Morgunblaðið - 04.02.1973, Side 22

Morgunblaðið - 04.02.1973, Side 22
 22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUOAGUR 4. FEBRÚAR 1973 Minnlng: Skúli Þorsteinsson Skúli Uorsteinsson andaðlst á heimili sinu að morgni fimmtu- dagsins 25. janúar. Sama dag hringdi Ingi Krist- insson, skólastjóri til mín og sagði ;mér lát hans, mælti þau orð, sem standa fastar og ó- hagganlegar en önnur orð, hvað sem tilfinningum okkar liður. Mér var að vísu vel kunnugt um , þann sjúkleika, sem þjáð hafði Skúla um langt skeið og ævinlega fer með sigur af hólmi, en þó kom fregnin að mér óvör- um. Andlegt þrek Skúla var með þvílikum hætti, bjartsýni hans og áhugi, að I huga mér var hann fjær sinu skapadægri en margur, sem yngri er og heilli, Skúli Þorsteinsson var fædd- ur á aðfangadag jóla árið 1906 á Stöðvarfirði, og voru foreldr- ar hans Guðríður Guttormsdótt- ir, prests í Stöð, og Þorsteinn Þorsteinsson, kaupmaður. Ég er ókunnugur á Austurlandi og kann ekki að rekja ætt Skúla nánár, en sjálfur bar hann þess gleggst vitni, að hann var ekki af aukvisum kominn. Eftir að bamaskóla lauk, var Skúli við nám á Hvítárbakka og síðan næstu vetur á ýmsum lýðháskól um í Þýzkalandi, Npregi og Dan- mörku. Gerði hann þá viðreist um Evrópu og aUt suður í Litlu- Asíu. Vorið 1932 lauk Skúli kennaraprófi i Kennaraskóla Is- lands og kenndi síðan í Aust- urbæjarskólanum, þar til haiin tók við skólastjórn I barna- og unglingaskólanum á Eskifirði Systir okkar, Eva Sigurðardóttir, Hátúni 10, lézt aö VííHstöðum aðtfara- nótt föstudagsins 2. febrúar. Hrefna Signrðardóttir og systkini. 1939. Á Eskifirði var Skúli í átján ár, þá fluttist hann aftur til höfuðstaðarins og kenndi í Melaskóla, unz hann gerðist námstjóri á Austurlandi árið 1964, en því embætti gegndi hann fram á siðastliðið ár. Eft- ir að Skúli hóf kennslu, ferðað- ist hann oft til útlanda, einkum i þvi skyni að fræðast um kennslumál annarra þjóða, enda var honum vel ljós þörf kennara á sifelldri endurmennt- un. Meðal annars sótti hann heim þau lönd, þar sem hann hafði ungur numið. Ég er ekki nógu fróður tii að segja að nokkru gagni frá þeim trúnaðarstörfum, sem hlóðust á Skúla, bæði á Austurlandi og i Reykjavík, en hann var jafnan i forystusveit eða fararbroddi sinnar stéttar í félagsmálum. Einnig tók hann mikinn þátt í starfi ungmennafélaga, skóg- ræktarfélaga og íþróttafélaga svo að nokkuð sé nefnt, og má af þessu skilja, hve áhugamál hans voru mörg, og þó flest af sama toga spunnin: tengd vax- andi æsku og gróðri. Skúli var skáldmæltur vel og þrtí kvæði, sem birzt hafa i blöð um og tímaritum. Einnig kast- aði hann oft fram stökum á fundum og þingum, félögum sín um til ánægju. Bækur þrjár skrifaði hann: Börnin hiæja og hoppa, Hörður á Grund og Jóla- gleði. Fyrstnefnda bókin hefur verið gefin út öðru sinni a-f Rík- isútgáfu námsbóka. Þar eru bömin leidd út í náttúruna og frædd af nærfæmi og skilningi. Auk þessa ritaðl Skúli barna- sögur, sem prentaðar hafa ver- ið í Unga Islandi og Æskunni, svo og greinar um skólamál, er hafa m.a. birzt í