Morgunblaðið - 25.06.1972, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1972
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1972
17
Qtjgefandi h!f. .Áívafcutv R&ýkijavfk
Framk.vaamdaatjóri Ha,ratdor Sveinsson.
Rhsitjórar MattSiías Johannessen,
Eyjólifur Konráð Jónsson.
Aðstoðarritstjóri Styrmir Gifnnarsson.
RrtstjóroanfiirH'trúi Hortójörn Guðrrmndssofl
Fréttastjóri Björn Jóhannsson
Auglýsingastjór-i Árni Garðar Kristinsson
Ritstjórn og afgreiðsia Aðalstraeti 6, sími 10-100.
Augifýeingar Aðaistr'eeti 6, sfmi 22-4-80
Áskriftargjald 225,00 kr á mánuði innanlands
í lausasöTu 15,00 Ikr eintakið
Tvjóðir Evrópu hafa um ára-
* bil búið við frið, sem
byggzt hefur á hernaðar-
jafnvægi ríkjanna austan og
vestan járntjaldsins. Þannig
hafa spjótsoddar tryggt frið-
samlega sambúð þjóðanna,
sem smám saman hefur leitt
til þess að slaknað hefur á
spennunni í alþjóðasamskipt-
um. Óvild og tortryggni
þjóða á milli fer nú dvín-
andi. Þjóðir, sem búa við
ólík stjórnkerfi, auka sam-
skipti sín á milli; og á allra
seinustu árum hafa lýðræðis-
þjóðir Vestur-Evrópu og
kommúnistaríki Austur-Evr-
ópu tekið að ræða af raun-
sæi og hreinskilni um lausn
aðkallandi vandamála.
Þó að þannig hafi nokkuð
miðað í átt til varanlegs frið-
ar, er öllum ljóst, að enn er
staðfest mikið djúp milli
kommúnistaríkjanna og lýð-
ræðisríkjanna í Evrópu. Á
hinn bóginn verður því ekki
langa hríð, að varanlegur
friður, sem ekki styðst við
spjótsodda, verður aðeins
tryggður með samningum
um gagnkvæman samdrátt
herafla og afvopnun. Utan-
ríkisstefna viðreisnarstjórn-
arinnar var grundvölluð á
þessum sjónarmiðum. I
fyrstu var afstaða núverandi
ríkisstjórnar óljós í þessum
efnum, en nú virðist stjórn-
in undir forystu Einars
Ágústssonar, utanríkisráð-
herra, hafa markað svipaða
stefnu og áður var fylgt.
því síður hafa þær ginið yf-
ir og undirokað aðrar þjóð-
ir til þess að halda áhrifa-
mætfi sínum. Það er kúgun
og frelsissvipting þjóða, sem
ógnar friði á hverjum tíma.
Ef engin ríki í Evrópu væru
undirokuð af erlendu stór-
veldi og milljónir manna
væru ekki sviptar frelsi, væri
annað og betra andrúmsloft í
samskiptum þjóðanna.
Kommúnistar á íslandi
hafa haldið því fram, að
kenningin um valdajafn-
vægið og gagnkvæma af-
GAGNKVÆM AFV0PNUN
LEIÐIR TIL FRIÐAR
á móti mælt, að það hernað-
ar- og valdajafnvægi, sem
haldizt hefur milli þessara
ólíku þjóða hefur verið
grundvöllur minnkandi
spennu og aukinna samskipta
milli frjálsra þjóða Vestur-
Evrópu annars vegar og
Sovétríkjanna og hinna und-
irokuðu þjóða í Austur-Evr-
ópu hins vegar.
í ljósi þessara staðreynda
hefur það verið fullljóst um
Sovétríkin hafa þurft að
beita fólkið kúgun með her-
styrk til þess að viðhalda
hinu sósíalíska stjórnkerfi.
Sovétríkin efndu til blóð-
baðs í Ungverjalandi og
gerðu innrás í Tékkóslóvakíu
til þess að tryggja rétta þró-
un sósíalismans eins og það
var kallað. Lýðræðisþjóðir
Vestur-Evrópu hafa ekki
þurft að viðhalda stjórnskipu
lagi sínu með hervaldi og
vopnun fæli það í sér, að það
stofni friðnum í hættu, ef
Sovétríkin léttu ánauðinni
af fólkinu heima fyrir, gæfu
Eystrasaltsríkjunum sjálf-
stæði á ný og færu með her
sinn frá Tékkóslóvakíu.
