Morgunblaðið - 25.06.1972, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1972 21
- BÆKUR
- BÖRN
Framh. af bls. 17
brýtur niður siðferðisþrek og þrótt
unglinga I stað þess að byggja upp.
Börn og unglingar hafa mis-
jafnlega mikið vit, dómgreind og
þroska. Þau eru ekki alltaf „brjóst-
mylkingar og pelabörn." Við eigum
því ekki endalaust að ala þau á
fæðu, sem búið er að melta eða þvi
sem næst.
Sumir vilja láta börnin afskipta-
laus, aðrir ekki. Viljum við reyna að
hafa áhrif á smekk þeirra og val les-
efnis er bezt að byrja á því sem fyrst
eins og öllu öðru. Strax þegar þau
byrja að lesa.
í eina tíð byrjuðu börn gjarnan á
að lasra að lesa í Biblíunni eða kver-
inu. Óskandi að nú væru til slíkar
bækur, sem væru aðgengilegar hin-
um ýmsu aldursstigum.
KRÖFUR?
Af þessu stutta spjalli mínu hljót
um við að gera eðlilegar kröfur bæði
til höfunda, lesendanna og útgefend-
anna.
Við hljótum að hafa í huga bók-
menntalegar, siðferðilegar og fagur-
fræðilegar kröfur, þó að við gerum
okkur ekki alltaf grein fyrir því —
og vitum um leið, að sumir lesendur
hafa ánægju af einni tegund bóka,
aðrir lesendur af annarri, enn aðrir
jafnvel af tveimur eða fleirum — og
stundum verður því ekki breytt. Það
væri þá líka eitthvað skrítið í henni
veröld, ef allir hefðu sama smekk og
væru á sömu skoðun.
Ég held, að höfundar eigi að
skrifa þannig fyrir börn, að þau
skilji, hvað þeir eru að fara. Sumir
skrifa fyrir fullorðna um börn. Ein-
staka skrifa fyrir börn um fullorðna.
En flest börn hafa mest gaman af að
lesa um börn, viðskipti þeirra við
menn og dýr og náttúruna.
Lýsingarnar á þessum fyrirbærum
og persónum þurfa því að vera sann
ar. Við þurfum að leitast við að
skapa ekki „of fullkomnar" persón-
ur, sem alltaf fara með sigur af
hólmi. Það er ekki ætíð þannig í
raunveruleikanum. Við þurfum líka
að gæta okkar á, að láta ekki hinum
vonda alltaf hefnast fyrir undir öll-
um kringumstæðum. Það er ekki allt
af svo í lífinu, er það?
Það er vandi að skrifa fyrir börn
og unglinga. Höfundar verða að
segja eins satt og mögulegt er, þó að
sannleikur sé stundum klæddur í mis
jafna búninga.
VANTAR NOKKRAR TEGUNDIR
BARNABÓKA2
Maður nokkur vék sér að mér á
fyrrnefndri sýningu og spurði:
„Hefurðu séð nokkrar kristilegar
bækur?“
Á tuttugustu öldinni finnst e.t.v.
sumum eins og við hverfum aftur í
miðaldamyrkur og svartsýni, þegar
einhverjum dettur í hug að nefna
Jesú á nafn i barnabók, hvað þá ef
einhver nefnir ritningarstað, þar sem
lesandi getur sjálfur lesið samhengi
þess, sem vitnað er til, líkt og þeg-
ar við vitnum til heimildarrita.
Sumir halda og segja, að kristin
lífsskoðun sé afneitun á lífinu. Hún
er þvert á móti. „Öll skepna Guðs
er góð, og engu ber frá sér að kasta,
sé það þegið með þakkargjörð" (Ur
bréfi Páls postula til Tímóteusar).
Kristin lífsskoðun viðurkennir því
allt i lífinu, sem er stórkostlegt, fag-
urt og satt. Þeir, sem játa þessa lífs-
skoðun, vilja því berjast við öll
ill öfl tilverunnar ,— og benda öðr-
um á óþrjótandi uppsprettu lífsins,
bók bókanna, biblíuna.
