Morgunblaðið - 11.11.1972, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 11.11.1972, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. NÖVEMBER 1972 listásprang Sunna valin af 100 Sunna Borg leikkona, sem m.a. hefur leikið hlut- verk Ragnheiðar í kvik- myndun sjónvarpsins um Skálholt, stundar nú nám við leiklistardeild háskólans i Georgiu í Bandaríkjunum, en hún hlaut styrk til náms þar. Einn islenzkur leikari, Pét ur Einarsson, hefur stundað þar nám áður. Sunna var í haust valin til að leika stærsta hlutverkið í aðalleikriti skólans, en hún var valin í aðalhlutverkið úr hópi 100 nemenda skólans. Leikritið heitir The Queen and the rebels eftir italska höfundinn Ugo Betti. Þegar Pétur Einarsson stund- aði nám við Georgiuháskól- ann var hann einnig valdnn til þess að leika aðal'hlutverk ið I lieikriti skólaársins. Simna Borg. Barnaleikrit í Þjóðleikhúsinu Ákveðið hefur verið að barnaleikritið Ferðin til tunglisins verði sýnt í Þjóð- leikhúsinu eftir áramótin og hefjast sýningar í janúar. Leikritið, sem er sígilt barna leikhúsverk er eftir þýzka höfundinn Gert von Basse- witz. Ferðin til tunglsins var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1954, en síðan hefur oft ver- ið rætt um að taka það aft- ur til sýninga vegna eftir- spurnar. Gullna hliðið á Hornafirði Leikfélag Hornafjarðar er nú að æfa Gulina hliðið eft- ir Davíð frá Fagraskógi. Verður leikritið fruimsýnt í byrjun desember. Leikstjóri er Kristján Jónsson, en hann leikstýrði Andirra hjá Horhfirðingum s.l. ár. Jón bóndi er leikinn af Gísla Arasyni, mjólkurbús- stjóra, kerlinguna leikur Sigrún Eiriksdóttir, djöf- ullinn er Haukur Þorvalds- son netagerðarmaður og stað gengill Lykla-Péturs er Ás- geir Gunnarsson trygginga- fulltrúi. Veturliði með stórsýningu Veturliði Gunnarsson list- málari opnar sýningu á 80— 90 olíu- og krítarmyndum í Norræna húsinu 8. nóv. n.k. Verður sýningin opin í 10— 12 daga. Veturliði hefur ekki sýnt opinberlega síðan fyrir rúmum tveimur árum. Allar myndirnar eru málaðar á s.l. tveimur árum. Veturliði Gunnarsson. Kristnihaldið sló sýningamet Kristnihald Haildórs Lax- ness sló sýnmgamat í Iðnó í fyrrakvöld, en þá var 153. sýning á verkinu. Alls hafa liðlega 30 þúsund manns séð Kristnihaldið. Gamla sýninga- fjöldametið átti Hart í bak eftir Jökul Jakobsson, en það var sýnt 152 sinnum. Fullt hús var á Kristmhaldinu í fyrrakvöld. Sveiinn Eimarsson, þjóðleikhússtjóri, bjó verkið fyrir leikhús. Dómínó yfirgefur fjalirnar Sýningum á Dóminó lýkur 25. nóvember nk., vegna þess að einn aðalieikarinn, Jón Lax- dal, verður að halda af landi brott til þess að hef ja æfing- ar i leikhúsi Zúrieh-borgar þar sem hann er ráðinn. 25 sýningar hafa verið á Dóminó Jökuls, en þeir, sem ætla að sjá það eins og það er sett upp í frumuppfærslu, ættu að fara að aithuga sinn gang. Lausnargjaldið eftir áramót Nýtt islenzkt leikrit, Lausnargjaidið er á verk- etnaskrá Þjóðleíkhússins á þessu leikári, en vegna veik inda aðalileikarans var verk- inu frestað. Verður það vænt anlega tekið upp siðar í vet- ur að sögn þjóðleikhús- stjóra. Jesús dýrlingurinn Æfingar á Jesúm dýrðliingi hefjast í Iðnó í þessum mán- uði. Hljómsveitin Náttúra hef ur verið ráðin til þess að leika í uppfærslunni, sem Pétur Einarsson stjórnar, en sýn- ingar munu hef jast í janúar. Verið er að prófa fólk í hlutverk, en alls eru 16 aðal- hiutverk og 15 20 aukahlut- verk. Fló á skinni Leikfélagið mun væntan- lega frumsýna franska gam- ainleikinn Fló á skinni milli jóla og nýárs. Æfingar eru hafnar af fullum krafti, en flestir leikarar Leikféiagsins munu leika í skopleiknum. Má þar nefna Gísla Halldórs- son, Steindór Hjörleifsson, Guðrúnu Ásmundsdóttur, Helga Skúlason, Helgu Bach- mann, Borgar Garðarsson og Guðrúnu Stephensen. — á.j. Qlafur B. Thors: Of snemmt að ákveða um nýtt frystihús B.