Morgunblaðið - 17.06.1973, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.06.1973, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNl 1973 23 Mirming: Þorsteinn Fæddiir 18. júní 1908 Dáinn 11. júní 1973 ÉG kveð góðan mann, sem lolkið hiefur göngu sinni, síðasta áfang- anum á lífsskeiði sinu. Ég átti þvi láni að fagna að kynnast Þorsteini. Oft kom hann í vinnustoifu miina og áttum við þá margar góðar viðræður um líf ið og dauðann. Það var oft djúpt á honum og tel ég að fáir hafi komizt að kjarnanum í lífsskoð- unum hans. Eitt af því sem ég mat mest i fari og skapgerð þessa stórl'ynda manns var viðkvæmni hans og góðhuigur til allra þeirra sem máttu sín minnst og voru hjálp- arvana. Þorsteinn lét aldrei hátt yfir því sem hann lét gott af sér leiða öðrum til handa. Þar fetaði hann í spor meistarans mikla, enda alltaf reiðubúinn ti'l þess að llíkna og græða sár þeirra, sem áttu við erfiðleika eð stríða. Ég þakka kynni min við Þor- stein og óska honum góðrar ferð- ar á leiðinni til hins dulda og ónumda lands. Ég er þess full- viss að með athöfnum Mfsins hef- ur Þorsteinn unnið sér „þegn- skap í ljóssins riki“. Farðu heil'l yfir útsæinn mikla. Ég þakka Þorsteini fyrir hönd konu minnar alla þá hjálp og til- litssemi sem hann veitti henni og börnum hennar þegar þörfin var mest og biðjum við algóðan Guð að veita eftirlifandi konu hans sálarstyrk og þrek við fráfall maka síns. Kveðja fjölskjddunnar Hátúni 11. Eggert Guðmundsson. (Mánudaginn 18. júní verður Þorsteinn til moldar borinn). ANNAN hvítasunnudaig andaðist hér í borg Þorsteinn Jónsson byggingamaður, eftir tiltölulega stutta sjúkdómslegu. Þorsteinn var vel þekktur hér vegna bygg- ingaframkvæmda um áratuga skeið og byggði hundruð ibúða víðsvegar um borgina. Hann var fæddur 18. júní 1998 að Reykjanesi í Ámeshreppi á Ströndum og hefði því orðið sextíu og fimm ára á morgun, eða daginn sem hann verður jarðsettur. Foreldrar Þorsteins voru þau hjónin að Reykjanesi Jón Jör- undsson og kona hans Helga Tómasdóttir. Jón var sonur Jör- undar bónda á Hafnarhólmi á Selströnd, Gíslasoanr hrepp- stjóra í Bæ á Selströnd. Móðir Jóns var Guðbjörg dóttir Jóns prests að Söndum í Dýrafjarðar- þingum, Sigurðssonar sýslu- manns, Guðl'augssonar prests Sveinssonar i Vatnsfirði. Helga móðir Þorsteins var dóttir Tóm- asar bónda á Brúará, Jónssonar Vermundssonar, en þeir feðgar bjuggu að Bassastöðum, en kona Tómasar var Þóra Guðmunds- dóttir bónda á Klúku í Bjamar- firði, Guðmundssonar bónda í Aratungu. Eins og sést á þessari upptalningu var Þorsteinn Strandamaður og Vestfirðingur í ættir fram. Þorsteinn naut ekki mikillar menntunar í æsku, fremur en aðr ir jafnaldrar, farkennarar komu og fóru, svo að heimanámið var látið duga, en það reyndist mörg um æði drjúgt þegar á reyndi. Strax í æsku fór Þorsteinn að starfa að búi foreldra sinna, sem var stórbú á þeirra tíma mæli- kvarða, en fór snemma að hugsa til sjálfstæðrar atvinnu, keypti sér mótorbát og gerði út frá Gjögri í nokkur sumur eða þar til kreppan hrakti hann frá þess- um sjáifstæða atvinnurekstri. Hann seldi bát sinn og stundaði síðan ’sjóm'ennsku frá Isafirði