Þessi málflutningur afhjúpar
rökþrota menn, sem trúa því,
að unnt sé að bera saman
samvinnu lýðræðisþjóða og
kúgun Sovétríkjanna á þjóð-
um Austur-Evrópu. Lýðræð-
isþjóðir Evrópu sækjast ekki
eftir landvinningum og seil-
ast ekki til áhrifa um innan-
ríkismál annarra þjóða.
Sovétríkin geta því létt á-
nauðinni af fylgiríkjum sín-
um og leyft fólkinu að tala,
án þess að það ógni friði í
álfunni.
Þessum blekkingarvef hafa
íslenzkir kommúnistar reynt
að þyrla upp á undanförnum
árum í þeirri trú, að hann
kæmi þeim að liði í baráttu
þeirra fyrir því, að ísland
hætti þátttöku í samstarfi
lýðræðisþjóðanna í Evrópu.
Þessi málflutningur Alþýðu-
bandalagsins er í samræmi
við afstöðu kommúnista-
flokka í Evrópu, sem reynt
hafa að slíta sig lausa frá
boðvaldi miðstjórnarinnar í
Kreml. Alþýðubandalagið
hefur nú tekið upp all náin
samskipti við Kommúnista-
flokk Rúmeníu, sem eins og
kunnugt er rekur nokkuð
sjálfstæða stefnu gagnvart
Sovétstjórninni.
Samskipti Alþýðubanda-
lagsins og Kommúnista-
flokks Rúmeníu gefa til
kynna þau markmið, sem að
er stefnt. Það er ekki frelsi
og sjálfstæði þjóðanna, sem
situr í fyrirrúmi, heldur þró-
un sósíalismans í sömu átt og
gerzt hefur í Rúmeníu. Bar-
áttan fyrir því, að ísland
hætti þátttöku í samstarfi
lýðræðisþjóðanna í Evrópu
er einn þáttur í þessari, bar-
áttu.
Norræna barnabókaþingið:
BÆKUR-BÖRN
Eftir Þóri S. Guðbergsson rithöfund
Börn og unglingar hafa um nokk-
urt skeið verið í brennidepli fjöl-
miðla. Unglingavandamál hafa oftast
verið þar efst á baugi. Mikið hefur
verið ritað og rætt, misjafnt að gæð-
um og viturleik, svo sem eins og oft-
ast er, þegar margir leggja orð í
belg.
Segðu minna, framkvæmdu méira
— það er hægara sagt en gert. Marg
ir hafa bent á, að nauðsynlegt sé að
geta leyst vandamál, þegar þau
koma upp, en þó enn mikilvægara að
vinna svo að málunum með fyr-
irbyigtgjandi starfi, að börnin og ungl
ingarnir skynji sjálf hætturnar og
læri sem fyrst að sigla sem bezt
í skerjagarði lifsins.
Ég er viss um, að þau börn og
unglingar, sem hafa yndi af góðum
bókum, eru betur undir þessa sigl-
ingu búin en mörg önnur, sem e.t.v.
hafa látið ánetjast í lestri sorprita
og tekið að gæla við þau.
Það er ekki á hverju ári, sem við
eigum þess kost að sjá yfirlit yfir
barna- og unglingabækur, sem gefn-
ar eru út á Norðurlöndum. Miklar
þatókir eiga þeir skilið, sem hafa stað
ið að framkvæmd þessarar sýningar,
sem hlýtur að vera mikil's virði bæði
fyrir foreldra, kennara, fóstrur og
aðra, sem vilja sjá og fylgjast með,
hvað börnum er boðið af myndiuim og
lesefni. Gæti trúað, að enn væru til
þeir menn, sem ekki er sama, hvað
börnin sjá og lesa, menn, sem hafa
einhverjar skoðanir.
Sýningin er hin fróðlegasta og
skemmtileg barnahúsgögn og veggir
prýddir fjörlegum myndum koma sýn
ingargestum á óvart og vekja verð-
skuldaða athygli.
HVAÐ LESA BÖRN?
