Morgunblaðið - 17.06.1973, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNl 1973
Til eggja
í Eyjum
BÚSKAPUR bjarg'fugl.sins
gengur siínin vanagang Jyrátt
íyrir eldgos og- óáran þar af.
Svartf ugiinn kom fyrr ein
venjulega til bústaða sinna á
bjargsyllum og í kórum og
skútum otg sama er að segja
unr lundann. Menn höfðu á orði
að loindinn hefði íundið á sér
að hann þyrfti heiduir meiri
tima í að hreinsa út úr holun-
um en venjulega. Annairs verpti
svartfugiinn heildur seinna en
venjulega, en það gerði kuid
inn. Sama gerðizt fyrir 8 árum.
Úteyjakaliar stukiku um
A fuglasyUum i eggjatinslu.
Pélagar ræða málin.
borð þegar eggjatiminn var
kominn, öxluðu reipi og fötur
og héldu í suðureyjamar þar
sem ekki hefur failið ösku-
kom.
Sumir gerðu út frá úteyjun-
um og sóttu í aðrar eyjar, fýls
egig og svartf uglsegg voru soð
in á kvöldin. Afrakstur var
sendur til Heimaeyjar og þar
runnu eggin út að venju þrátt
íyrir fólksfæð, en margir sendu
vinum og ættingjum smakk til
Jands. Það er vinadegt og heim-
iiJisllegt að fá eggjasmakk úr
úteyjunum.
Nú er varptiiminn hjá iund-
anum og ekki lliður á lönigu
þar tii 'hann fer að mata pysj-
una, leggja út frá brúnum og
stimga sér í bOáan feld, koma
úr kaíinu með 5 siili í nefinu
og pysjan tekur á móti á hol-
unni.
Mannfðlkið á Eyjabygigð er
tvástrað um sinn, en koma tím
ar. Lundinn kemur ár eftir ár
i sömu holuna sína, trygigð það.
Eyjafólkið sjálft er ekki siður
féiagsáynt, það viJl aftur sinn
féíagsskap, sitt umhverfi á Eyj-
um. Eitt ár getur veirið lenigi
að lliða, en aftur næsta vor
taka Jundinn Og svartfugiinn
'heima, kannski Eyjafóikið geti
séð þá koma.
Texti: Árni
Ljósmyndir:
Sigurgeir
Lostæti kannað.
Svartfuglinn á bæli.
Soðin egg og steikt á nieðan sólskinið er sleikt.
Ilrottning hafsins, súlan.