og Reykjavík, bæði á mótorbátum og togurum fram í striðsbyrjun 1939—’40. Á sumrum vann hann við byggingaframkvæmdir víðs vegar t.d. á Djúpavík og Hjalt- J. Jónsson eyri og fékk þá þegar áhuga fyr- ir slíkum framkvæmdum. Nokkru eftir stríðslok hóf hann svo byggingaferil sinn hér í Reykjavík, eins og áður segir, og hélt þeirri starfsemi áfram til hinztu stundar, í mismunandi stórum stil þó. Þorsteinn kvænt- iist eftirlifandi konu sinni, Eiínu Jónatansdóttur 1946, og var hjónaband þeirra mjög ham- inguríkt. Þorsteinn fékk fljótt það orð á sig, við þessar framkvæmdir, að vera áreiðanlegur og vandvirkur húsbyggjandi, og vildi hann ekki vamm sitt vita í þeim efnum. Við sem blönduðum geði við Þorstein, bæði á vinnustað og einkalífi, fundum með honum rikt skap sem hann þó tamdi vel, áreiðanleik og heilindi. Ég held að hann hafi ekki viljað gera á hlut nokkurs manns, enda við- mótsgóður, hlýr og sérstaklega bóngóður, leituðu því margir að- stoðar eða ráða hjá honum, og fengu fl'estir einhverja úrlausn. Það er ávallt eftirsjá að mönn- um eins. og Þorsteini, athafna- mönnum og vimnumönnum, sem hugsa meir um hag annarra en sjálfra sin, byggja upp íslenzkt þjóðléf frá grunni, breyta moldar kofum í stein- eða timburhús, hreysum í híbý'li, það er m.ikið sem eftir þessa menn liggur. Þegar þessi ágæti drengur er horfinn af sjónarsviðinu, er það mikil eftirsjá, en góðar minning- ar bæta þar nokkuð um, og við sem eftir erum kveðjum hann og þökkum fyrir ánægjulega sam- fyligd og óskum honum allrar blessunar. Far vel vinur. S. J. EFTIR fremur stutta en langa legu lézt hann á Landspíbalan- um að morgni 11. þ.m. Með Þor- steinii J. Jónssyni er genginn góður drengur og mikill starfs- maður, mun hans sárt saifcnað af eftirlifandi eiginfconu, ætt- ingjum og vinum. Veik von bærðist í brjóstum okkar uim að Þorsteimin fengi bata og öðlaðist fleiri tífdaga, en sláttumiaður- inn mikli er óvæginn og ein- ráður þegar stund hans er kom- in að bregða ljánum. — Eitt sinn slkai hver maður deyja. Þetta er óyggjandi sann- leikur sem engum er hulinn og liklega það eina sem við vitum með vissu um endalok liífs vors hér á jörð. En hvað er dauð- imm? Er hann endalok eða upp- haf nýs lífs? Við þessari brenn- andi spurnámgu fæst ekkert óyggjandi svar, þar virðast vís- indin standa á gati. Þeir einir telja sig hafa svarið sem trúa og treysta orðum Jesú Krists er hann mælti. — Ég lifi og þér miunuð lifa. í öruggri trú á sannleiksgildi þessara orða Krists fylgir kona hins látna horuum í bæn yfir hafið mikla. Þorsteinn Jafet Jónsson var fæddur á Reykjamesi í Árnes- hreppi, Strandasýslu, sonur Jóms Jörundssonar og Helgu Tómasdóttur konu hans. Jörumd- ur afi Þorsteins var sonur Gísla ríka frá Bæ og síðar á Hafnar- hólimi, kona Jörundar, ammia Þorstens var hin glæsilega gáfufcona Guðrún Jónodóttir prests Guðlaugssonar sýslu- manns. Helga móðir Þorsteins var af gáfu og dugnaðarfólki, enda var hún skörungur mikill og talin góð búíkona. Þau Helga og Jón á Reykjanesi voru talin merfc hjón og á margan hátt til fyrirmyndar í sveit sinni, greiðug og hjálpsöm við fátæka. Þorsteinn var þvi grein af