Nokkuð er mismunandi, hvað
börn lesa helzt. Bæði fer það þá
eftir aldri þeirra, upplagi, þroska og
öðru, sem kann að hafa áhrif á þau.
Ég spjallaði fyrir nokkru við
nokkra útgefendur og . verzlun-
arstjóra bókaverzlana. Eftir það
spjall, fannst mér ég geta skipt þessu
nokkuð niður í tvo hluta eftir aldri.
I fyrri hlutanum eru yngri börn.
Þau velja helzt:
1. Andrés Önd og félaga hans. Víða
um heim mun þessi áhugi vera tals-
vert mikill. Alltaf er mikið að gerast
hjá þeim félögum bæði skemmtilegt
og spennandi, og næsta furðulegt á
stundum, hvað hugmyndaflug þeirra
manna er mikið, sem að útgáfu
standa.
2. Myndasögur. Greinilegt er, að
myndasögur, með fallegum og
skemmtilegum myndum og litlu les-
máli, eiga miklum vinsældum að
fagna meðal yngri kynslóðarinnar.
Ekki er heldur nokkur efi á því, að
þær auka og bæta hugmynda-
Þórir S. Guðbergsson.
flug barnanna — og getur þar með
aukið á þroska þeirra um leið, ef vel
Br valið og vel er á haldið.
3. Stuttar skenimtisögur. Loks eru á
þessum vinsældarlista stuttar sögur
úr hversdagslífinu. Mörgum höfund-
um hefur tekizt að segja skemmtilega
frá ósköp venjulegum atburðum, sem
koma fyrir í daglegu lífi. Margt af
þeim atburðum þekkja börnin og
geta rifjað upp eitthvað úr eigin lífi
um leið. Flestar þessarra skemmti-
’egu bóka eru þýddar og hafa notið
mikilla vinsælda hér á landi.
Þá er aðeins að minnast á eldri
flokkinn og hvað börn í honum velja
sér helzt.
1. Sögur uni dularfulla atburði. Æv-
intýraþráin svellur í brjóstum
flestra unglinga. Þá langar til þess
að kanna ókunna stigu, ókönn-
uð lönd og svið, sem þeir mæta ekki
i daglegu lifi. Smekkurinn breytist
gjarna. Þeir komast af „Róbinson
Krúsó“ aldrinum og vilja heldur
Tarzan, kúrekasöigur eða spennandi
indíánasögur.
2. Ævintýri og hetjudáðir. Börn og
fullorðnir eiga sér ætið ákveðnar
fyrirmyndir m"ðvitað eða ómeðvitað.
Okkur lang»>' xil þess að líkjast þess
um persónurn, sem við höfum annað
hvort lesið um eða séð með eigin aug
um. Og þegar bezt tekst til höfum
við bæði lesið um þær og séð þær
síðan í raunveruleikanum.
Unglingar velja sér gjarnan fyrir-
myndir líka. Stundum íþróttastjörn-
ur, popstjörnur, stjórnmálamenn og
aðra, sem þá langar að líkjast. Þeir
velja sér líka sögur um hetjur og
hetjudáðir ungra manna og kvenna,
ofurhuga, sem jafnan tefla á tæpasta
vaðið.
3. Frásögur um fræga menn. Ég held,
að bækur í þessum flokki, hafi vaxið
nokkuð að vinsældum að undan-
förnu og er það vel. Ekki er nokkur
vafi á þvi, að gildi slikra bókmennta
er mikið og vandasamt verk að
skrifa á þennan hátt fyrir unglinga.
HVAÐ VIL.ÍUM VI»,
AÐ BÖRN LESI?
Nú hef ég hér að framan talið upp
nokkra flokka bóka, sem börn og
unglingar kaupa helzt og lesa. Þó er
það skiljanlegt, að verzlunarstjórar
eða útgefendur vilja ekki nefna eða
tala um þá tegund rita, sem því mið-
ur er allt of mikið lesin af börnum
og unglingum og mörgum þykir mið-
ur. Þetta á fyrst og fremst við sorp-
ritin svonefndu, þar sem efni er væg
ast sagt óvandað, lélegt málfar,
ósannar lífslýsingar — efni, sem
Framhald á bls. 21.
Reykjavíkurbréf
i______Laugardagur 24. júní ---
Hvað getum
við gert?