Menntamálum. Árið 1938 kvæntist Skúli Önnu Sigurðardóttur skólastjóra Þór- ólfssonar, og lifir hún mann sinn ásamt bömum þeirra þrem ur: Þorsteini, Ásdísi og Önnu. Þegar ég var i Kennaraskól- anum fyrir nær fjórum áratug- um, átti ég þess kost að vera nokkrum sinnum með ungum kennurum, sem æfðu handknatt leik í Austurbæjarskóla. Þar Útför konunmar mfanar, Hlínar Jónsdóttur, Reynivöllum 6, Akureyri, fer fraim frá Akureyrarkirkju þriðjudaginm 6. febrúar kl. 13:30. Gústav Jónasson. Þökkum immlega auðsýnda saimúð og vináttu við andiát og jarðarför konu miinnar og móður okkar, ísbjargar Hallgrímsdóttur. Andreas Andersen, Kristjana Andrésdóttir, Anna Andrésdóttir. Otför mannsins míns og föður okkar, ÓLAFS BERGMANNS ERLINGSSONAR, prentara, Njálsgötu 76, fer fram frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 6. febrúar klukkan 1.30. Jófríður Krístín Þórðardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Ólöf Ólafsdóttir, Edda Ólafsdóttir. Otför e'iginmanns mins, sonar míns, föður okkar, tengda- föður og afa, SKÚLA ÞORSTEINSSONAR, fyrrverandi námsstjóra Austurtands, ter firam frá Dórrvkirkjunni, mánudaginn 5. febrúar klukkan 13.30. Anna Sigurðardóttir, Guðríður Guttormsdóttir, Þorsteinn Skúlason, Ásdis Skúladóttir, Sigurður Lúðvigsson, Ama Skúladóttir. Sigurður Jónsson, Móeiður Arma Sigurðardóttir. vakti ungur maður, mikill vexti og glæsilegur, sérstaka athygli mína — og þá ekki síður leikur hans. Þar skorti hvorki kapp né áhuga, en minnisstæðari verður mér þó drengskapur hans í keppni og einstök leikgleði. Þessi maður var Skúli, og þarna urðu okkar fyrstu kynni. Nokkru síðar vorum við hvor í nánd við anpan í landmæling- um um sumartima, og þar vakti Skúli einnig athygli með röskleik og skörungsskap. En annars unnum við Skúli aldrei á sama stað, og löngurn var æði langt milli vinnustaða. í félagsmálum kennara áttum við hins vegar saman að sælda. Einu gilti, hversu langt Skúli átti að sækja, ég minnist þess ekki, að hann vantaði á nokk- urt þeirra þinga, sem kennar- ar hafa um langt skeið haldið á hverju vori. Enda var hann mik ill félagshyggjumaður og hafði alla stund brennandi áhuga á framfaramálum stéttarinnar. Hann skildi gerla nauðsyn og mikilvægi samtaka, enda þótt menn verði að láta sér lynda, að flestum framfaramálum miði í hænufetum. Síðastliðin tólf ár áttum við Skúli sæti í stjóm Sambands íslenzkra bamakenn- ara, og var hann formaður sam- takanna allan þann tíma, kjör- inn einróma hverju sinni, með- an hann gaf þess kost. Á þess- um árum kynntist ég Skúla vel. Þeir eðlisþættir, er vöktu aðdá- un mína í knattleiknum forð- um, voru enn sem fyrr rikjandi í fari hans: kapp og áhugi á hverju góðu máli, drenglund og viðsýni. Og enn var gleðin ríkj- andi í huga hans, ósigruð af þreytu áratuga og sjúkleika, sem varpaði dimmum skugga á veg- inn framundan. Ekki verður minnzt hér á nema örfá þeirra mála, sem Skúli lét til sín taka á vegum kennarasamtakanna. Ber þar menntun kennara einna hæst, en það mál bar hann mjög fyrir brjósti og átti sæti í nefnd, sem samdi frumvarp