góðum stofni, enda líkur um margt forfeðrum sLn.um og mæðrum. Hann var maður mik- illar gerðar, skapstór, duglegur, kjarkmikili og stefnufastur, í fáum orðum sagt, heilsteypt persóna, sem unn,i því einu er hann áleit réttlátt og satt. En enda þótt að sumum þætti Þor- seimn harður í hom að taka þegar svo bar undir, var hann maður sátbfús og með afbrigð- uim hjartgóður, vildi hvers manns vanda leysa sem til hans leituðu, enda munu þeir hafa orðið margir um það er lauk sem han-n hafði stutt við bakið á, ým.ist með penimgahjálp eða góðum ráðum. Er mér sagt af kunnugum að þar hafi hann fetað í fótspor foreldra sinna. Þorsteinn óist upp í foreldra- húsuim ásamt þrem systkinum Jómi, Tómasi og Maríu, var Þor- steinn þeinra yngstur. Snemma bar á þvi að Þorstein dreymdi stóra drauma og að bann vil'di sýna í verki að honum var lítt gefið um meðalmennskuma. Um tvítugsaldur réðst hann í að ka-upa mótorbát, sem hanm gerði út í noklkur ár við erfiðar að- stæður. Útgerðin gaf honum reynslu en reyndist smátæk á gróðann. Það mun svo hafa verið árið 1931 að Þorsteinn kvaddi heima- byggð s-ína og fluttist til Reykjavíkur og réðst á togara hjá Geir Thorsteinssyni frænda sínum og var hann við það starf í nofcfcur ár. Síðar keypti hann verzlun hér í borgimni og rak hana af dugnaði, en þetta voru erfið ár á seimni hluta fjórða áratugarims, kreppuárin sem við eldri mennirnir nefnum. Það leit því efcki út fyrir að draum- ar Þorsteins ætluðu að rætast, en hann var miaður með ódrep- andi kjark og var óragur við að tefla á tæpasta vaðið. Þegar mér sýndust öll sund lokuð sá Þorsteintn all'taf einhverja út- gönguleið. — Þá er bara að byrja á einhverju nýju, svaraði hann svartsýni minni og brosti. Og hann byrjaði á nýju verk- efni og sigraði. 1 dag hygg ég að vart verði svo gengið af kumnugum um götur í vesturborgiinmi að hann komi akki auga á hús, stór og smá, sem Þorsteinm hefur byggt eða látið byggja. Margar þess- ara stóru glæsilegu byggimga standa á lóðum, þar sem fyrir voru kofaræksni ellimóð og úr sér gengin. Þótt Þorsteinn byggði lang- samlega mest í vesturborgimni fór þvi víðs fjarri að hann ein- skorðaði sig við hama eina. Líta má fallegar byggingar í aust- borgimni er hanm byggði, svo og nokikur hús í Kópavogi. í þessu starfi var Þorsteinm kominm á rétta hillu og við þetta starf vann hanm af Mfi og sál. Um þessa sbarfsemi Þorsteins mætti skrifa heilia bók og hana ekki óroerkilega, enda mun Þorsteins lengi mLnnst í sambandi við þessa uppbyggimgu í vestur- borgimni. Verk Þorsteins bera honum órækan vott um fagran simekk og vandvirkni, enda vanm hann sér álits og trausts hjá ölluim þeim mörgu er við hann síkiptu. Árið 1946 kvomigaðist Þor- steinn Eiínú dóttur Jónatans og Sæunnar sem bjuggu að Skeggjastöðum i Miðfirði. Elín er hi.i mesta ágætiskona og mikil og smekkvís húsmóðir, enda bjó hún manni sínum fall- egt heimili strax á fyrstu bú- skaparárum þeirra hjónanna. Hún hefur alltaf reynzt manni síhtum traustur förunautur og verið honum stoð og stytta og gleðigjafi í blíðú og stríðú, enda var hjónabamd þeirra eins og bezt verður á kosið. Gott var að sækja þau hjón