Hinn nýi þegn íslands, Vladi-
mir Ashkenazy, ákallaði nýlega
samborgara sína og bað þá
hjálpar til að hafa þau áhrif, að
föður hans yrði leyft að koma
hingað til lands, en rússnesk
yfirvöld hafa meinað honum um
leyfi til þess. Flestir Islending-
ar vilja áreiðanlega verða við
þessari hjálparbeiðni, en fólk
veit ekki hvað það getur gert.
Einar Ágústsson, utanríkis-
ráðherra, hefur af fullum dreng-
skap lagt sig mjög fram um að
hafa þau áhrif á rússneska
ráðamenn, að þeir leyfðu David
Ashkenazy að koma til íslands,
en hann hefur ek'ki verið virt-
ur svars. Með framkomu sinni
við ráðherran n hafa rússnesk
yfirvöld ekki móðgað hann per-
sómulega, heldur íslenzku þjóð-
ina, því að í nafni hennar hef-
ur ráðherrann talað.
Nú er spurningin sú, hvort
íslendingar geta ekki látið rödd
sína heyrast skýrar en hingað
til, hvort við getum ekki fengið
utanríkisráðherra í hendur ein-
hver þau vopn, sem bíta.
Og þegar að er gáð, þá Iiggja
þau raunar á lausu.
Rússar leggja nú ofurkapp á
starfsemi sína hér á landi, og
allir vita, hveor er iðja þess her-
skara sendiráðsmanna, sem hér
starfa. Fer ekkert á milli mála,
að þeir telja þessi störf hér á
landi hin mikilvægustu, enda
hefur árangurinn óneitanlega
orðið talsverður — og raunar
leit á tímabili út fyrir, að þeim
mundi takast áformin um að
gera ísland vamarlaust og of-
urselt rússneska herveldinu.
Nú gæti almeniningsálitið veitt
utanríkisráðherra styrk til þess
að tilkynna Rússum, að þeim
beri að fækka i sendiráði sinu
til jafns við þann fjölda sendi-
ráðsmanna, sem við höfum
í Moskvu, og jafnframt væri
hægt að takmarka heimild-
ir rússneskra sendiráðsmanna til
ferðalaga, eins og gert er við
okkar sendiráðsstarfsmenn í
Moskvu. Þetta mál mundu rúss-
nesk yfirvöld skilja.
Allt 1 grænum sjc
Það skal játað, að þegar Ólaf-
ur Jóhannesson myndaði ríkis-
stjórn sína fyrir tæpu ári, var
ekki vel fyrir henni spáð hér í
blaðimu, en þó óraði áreiðanlega
engan fyrir öllum þeim ósköp-
um, sem á daga þessarar stjórn-
ar hefur drifið. Enda er nú svo
komið, að naumast mælir nokk-
ur maður þessari stjórn bót,
nema kommúnistar, sem eru
ánægðir með sitt hlutskipti og
mega vera það, þvi að þeim hef-
ur tekizt að lama báða samstarfs
floikkaná, og ráða þvi, sem þeir
vilja ráða i stjórninni.
Ljóst er nú orðið, að ríkis-
stjórnina skortir allt þrek
til þess að gera minnstu tilraun
til að ráða við þann efnahags-
vanda, sem stefna henmar hefur
leitt yfir þjóðina, og ráðherrana
skortir líka þrek til þess að játa
yfirsjónir slnar og biðjast lausn
ar. Siíkt þrek hafði Hermann
Jónasson, forsætisráðherra fyrri
vinstri stjórnar, hins vegar til
að bera. Hann gaf þá yfiriýs-
ingu að engin samstaða
væri um lausn vandamálanna í
ríkisstjóm sinni og því bæðist
hann lausnar fyrir hana.
Satt bezt að segja er rikis-
stjórnin orðin svo skelfilega
aum, að ekki getur lengur tal-
izt skemmtilegt að kljást við
hana. Sjálfstæðismenn vi'lja líka
gjarnan, að stjórnin sifji svolít-
ið lengur, svo að ekkert fari á
milii mála, hvert stefna hennar
muni leiða. Þess vegna
þora menn varla að stugga við
stjórninni af ótta við, að hún
geispi þá hreinlega golunni, áð-
ur en hún nær eins árs aldrin-
um.
