Morgunblaðið - 02.10.1973, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1973.
& 22-0-22-
RAUDARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
STAKSTEINAR
Lúðvík
og Magnús
Þótt þeir Lúðvfk Jósepsson
og Magnús Kjartansson séu
einlægir bandamenn, þegar
þeir eru að þjarma að samráð-
herrum sinum, einkum fram-
sóknarráðherrunum, fer víðs
fjarri, að eining andans riki,
þegar þeir eiga I viðskiptum
hvor við annan. Sannleikurinn
er sá, að báðir vilja þeir vera
höfuð kommúnistaflokksins og
öfundast mjög hvor út I annan.
Svo langt gekk þetta raunar, að
þeir urðu að finna mein-
leysingja til að vera formaður
Alþýðubandalagsins, þvf að
hvorugur gat unnt hinum þess.
I deilum þeirra Magnúsar og
Lúðvíks er sá sfðarnefndi
frakkari, en hinn fyrrnefndi
lúmskari.
Magnús Kjartansson hafði
um það mörg fögur orð, er hann
varð iðnaðarráðherra, að hann
hygðist stuðla að þvf, að fslenzk
skipasmíði yrði stórefld, og
áherzla yrði á það lögð, að fiski-
skipafloti landsmanna yrði
endurnýjaður fyrst og fremst
með innlendri skipasmíði. En
Lúðvík var ekkert á þeim
buxunum að láta kollega sinn
slá sér upp á þvf máli, og þess
vegna beitti hann sér fyrir því,
að nýju skuttogararnir væru
allir, að einum undanskildum
smíðaðir erlendis.
Bar vel i veiði
Magnús Kjartansson hefur
lengi sætt færis til að hefna sfn
á Lúðvfk, og nú bar vel í veiði.
Lúðvfk var þúsund kílómetra f
burtu, Iengst suður í Afrfku, að
bjarga fjármálum heimsins, og
þá greip Magnús tækifærið til
að halda mikla ræðu á fundi
Landssambands iðnaðarmanna.
Og þar bar hann fram þá hug-
mynd, að verðjöfnunarsjóður
sjávarútvegsins yrði ekki ein-
göngu notaður til að draga úr
sveiflum f þeirri atvinnugrein,
heldur skyldi iðnaðurinn og
njóta góðs af fjármagni þessa
sjóðs. Auðvitað vissi hann
fyrirfram, að allir aðilar
sjávarútvegsins, sjómenn,
útgerðarmenn og fiskframleið-
endur, mundu snúast öndverðir
gegn þvf, að þessi sjóður, sem
þeir telja sfna eign, yrði
skertur f þágu annarra atvinnu-
greina. Honum var fullljóst, að
þetta mundi skapa Lúðvfk
Jósepssyni erfiðleika og vera f
algjörri andstöðu við vilja
hans. En samt sem áður — eða
öllu heldur einmitt þess vegna
— greip hann tækifærið, þegar
Lúðvfk var vfðs fjarri til að
koma þessari hugmynd á fram-
færi.
Auðvitað snerust allir aðilar
sjávarútvegsins öndverðir gegn
þessari hugmynd. En hins veg-
ar hefur Lúðvfk Jósepsson
ekkert tækifæri haft til að láta
frá sér heyra. Það getur hann
ekki fyrr en eftir nokkra daga.
En gaman verður að vita, hvað
hann segir þá
tel. 14444 • 255551
„„ 'ii,
BlLALEIGA car rentalI
AVtS
SIMI 24460
&
BILALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
CAK.IHNTU..
Hverfisgöto 181
86060
^SENDU^
HÓPFERDIR
Til leigu í lengri og
skemmri ferðir 8—50 far-
þega bílar.
KJARTAN
INGIMARSSON,
sími 86155 og 32716.
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodo
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SlMI 42600.
spurt og svarað Hringið f sfma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg-
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS unblaðsins.
ÞARFASTI ÞJÓNNINN
A ÞJOÐHATlÐ 1974
Þórdfs Jónsdóttir, Brekkugerði
12, spyr:
Verða ekki neinar hesta-
sýningar f sambandi við þjóð-
hátíð 1974? Hesturinn hefur
löngum verið þarfasti þjónn-
inn.
Markús Örn Antonsson, vara-
formaður þjóðhátíðarnefndar
1974 í Reykjavfk, svarar:
Meðal þess, sem er í undir-
búningi hjá þjóðhátíðarnefnd
Reykjavíkur 1974, er að ef na til
dýrasýningar, en ekki er endan-
lega ákveðið, með hverjum
hætti það yrði. Til dæmis hefur
verið talað um að halda
íslenzka húsdýrasýningu.
