Morgunblaðið - 25.06.1972, Page 28
28
■ ........... ........ .......i.....
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNl 1972
1 '■■■ 1 ... ........ 1 ..'J ..
CjjjjjO^J5XV|\| maísret fer samvizkubit eftir georges simenon
að treysta því að lögum verði
íramíylgt og ætla því sjálfur að
jafna metin, ef mér vinnst tími
tn."
„Ber að skilja þetta svo, að
þér ætlið að myrða eiginkonu
yðar fyrirfram?“
„Áður en ég dey, en ekki fyrr
en henni hefur tekizt að eitra
fyrir mér. Það eru mjög fáar eit
urtegundir sem valda dauða taf
arlaust og erfitt að koma hönd-
um yfir þær. Þess vegna mun
líða nokkur tími frá þvi að mér
verður ljóst að henni hefur tek
izt þetta og þar til ég missi all-
an mátt. Ég hef hlaðna skamm-
byssu heima. Ég tek það fram,
að ég hef fullt leyfi fyrir henni.
Konan mín veit það, því það er
langt síðan ég fékk hana. En nú
er hún falin, þar sem konan mín
finnur hana ekki. Hún hefur
verið að leita að henni. Hún er
enn að leita ...“
Annað slagið fannst Maigret
ráðlegast að fara með manninn
beint á læknastofuna, sem starf-
rækt var á stöðinni.
„Setjum sem svo, að þér fáið
verki klukkutima eftir kvöld-
verðinn?"
„Verið óhræddur, Momsieur
Maigret. Ég þekki muninn á
verkjum vegna eitrunar og
venjulegum meltingartruflunum.
Þar að auki hef ég alltaf haft
sterkan maga.“
„En þér grípið til yðar ráða,
um leið og þér álítið, að yður
haíi verið byrlaö eitur, eða
hvað?“
„Ef ég finn að mér hefur ver-
ið byrlað eitur, þá hika ég
ekki.“
„Þá gripið þér til byssunn-
ar?“
„Já.“
Síminn hringdi og lögreglufor
ingjanum fannst hljóðin í hon-
um óvenju hávær. Andrúmsloft-
ið á skrifstoifu'nni var orðið þrúg
andi. Allt hékk á bláþræði . . .
„Þetta er Lucas.“
„Já ...“
„Ég gat ekki látið vita fyrr,
af því ég þorði ekki að líta af
henni á bakkanum . ..“
„Hverri?“
„Konunni . . . ég skal útskýra
þetta . . . ég varð að bíða, þang-
að til einn starfsman n ann a
gekk hjá. Ég setti hann á vakt
og kom hingað til að hringja . . .
Torrence tók við af mér ...“
„Vertu fljótur að þessu. Og tal
aðu ekki svona hátt. Það iskrar
í tólinu..."
Var Marton ljóst að samtalið
fjaiiaði óbeint um hann?
„Ég skil . . . jæja . . . Janvier
sýndi mér manninn, þegar hann
kom út úr verzlunarhúsinu . . .
ég veitti honum eftirför, en Jan-
vier beið eftir strætisvagni
(í
„Og svo . . .“
„Ég tók ekki eftir neinu, á
meðan við fórum um fjöl-
förnustu göturnar. En þegar við
fórum yfir torgið hjá
Louvre og yfir á bakkann, þá
sá ég, að ég var ekki einn um að
veita honum eftirför . ..“
„Haltu áfram . . .“
„Ung kona, sem elti hann líka.
í þýðingu
Huldu Valtýsdóttur.
Ég held, að hún hafi ekki séð,
mig, en ég er ekki viss . . . Hún
veitti honum eftirför alveg að
Quai des Orfévres og hún er
enn hérna fyrir utan, nokkur
hundruð metra frá inngang-
inum.“
„Lýstu . . .“
„Það tekur því ekki. Þegar
Torrence var tekinn við, kom ég
hingað upp og bað Janvier að
fara niður og athuga hvort
hann kannaðist við hana . . .
Hann var að koma aftur og er
hérna við hliðina á mér . . .
velvakandi
0 „Að láta blóinin tala“
„Hér er nú orðin lenzka að
veifa blómum í tíma og ótíma.
