Morgunblaðið - 30.11.1972, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1972
14444^25555
14444^25555
® 22 0-22-
BÍUIEIGA
CAR RENTAL
tt 21190 21188
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodr
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
FERÐABlLAR HF.
Bilaleiga — sími 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
Fimm manna Citroen G. S.
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabflar (m. bllstjórum).
HÓPFERBIB
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
sími 32716.
UFIIMB
■IH
mmim
STAKSTEINAR
Mamma,
mamma má ég?
Framsóknarráðherrarnir
hafa oft reynt að bera það af
sér að undanförnu, að þeir
séu ekki annað og meira en
taglhnýtingar kommúnista-
riddaranna i rildsstjórninni.
Heldur gengur þeim þó erfið-
lega að reka slyðruorðið af
sér. Ekki er það undarlegt svo
oft sem þeir hafa orðið berir
að því, að geta ekki staðið á
eigin fótum, og fara ekki spöl-
korn án þess að liafa hand-
festu á pilsfaidi þeirra Lúðvíks
og Magnúsar. Hafa framsókn
arráðherrarnir orðið ósjálf-
stæðari með hverjum degi
sem hefur liðið. Og nú hefur
. loks keyrt um þverbak, eins
og glöggt má ráða af viðtali
sem blaðam. Mbl. átti við þá
Lúðvík Jósepsson sjávarút-
vegsráðherra og Einar Ágústs
son utanríkisráðherra vegna
landiielgisviðræðnanna og birt
var í Mbl. í gær. Þar segir
m.a.: „Einar Ágústsson utan-
ríkisráðherra sagði í viðtali
við Mbl. í fyrradag fvrir fund
inn með Bretum, sem hófst
klukkan 17, að hann væri ekki
mjög bjartsýnn á samkomu-
lag. Þegar síðan klukkustund
arfundi var lokið sagði Ein-
ar, að heldur virtist honum
staðan hafa liðkazt. Er hann
hafði þetta mælt, kom Lúð-
vik Jósepsson sjávarútvegs-
ráðherra inn í samtalið, sem
fram fór í ráðherrabústaðn-
um og þá fór fram eftirfar-
andi samtal milli blaðamanns
ins og ráðherranna tveggja:
Lúðvík Jósepsson: Hann
má ekki segja það hann Ein-
ar, því að þá kemur þetta
allt öfugt. Ef maður segir að
maður sé bjartsýnn, þá kem-
ur á eftir að samningar séu
að takast — og það er logið
í fólkið. Ef maður segir að
maður sé svartsýnn þá segja
menn: Hann vill ekki samn-
inga. Þá er lika logið í fólkið.
Og af því á ekkert að segja
um þetta. Ekki eitt einasta
orð um það.“
Einar Ágústsson: „Ég vil
segja eins og ég sagði í út-
varpinu í dag . .
Lúðvík: „Nei, það á ekki að
segja eitt einasta orð um það.
Einar: „Já, já . . .“
Blaðamaður Mbl.: „En er
það rétt, sem heyrzt hefur á
skotspónum, að viðræðurnar
hafi gengið betur í morgun,
en snurða hiaupið á þráðinn
síðdegis?"
Einar: „Má ég . .
Lúðvík: „Nei, nei, nei —
siður en svo, — það er ekk-
ert liæft í því. .. .“
Þessi grátbroslegi farsi er
hvorki eftir Moliere, Holberg
né Ómar Ragnarsson. Hann
var frumsaminn og fiuttur af
tveimur háttvirtum ráðherr-
um í rikisstjórn fslands 27.
nóvember 1972. fslendingar
hafa aldrei áður búið við siíka
stjórn siðan Jörundur heitinn
hundadagakonungur var og
hét.
Landsölumenn
Alþýðuflokkurinn boðar nú
þá stefnu, að taka eigi upp
að nýju stefnu miðalda, að
allt jarðnæði á fslandi hverfi
á hendur opinberu valdi.
Verða þeir þannig fyrstir fs-
lendinga til þess að hverfa
frá þeirri stefnu, sem átt hef-
ur hvað mestan þátt í því, að
gera islenzka bændur efna-
lega sjálfstæða og útrýma
leiguliðunum og hjáleigun-
um.
Nú skal ekki dregið í efa,
að Alþýðuflokknum gengur
gott eitt til í þessu máli sem
öðrum. Sérhagsmunir ráða
ekki ríkjum í þeim flokki síð-
ur en svo. En þó er vert að
vekja athygli á því, að þess
hefur aldrei orðið vart í söl-
um Alþingis, að þingntenn
Aiþýðuflokksins væru neitt
sérstaklega á móti því að
selja einstaklingum jarðir í
eigu ríkisins. Aldrei hefur t.d.
Bi-agi Sigurjónsson borið það
við að greiða atkvæði á móti
slíkum jarðasölum, jafnvel
ekki einu sinni, þegar um er
að ræða eyðijarðir. Sumir Al-
þýðuflokksmenn hafa meira
að segja staðið að tlllögum að
slíkutn jarðasöium.