Hins vegar magnast nú mjög
andstaðan við ríkisstjórnina inn
an stjórnarflokkanna sjálfra,
ekki sízt Framsóknarflokksins,
og eru ráðherrum flok'ksins ekki
vandaðar kveðjurnar.
Framtíð
Framsóknar
Þótt bréfritari sé enginn aðdá-
andi Framsóknarflokksins, fer
ekki hjá því, að hann eins og
aðrir lýðræðissinnar hugsi til
framtíðar þess flokks. Þótt
stjórnmálamenn og stjórnmála-
flokkar séu ætið skammaðir,
byggist þó lýðræðið á þvi, að
sterkir stjórnmálaflokkar starfi.
Þannig hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn verið og er enn kjölfest-
an í íslenzkri pólitík. En Fram-
sóknarfiokkurinn hefur ver-
ið annað sterkasta stjómmálaafl
ið á Islandi. Aliar líkur benda
til þess, að Framsóknarflokkur-
inn muni tapa verulegu fylgi,
næst þegar til kosningar verð-
ur gengið, því að hann ber fyrst
og fremst ábyrgð á því ævin-
týri, sem vinstri stjórnin er.
Ekkert nerna gott eitt er um það
að segja, að sá flokkur fái ræki
lega ráðnimgu, þannig að sú
vinstri stefna, sem hann hefur
fylgt undanfarin ár, lúti í lægra
haldi innan flokksins o<g hanm
verði á ný samstarfshæfur við
aðra lýðræðisflokka.
Hins vegar væri það mjög al-
variegt, ef Framsóknarflokkur-
inn riðlaðist, því að enginn veit,
hvað upp úr þeim jarð-
vegi mumdi spretta, en mikil
hætta steðjar að lýðræð-
inu, hvarvetna þar sem fjöldi
smáflokka er, en fáir eða engir
stórir. Þá sitja hrossakaup og
spilling i hásætinu.
En því er hér að þeirri hættu
vikið, að Framsóknarflokkurinn
kunni að riðlast, að innan hans
eru átök nú orðin svo illvíg, að
ekki eru dæmi til um stlíkt í sið-
ari tíma pólitik, nema þá
í kommúnistaflokkn'um. En til
þess að menn télji ekki, að hér
sé farið með gífuryrði, skulu nú
tilfærð orð eins af áhrifamömn-
um i Framsóknarflokknum, sem
birtist í Tímanum 20. þessa mán-
aðar. En þar segir:
„1 fyrsta lagi er reynt að ranig
túlka störf blaðafuiltrúans og
um leið að læða þvi að les-
endum, að þegar Hannes Jóns-
son skrifar sem einstakling-
ur og lýsir sínum skoðunum sé
hann að misnota stöðu sína, sem
opinber embættismaður og eyði-
leggja árangur starfs síns
hjá ríkisstjórninni. Þetta er sið-
leysi auk rökþrotsins.
I öðru lagi er reynt á ósvíf-
inn hátt, að gera Hannes Jóns-
son tortryggilegan i aug-
um starfsmanna Framsóknar-
flakksins, í augum ráðherra
flokksins og ráðherra samstarfs
flokkanna i rikisstjórn. Þetta er
atvinnurógur auk vesæimennsk-
unnar.
í þriðja lagi heimta „verðir"
mannréttinda og lýðræðis, að
því sem þeir kalla „húsbónda-
vald“ verði beitt við opinberan
embættismann til að kúga niður
skoðanir hans sem einstaklings.
Þetta er ómengaður fasismi.
Forráðamenn SUF verða ekki
beðnir um að vera skoðanalaus-
ir eða láta af skoðunum sínum,
Áning á siiniarfeiðalagi
en þess er krafizt af þeim, að
þeir standi við yfirlýsingar um
frjáls'lyndið, hreinski'lnina og
lýðræðisástina og siðast en ekki
sizt að þeir sýni þann manndóm
að viðurkenna, þegar þeirn
verða á jafnstórfelld mistök og
SUF-siðan i timanum 15. júní
var, en það gera þeir bezt með
því einfaldlega að biðjast afsök
unar á sama vettvangi."
Svo mörg eru þau orð.