Það hafa verið til menn, sem vissu,
hvað þeir vildu. Við skulum aðeins
minnast þriggja þeirra. Sr. Hallgríms
Péturssonar, sr. Jóns Sveinssonar
(Nonna) og sr. Friðriks Friðriksson-
ar.
Rit þeirra og ritmennska einkenn
ist hvorki af værð né væmni, til-
finningasemi né hræsni. Allt lif
þeirra og öll skrif einkennast af bar
áttu og ferskleika, karlmennsku,
drenglund og göfugmennsku. Þeir
vissu, að hvaða marki þeir stefndu.
Þeir vildu benda öðrum á Jesúm
Krist — og gerðu það á mismunandi
máta, hver á sinn hátt.
Á þessum síðustu tímum vantar
meira af kristilegum bókum um kristi
leg efni eins og t.d. kristniboðsfrá-
sögur og frásagtjir, um líf brautryðj-
enda, landkönnuða og kristniboða,
biblíufrásögur og sagnir fyrir börn,
bænakver o.fl. í þeim dúr.
NORIÍÆNT ÞING BARNA- OG
UNGLINGABÓKAHÖFUNDA
Um þessar mundir munu barna- og
unglingabókahöfundar frá öllum
Norðurlöndum þinga í Norræna hús-
inu í Reykjavík. Margvísleg efni
verða þar tekin fyrir og rædd. Hér
hefur verið stigið mikilvægt skref í
samvinnu og samstarfi við Norður-
landaþjóðirnar. Við vonum, að giftu
samlega takist og mörgum mætti
verða ljósari sú staðreynd, hversu
mikið riður á, að barna- og unglinga
bókum sé gaumur gefinn, innlendum
sem þýddum.
Þórir S. Guðbergsson.
Heilsurœktin
Health cultivation
Clœsibœ
Athygli skal vakin á því að næsta námskeið
sumar- og haustnámskeið hefst 1. júlí. Saina
lága þátttökugjaldið, kr. 2.200 fyrir næstu 3
mánuði eða’kr. 1.200 per. mánuð, sé tekinn
einn mánuður í einu. Innritun hefst nú þeg-
ar- — Þeir sem hætta þátttöku eiga á hættu
að missa af þeim flokkum, sem þeir hafa
verið í. — Innifalið: 50 mín. þjálfun, tvisvar
í viku, vatnsböð, gufuböð, háfjallasólir og
innírarauðir lampar, geirlaugar, áburður,
olíur, leiðbeiningar um mataræði, hatha-
yoga æfingar. Rétt öndun og slökun.
HEILSURÆKTIN,
sími 85655.
Volkswagen
Land-Rover og
Range-Rover eigendur
Eigendum V.W., L.R. og R.R. bifreiða er bent
á að bifreiðaverkstæði okkar verður lokað
vegna sumarleyfa frá 29. júlí til 13. ágúst,
þ. e. 9 virka daga.
Þó mun deild sú, er framkvæmir skoðanir
og eftirlit á nýafgreiddum bifreiðum (árgerð
1972) vera opin með venjulega þjónustu.
Reynt verður þar að sinna bráðnauðsynleg-
um minniháttar viðgerðum.
Smurstöð okkar mun starfa á venjulegan
hátt.
HEKLAhf.
Laugavegi 170—172 — Simi 21240
Fley
og fagrir litir
Hörpu-skipamálning
Verndar skipið gegn veðri, vindum og seitu,
á ferðum þess um höfin.
Hörpu-vinnuvélalakk
mikilvægur þáttur í verndun
og viðhaidi véla og tækja.
Þaulreynd og örugg efni, sem í áratugi hafa
staðizt, hina umhleypingásömu íslenzku veðráttu.
Verndandi — fegrandi.
HARPA
EINHOLTI 8