Morgunblaðið - 15.06.1972, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1972
•
SAGAN maisret fær samvizkubit eftirseorgessimenon
Hann gekk fram að dyrunum.
Saksóknarinn kallaði til hans
áður en hann hvarf út og rödd
in var köld, eins og hann væri
að kveða upp einn af frægum
dómum sínum:
„Þér er það ljóst, að ég hef
ekki gefið þér neinn ádirátt og
banna þér að gera nokkuð
frekar i málinu, þangað til nýj-
ar staðreyndir koma i ljós.“
„Gotf og veL“
Hann stikaði niðurllútur út
ganginn og tauitaði:
. . nýjar staðreyndir. .
tiýjar staðreynáir “
Og hverjar skyldu þær
verða? Hvort þeirra yrði fórnar
iambið, hann eða hún ?
Hann skelliti glerhurðinini svo
fast, að við lá að gierið brotn-
aði
4. lukfli.
Þetta var ekiki í fyrsta skipt-
ið og sennilega heldur ekki í
það síðasta sem Maigret kom
fokreiður út úr skrifstofu sak-
sóknarans. Og misklíð hans við
vissa dómara, sérstaklega þó
Comélieu dómara, sem hafði wer
ið einka-óvimur hans í rúm tutt-
ugu ár, var á allra vitorði í
Quai des Orfévres.
Venjulega skeytti hann ekk-
ert um þetita ósamræmi sem ríkti
á milM þessara tveggja heima.
Menn unnu störf sin samvizku
samliega beggja vegna við gler-
hurðina. Og sama fólkið, af-
brotamenn, sakborningar og
vitni áttu erindi sin við starfs-
fólkilð báðum megin.
Ósamrsamdð á milli þeirra lá
fyrst og fremist i mismiun.andi af
stöðu, sem tekiin var til miála og
aístöðumunurinn skapaðist af
þvi hve ólíkir menn völdust til
starfa á þessum tveimur stöð-
um. Mennirnir á pöllunum voru
allir úr mið- og æðri stéttum
borgara, bæði dómarar, fulltrú-
ar og rannsöknardómarar. Efltir
háskólanám komust þeir aldrei
i raunverulega snertlingu við
það fóik, sem þeir voru að
dæma, nema þá smástund sem
þeir áttu tal við það á einka-
skrifstofu sinni.
Af þessu leiddi aligert skiln-
ingsleysi þeirra á vissum yanda
málum. Starfsmenn lögreglunn-
ar voru hilns vegar í raánum
tengslum vlð undirheimana,
þekiktu þar krók og kima,
þekktu aðstæður persónulega og
höguðu starfsaðiferðum. sínum
eftir þvl. Á þeseu tvennu ^ar
reginmunur.
1 Dómshödlinni varð oft vart
tilhneigingar til hræsni og yfir-
drepsskapar. Starfsmenn stærðu
siig þar af frjálslyradi sínu og
sjálfstæði, en engir óttuðust þó
ygglibrún ráðherrans meira en
þeir. Elf di’áttur varð á rraáM,
sem vakið hafðd áhuga almenn-
ings heimltuðu þeir hraðari af-
g.reiðslu flrá lögreglunni, sem að
þeirra áliii var alltaf of sein í
f þýðingu
Huldu Valtýsdóttur.
vöfum. Starfsmenn lögreglunn-
ar urðu að velja sínar aðflerðir.
En vsm’u aðferðdrraar gagnrýnd-
ar í blöðum voru starfsmenn
ðómstólanna fyrstir til að taka
undir.
Það var ekki að ástæðulausu
að Maigret fór á fund saksókn-
arans. Staðan var ekki upp á það
bezta, eins og stundum vi41
verða. Leiðmdamál var nýafstað
ið. Að vísu var sökira ekkd lög-
reglunnar heldur öryggisþjón-
velvakandi
0 Um ketti og fuglalíf
Dýravinur skrifar:
„Ég vil leyfa mér að beina
þeim tilmælum til þeirra, sem
hlut eiga að máli, að gera nú
myndarlegt átak til þess að
útrýma þeim aragrúa útigangs
katta, sem herja hér i borginni.