Áhrif
kommúnista
Því miður létu forustumenn
Framsóknarflokksins kommún-
ista mjög hlunnfara sig, er rik-
isstjórnin var mynduð. Græðgi
Eysteins Jónssonar og Ólafs
Jóhannessonar í að flokk-
ur þeiira myndaði ríkisstjórn
var svo mikil, að kommú n istum
varð þegar ljóst, að þeir gætu
valið úr ráðherraembættum, og
þeir tóku til sín svo til öll at-
vinmu- og peningamáil landsins
og haifa óspart hagnýtt sér þá
aðstöðu. Þeir Eysteinn og Óiaf-
ur voru ekki meiri stjórnmála-
menn en svo, að þeir gerðu sér
ekki grein fyrir þvi, að komm-
únistar voru jafn girugur í rík-
isstjórn og þeir sjálfir. Þess
vegna þurfti ekki að færa þeim
áhrifamestu ráðherraembættin,
þeir hefðu tekið við hverju þvi,
sem að þeim hefði verið rétt.
En þessi reginskyssa Eysteins
og Óla'fs á eftir að draga dilk
á eftir sér. Auðvitað mun hún
fyrst og fremst lenda á
þeim sjálifum og þeirra flokki,
og hún hefur styrlct kommún-
ista svo, að þeir standa miklu
betur að vigi en vera mundi ella.
Þeir hagnýta sér svo sannarlega
aðstöðu sina út í yztu æsar og
eru dag hvern að grafa undan
samstarfsiflokikum sínum.
Kommúnistum er auðvitað
sama um það, þótt hér sé bull-
andi verðbólga og ófremd-
arástand í efnahagsmálum. Þeir
vita sem er, að þeim gengur bezt
að afla sér fylgis, þegar stjórn-
arfarið er iélegt. Þeirra megin-
takmark er að rýra það traust,
sem alþýða ber til lýðræðislegra
stjórnmálaflokika, og nú hafa
þeir gullvægt tækifæri til að
eitra andrúmsloftið innam Fram-
sóknarflokksins og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna,
og að því vinnur öll þeirra fylk
ing daginn út og dagirui inn.
Og nú eru kom m ú n istarn -
ir teknir til við að tala um, að
marka þurfi nýja efnahags-
stefnu frá rótum. Þeir ætla aug-
sýnilega að skapa sér sérstöðu
innan ríkisstjórnarinnar, þvi að
þeir sjá, eins og allir aðrir, að
i hreint óefni stefnir. Þegar
stjórnin svo geispar golunni,
ætla þeir að segja: Sjáið þið nú,
það vorum við einir, sem gerð-
um okkur grein fyrir voðanum,
pg vildurn þess vegna nýja
efnahagsstefnu, en samstarfs-
flokkarnir fengust ekki til þess
að gena þær ráðstafanir, sem
nauðsynlegar voru. Þess vegna
erum við saklausir, en þeir sek-
ir.
Ofstjórnaræðið
Myndin, sem við blasir,
er þess vegna í stuttu máli
þessi: Kommúnistar sneru á
framsóknarforingjana við mynd
un vinstri stjórnarinnar og
fengu í sinar hendur flest þýð-
inigarmestu embættin. Þeir hafa
notað aðstöðu sína til að styrkja
fiokk sinn, og þeir hafa
einbeitt sér að því að grafa und-
an Framsóknarflokknum og Sam
tökum frjálslyndra og vinstri
manna, með góðum áramgri. Og
þeir munu halda þvi áfram, þar
ti'l stjórnin hrekkur upp af klaf-
anum.
En þar með er sagan ekki ö’ll
sögð. Kommúnistar höfðu líka
þau áhrif, að stjórnin fór inn á
þá braut i efnahags- og fjármál-
um, sem óhjákvæmilega hlaut að
leiða til óðaverðbólgu og upp-
lausnar. Þeim tókst að koma því
til leiðar, að fjármálavaldi þjóð-
félagsins væri þjappað saman og
skattheiimtan stóraukin. Þeir
höfðu megináhri'fin á stefnumót-
unina, enda fóru þeir ekki dult
með ánægju sína yfir því, að
nú sigldi hraðfara til sósialisma.
Kommúnistarniir hafa verið
hinn sterkari aðili í ríkisstjórn-
inni, og þeir hafa teymt sam-
starfsflokikana með sér á asna-
eyrunum til þessa dags. En nú
eru þeir eins og aðrir farnir að
gera sér grein fyrir óvinsældum
ríkisstjórnarinnar, og þess
vegna eru þeir að marka sér þá
sérstöðu, sem áður var nefnd.