"Blóm á tónleikapöllum, flug-
Völium; næst verða það senni-
lega blóm á knattspyrnuvöil-
um. Stundum hefur hvarflað
að mér, hvort plastið, sem
blómin eru höfð í, geti ekki
virkað eins og segl, þannig að
snörp vindhviða, t.d. á flug-
velli, gæti valdið því að sá,
sem héldi á vendinum, tækist
á loft og færi þannig sömu
leið og hann kom. Það yrði
stórbrotin sjón.
En í aivöru talað, má ekki
láta hvern hlut hafa sinn
tíma? Þessar sífelldu blómaaf-
hendingar eru orðnar einhvers
konatr óumflýjanlegt fargan.
3. ógúst 15 daga
18. ógúst 15 daga
1. september 15 daga
15. september 15 daga
29. september 22 daga
20. oktober 10 daga
Allt úrvalsferðir að sjólfsögðu.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
Ég nefni sem dærni tónleika.
Maður er iðuiega í hrifningar-
„stuði" eftir tónlistina og
klappar af öllum lífs- og sál-
arkröftum. En sjá! Augnablik-
ið ankannalega er xnmnið upp;
’á sviðinu birtist unglingstetur
(oftast í hróplegu ósamræmi
Við aðra á sviðinu, bæði hvað
snertir kiæðaburð og annað)
— hampandi blómvendi. Þetta
er alís ekki sagt til þess að
kleklkja á neinum einum, en
sem sagt, mér finnst þetta
mjög klökkt. Með fyrirfram
þökk fyrir birtinguna.
H. H. G.“
0 Um kurteisi og
tillitssemi
Ung húsmóðir í Breiðholti
skrifar:
Um daginn komst ég ekki
hjá að hlusta á samtal, þar
sem verið var að ræða kurt-
eisi barna og ungliniga og
m. a. I strætisvögnum. Þar
var talað um að þau sætu
alltaf sem fastast og byðu
aldrei fólki og konum (þá
ófrísikum, hlaðnar bögglum
eða með lítil böm) sæti.
Þar sem ég bý í Breiðholti,
veit ég að þetta er mjög áber-
andi í vögnunum hinigað. En
á fullorðna fólkið ekki líka sök
á þessu? Ég hef margoft stað-
ið upp til að bjóða sæti mitt,
en aldrei verið þakkað fyrir,
nema eirnu sinni, og það var
gömul kona. Ef fullorðna
fólkið þakkaði oftar fyrir, en
fyndist þetta ekki bara sjálf-
sagður hlutur, væru þá ekki
líkur á, að þetta hreyttist?
Það þarf ekki mikið til að
sýna unglingunuim vingjam-
legt bros og segja um leið hið
einfalda, en stóra orð ,,takk“,
til að örva þá. Ef það dugar
ekki, þá hafa unglingar mikið
breytzt.
Á meðan verið er að tala um
strætisvagnana, þá langar mig
að mintnast á annað. Þegar ég
hef farið í bæinn gíðan ég
flutti hingað þá hef ég alltaí
þurft að hafa tvö litlu bömin
mín meðferðis. Það hefur
aidrei bruigðdzt að vagmstjór-
imm hefur alltaf skellt hurð-
inni á mig eða bömin í miðri
tröppunmi, jafn einu siinmi nið-
ur á Hlemmi og þá voiru tveir
stórir piltar á eftir mér, sem
stóðu líka við dymiar og sem
vagnstjórinn hefur ekki kom-
ist hjá að sjá. Hvort mamn-
greyið var að fflýta sér í kaffi
eða annað, veit ég ekki, en þá
gekk alla vega fram af mér.
Nú langar mig að bera fram
þá tillögu að það verði settir
upp speglar við útgöngudym-
ar, eins og var í gömlu vögn-
unium. Þá tók maður aldrei
eftir að svona kæmi fyrir.
Með fyrirfram þökk.
Ung húsmóðir í Breiðholti
(Hrönn Giiðmiindsdóttir).
SPUTTHELLUR ?
— Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin
bezt. —
Sáasí
ROSEMGRENS \ í ; ■ ' i$.
VIÐURKENNDAR 1 % :
ELDTRAUSTAR 1 i‘
— fyrir kyndiklefa 1;
— hvar sem eldvörn þarf : I’
— Standard stærðir ,( i * 4| j
— Sérstærðir j |
SÆNSK GÆÐAVARA j'
VKMJIKENNING - j
•RUNAMÁLASTOFNUNAX RfKISINS.
E. TH. MATHIESEN H.F.
SUÐURGÖTU 23
HAFNARFIRÐI — SÍMI 50152