Nú er sá tími, að ungar eru
rétt orðnir fleygir og eru að
yfirgefa „föðurhúsin". Það er
gaman að fylgjast með þeim,
þegar þeir eru að bera sig til
við flugið, en það er óttabland
in ánægja, því að oft er óvinur-
inn á bak við næsta tré. Það
væri fróðlegt að vita, hversu
margir vdMikettir gista borgina.
Mætti ekki hugsa sér, að
merkja og skrásetja alla heim-
ilisketti. Þá væri auðveldara
fyrir þá, sem eiga að sjá um
útrýmingu meindýra, að þekkja
úr útilegukettina. Ég vil taka
það skýrt fram, að mér er held
ur hlýtt til katta, en þessi fiæk
ingsdýr eru ósómi, sem þarf að
losna við. Ennfremur vil ég
brýna fyrir þeim, sem eiga
ketti að gæta þeirra vel, með-
an ungarnir eru að komast á
legg. Dýravinur."
• Til yfirvalda
heilbrigðismála
Kristján Pétnrsson skrifar:
„Þann 1. júní s.l. birtist
grein í Velvakanda frá Heil-
briigðis- og trygigingamála-
ráðuneytinu, en tilefni hennar
var grein, sem birtist eftir mig
í sama dálki þ. 24. mai s.l.
Ég vil þakka ráðuneytinu
fyrir að láta til sín heyra um
þetta alvarlega vandamái, enda
þótt ég sé ekki sammála ýmsu,
sem þar kemur fram.
Þar sem mikið greinir á milli
mín og heilbrigðisráðuneytisins
um fjölda tauga- og geðsjúkra
og drykkjusjúkra, sem á
sjúkrahúsvist þurfa að halda
um lengri eða skemmri tíma, þá
leyfi ég mér að spyrja eftir-
farandi spurninga:
1 Hvers konar athugun eða
könnun var framkvæmd á
fjöl.da tauiga- og geðlsjúkra,
sem á sjúkrahúsvist þurfa að
halda?
2. Hvers konar athugun var
framkvæmd á fjölda drykkju-
sjúkra, sem þurfa á sjúkrahús
vist að halda eða stöðugri
læknismeðferð ?
3. Hver eða hverjir íram-
kvæmdu slíkar athuganir og
hvernig var þeim háttað?
1 grein heilbrigðisráðuneytis
ins er vísað fi'l málefnasamn-
ings ríkisstjórnarinnar um
þessi málefni og m.a. skrifað
með breyttu letri, „að ráðin
verði bót á ófremdarástandi í
málefnum geðsjúkra og
drykkjusjúkra.“ Síðan greinir
ráðuneytið frá þvi, að tvær
nefndir hafi þessi verkefni með
höndum og miði störfum þeirra
vel áfram.
Þeim áætlunum, sem gerðar
hafa verið um byggingu hælis
fyrir drykkjusjúka ber að
fagna, en augljóst er að alltof
lítið fjármagn hefur verið ætl
að til þessara framkvæmda og
þvi fyrirsjáanlegt, að sUkt
hæli mun ekki geta tekið
á móti nema litlum hluta af
þeim drykkjusjúklingum, sem
nú er vitað um.
Sama gildir um væntanlega
geðdeild Landsspítalans. Þar er
gert ráð fyrir byggingu, sem
skapi aðstöðu fyrir 120 sjúkl-
inga, en það fullnægir ekki
nema að liflu leyti þeim hús-
næðisskorti, sem ríkir í þessum
efnum.
Hvenær verður sú bygging
fu'Mbúám, þa.r sem á yfitrsfand-
andi ári er aðeins rætt um
teikningar og aðra undirbún-
ingsvinnu og jafnframt er að-
eins í fjárlagatiUögum fyrir
næsta ár gert ráð fyrir fjár-
veitingu eins og frá greinir í
umræddri grein ráðuneytisins.
