágústsson, ættaður norðan úr Eyjafirði. Nokkrum árum seinna, eða 3. okt. 1914 voru þau Guðrún Her- mannsdóttir og Þorsteinn Ágústs son gefin saman í hjónaband. Eignuðust þau sex böm, sem ÖU em á lífi, en mann sinn misstí Guðrún 1938. Voru þá Hugheilar þakkir vottum við öfium þeim, nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, fósturmóður og tengdamóður, HÓLMFRlÐAR GUÐLEIFAR JÓNSDÓTTUR, Löngubrekku 15 A, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði i hand- lækningadeild 4-A, Landspítalanum, sem önnuðust hana í veik- indum hennar. — Guð blessi ykkur öll. Jónas Antonsson, Anna Jónasdóttir, Páll Guðbjömsson, Margrét Helgadóttir, Hjörtur Ingólfsson. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR ELÍSDÓTTUR frá Eiði, Grundarfirði. Guðmundur Kristjánsson, Jón Kristjánsson, Elinborg Kristjánsdóttir, Trausti Jónsson, Rúrik Kristjánsson, Ragnheiður Reynis, Am’or Kristjánsson, Auður Jónasdóttir. Jónína Kristjánsdóttir, Jón Elbergsson, Krístín Kristjánsdóttir Oddur Magnússon. og bamaböm. þrjú elztu böm Guðrúnar upp- komin, en þrjú yngri bömin innan við fermin.gu. Sagt er og saitt víst líka, að fyrstu áratugina eftir aldiamótin síðustu, hafi vorið loks verið að sækja þjóð okkar heim að nýju, eftir margra alda ánauð og erf- iðleika, sem margan örmagnaði. Þó segir mér hugur um, að í dag þætti róðurinn mörgum erfiður, þessir fyrstu fjórir tug- ir tuttugustu aldarinnar. En eins og áður getur, var vorhug- ur í þjóðinni, og hún trúði bæði á bjartari lifshætti og etkki síð- ur landið sjálft. Hún bæði fann og vissi, að hún var að losna úr örbirgð yfir í að verða sjálfstæð bjargálna þjóð. — Og svo kunni fólk einnig þá list, að gleðjast af liitlu. En þótt það gætí verið barnslega glatt af litlu tilefni, þá var þessi aldamótakynsióð harðgert dugnaðar- og alvöru- fólk, enda verða margir stórvið- burðir til á þessum ámm, sem bæði gleðja og upphefja þjóð vora. Einnig slíkar hamfarir, bæði af mannanna völdum og öðrum, að annað eins hefur ekki sótt oss heim, sem betur fer sl. þrjá áratugi. Má þar til dæmis nefno. heimsstyrjöldina fyrri, náttúruhaJnfarij-, þ. e. mesti frostavetur þessarar aldar. I kjölfar hans, drepsótt SQ naesta og mannslát er Spánska veikin olli, Kötlugosið 1918 og svo heimskreppan mikla 1930. 1 kjölfar alls þessa skapast svo miklir erfiðleikar og hörmung- ar. Þó ívefst þetta allt öðrum stórviðburðum, sem bæði styrkja þjóð vora og gleðja. En hvað er ég að minnast alls þessa? Kæra móðir min, nú þegar ég kveð þig hinztu kveðju, þá finn ég um leið og veit, að þetta eru þeir ttmar, sem þú máttir bæði sjá og reyna, og þurftir að sjálf- sögðu oft að berjast við. En þér var nú aldrei fisjað saman, og þaðan af siður datt þér í hug að gefast upp, þótt á móti blési, enda ólstu önn fyrir okkur börn- um þínurn og heimili, svo að með eindæmum má telja. Og svona varstu reyndar við alla. Þú máttir ekkert svo aumt sjá, að þú værir ekki alltaf reiðu- búin til að rétta þar fram hjálp- arhönd, hvernig sem á stóð hjá þér sjálfri. Núna, er ég kveð þig hinztu kveðju, fara minningarn- ar hratt gegnum huga minn, allt frá bemsku og fram á þennan síðasta dag. Ég veit ekki, hvern- ig ég mest og bezt má þig kveðja, elsku mamma min. Innst inni get ég ekki annað en sakfellt mig, því að ég olli þér svo oft miklum vonbrigð- um og sársauka. Allt gerðir þú sem hægt var, og stundum kannski meira, til að ég mætti verða að þeim manni, er þú ósk- aðir. — En lífið er hverfult og lánið víst líka. Og lofa skal dag ei fyrr en að kveldi. Þó áttum við margan góðan daginn og glaðan saman. Ekki sízt þennan áratug, er við bjugg- um saman fyrir „austan fjall“ Framhald á bls. 28. Allar útfararskreytingar bíómouall IGróðurhúsinu, Sígtúni. simi 36770. Grensásvegi 50, simi 85560 I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.