Morgunblaðið - 02.10.1973, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1973.
31
jÞltlÍTTAFREITIR MOItCUlLAOSIi
Leeds heldur sínu stríki
Orslitin í ensku 1. deildinni
urðu nokkuð á aðra lund en við
hafði verið búizt og hætt er við, að
jafnvel hinir getspökustu f get-
raununum verði með fáa rétta að
þessu sinni. Leeds heldur enn
öruggri forystu sinni á toppi
deildarinnar og á laugardaginn
voru það leikmenn Norwich sem
máttu þola tap gegn Leeds. Leeds
er nú eina liðið í 1. deildinni sem
ekki hefur tapað leik í deilda-
keppninni, þvf Leicester, sem
einnig var án taps tapaði sinum
fyrsta leik á móti Coventry.
tlrslit f leikjum helgarinnar
urðu sem hér segir:
Birmingham — Ipswich 0—3
Burnley — Manch. City 3—0
Chelsea Wolves 2—2
Everton —Arsenal 1—0
Leicester — Coventry 0—2
Manch. United — Liverpool 0—0
Newcastle—QPR 2—3
Nowich—Leeds 0—1
SoTithamton — Sheffield Utd.
3—0
Tottenham — Derby 1—0
Stoke — West Ham 2—0
Það var Johny Giles sem kom
Leeds af stað í leiknum á móti
Norwich strax á 12. mínútu, og
áttu áhorfendur von á fleiri mörk-
um í kjölfarið. Svo fór þó ekki,
mark Giles varð eina mark leiks-
ins og mátti Leeds þakka fyrir
bæði stigin.
Á laugardaginn kom að því, að
Leicester tapaði sínum fyrsta leik
á keppnistímabilinu, það var á
heimavelli á móti Coventry. Leik-
urinn endaði 2—0 og skoruðu
þeir Brian Alderson og nýliðinn
Les Cartwright mörkin. Coventry
er nú i öðru sæti deildarinnar
með 14 stig, þremur stigum
minna en Leeds.
Sá leikur, sem dró að sér flesta
áhorfendur á laugardaginn var
leikur Manchester United og
Liverpool, en alls fylgdust 54 þús-
und áhorfendur með leiknum.
Viðureign liðanna varð þó ekkí
eins skemmtileg og við hefði mátt
búast, ekkert mark var skorað,
hins vegar gerði hellirigningu
meðan leikurinn stóð yfir svo
áhorfendur voru gegnkaldir,
blautir og leiðir er þeir yfirgáfu
leikvanginn.
Burnley er nú í þriðja sæti 1.
deildar og á laugardaginn vann
liðið sannfærandi sigur gegn
Manchester City, 3—0. Paul
Fletcher átti góðan dag með
Burnley, skoraði tvö mörk og átti
þáttíþvíþriðja, sem Dobson skor-
aði.
Fyrstu mínútur leiks QPR og
Newcastle voru afdrifaríkar fyrir
Newcastle, en þá tókst QPR að
skora tvivegis, fyrst Dave Thomas
og síðan Gerry Francis. Leið svo
og beið og mörkin virtust ekki
ætla að verðafleir, meira að segja
landsliðskandidatinn Malcolm
MacDonald misnotaði vítaspyrnu
fyrir Newcastle. En er 10 mínútur
Enska
knatt-
spyrnan
voru til loka skoraði Mick Leach
þriðja mark QPR og sigur liðsins
var gulltryggður. Það kom ekki í
veg fyrir sigur QPR þó að John
Tudor skoraði tvivegis fyrir New-
castle sfðustu mínútur leiksins.
I leik Úlfanna og Chelsea var
fyrri hálfleikurinn án marka, en á
50. og 58. minútu skoraði skozki
landsliðsmaðurinn Jim
MacCalliog góð mörk fyrir Úlf-
anna og breytti stöðunni skyndi-
lega í 2—0. Þar með var leikurinn
þó ekki á enda því Bill Garner og
Peter Osgood áttu eftir að skora
fyrir Chelseaog jafna leikinn.
Tottenham sigraði i fyrsta
skipti á heimavelli á þessu
keppnistímabili á laugardaginn
og sá sigur vannst á kostnað
Derby. Ralph Coates skoraði
mark „Sporanna“ á 26. mínútu
leiksins.
