Morgunblaðið - 11.11.1972, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.11.1972, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1972 17 Gustaf VI. Adolf við komiina til Reykjavíkur, 29. júni 1957. Gustaf VI. Adolf iiÍPIS illÍÉwÍ : : ' ■■ Mikið verður um hátíðahöld í Stokkhólmi í dag- í tilefni þess að Gustaf VI. Adoif konungur á níraeðisafmæli. Verður þess- ara tímamóta í lífi konungs minnzt með veizluhölduni, flug- eldasýningu og hátíðasýningu í Stokkhólmsóperunni. Einnig fá Stokkliólmsbúar taekifæri til að liylla konung er hann ekur í opnum skrautvagni um mið- borgina. Gustaf Adolif fæddist í kon- ungshöllinni í Stokkhólimi 11. nóvember 1882, og voru for- eldrar hans Gustaf þáverandi krónprins og kona hans Vict- or'a prinsessa af Baden. Sat þá afi unga prinsins, Oscar II., í konungsstóli. Hann var settur til mennta í einkaskóla kon- ungshal'larinnar, ásamt yn.gra bróður sinum, og tók stúdents- próf þaðan árið 1901. Árið eft- ir hóf hann nám í sögu, forn- leifafræði og þjóðfélagsfræði við Uppsala háskóla, auk þess sem hann stundaði nám við sænska herforingjas'kólann. Hafði hann þegar frá ferming- araldri haft mikinn áhuga á fornleifafræðinni, og hafa störf hans á því sviði hlotið viður- kenningu víða um heim. I janúar árið 1905 kynntist Gustaf Adolf brezku prinsess- unni Margareti, dóttur hertog- ans af Connaaght, en hún var barnabarn Viktoriu Englands- drottningar, og i júni sama ár voru þau gefin saman í hjóna- band i kapeliu Windsor-kastala. Eignuðust þau fimm börn í fimmtán ára hjónabandi, en Margrét prinsessa lézt árið 1920. Gustaf Adolf varð krónprins Svía árið 1907 þegar afi hans, Oscar II. lézt og faðir hans tók við völdum, sem Gustaf V. Næstur honum að rikiserfðum varð þá elzti sonur hans og al- nafni, Gustaf Adoif prins, sem kvæntist Sibyllu jrinsessu af Sachsen-Coburg und Gotha, og fórst í flugslysi á Kastrup flug veili í janúar 1947, þá fertugur að aldri. Elzti sonur Gustafs Adolfs yngra er Carl Gustaf núverandi krónprins Svía. Hann er nú 26 ára. Þremur árum eftir lát fyrri konu sinnar kvæntist Gustaf Adolf lafði Luise Mountbatten, en hún lézt árið 1965 eftir 41 árs hjónaband. Gustaf V. lézt i október 1950, þá á nítugasta og þriðja ald- ursári, og tók sonurinn þá við völdum sem Gustaf VI. Adolf. Sem krónprins og síðar kon- ungur hefur Gustaf Adolf ferð- azt mjög víða, og meðal annars tvivegis heimsótt Island. í fyrra skiptið var það á Ai- þingishátíðinni 1930, en síðan kom hann svo ásamt Louise drottningu í opinbera heim- sókn hingað i júníiok árið 1957. Gustaf Adolf hefur jafnan notið mikilla vinsælda, jafnt heima fyrir sem erlendis. Þrátt fyrjr annir sem þjóðhöfðingja Sviþjóðar, hefur honum lánast að finna tima til að sinna einn- ig öðrum áhugamálum sinum, sem eru helzt fornleifafræðin, austurlenzk Mst, grafísk list, iþróttir, bókmenntir og t.rjá- og garðrækt. Hann hefur stundað fornleifarannsóknir bæði heima og erlendis, sérstaklega þó á Italíu, hann hefur komið sér upp merku safni af austur- lenzkum listmunum, og í garði hans við sumarhöllina Sofiero eru blóm, runnar og tré viða að, meðal annars fágætar teg- undir austan frá Japan, Kína og Himalayaf jöllum. doktor við fjölda hásköla, og einkasafn hans af austurienzk- uim listmunum hefur verið sent til sýninga erlendis. Fyrir störfin að fornieifa- rannsóknum hefur Gustaf Adolf verið kjörinn heiðurs- I kvöld heldur Gustaf kon- ungur Adolf fjölskylduhóf í konungshöllinni, og koma þang að börn hans fjögur, þau Ingi- riður fyrrum drottning Dan- merlcur, Bertil prins, Sigvard Bernadotte greifi o.g Carl Joh- an Bernadotte greifi ásamt tengdadætrum og barnabörn- um. Einnig hefur þjöðhöfðingj- um hinna Norðurlandanna ver- ið boðið til hófsins ásamt mök- um sínum. Meðal gesta verða forsetahjónin íslenzku. Gustaf VI. Adolf í ReykjavíU sumarið 1957 í fylgd með þáverandi forseta, herra Ásgeiri Ás- Dr. Sigiirður Þórarinsson var leiðsöguniaður konungshjónanna geirssyni, og þáverandi borgarstjóra Gunnari Tlioroddsen. Myndirnar tók Ól. K. M. er þau heimsóttu Þingvelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.