Morgunblaðið - 17.06.1973, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.06.1973, Blaðsíða 32
l{ íf 1ESIÐ DflCIECII flUCLVSHICflR ^-»2248D SUNNUDAGUR 17. JUNÍ 1973 Skuttogarinn í Stálvik: 10 milljónum kr. ódýrari — en þeir norsku og japönsku HINN 1. júlí verður hinum nýja skuttogara Þormóðs ramma á Siglufirði, hleypt af stokkunum hjá Stálvák h.f. í Garðahreppi. Þessi fyrsti skuttogari, sem smið aður er innanlands verður mun ódýrari en þeir norsku og jap- önsku skuttogarar sem undan- farið hafa verið fluttir til lands- ins. Mun Stáivíkurtogarinn kosta um 147 milljónir kr. fullbúinn, en norsku skuttogaramir, sem und- anfarið hafa komið til Vestfjarða og eru systurskip Stálvikurtogar ans, kosta 155 milljónir kr. Jap- önsku skuttogararnir munu flest ir kosta um 158 millj. kr., er þeir koma til iandsins. Jón Sveinsson framkvæmda- stjóri Stálvikur sagði í viðtaii við Morgunblaðið i gaer, að það væri gleðilegt að vita að þessi íýrsti skuttogari, sem þeir smíð- uðu, yrði átta millj. kr. ódýrari en norsku skuttogararnir og ell- efu millljón kr. ódýrari en jap- önsku togaramir. Þetta þýðir að slkipið er 6% ódýrara en þau norsku og 7,5% en þau japönsku. „Þessi nýi slkuttogari er jafin stór og þeir norsiku og tækjaút- búnaður er sá sami,“ sagði Jón, og bætti við: „Frágangur á is- 'ienzkum skipum er almennt mun vaindaði-i en gerist á skipum sem smíðuð eru fyrir okkur Einar kominn heim EINAR Ágústsson, utanrikisráð- herra, var væntaniegur heim frá Kaupmannahöfn með flugvél frá Loftleiðum um W. 17 í gær. Hann hefur imdanfama daga setið íund utaniikisráðherra Atíants- hafsbandaiagstikjanna, sem haid inn var í Kaupmannahöfn. Eitrið fannst í sjónum við Sundahöfn RANNSÓKNARLÖGREGEAN fann hluta eitursins, sem stol ið var úr Háaleitisapóteki, í sjónum fyrir austan Sunda- höfn í fyrrinótt. Enn vantar nokkuð á að allt eitrið sé fundið, og hefur lögreglan ástæðu ti! að ætia að meira magn af eitri kunni að leynast í sjónum fyrir aust an Sundahöfnina. Þar á staðn ujn er fjaran mjög stórgrýtt og hvetur rannsóknarlögregl- an fólk til að fara varlega þar í fjörunni og ef það skyldi finna einhver tortryggileg glös, að hafa samband við rannsóknarlögregluna. Mennirnir fjórir, sem hand- teknir hafa verið vegna inn- brotsins i Háaieitisapótek hafa enn ekkert játað. erlendis, og ég tala nú ekki um spænsku sku ttogarana, því ég vil ekki móðga íslenzka iðnaðar- memn með að bera þá togara saman við fislkiskip smíðuð á Islandi, þau eru svo miklu vand- aðri. Svo er það oft að gera þarf viðamiíklar breytingar á skipum, smáðulðum eirleindi.s þeg- ar þau koma til landsins, og þvi fylgir oft mjög mikill kostnaður, þair fyrir utan bætist við veiði- tap og svo kostar það sitt, að þurfa að haía skráða áhöfn. Framhald á bis. 31 Islenzkum fréttamönnum tjáð að þeir verði að fa.ra út úr flugstöðvarbyggingunni. Brezhnev lenti ekki: Forseti og forsætisráð- herra biðu án áragurs íslenzkum fréttamönnum vísað út úr flugstöðinni skv. ósk frá Moskvu SOVÉZKU flugvélamar tvær, sem fluttu Leonid Brezhnev aðalritara sovézka kommúnista- flokksins og fylgdarlið hans til Washington, flugu yfir ísland, þar eð slæm veðurskilyrði voru á Keflavíkurflugveili, er vélarn- a.r komu þar yfir. Áætlaff hafði verið að flugvélamar lentu í Keflavík kL 10.30 og 11.30 og átti aðalritarinn og föruneyti hans að snæða hádegisverð með forseta ísiands og forsætis- ráðherra, sem komnir voru til Keflavíkurflugvallar. Flugvélamar flugu áfram til Gainder á Nýfundnalandi þar sem þær millilentu áður en haldið var til Washington, en þar var áætí.að að þær lentu um kl. 20.30 að íslenzkum tima. Þegar Morgunblaðið fór í prent- un höfðu íslenzkum yfirvöldum ekki borizt neinar skýringar né höfðu þau fengið skeyti frá Brezhnev. Um þær mundir sem flugvélamar voru yfir Kefla- víkurflugvelli var tveggja kíló- metra skyggnd, en sflrýjahæð að- eins um 300 fet og' mun sovézku flugmönnunum ekki hiafa fund- izt árennilegt að reyna lendingu. Gíifurlegar