Morgunblaðið - 11.11.1972, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.11.1972, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1972 Bikarkeppni KSÍ: Við komum — ef ekki í dag, þá á morgun sagði formaður ÍBV Stef án Runólf sson I DAG klukkan 14.00 á iirslita- leikurinn í Bikarkeppni KSl að hefjast á Melavellinum. Sem knnnugt er þá leika fþrótta- bandalag Vestnmnnaeyja og Fiin leikafélag- Hafnarfjarðar til úr- slita I þessu næst merkasta móti íslenzkra knattspyrnumanna. Því miður hefur keppnin dreg- ist óeðiilega lengi ýmissa orsa'ka vegna. Um síðustu heigi átti úr- sditaleikiurinn t. d. að fara fram, en honum varð að fresta þá vegna þess að eklki var flugveð- ur frá Eyjum. Lið IBV ætlaði að koma túl meginlandsins í gær, en Haukareða Grótta 1 l.deild Ur því fæst skorið annað kvöld ANNAÐ kvöld fæst úr því skor- ið hvort það verða leikmenn Gróttu eða Hauka, sem leika í 1. deiidinni í handknattleik í vet- ur. Þá fer fram seinni leikur þess ara liða í keppninni um áttunda sætið 1- 1. deild, leikurinn fer fram í fþróttahúsinu á Seltjarn- amesi, heimavelli Gróttu og hefst klukkan 21.00. Fyrri leikur liðanna fór fram í Firðinum á miðvikudaginn o<g þá sd'gruðu Haukar öruggiega með 8 marka mun, 17—9. Haukar eru þvl liklegir tii að leika áfram í 1. deild, því að óhklegt er að Gróttumönnum takist að sigra i leikn.um, hvað þá með 9 marka mun, sem er þeim nauðsynlegur. Það sem Haukarnir hafa fyrst og fremst fram yfir leikmenn Gróttu er leikreynslan og það Ikom greinilega fram í fyrri leik liðanna, að hún er þung á meta- skálunum. 1 liði Hauka eru marg ir ágætír handknattleiksmenn, Xeilkmenn eins og Stefán Jónsson, Þórður Sigu rðsson, Ólafur Ólafs- son og Sturla Haraldsson, svo einihverjir séu netfndir. Grótta er ungt féiag, aðeins sex ára, en uppbygging hefur verið mjög ör innan félagsdns, eins O'g sjá má af því, að það er er þegar komið í röð fremstu handíkn attleiksi iða, þó það sé tæplega nógu goft til að leika í íþróttir um helgina KNAXTSPVRNA: Únsiitaleilkiu'rinn í Bifcarkeppni KSÍ í dag klulklkan 14.00 á Mela- vellinum: FH — ÍBV. H ANDKN ATTLEIKUR: íþróttahúsið Seltjamamesi. Siunniudag kl. 20.Ó0. úrslit í 3. og 4. flofcki í Reykjanesmótinu kl. 21.00: Grótta — Hauikar leika um 8. sætið í 1. deiid. Reykjavlkurmótið í handfcnatt leilk, yngri flofckamir: í daig kl. 16.00. Sunnudaig kl. 14.00. Sunnudag kl. 16.30, meistarafitokkur kvenna. KR — Fram Valur — Vikdniguir ÍR — Ármann. KÖRFUKNATTLEIKUR: fþróttaskemmian Akureyri í idaig kl. 14.30: 1. deildar lið Þórs og Vals. 1. deild. Ámi Indriðason fyrirlliði Gróttu lék í fyrra i landsliði und- ir 23 ára aldri og er hann einn bezti leikmaður liðsins. Á undan seinni leik Hauka og Gróttu, verða leiknir úrslitaleik- imir í 3. og 4. flotkki í Reykja- nesmótinu og hefst fynri leikur- inn ki. 20.00. komst ekfci vegna veðurs. Stefán Runólfsson formaður IBV, sagði okfcur í gær að liklega myndu þeir verða komnir til lands fyr- ir hádegi í dag, veðrið væri að ganiga niður. Ef ekki yrði hægt að f'ljúga tíl lands í dag, þá myndu þeir reyna að fara sjó- leiðina. Það væri þó engan veg- inn auðvelt, þar sem Herjólfur er í slipp í Reykjavík. Við reyn- um allt tíi að geta lokið þessu af um þessa helgi, sagði Stefán. Baldur Jónsson vallarstjóri á Melavellinum, sagði að Mela- völlurinn væri eins og hann gasti beztur orðið á sumardegi. Starfs menn vallarins hefðu gengið frá honum að öllu leyti í gær, að- ei-ns væri eftir að krita hann, en það yrðd gert rétt fyrir leikinn. Baldur tók það fram að algjör óþarfi væri að draga Bikar- keppnina svona lengi, henni gæti verið löngu lokið. Tii dæmis hefðu ljósin, sem sett voru upp fyrir ári síðan, ekkert verið not- uð, óskiljanleg ráðstöfun, sagði Baidur að lokum. Vonandi verður hægt að fljúga frá Eyjum, svo leikurinn geti farið fram í dag. Bæði lið verða með sitt sterkasta, sú breyting verður á liði iBV, frá þvi sem úpp var gefið á laugardaginn var, að Örn Óskarsson ieikur með. Hann var í leikbanni, en tók það út í leiknum á móti ÍBA í 2. flokki á sunnudaginn. Senni- lega mun Snorri Rútsson fara úr liðinu í stað Arnar. Albert Thimrn, hinn hávaxni miðiierji Real Madrid (Z.Uti), sKorar hér í leiknum á móti ÍR með failegu stökkskoti. ÍR-ingar fá ekki vörnnm við komið. Thimm s-koraði 14 stig, enda þótt hann léki ekki netna lítinn hluta leiksins. Yfirburðasigur