Morgunblaðið - 02.10.1973, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1973.
GRfcKT / TME.TOWER WILL BE
DELIGHTED 70 LEARN THAT A
ITUDcNT PlLOT 15...I WONDER
HOW THIS RADIO WORKS?
I'M AFRAID
MR.BGLD CAN'T
HELP yOU/HEIDl
HE'S STILL IN
dreamland/ .
...I THINK I'M SUPPOSEDTÖ
5AY50METHINS SILLV tiKE
MAyDAy..MAyDAy'...3UT 4
MA^BE THEy'LL SETTLE . 1
FOR A FRANTIC SCREAM / 'V
Al/IIWlliats
Gloria Steinem
Ms
Ms heitir kvennablað eitt, sem
nýlega hóf göngu sína í Banda-
ríkjunum. Nafnið er þannig til
komið, að blandað er saman
tveimur titlum miss og mrs, eða
fröken og frú. Nafnið eitt segir
talsvert um stefnu blaðsins i
kvenréttindamálum.
Aðalritstjórar blaðsins eru
Gloria Steinem og Patricia
Carbine. Gloria hefur haft sig
mjög í frammi undanfarin ár I
kvenréttindabaráttunni í Banda-
rikjunum, og reyndar víða um
heim. Patricia var áður ritstjóri
McCall, sem er eitt víðlesnasta
kvennablað í Bandaríkjunum, en
efni þess hefur átt að vera við
hæfi hinnar venjulegu amerísku
konu.
r :
Fi’Av
Patricia Carbine
Efni Ms er frábrugðið efni
hinna hefðbundnu kvennablaða.
Það er ekki tízkublað, i því eru
engar mataruppskriftir, engir
megrunarkúrar eða fegrunarráð-
leggingar. Þegar minnzt er á
snyrtivörur og fegrunarlyf í Ms er
það helzt til að vara konur víð
skaðsemi þeirra.
Ms f jallar aðallega um hlutverk
konunnar, launajafnrétti kynj-
anna, frjálsar fóstureyðingar og
annað, sem ætla má, að kvenrétt-
indakonur nútímans hafi helzt
áhuga á. Lesendum fer stöðugt
f jölgandi, að sögn blaðsins, og eru
nú um hálf milljón.
Þessi mynd var tekin í aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna s.l.
mánudag af Triciu Cox, dóttur
Nixons forseta, og hinum nýja
utanríkisráðherra Bandarikj-
anna, Henry Kissinger.
Sama dag flutti Kissinger jóm-
frúræðu sína á Allsherjarþingi
S.Þ. Meðal annarra mála, er
Kissinger drap á við þetta tæki-
færi var, að Bandaríkin vildu
ekki hafa áhrif á innanríkismál
annarra þjóða.
*
HÆTTA Á NÆSTA LEITI — Eftir John Saunders og Alan McWilliams
Við erum að nálgast flugvöllinn mamma.
Hvernig er Arch? Ég er hrædd um að hann
geti ekki hjálpað þér, hann er enn I drauma-
landi. (2 mynd) Það er ffnt, turninn verður
alveg himinlifandi yfir að vita að flugnemi ..
. skyldi þessi talstöð virka? (3 mynd) Ég
held að ég eigi að segja eitthvað kjánalegt
eins og Mayday, Mayday, en ég er að velta því
fyrir mér hvort þeir myndu láta sér nægja
æðisgengið neyðaróp. HA?.
WE'RE GETTINS
CLOSETO THE AIRPORT,
MOTHER...HCWS
ARCH ?
fclk 1 ,>*!V \(*%
fréttum MJ L J
Mick og Bianca Jagger.
Stundum er sagt, að fólk sé ann-
að tveggja, morgunhanar eða
nátthrafnar. Morgunhanarnir
fara snemma að sofa og fara á
fætur fyrir allar aldir, en nátt-
hrafnarnir drolla fram eftir allri
nóttu og gengur illa að komast til
meðvitundar á morgnana.
Morgunhanarnir tala oft um
nátthrafna með fyrirlitningu, og
finnst háttalag þeirra bera vott
um slóðaskap og leti. En innst
inni eru þeir bara öfundsjúkir,
vegna þess að þá grunar, að nátt-
hrafnarnir lifi meira spennandi
lífi en þeir sjálfir.
Ekkert bendir til þess, að það sé
hollara að vera morgunhani sé
þess gætt að hafa reglu á svefn-
tímanum, hvort sem betra þykir
að fara snemma á fætur og
snemma að sofa, eða öfugt
Annars þarf fólk auðvitað að
sofa misjafnlega mikið. Rudolf
Nurejev, balletdansarinn frægi,
ku yfirleitt ekki fara að sofa fyrr
en um fjögurleytið á morgnana,
en fer samt á fætur kl 10 fyrir
hádegi. Frank Sinatra fer seint að
sofa og seint á fætur, Duke
Ellington liður beinlínis illa i
dagsbirtu og Mick Jagger og
Bianca kona hans eru úti að
flækjast allar nætur og sofa svo á
daginn.
Af þessu má sjá, að vel er hægt
að lifa góðu lífi þótt það gangi
ekki vel að komast I rúmið á
kvöldin og úr þvi á morgnana.
Katherine Hepburn, kvik-
myndaleikkona, nú langt komin
yfir sextugt, hefur góða kímni-
gáfu og heldur því fram að gott
skap sé nauðsynlegt þegar fólk
hittist. Það var hennar hugmynd
að láta taka mynd af sér meðal
hilluskrauts sem er í tenglsum við
kvikmyndina, sem hún leikur í
um þessar mundir — Delicate
Balance — eða Ótrygg er ögur-
stundin eftir Edward Albee.
A myndinni eru, talið frá vinstri: Zsa Zsa, Magde, Eva og Frank Jameson, en hann er að
sjálfsögðu auðugur kaupsýslumaður.
Þær gömlu góðu Gaborsystur
eru ekki aldeilis af baki dottnar.
Þessi mynd er frá brúðkaupi Evu
Gabor og Franks nokkurs
Jamesonar, sem haldið var í
Claremont í
september s.l.
Kaliforníu 21.
Systurnar eru af ungversku
bergi brotnar og gerðu mikla
lukku um allar trissur hér i eina
tíð. Þær eru allar marggiftar,
þannig að ekki er brullaup þetta
neinn einstæður atburður í fjöl-
skyldunni.
Jack Hawkins, leikarinn frægi,
sem lézt í júlímánuði s.I. af
krabbameini í hálsi, sextíu og
tveggja ára að aldri, lét ekki eftir
sig annað af jarðneskum verð-
mætum en hús sitt í South
Kensington-hverfinu í
Lundúnum. Nýlega sagði ekkja
hans, Doreen Hawkins, að sjálf-
sagt hefðu flestir búizt við því, að
Jack léti eftir sig ógrynni fjár,
þar sem hann hefði átt slíum vin-
sældum að fagna um ævina og
haft góðar tekjur af leik sínum.
Sú hefði þó ekki orðið raunin, þar
sem skattar brezkra leikara væru
gífurlega háir, eða allt að 2/3 af
tekjum þeirra.