öryggisráðsitafanir voru á Keflavíikurflu gveiJ’i og var þar fjöldi ísilenzkra iögregiu- mannia, svo og sovézkir og banda ríisikir öryggiisverðir o.g þekktu Menzkir frétitamenn nokkra ör- yggiisverði, sem voru hér er Nix- on kom til fundar við Pompidou. Islenzkum fréttamönnum var tjáið á KefflavíkurflugveiM að ósk hefði komið frá Moskvu um að leyfa enigum frétta- mönnum að komast út að flugvéidnni eða yfirleitt náiægt þeiim stöðum, sem aðaðritarinn átti að fara um. Þegar áæti- aður komutími véiariinnar nálig- aðist var islenzku fréttamönn- uinmm visað út úr flugstöðvar- byggíngunnii af lögreg&umönnum og var þanniig um hnútana búiið með gæzlu úti að hvergi hefðd verið hægt að ná svo mikiið Sem mynd úr fjariægð a.f sovézka iiedðitoganium. Þess skal getið að islenzk yfir vöid reyndu að greiða götu frétta manna, en máttu siín ekki gegn þeim Sovétmönnum, sem á Kefia vikurflugvelli voru. Sagði Ólafur Jóhannessón forsætisráðherra við Framhald á bls. 31 Bandaríkin: Áhrif verðstöðvunar á fiskverð óljós ENN hefur ekki fengizt vitn- esk.ja nm það hvaða áhrif verð- stöðvunin i Bandarikjunum kann að hafa á fiskverð á markaði þar. Er nánari fregna þvi beðið með nokkurri eftirvæ.ntingu í aðal- stöðvum útflytjenda á frystum fiski hérlendis. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Eyjólfur Isfeld, for- stjóri Sölumiðstöðvar hraðírysti- húsanna að spurzt hefði verið fyrir um áhrif verðstöðvunarinn ar á fiskverðið en ekki tekizt að fá ljósar upplýsingar um það. Taldi Eyjólfur að í verðstöðvun- arlögunum hef. i ekki verið far- ið út í nákvæma skiligreininigu á því hvemig verðstöðvunin skyldi verka á einstaka vöruflokka, en það mundi vafalaust skýrast á næstunni. Eyjólfur taldi þó vist að verðstöðvunin nrundi hafa nei kvæð áhrif fyrir íslenzka fiskselj endur á Bandarikjamarkaði. Guðjón B. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri sjávarafurðadedld- ar SÍS kvaðst heldur ekki hafa fengið neinar fregndr af áhrií- um verðstöðvunarinnar á fisk- verðið. Hann kvaðst þó ekki sjá hvernig Bandaríkjamenn teldu sig hafa möguleika á þvi að haía áhrif á hráefnisverð á heims- markaði, þó að eðdilegt væri að þeár viidu hafa stöðugt veirðlag innanlands. Hamn kvaðst því ekki gera ráð fyrir því að verð- stöðvunin hefði mikil áhrif á fiskverðið. 17. júní hátíðarhöld í Reykjavík: GLATT Á HJALLA UM ALLA BORGINA Þjóðhátiðarhöldin í Keykjavík verða í dag með nokkuð öðru sniði en undanfarin ár. Verður skemmtunum dreift meir um borgina en verið hefur, og verða því síðdegishátíðarhöld á tveim- ur stöðum, á Lækjartorgi og í Árbæjarhverfi. Þá verða engar skemmtanir né dans í Miðbæn- um í kvöld, heldur verða þau atriði flutt út í hverfin. Fýrir hádegi verður Jýðveldis- ins þó minnzt með svipuðum hætti og áður. Dagskráin hefst með samhlrjómi kirkjuíklukikna, kluikkan 9.55, en kl. 10 leggur Gísli Halldórsson, forseti borgar- stjómar, blómsveig frá Reyíkvík- ingum á leiði Jón.s Sigurðssonar í gamla kirkjugarðinum og Lúðrasveit Verkalýðsins leikur „Sjá roðann á hnjúkunum háu“. Klukkan 10.30 leikur svo Lúðra- sveit verkaiýðsiins ættjarðariög á Austurvelli, en kl. 10.40 verður hátíðin formlega sett með ræðu formanns þjóðhátíðarnefndar, Markúsar Amar Antonssonar. Þá mun Karlakór Reykjavíkur synigja og forseti Islandis, dr. Kristján Eldjám, leggur blóm- sveig frá islenzku þjóðinni á minnisvarða Jóns Sigurðssonar á AusturveWi. Forsætisráðherra Ólafur Jóhannesson fiytur ávarp og þá verður ávarp fjali- konunnar flutt, sem að þessu sinni er eftir Matthías Jo- hannessen. Á milli ávarpa syngur Karlakór Reykjavikur. Atihöfninni á Austurvelli lýkur svo með leik Lúðrasveitar verkalýðsins. Kynnir á Austur- velti verður Pétur Pétursson. Kliukkan 11.15 hefst guðsþjón- usta í Dómkirkjunni. Dóm- prófastur, séra Óskar J. Þor- láksson, prédikar og þjónar fyrir altari, en Dómkórinn syngur við undirleik Ragnars Björnssonar. Framhaid á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.