Þeir ætla sér að afneita þeirri
stefnu, sem þeir í rauninni hafa
einir ráðið, því að forusta sam-
starfsflokkanna hefur verið
gjörsamlega máttlaus, og síðan
á að núa samstarfsflokkunum
upp úr þvi, að þedr séu
aular og aumingjar, sem e'kki
þori að gera grundvallarbreyt-
ingu á efnahagsmálum til rheiri
sósiálisma og fullkomnara mið-
stjórnarvalds. Þess vegna beri
þeir ábyrgð á óförunum, en
kommúnistar ekski.
Þetta er sú ömurlega mynd,
sem nú blasir við forustumönn-
um Framsóknarflokksins og
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna, ef þeir eru þá ekki slegn
ir pólitiskri blindu á báðum auig-
um.
Fasteigna-
skattarnir
Eitt þeirra mála, sem kommún-
istar leggja megináherzlu á, er
að koma í veg fyrir, að fjöldi
einstaklinga eigi sitt íbúðarhús-
næði. Þeir vita sem er, að á ís-
landi treystir alþýða manna
fjárhagSlegt sjálfstæði sitt rneð
þeim hætti að koma sér upp eig-
in húsnæði. En fjárhagslegt
sjálfstæði borgaranna er eitur i
beinum kommúnista. Þeir hafa
þess vegna margsinnis rætt um
nauðsyn stefnubreytingar í hús-
næðismá'Ium, þannig að riki og
sveitarfélög byggðu leiguíbúðir,
í stað þess að borgararnir væru
að bjástra við að byggja.
Við S'kattalagabneytingarnar
lögðu kommúnistar ofuráherzlu
á tvennt. Annars vegar að
þrengja fjárhag sveitarfélag-
anna og færa aukið vald til rík-
isins, óg hins vegar að koma á
þumgbærum fasteignasköttum,
sem lið í þeirri stefnu að draga
úr einkaeign ibúða. Þess vegna
var þannig um hnútana búið, að
'hlutdeild sveitarfélaga í bei'n-
um sköttum var lækkuð
um meira en héiming og sveitar-
félögin þar með neydd til þess
að nota heimildir til álagningar
fasteignaskatta að fullu.
Framsóknarmenn vo-ru fús-
ir til að skerða tekjustofna sveit
arfélaga, vegna þess að þeir
hugðust með þeim hætti klekkja
á Reykjavík, og þeim borgar-
stjórnarmeirihluta, sem Rey'k-
vikingar hafa valið sér. Einm af
þingmönnum Framsöknarflokks-
ins sagði þetta raunar berum
orðum og undraðist, að borgar-
stjóri skyldi ekki vita að setja
ætti framsóknarmann hoimim til
höfuðs, þegar borgin væri orð-
in greíðsluþrota.
Ábyrg forusta
Reykvíkingar hafa verið svo
gæfusamir að velja sér ætið
ábynga forustu í borgarmálum.
Þetta t hefur andstæðingum
Sjálfstæðisflokksins sviðið svo,
að allt viJdu þeir til vinna að
geta hrundið þeim borgarstjórn-
armeirihluta, sem í Reykjavik
er. Þetta hugðust þeir gera með
þeim hætti að þrenigja svo fjár-
hag Reykjavíkurborgar, að til
vandræða horfði. Framkveemdir
mundu minnka, og þjónustan við
borgarana, og þá væri hægur eft
irleikurinn.
Rikisstjórnin hefur líka öll yf
irráð bankamáia og hugmyndim
var að sjá til þess, að Reykja-
víkurborg ætti hvergi aðgang að
lánsfé, þegar eigið fjár-
magn hennar þryti, vegna þess
að tekjurnar væru skertar og
komið í veg fyrir að gjalldskrár
fyrirtækja borgarinnar yrðu í
samræmi við útgjöldin.
En þessi aðför að Reykjavík
mun ekki takast. Borgárstjórnar
meirihlutinn mun haga fram
kvæmdum og útgjöldum þannig,
að endar nái saman. Þess vegna
tekst aldrei að setja framsókn-
armanninm til höfuðs borgar-
stjóra og Reykvikingum.