Everton sigraði Arsenal á laug-
ardaginn með einu marki gegn
engu og var markið skorað af bak-
verðinum John McLaughlin, sem
ekki hafði áður skorað mark í
deildakeppninni — kærkomið
mark það.
Eftir að Bobby Stokes hafði
skorað fyrir Southampton á 27.
mínútu leiksins á móti Sheffield
United var ekki spurning um
hvort liðið sigraði, heldur hve
stór sigur Southampton yrði. Gil-
christ og Mike Channon skoruðu
tvö mörk í viðbót og endaði leik-
urinn því 3—0. Mark Channons
var 100. markið hans fyrir „Dýr-
lingana."
Botnliðin West Ham og
Birmingham töpuðu bæði á
laugardaginn, West Ham 0—2
fyrir Stoke og Birmingham 0—3
fyrir Ipswich. Mörk Stoke skor-
uðu Goodwin og Hurst, en mörk
Ipswich þeir Lambert, HaThilton
og Harper, öll í siðari hálfleikn-
um.
I annarri deild urðu úrslit með-
al annars þau að Notts County
vann Aston Villa 2—0 og
Sheffield Wednesday burstaði
Crystal Palace 4—0.
I Skotlandi gerðust þau undur,
að Rangers tapaði á heimavelli
fyrir Hearts, 0—3 urðu úrslitin
þar. Celtic mátti einnig þola tap,
1—2 á móti St. Johnstone.
Hibernian vann hins vegar góðan
sigur, 4—2 gegn Ayr United, en
annað kvöld fáum við að sjá Hibs
á Laugardalsvellinum.
Arsþing KKI —
Hólmsteinn
hættir
Akveðið hefur verið að Ársþing
Körfuknattleikssambandsins
verði haldið í lok október. Núver-
andi formaður KKl, Hómsteinn
Sigurðsson, hefur lýst þvi yfir, að
hann gefi ekki kost á sér til end-
urkjörs.
Ármann vann KR
Keppni meistaraflokks kvenna
í Reykjavíkurmótinu í hand-
knattleik hófst á laugardaginn og
fór þá fram einn leikur. Armann
vann með 11 mörkum gegn 8, i
hálfleik var staðan 7:3.
ÍBK — Hibernian:
50. Evrópuleikur Skotanna
Islandsmeistarar IBK og skozka
liðið Hibernian leika á laugar-
dalsvellinum annað kvöld og er
leikurinn seinni viðureign lið-
anna f UEFA-keppninni. Fyrri
leikurinn fór fram í Edinborg 19.
september og unnu Skotarnir þá
með tveimur mörkum gegn engu.
Ætla verður að Keflavfkurliðið
eígi talsverða möguleika f leikn-
um annað kvöld og geti jafnvel
komizt áfram í keppninni. For-
ráðamenn skozka liðsins voru
greinilega á þessari skoðun er
þeir buðu Keflvfkingum háa fjár-
upphæð ef þeir vildu leika báða
leikina ytra. Því boði höfnuðu
þeir iBK-menn þó og treystu f
staðinn á íslenzka áhorfendur,
sem f seinni tíð virðast þó tæpast
traustsins verðir, samanber, að
aðeins sáu 2700 manns leik IBV
og Borussia Mönchengladbach,
en þó er Borussia eitt sterkasta
félagslið í Evrópu.
Hibernian er eitt af elztu knatt-
spynufélögum í Skotlandi og eftir
tvö ár á félagið aldarafmæli. Hibs
hefur átt velgengni að fagna und-
anfarin ár, og síðastliðin niu ár
hefur liðið verið meðal bátttak-
enda í hinum ýmsu Evrópukeppn-
um. Þar hefur liðinu yfirleitt
gengið vel og í fyrra sigraði það t.
d. hið þekkta lið Sporting Lisbon
með sjö mörkum gegn einu í
Evrópukeppni bikarmeistara.
Hibernian hafa orðið skozkir
meistarar fjórum sinnum og jafn
oft hefur liðið lent í öðru sæti.
Skozka bikarinn hafa Hibs unnið
tvívegis og einu sinni skozka
deildabikarinn. Byrjun keppnis-
tímabilsins að þessu sinni er ekki
eins góð og oft áður og liðið hefur
jafnvel tapað fyrir lakari liðunum
í deildinni. Hins vegar gekk
Hibernian mjög vel áður en
deildakeppnin byrjaði og sigraði
þá bæði Celtic og Rangers — þá
tvo stóru í Skotlandi.