til laga um kennaraháskóla. Þar með var þéim langþráða áfanga náð að þoka kennaramenntuninni upp á háskólastig. Einnig átti Skúli sæti í stjórn Lífeyrissjóðs kenn- ara og vann þar að umbótum kennurum til handa. Þá beitti hann sér fyrir auknu og skipu- legu samstarfi við samtök kenn ara á Norðuriöndum. Eitt af síð ustu verkum Skúla var að und- irbúa og stjórna hátíðahöldum á 50 ára afmæli Samb. ísl. bama kennara vorið 1971. Kennarastéttin á Skúla mikl- ar þakkir að gjalda og á full- trúaþingi á liðnu vori var þess minnzt og hann kjörinn heiðurs- félagi Sambands íslenzkra barnakennara. Minningin um hann tengist björtum vardögum og sólarsýn í hugum okkar, því að marga slíka daga áttum við með Skúla. Bjartsýni hans og starfsgleði munu enn örva gamla félaga og ylja þeim í sinni. Og læðist að okkur efi um gildi og mátt samtakanna eða vantrú á æskufólki og fram- tíð, þá er okkur hollt að hugsa til Skúla Þorsteinssonar. Ég votta fjölskyldu Skúla ein læga samúð og kveð hann með þökk og virðingu. Láti honum nú Guð raun lofi betri. Gunnar Guðmundsson. Kveðja frá stjóm Sambands ísl. barnakennara. Mánudaginn 5. febrúar verð- ur til moldar borinn Skúli Þor- steinsson, námsstjóri. Skúli var formaður Sambands ísl. barna- kennara á árunum 1960—1972 og gegndi auk þess fjöbnörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir samtökin, sat m.a. í stjórn Líf- eyrissjóðs barnakennara frá ár- inu 1963 til dauðadags, átti mik- inn þátt í stofnun Norræna kenn arasambandsins (NLS) og var formaður þeirra samtaka starfs- árið 1970—1971, sat I stjórn norrænu skólamótanna um ára- bil og var fulltrúi SÍB á heims- þingum kennara, svo eitthvað sé nefnt. öll sín störf rækti Skúli af mikilli trúmennsku og sam- vizkusemi, og dugnaði hans og fómfýsi var við brugðið. Skúli var tígulegur í framgöngu, ein- arður baráttumaður og dreng- ur góður. Honum var annt um sóma stéttar sinnar og jók hróð- ur hennar og virðingu, hvar sem hann kom fram fyrir hennar hönd. Stjórn Sambands íslenzkra bamakennara þakkar ómetan- leg störf hans, minnist sam- starfsins við hann með virðingu og vottar ekkju hans, bömum og öðrum ástvinum dýpstu samúð sína. Á mánudaginn, 5. febrúar, fer fram frá Dóimkirkjunni út- för Skúla Þorsteinssonar, náms- stjóra, er andaðist að heimili sinu, Hjarðarhaga 26, Reykja- Vik, að morgni fimmtud. 25. f.m. Skúli var fæddur á Stöðvar- firði í Suður-Múlasýslu 24. des ember 1906, elztur sjö syistkina. Sonur þeirra kunnu sæmdar- Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför JÓNS SIGURÐSSONAR, fyrrverandi skipstjóra. Fyrir hönd ættingja, Elín Jónsdóttir, Sigurður Jónsson. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andiát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, AXELS JÓHANNESAR GUÐMUNDSSONAR, Valdarási Víðidal. Vandamenn. hjóna Þorsteins Þorsteinssonar Mýrmann og konu hans, Guðríð ar Guttormsdóttur. .Er hún í heimili yngsta sonar og tengda- dóttur og er á nitugasta aildurs- ári. Að þeirra tima hætti var ekki um langa barnaskólagöngu að ræða, en greiðan aðgang munu þau systkini hafa átt að góðum og fræðandi bókum. m.a. hjá afa þeirra, séra Guttormi Vigfús- syni í Stöð. Hins vegar tóku unglingar á þeim árum strax og geta leyfði, þátt í daglegu Mtfi og störfum fullorðna fólksins, nutu leiðbeininga þess og þroskandi samstarfs til orðs og æðis, og mun sá skóli hafa orðið Skúla giftudrjúgt veganesti. — Snemma kom í ljós, að Skúli var sérlega bókhneigður og námfús, en eigi var þá margra kosta völ uim skóla- göngu fyrir ungilinga í hans að- stöðu. Kunnur var um land allt alþýðuskólinn á Hvítárbakka í Borgarfirði, er hafði undir stjóm Sigurðar Þórólfssonar, áunnið sér mikið álit og bætt úr brýnni þörf slíkrar mennta- stofnunar, m.a. vegna þess, að þar var heimavist og öllum kostnaði svo í hóf stillt, sem verða mátti. Þar hóí Sikúli svo nám um tvitugsaldur og útskrif- aðist þaðan 1929. Þá lá leið- in til náims við Alþýðuháskóla í Þýzkalandi og á Norðuriöndum, og var þar raunar frekar um námskeið að rseða en samfellda skólaigöngu, en í beinu fram- haldi af náminu á Hvítárhaikka, er mjög var sniðið að fyrir- myndum frá hinum norrænu lýð háskólum. Frá Kennaraskóla Islands lauk Skúli prófi 1932 og hóf sama ár kennslu við Austurbæj- arskóla og starfaði þar til 1939, að hann gerðist skólaistjóri við barna- og unglingáskólann á Esikitfirði, en því starfi gegndi hann um 18 ára skeið, eða þar til hann aftur fluttist til Reykja víkur og varð kennari við Melaiskólann i 7 ár. 1 Austurbæjarskólanum varð Skúli fyrir mitalum og varan- legum áhrifum af samstarfinu við hinn ágæta staóiastjóra Sig- urð Thorlacius, er þar taom fram með margar nýjungar í kennslu málum, sem áður voru óþekktar hér á landi. Náimisstjóri fyrir Austurland var Skúli svo skip- aður 1964 og þvs embætti hélt hann þar til á síðastliðnu hausti, að hann varð að lláta af störf- um vegna hjartasjúkdóms, er niú hefur ráðið úrslituim. Kynni mín af Skúla eru orð- in löng og náin, eða allt frá ár- inu 1934, að ég kvomgaðist syst ur hans, Pálinu. Gg þar sem að- al starf okkar beg,gja hefur ver ið á sviði uppeldis- og kennslu mála, tel ég mér vel fært að kveða upp þann dóm, að Skúli hafi unnið sér sess meðal beztu og giftudrýgstu skóiamanna þessa landis, bæði vegna ágætra kennara- og skólastjóra- hætfileika, og etaki siður félags- málastarfsemi, hvort heldur verið hefur meðal nemenda eða starfssystkina. Var honum iíka falin forysta í mörgum helzbu málum kennarastéttarinnar, og sparaði hann hvergi kraftana, að sem beztum árangri yrði náð, þótt oft væri við ramman reip að draga. Frá fyrstu tið hefur hann lát ið sig margvísleg félagsmál miklu skipta og verið mikilvirk- ur starfsmaður fjölmargra menn ingarféiaga, og þá gjaman fbr- maður og dugmikill leiðtogi, þó eigi sé hér tóm til að geta nema nokkurra hinna viðamestu. Fyrir stofnun og starf ung liðadeilda Rauða krossins í barnastoólum hlaut hann heiðurs merki 1959, en bugsjónir þess fél a.gsska par voru honum jafn- an mjög hjartfólgnar. Af SKILTI A GRAFREITI OG KROSSA. Flosprent s.f. Nýlendugötu 14 sími 16480.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.