Ú.R. 1 liugmynduin inn skipulag vesturhafnarinnar í Reykjavík, sem gera ráð fyrir því að tog- araafgreiðslan flytjist af Faxa- garði i vesturhöfnina, er reikn- að með, að ísframleiðslustöð verði reist á Grandabryggju og að rými fyrir fiskiðnaðarfyr- irtæki fáist með uppfyllingu ut- an verbúðanna á Grandaniun. I>á er og talið að önnur tveggja vöruskenuna hafnarinnar; á Grandagarði eða Granda- bryggju, henti þeirri starfsemi, sem togaraafgreiðslan rekur, auk þess sem þar yrði unnt að geyma mikið fiskmagn, sem ekki færi samdægurs til vinnslu. Myndi þá vesturliöfn- in verða fiskihöfn Reykjavík- ur, en þar berst nú á land, sem kunnugt er, nær allur bátafisk- ur, sem landað er í Reykjavík. Þessi atriði komu fram í ræðu Ólafs B. Thors, er hann flutti á fundi borgarstjórnar 2. nóvemb- er sl., þegar til umræðu var til- laga Björgvins Guðmundssonar um byggingu hraðfrystihúss fyr ir Bæjarútgerð Reykjavikur. Taldi Ólafur í ræðu sinni nauðsyn bera til nánari at- hugunar málsins áður em það yrði afgreitt og gat þess, að til- laga Björgvins væri gripin úr hugmyndum útgerðarráðs, sem ráðið hefði ekki enn talið ástæðu til að leggja fyrir borg- arráð eða borgarstjórn sérstak- lega, þar sem ráðið teldi enn frekari athugana þörf. „Ég álít,“ sagði Ólafur B. Thors í ræðu sinni, ,,að þetta mál sé á engan Ólafur B. Thors. hátt komið á það stig, að það sé hægt að ætlast til þess af okkur. sem ábyrgum aðilum, að við fjöllum um málið núna og tökum afstöðu til efnishliðar þess." Hins vegar kvaðst Ólafur engan veginn halda þvi fram, að bygging nýs frystihúss fyrir B.U.R., kynni ekki að vera skyn samleg tilhögun og þvi yrði kannski út í hana farið. „En við höfum ekki möguleika, að mínu viti, til þess að taka ákvörðun nú.“ Þá gat Ólafur þess, að könn- un hefði leitt í ljós, að nauðsyn- legustu breytingar á Fiskiðju- veri B.U.R. myndu kosta 25 til 30 millj. kr. og þó væri það sam- dóma álit þeirra, sem bezt þekktu til, að þetta húsnæði yrði aldrei hentugt til fisk- vinnslu. Þvi hefðu forráðamenn B.U.R. farið út í að kanna. hvað það myndi kosta að reisa hrað- frystihús af fullkomnustu gerð og þá á þeirri forsendu, að vöru skemman á Grandabakka feng- ist til þeirra nota. Fyrirhuguð afköst þessa húss yrðu vinnsla úr 170 til 220 tonnum á dag, sem er rösklega tvöföldun á afköst- um Fiskiðjuversins, eins og það er nú. Heildarkostnaður er áætl- aður um 315 millj. kr. og hefur Framkvæmdastofnun rikisins verið send áætlunin um þessa framkvæmd. Ólafur gat þess, að þessi áætl un færi ekki alveg saman við hugmyndir Reykjavikurhafnar, sem gera ráð fyrir þvi, að vöru- skemman á Grandabakka verði sameiginlegur afgréiðslustaður allra togara og að vöruskemm- an á Grandabryggju verði síðar gerð að frystigeymslu. Þá sagði Ólafur og, að vafasamt væri, hvort gera þyrfti ráð fyrir tvö- földum afkasta hjá B.U.R. Ólafur sagði, að of margir þættir málsins væru. enn svo óljósir, að ómögulégt væri að taka afstöðu til málsins á grund velli þess, sem nú lægi fyrir. Bar hann síðan fram þá tillögu, að tillögu Björgvins yrði vísað til borgarráðs og útgerðarráðs, þar sem takast mætti að kanna málið betur. Breytingartillága Ólafs var svo samþykkt með 8 atkvæðum Beztu bifreiðakaupin Moskvitch station VERÐ KR. 278.440.oo Innifalið í verðinu ryðvörn og öryggisbelti GÓDIR GRCIDSLUSKILMÁLAR Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. Sudurlandsbraut U - Reykjavík - Sími 38600 <

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.