heim, enda orðlögð flyrir gestrisni og höfð- ingsskap. Ekki var Þorsbeinm iiangskólagenginn, en mikilll bóka roaður og lætur nú eftir sig mikið og verðmætt bóksafn. Eklki varð þeim lijónum barna auðið, en ungur piltur ber nafn Þorsteins og umg og falleg stúlika ber nafn Efinar og hafa þau hjónin haft mikið dá- læti á þeim og reynzt þeim sem beztu foreldrar enda bæði með aíbrigðum bamgóð, Með fátæklegum orðum þakka ég Þorsteind hvemig hann reyndist börnum oklkar Mariu sysitur sinnar og kveðja þau hann nú með þökik og sárum sölknuði, minmiingin um hamn góða frænda mun verða greypt í hugi þeirra um ókomin ár. Þrátt fyrir llöng og náin kymni var mér aldrei ljóst hvort Þor- steinn mágur minn var mikill trúmaður, enda laus við að flíka með tilfimmingar sínar eða siím einkamál. Það þykist ég þó mega fullyrða, að hann hafi vilj- að sína trú sína í verki og breyta eftir boði Krista um að — það sem þér vilijið að aðrir geri yður það Skuluð þér og þeim gjöra. Ég held að þeir sem til þekkja geti orðið sammála um að í þessari trú hiafi hanm verið heill og óskiptur. Veikindum símum og dauða- stríði txóik Þorsteinn eins og hetju sæmir, ekki eitt æðruorð, enda þót't honum væri fuUljóst að hverju stefndi. Meðan ég er að skrifa þessar fátæklegu línur setur að mér einsemd er mér verður það ljóst, að ég er að kveðja þenn- an trausta vin minn hinztu kveðju og mér verður á að spyrja út í tómið: Hvers vegna bann, sem enm var á góðum aldri, sterkbyggður og fram til síðustu mánaða fuliur af starfs- iöngun. Við þessari spurningu íæ ég vitanltega ekkert svar, en mér verður ljós hinn sári sökm- uður El'ínar er hún fýlgir ást- ríkum eigmmanni sínum til hinztu hvílu. Sjálfur er ég mátt- vana, en ég bið almáttugan Guð að styðja hama og styirkja, bið hann að leiða hana til æviloka í ljósi minminganna um góðan og traustan ástvin, sem vildi fá að balda í hönd hennar alla daga unz öfllu væri lokið. í erfiðu dauðastríði Þorsteins sýndi Eiín enn einu sinmi hver hún er og hvað húm var manni sínuim. Kæra Elín miín við hjónin sendum þér kærar og hugheilar samúðarfcveðjur. Ég veit að þú trúir því, að Þótt Mkaminn sé liðinn nár Mfir sálin eftir. í þeirri trúarvissu kveðjum við hinn kæra vin ofcíkar. Jakob Jónasson. ÞORSTEINN Jafet Jónssom, framkv.stj. andaðist í Landspít- alanum að morgni 11. þ.m. eftir stutta en þunga legu. Hann var fæddur á Reykjanesi á Strönd- um 18. júnií 1908, og hefði því orðið 65 ára á morgun er við kveðjumhann hinztu kveðju. Svo stutt var ævi þessa góða drengs, en að sama skapi athafnasöm. Á öll'um tímum í sögu, Mfi og starfi hefur hin íslenzka þjóð átt þvi láni að fagna að eiga starfsama, dugandi framfaramenn, er með duignaði sinum, hæf'Oeikum og óþrjótandi vimnu, hafa hafið sig úr fátækt og erfiðleikum, til þess að verða velmegandi forystu- menn í þjóðlifinu. Slíkir menn eru hornsteinar hvers þjóðfélags. Hvort heldur atorka þeirra kemur fram í bók- menntum, listum, vísindum eða viðskiptum eru þeir jafn nauð- synl'egir og kærkomnir til áfram haldandi þróunar vaxandi þjóð. Einn af þessum dugmiklu at- hafnamörmuim okkar samtiðar var Þorsteinn Jafet Jónsson, framkv.stj., er