Real Madrid — þrátt fyrir góðan leik ÍR-inga 117:65 urðu lokatölur í fyrri leik ÍR og Real Madrid í Evr- ópukeppni meistaraliða, en leik- urinn var leikinn í Iþrðttahöll- inni í fyrrakvöld. Þrátt fyrir þennan mikla mun sýndu ÍR-ing ar á köfium stórglæsilegan leik, en gegn jafn stórkostlegum snill ingum og leikmenn Real Mad- rid eru, þarf talsvert meira til. Leikmenn liðsins eru i einu orði sagt stórkostiegir, og engin furða þótt liðið hafi safnað meist aratitlum í Evrðpu undanfarin ár. 1 byrjun var leikiurinn mjög jafn og skemmtilegur á að horfa. Bæði liðin beittu vam araðferðinni maður gegn manni, og varnarleikur Reai Madrid var frábær. Þrátt fyrir það tókst fR-ingum í byrjun leiksins að opna vöm þeirra með skemmti- legum ledkfléttum, og þeg- ar fyrri hálfleikurinn var hálfn aður leiddi ÍR með einu stigi, 15:14. Þegar hér var komið sögu bað þjálfari Real Madrid um leikhlé, og það notaði hann til þess að skamma leikmenn liðs Risar Real Madrid gáfu ekkert eftir í fráköstum, hér bitast tveir þeirra um boltann og kiemma Einar Sigfússon á milli sín. Agn- ar Friðriksson er aðeins áhorfandi að þessum átökum (Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson). ins a.m.k. hafði hann nógu hátt, með tiiheyrandi handapati o>g lát um. — Það skipti heldur engum •togum, að þegar leifcurinn hófst á ný, þá tóku leikmenn liðsins á öllu sem þeir áttu, og stuttu siðar var staðan orðin 44:20 fyr ir þá. Á þessu tímabili áttu ÍR- ingar ekkert svar við frábærri vörn Spánverjanna, sem sýndu afburða lei'k, þann bezta sem nokkurn tíma hefur sézt í Iþróttahöllinni. Staðan í hálfleik var 54:26 fyrir R. Madrid, og menn bjuggu sig undir hið versta í síð ari hálfleik. iR-ingar mættu hins veg- ar mjög ákveðnir til leiks í sið- ari hálfleik, og fyrstu 8 mínút- ur hálfleiksins héidu þeir al- gjörlega í við R. Madrid. Stað- an eftir þessar 8 min. var 70:34, og hafði ÍR þá eitt stig í vinn- ing í síðari háffleik. Þegar hér var komið sögu, var Emiliano Rodriguez hinn frægi leiikmaður settur inn á í fyrsta skipti í leiknum. Hann byrjaði á því að skora körfu með fallegu langskotí, og stuttu síðar bætti hann annari við með gegnumbroti. Hann var ekki búinn að vera lengi inn á þegar hann var bú- inn að skora 16 stig, og hafði þá 100% nýtingu í skotum. Auk þess að skora átti hann margar frábœrar sendingar á samherja sem nær undantekning arlaust gáfu körfu. — En eins og fyrr segir lauk þessum leik með stórum sigri R. Madrid 117:65. Þrátt fyrir þennan mikla ósig ur, átti ÍR liðið á köflum mjög skemmtilegan leik, en þess á milli stóðu iR-ingar vamar- lausir gagn spænsku snillingun- um. Spánverjamir léku það oft á tíðum að skjóta langskotum, og þegar boltinn var yfir körfu- hringnum kom einhver risanna upp fyrir hiringinn og stýrði boltanum hina réttu leið. Við þessu var auðvitað ekkert að gera, og Spánverjarnir femgu mörg stigin á þennan hátt. Agnar Friðri'ksson var stig hæsti maður leiksins, og skoraði 22 stig, flest úr langskotum. Birg.ir Jakobsson átti góðan leik á köflum þótt æfingalítili sé, en Kristinn Jörundsson sem sjald- an bregzit, átti nú sinn lakásta leik i iangan tíma. — Þeir Birgir og Kristinn skoruðu 13 stig hvor. Hjá Real Madrid voru þeir beztiir Rafel Rullan, Vdcente Paniagua, og Norbert Thimm meðan hans naut við, en hann fór út af rétt fyrir háffleik með 5 villur. Stighæstir þeirra voru Pania- gua með 18 stig, Ruilan og Emi- liano Rodriguez með 16 stiig hvor. Dómarar í leiknum voru Harry Keats frá Énglandi og Svíinn Oscar Petterson og dæmdu þokkalega. Heldúr hafði maður það þó á tilfinningunni að þeir bæru of mikla virðingu fyrir leikmönnum Real Madrid. gfc. Þáttaskil Tvö sérsambönd stofnuð um helgina UM HELGINA má scgja að þátta skil verði í starfi tveggja, íþrótta greina á íslandi, því stofnuð verffa tvö ný sérsambönd innan íþróttasambandsins. Annað er í blakíþróttinni, hitt í borðtennis. Undanfarin ár hafa verið starf- andi sérstakar nefndir innan ÍSÍ, sem farið hafa með máiefni þessara íþróttagreina. í dag klukkan 14.00 verður Blakisiamlband íslands stofnað oig á sama tíma á morgun Borðtenn- issamband íislamds. Báðir þessir stofnfundir fara fram í fúmdar sal íþróttasambands íslamds í íþróttamiðstöðimmi í Laiuigardai. Á stofmfumdinium verða kosmar stjómir og samlþyklkt lög fyrir samibömddn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.