Hibs er talið eitt skemmtileg-
asta lið Skotlands og skorar mikið
af mörkum. Leikurinn við IBK
annað kvöld verður fimmtugasti
leikur Hibs í Evrópukeppni og
það er eftirtektarvert, að fá lið
hafa náð betri árangri á heima-
velli í Evrópukeppni en einmitt
Hibernian. Af 24 heimaleikjum
félagsins hefur það unnið 17 og
gert 4 jafntefli.
Frægastur leikmanna Hibern-
ian er sennilega Alan Gordon, en
hann var kosinn leikmaður ársins
í Skotlandi siðasta keppnistíma-
bil. Gordon skorar mikið af mörk-
um og hefur verið valinn í heims-
lið. Erich Schadler og John Black:
ley voru báðir í skozka landsliðs-
hópnum, sem tryggði Skotlandi
rétt til úrslitakeppni HM í knatt-
spyrnu í fyrsta sinn í 16 ár.
Fleiri fræga kappa mætti nefna
úr röðum leikmanna Hiberian, en
það verður ekki gert hér, fólki
hins vegar bent á að Hiberian
mætir með sitt sterkasta lið á
Laugardalsvellinum á morgun og
hefst leikur IBK og Hibs klukkan
17.15. Forsala er þegar hafin í
Keflavík í verzluninni Sportvík
og í Reykjavík hefst hún í dag.
LOGFRÆDIWÓMSTA -
FASTEIGMSALA
Skrifstofan verður lokuð vegna sumarleyfa til 1 5. okt. n.k.
STEFAN HIRST, hdl.
Borgartúni 29. Sími 22320.
Hafskip
Skip vor munu lesta er-
lendis á næstunni sem hér
segir:
HAMBORG
,,Selá" 5. október ***
„Rangá" 17. —
„Selá" 26. — ***
AIMTWERPEN
„Selá" 8. október ***
„Rangá" 1 5. —
„Selá" 29. — ...
FREDRIKSTAD
„Langá" 10. október
„Langá" 24 —
GAUTABORG
„Langá" 9. október
„Langá" 23. —
KAUPMANNAHÖFN
„Langá" 8. október
„Laxá" 8. — *
„Langá" 22. —
GDYNIA/GDANSK
„Laxá" 10. október **
Viðkoma á 3—4 vikna fresti.
GOOLE v/Humber
„Laxá" 25. október.
Viðkoma á 3 — 4 vikna fresti.
Skipin losa öll í Reykjavík.
Aðrar losunarhafnir:
*' Akureyri og Húsavík.
*** ísafj., Akureyri og Húsa-
vík.
Háð breytingum án fyrirvara.
Geymið auglýsinguna.
HAFSKIP H.F.
mafnarhúsinu reykjavik
SIMNEFNI: HAFSKIP SIMI 21160
VANDERVELL
Vélalegur
BENSÍNVÉLAR
Austin
Bedford
Vauxhall
Volvo
Volga
Moskvitch
Ford Cortina
Ford Zephyr
Ford Transit
Ford Taunus12M,17M, 20M
Renault, flestar gerðir.
Rover
Singer
Hillman
Simca
Skoda, flestar gerðir
Willys
Dodge
Chevrolet
DIESELVÉLAR
Austin Gipsy
Bedford 4—6 cyl.
Leyland 400, 600, 680
Land Rover
Volvo
Perkins 3, 4, 6 cyl.
Trader 4, 6 cyl.
Ford D 800 K. 300
Benz, flestar gerðir
Scania Vabis
Þ.Jónsson&Co
Skeifan
17 —
Simi84515.
^Falleqt útlit
í eitt /kipti fyrir öll
ESSEM þakál
ESSEM Lakkpanel
veggklæðning úr áli.
Veðrast ekki, ryðgar ekki,
traust, hagkvæmt
og auðvelt i uppsetningu.
Fáanlegt í tízkulitum.
Aðalumboð EVRÖPUVIÐSKIPTI H.F.
SOLUSTAÐUR:
VERZLANASAMBANDIÐ h.f.
SKIPHOLT 37 - SÍMI 3856D