nú er horfinn af sjónarsviði okkar daglega lifs, tiltölulega ungur að árum. Um hann hefur ekki alltaf lei'kið þýð- ur vorblær áhyggjuleysisins, er hann fór ungur að heiman í atvinnuleit. Taka vafð hverja þá vinnu er að höndum bar, enda voru hér krepputlmar eins og flestir eldri menn muna. Þor- steinn Jónsson var sarnt ótrauð- ur í leit sinni og vann bæði á sjó og landi eftir því sem verkast vildi. Hann var heill í starfi, traustur og áreiðanletgur. Þessir eiginleikar skópu honum þanm rótfasta grundvöll, er átti síðan þátt í frama hans og velgengni, er hann sjálfur hóf sinn fram- kvæmdaferil í byggingamálum borgarinnar, en þau störf vanm hann um tuttugu ára ske'.ð með miklum myndarbrag. Þorsteinn Jónsson gat með ánægju litið yfir farinn veg -og séð hinn glæsilega áranigur verka sinna. Þau blasa við í ný- byggingum borgarinnar, talandi tákn um stórhug og dugnað þessa mæta manns. Hann hóf sig fram í fremstu raðir athafnaiífs- ins. Á slíkum athafna- og um- brotatímum eins og hér hafa verið, er gott að eiga trausta, hagsýna huigsjónamenn, er rasa ekki um ráð fram, en byggja með festu og öryggi grundvallar- stoðir heil'briigðs þjóðfélags. Þeim á þjóðin að þakka mikil og vel uinnin störf. Þeim á þjóðin að þakka þá árvekni, er nytsöm er sérhverju þjóðfélagi, er með drengskap og djörfung vill byggja upp slnn eigin hag. Nú seinni árin, er Þorsteinn fór með sin fjölbreyttu framkv. störf, er með ári hverju urðu æ erfiðari sökum verðbóigunnar í landinu og síhækkandi byggingarvísitölu ásamt versnandi fyrirgreiðslu á alian hátt, fannst honum sem von var, lítils metin öll sú barátta, er hann og aðrir höfðu staðið í, fyrir stórbættum húsakosti borg arinnar, borgurunum sjálfum til handa. Þorsteinn Jónsson var mjög hjálplegur öllum þeim, er til hans leituðu t.d. í húsnæðismál'um. Greidd: hann götu þeirra sem bezt hann mátti og var ekki ánægður fyrr en allt var komið í góða höfn. Þorsteinn kvæntist Elínu Jónatansdóttur frá Skeggjastöð- um í Miðf'rði. Var hjónaband þeirra með ágætum alla tið. Heimiii þeirra á Vesturgötu 42 ber því giöggt vitni, að þar hafa samhentar hendur unnið saman. Um leið og ég kveð Þorstein Jónsson h'nztu kveðju, vil ég þakka honum alia vináttu hans um mörg ár. Ég bið góðan Guð að styrkja konu hans og gefa henni þrek í þessari miklu song. Þorst. Halldórsson. 366 atvinnu- lausir NÝLEGA hafa borizt tölur frá Félagsmálaráðuneytinu um fjöida atvinnulausra, þann 31. maí, 1973. 1 kaupstöðum voru alls 280 atvinnuilausir og hafði fjöligað úr 171 frá 30. apríl. Flest ir voru atvinnulausir í Reykjavík eða 133 og hafðl fjöigað um 104 frá apríllokum. 1 kauptúnum með 1000 íbúa var aðeins 1 maður at vinnulaus og hafði atvinnuleys- ingjum fækkað um 9. Þessi einl atvinnuleysingi var í Stykkis- hólmi. 1 kauptúnum með færrl en 1000 íbúa voru atvinnulausiir 85 og hafði fækkað nokkuð. — Flestir voru atvinnulausir á Hofs ósi. Á öllu landinu voru þvi 366 atvinnulausir og hafði atvinnu- leysingjum fjölgað úr 290, eða um 76 manms. SKILTI A GRAFREITI OG KROSSA. Flosprent s.f. Nýlendugötu 14 sími 16480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.