Jafnframt gerir nefndin ráð
fyrir, að hin ýmsu félagasamtök
standi fyrir einhvers konar
hátíðarhaldi þjóðhátíðarárið,
t.d. með sýningum. Því væri
ekki ósennilegt, að hesta-
mannafélögin efndu til ein-
hvers konar hátíðarhalds með
hestinn.
DÁNARBÆTUR sjömanna
Henry Kristjánsson, Sléttu-
hrauni 21. Hafnarfirði, spyr:
Um áramótin var sett reglu-
gerð eða lög um að sjómaður
sem færist væri tryggður fyrir
eina milljón króna. Er það rétt,
að þessir peningar eigi að fara
til barnanna og þá inn á bók,
sem þau mega ekki hreyfa fyrr
en 16 ára gömul? Fær eigin-
konan ekki nema smáupphæð
til að lifa af og sjá fyrir börnun-
um?
K. Guðmundur Guðmunds-
son, forstjóri Islenzkrar
endurtryggingar, svarar:
Ekkert ákvæði er um slíkt í
lögunum. Hins vegar eru þau
ónákvæmnislega orðuð og deila
má um, hvernig megi túlka þau
varðandi skiptingu bótanna.
Við vátryggjendur reynum að
koma fénu til skiptaráðenda
hverju sinni og látum þeim það
eftir að úrskurða um skiptingu
fjárins.
Hvað veiztu
Gilbert
O’SulIivan?
Spurningu þessari getur þú,
lesandi góður, reynt að svara,
því að fréttaritari Poppkorns
datt niður á skemmtilegan
spurningaþátt um hetjuna
sjálfa í brezku poppblaði.
Þetta er krossapróf; þ. e.
gefin eru þrjú möguleg svör við
hverri spurningu. Svörin eru
birt í aftasta dálki og einnig
stutt einkunnagjöf.
1. Þegar Gilbert var að reyna
að vekja á sér athygli, sendi
hann út um allt myndir af
sér í gervi þekkts leikara
frá gamalli tíð:
a. Groucho Marx
b. Charlie Chaplin
c. Stan Laurel (sá mjói í Gög
og Gol(lke).
2. Gordon Mills, umboðsmað-
ur Gilberts, er umboðsmað-
ur annarrar stórstjörnu:
a. Cliff Richard
b. Gary Glitter
c. Tom Jones
3. Gilbert á annað tómstunda-
áhugamál en að semj a Iög:
a. Garðrækt
b. Að horfa á sjónvarp
c. Lestur
4. Gilbert samdi lagið „Clair“
til dóttur:
a. Nágrannans
b. Plötusnúðs
c. Umboðsmanns sfns
5. Hver hefur haft mest tón-
listarleg áhrif á Gilbert?
a. Lennon og McCartney
b. Cole Porter
c. Cook & Greenway
6. Matarræði Gilberts snýst
einkum um:
a. Hunang
b. Steikur
c. Egg
7. Hvað telur Gilbert versta
skapgerðareinkenni sitt?
a. Umburðarleysi
b. Leti
c. Eigingirni
8. Hvers konar stúlku kýs
hann helzt að umgangast?
a. Stúlku með kfmnigáfu
b. Stúlku, sem er hlédræg og
feimin
c. Stúlku, sem er mjögvelgef-
in
9. Þótt Gilbert græði á tá og
fingri, takmarkar hann
vikueyðsluna við:
a. Tíu pund
b. 25 pund
c. 43 pund
10. Hvenær sólarhringsins
semur Gilbert lög sín?
a. Um tíuleytið á morgnana
b. I nokkra tíma frá fjögur á
daginn
c. A nóttunni (frá klukkan
eitt)
Svör:
1. Chaplin.
2. Tom Jones.
3. Sjónvarpsskoðun.
4. Dóttir umboðsmannsins.
5. Cole Porter.
6. Egg, egg og meiri egg.
7. Eigingirni — stundum.
8. Hlédrægogfeimin.
9. Tíu pund.
10. A nóttunni.
Einkunnir:
5 eða lægra: Ekkert sérstakt,
en kannski vart hægt að krefj-
ast meira af Islendingum.
6—8. Prýðileg frammistaða.
Þú veizt greinilega margt um
Gilbert.
9—10: Annaðhvort ert þú i
hópi hörðustu aðdáenda Gil-
berts — eða þú hefur svindlað
og kíkt á svörin!