Menn hljóta því að bíða þess
með eftirvæntingu, þegar
frmmörp um sölu jarða í
eigu ríkisins koma fyrir Al-
þingi í vetur. Þá hljóta Al-
þýðuflokksmennirnir að mæla
gegn slíkum tillöguin; eða
viija þeir ekki stefna að því
að allt Iand verði í eigu opin-
berra aðila þegar fratn líða
stundir?
spurt og svaraÓ
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Hringið í sima 10100 ki.
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biCjið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
SJÓNVARPIÐ
Jón Þórarinsson dagskrár-
stjóri skemmtideildar sjón-
varpsins svarar næstu þrem-
ur spurningum:
Guðrún Gnðlaugsdóttir Kárs
nesbraut 5, spyr:
Af hverju er sjónvarpið
hætt að hafa helgistund með
barnatíman'Um ?
Svar:
Helgistundin var áður sjálf-
stæður dagskrárliður í upp-
hafi dagskrár á sunnudögum
en án tengsla við Stundina
okkar, en það var nýlega
ákveðið að hafa hana í dag-
skrárVok á sunnudagskvöld-
um næst á undan þjóðsöngn-
uim.
Úlfar Þorsteinsson, Hraun-
bæ 6, spyr:
Sér ekki sjónvarpið sér
fært að hefja á ný dans-
kennslu fyrir byrjendur, eins
og einu sinni var. Væri hægt
að fá þessa tilsögn á laugar-
dögum, seinni partinn?
Svar:
Ef danskennsla fyrir byrj-
endur verður tekin upp í sjón
varpinu, en um það hefur
engin ákvörðun verið tekin,
er líklegt að hún myndi verða
á dagskrá siðdegis á laugar-
döguim.
Björgvin Þórisson, Hring-
braut 107, spyr:
Er von til að hljómsveitin
Huimb’ie Pie muni spila í sjón
varpinu?
Svar:
Það liggur ekkert fyrir um
það að þessi hljómsveit komi
fram í sjónvarpinu.
SUNDURLIÐUN
LAUNAMIDA
H.jördis Þorleifsdóttir, Ás-
braut 7, spyr:
í mörgum tilvikum fær
launb?gi aðeins peningaupp-
hæð eða ávísun mánaðarlega
frá launagreiðanda fyrir unn-
in störf og launamiða ósund-
urliðaðan í lok ársins. Er
launagreiðandi ekki skyldug-
ur til þess að láta sundurlið-
aðan launamiða fyligja launa-
greiðslu mánaðarlega? Hvað
segja lögin?
Haruldur Steinþórsson fram
kvæmdastjóri BSRB, svarar:
Það munu ekki vera laga-
ákvæði um þetta, en hins veg
ar er mjög óþægilegt fyrir
iaunþegann að vita ekki um
sundurliðun á launaupphæð-
um og frádrætti, sem stund-
um skiptast í fast kaup og
yfirvinnu svo og frádrátt
vegna skatta o. fl. Þetta hef-
ur heldur versnað með til-
komu skýrsluvélauppgjörs.
ÚTVARPIÐ
Brynhildur G. Hansen, Hlé-
gerði 3, Kópavogi, spyr:
Fáum við að heyra meira
af framhaldssögunni Draum-
urinn um ljósaland, sem frú
Þórunn Elfa las í útvarpið?
Hjörtur Pálsson, dagskrár-
stjóri, svarar:
Um það hefur engin ákvörð
un verið tekin og það verður
að minnsta kosti áreiða. ílega
ekki strax.
Úlfar Þorsteinsson, Hrann-
bæ 6, spyr:
Er ekki hægt að fá fleiri
messur frá dómprófastinum
okkar, Jón: Auðuns, í útvarp-
ið?
Hjörtur Pálsson dagskrár-
stjóri, svarar:
Okkur hefur áður borizt
svipuð fyrirspurn og ég
svara sem fyrr: Mér er ekki
kunnugt um að dómprófastur
inn eða aðrir prestar Dóm-
kirkjunnar hafi orðið afskipt-
ir hvað varðar útvarpsmess-
ur.
SKEMMD
SJÓNVARPSTÆKI
Halldór G. Kristjánsson,
Suðureyri, spyr:
Hver á í raun og veru að
borga brúsann ef skemmdir
verða t.d. á sjónvarpstæki
vegna gífurlegs spennufalls á
rafmagni eins og svo oft á
sér stað á Suðureyri?
Gísli Jónsson framkvæmda
stjóri Sambands íslenzkra
rafveitna, svarar:
Að mínum dómi er ekkl
hægt að útiloka þann mögu-
leika að rafveitur séu skaða-
bótaskyldar. Hins vegar get-
ur orðið erfitt eftir á að sanna
að skemmd hafi orðið af völd
um spennufalls.
Dugleg stúlku óskust
til afgreiðslustarfa.
Upplýsingar á staðnum í dag frá kl. 2—5 ekki
í síma.
ASK.UK
Sudmiandsbraut 14
NÝ SENDING
Dag- og kvöldkjólar. Pilsbuxur, síðar.
Stutt og síð pils.
Blússur, peysur, morgunsloppar
(velour og frotté).
Nauðungaruppboð
Að kröfu Sveins H. Valdimarssonar, hrl., verður
ísskápur (Bosch) seldur á nauðungaruppboði, sem
haldið verður að Vatnsnesvegi 33 í dag kl. 14.
Bæjarfógetinn í Keflavík.