Ég vil benda ráðiuneytinu séir-
staklega á þetta orðalag að
gera ráð fyrir, feiur alls ekki i
sér það sama og að framkvæma
ákveðið verkefni, þar er oft
langt bil á miUi. Þar breytir
litlu um málefnasamningur rik
isstjórnarinnar, hann er eng-
in trygiging fyrir fa’am-
kvæmdum í þessum efnum, né
neitt töframeðal, hann er að-
eins venjulegur pólitiskur mál-
efnasamningur.
Ráðuneytið telur mig hafa
skrifað um þessi mál af veru-
legri vanþekkingu. Ég er að
sjálfsögðu ávallt tilbúinn að
viðurkenna, að mig skortir
þekkingu á hinum ýmsu svið-
um, en sjaldan hef ég lesið
grein, þar sem þekkingarleysið
kafsiglir raunveruleikann í
eins ríkum mæli og í umræddri
grein frá heilbrigðisráðuneyt
inu.
Ég tel beztu leiðina til að
afla nægjanle.gs fjármagns til
þessara framkvæmda, að um
10% af brúttóveltu áfengis- og
tóbaksverzlunarinnar og ákveð
inni prósentu af lyfjasölunni
verði árlega varið til sjúk*a-
húsbyg'giinga og endurhjsafinigac
stöðva fyrir taugá- og geðsjúka
og dirylkikjiu- og eiturlyfjasjúkl-
inga. Ég tel eðlilegast að afla
þessa fjár á þennan hátt, þar
sem áfengið og ýmis ávanalyf
eru oft aðalorsakir fyrr-
greindra sjúkdóma, og láta
þannig hagnaðinn af þessum
skaðvöldum byggja upp heil-
brigða og mannsæmandi að-
stöðu fyrir þá sjúku. Takist
okkur það, höfum við sannar-
lega unnið stóran sigur í göf-
ugu og menningarlegu starfi.
Þrátt fyrir síaukna ofnotkun
lyfja hér á landi og gáleysis-
lega ávísun sumra lækna á
ávana- og fíknilyf, þá hefur
ekkert heyirzt frá heilbrigðiis-
ráðuneytinu í þeim efnum, en
það ætti þó sannarlega að láta
slík mál til sín taka. Sama gild-
ir um aðgerðarleysi ráðuneytis
ins vegna ávana- og fíkniefna
neyzlu, sem er þó ört vaxandi
vandamál hér á landi. Að vlsu
hefur landlæknir litillega rætt
þessi mál opinberlega, en svo
virðist seirn áhrifa og aðgerða
hans hafi ekki gætt sem skyldi.
Hvað veldur aðgerðarleysi
ráðuneytisins í þessum málum?
Af hverju reynir ráðuneytið
ekki að hafa sjálfstæða og mót
andi stefnu í þessum efnum og
gerast þannig virkur þátttak-
andi í þeim alvarlegu vanda-
mélum, sem hér er um að
ræðö.
Hvaða aðgerða mega lands-
menn vænta af hálfu ráðuneyt
isins (hér er ósikað eftiT skýr-
um S’Vöi’um og tililög'um til úr-
bóta)?
Ég leyfi mér að vænta þess,
að ráðuneytið svari framan-
greinduim spumingum og láti I
Ijós álit sitt á hugmyndinni um
fjáröflun til þessara mála.
Þökk fyrir birtinguna
Kristján Pétursson."
BARA HRINGJA OG VIÐ SENDUM BLÖMIN A SAMA
KLUKKUTÍMANUM og þér pantiö þau.
EXPRESS SENDINGAÞJÓNUSTA
ÞÝÐIR FERSK OG FALLEG BLÖM. BLÖMIN STANDA í
CHRYSTAL-VATNI ALLA LEIÐ TIL VIÐTAKANDA.
H" ■ ■ ■ ■
, i BLI DMAHÍ ÍLL iIN i ÁLFHÓLSVEGI11 KÓPAVOGI SÍMI 40380