Morgunblaðið - 07.11.1973, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1973
13
Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri:
Þjónustu safna
við blinda og ör-
yrkja þarf að bæta
Á FUNDI borgarstjónar f
fyrri viku lagði Birgir
Isleifur Gunnarsson borgarstjóri
fram tiilögu um merkar nýjungar
í starfi Borgarbókasafnsins. Ekki
reyndist unnt að afgreiða þessa
tillögu borgarstjórans, vegna þess
hversu mörg önnur mál lágu fyrir
fundinum, en honum var frestað
nokkru eftir miðnætti. En rétt
þykir þó að kynna borgarbúum
þessa tillögu borgarstjórans, sem
væntanlega verður afgreidd á
næsta borgarstjórnarfundi og þá
nánar greint frá henni f blaðinu.
Tillaga borgarstjórans er svo-
hljóðandi:
Borgarstjórn Reykjavfkur sam-
þykkir, að Borgarbókasafn
Reykjavikur skuli taka upp í
ríkari mæli en nú er skipulagða
bókasafnsþjónustu fyrir aidrað
fólk, öryrkja og blinda svo og aðra
þá, sem af heilsufarsástæðum
eiga þess ekki kost að heimsækja
safnið.
Skal þjónusta þessi m.a. fólgin f
eftirfarandi:
Bókasafnsþjónustu verði komið
upp í þeim húsum og stofnunum,
þar sem öryrkjar og gamalt fólk
búa, t.d. húsum Öiyrkjabanda-
lagsins við Hátún og elliheimilum
borgarinnar.
Skipulagðri þjónustu verði
komið á fót við aldraða, öryrkja
og blinda, sem búaí heimahúsum,
og verði það fólk sótt heim með
bækur eftir nánari reglum, sem
Borgarbókasafnið setur.
Komið verði upp auknu segul-
bandssafni til afnota fyrir sjón-
dapra og blinda og blindraheimil-
in sótt heim regluiega.
I greinargerð með tillögu sinni
drepur borgarstjóri á, hversu
mikið réttlætismál það hlýtur að
vera að gefa fólki, sem sökum elli
eða örorku getur ekki notfært sér
bókasöfnin sjálf, kost á því að fá
bækur að láni. Og sama máli
gegni um þá sem blindir eru;nauð
synlegt sé að koma upp vönd-
uðum segulbandssöfnum fyrir þá
Ekki þarf mikill kostnaður að
fylgja þessu, segir borgarstjóri,
eða aðeins u.þ.b. ein og hálf
milljón króna samkvæmt áætlun
borgarbókavarðar.
Frá fundi f borgarstjórn Reykjavfkur: A myndinni sjást Baldvin Tryggvason, Sigurlaug Bjarnadóttir,
Birgir Isl. Gunnarsson, Albert Guðmundsson, Gfsli Halldórsson, forseti borgarstjórnar, og Guðmundur G.
Þórarinsson.
Ólafur B. Thors borgarfulltrúi:
Borgarbúum verði
kynnt heimslistin
Á FUNDI borgarstjórnar Reykja-
víkur sfðastliðinn fimmtudag var
samþykkt tillaga frá Olafi B.
Thors (S) um listaverk f eigu
borgarinnar. Þar segir m.a., að
miðstöð listaverka borgarinnar
skuli vera f Kjarvalsstöðum, og
þar skuli myndir í eigu borgar-
innar jafnan vera til sýnis. Ein-
stakar borgarstofnanir skulu og
Baldvin Tryggvason borgarfulltrúi:
Valdboð í skólastarfi
ekki heillavænlegt
A FUNDI borgarstjórnar í fyrri
viku var vfsað til fræðsluráðs til-
lögu öddu Báru Sigfúsdóttur (K)
um, að borgarstjórn skyldi
ákveða, að við skóla borgarinnar
skyldu starfa samstarfsnefndir
kennara, foreldraog nemenda.
Baldvin Tryggvason (S) kvaðst
vera sammála þvf, að samstarfs-
nefndir væru nauðsynlegar, en
þær ætti ekki að stofna með vald-
boði, heldur ætti frumkvæðið að
stofnun þeirra að koma frá þeim,
sem hagsmunaættu aðgæta.
Adda Bára Sigfúsdóttir (K): t
tillögu þeirri, sem ég flyt hér um
að stofna samstarfsnefndir f skól-
um borgarinnar, er stungið upp á
tveim verkefnum, sem þær gætu
sinnt, auk almennra starfa í því
skyni að auka samstarf skóla og
heimila. 1 fyrsta lagi gætu nefnd-
ir þessar unnið að því, að koma á
skólamáltfðum og samfelldni í
skóladvöl bama og unglinga. Nú-
verandi ástand í matarvenjum
skólabarna er óviðunandi. Eli í
ljós hefur komið við könnun, að
aðeins hluti barnanna fær nokkuð
að borða á morgnana, og mörg
þeirra hafa ekkert nesti með sér f
skólann, og stundum er nestið að-
eins gosdrykkjaflaska og
súkkulaðikex. Því hefur verið
borið við, að kostnaður við skóla-
máltíðir yrði óhæfilega mikill.
Þetta tel ég, að sé rangt að miklu
leyti. Víða er aðstaðafyrir hendi f
skólum, og þyrfti þá ekki að
greiða annað en vinnulaun, ef
máltíðir yrðu t.d. seldar á kostn-
aðarverði. Og hefur skólastjóri
Vogaskólans nú farið fram á að fá
að koma upp slíkri þjónustu í
sínum skóla.
Annað verkefni þessara nefnda
gæti verið að sporna gegn reyk-
ingum skólanema, neyzlu áfengis
og annarra fíkniefna.
En þessi mál eru nú komin á
geigvænlegt stig í borginni, og
snúast þarf til varnar af miklum
krafti.
Baldvin Tryggvason (S):
Skýrsla Benedikts Gunnarssonar
um samfelldni í skóladvöl hefur
leitt i ljós, við hvern vanda er
þarna að eiga. A grundvelli þess-
arar skýrslu er síðan hægt að
kanna færar leiðir og hvað þær
munu kosta. En okkur ber vitan-
lega skylda til þess að gæta allrar
hagsýni við meðferð á fé borgar-
anna.
Ég get vel tekið undir orð öddu
Báru um óheilbrigðar matarvenj-
ur fjölmargra skólabama. Um til-
raun þá, er Vogaskóli hefur óskað
að gera, get ég greint frá því, að
hún mun hefjast innan skamms.
Hins vegar er ég ósammála
borgarfulltrúanum um það, að
borgin eigi að hafa forgöngu um
stofnun samstarfsnefnda í skól-
um. Slfkt frumkvæði á að koma
frá foreldrum og kennurum, en
fyrir þvf var einmitt gert ráð i
hinu upphaflega grunnskóla-
frumvarpi, enda þótt nú sé búið
að fella úr þvf ákvæðin um sam-
starfsnefndir, og er það raunartil
lítils sóma. En samstarfsnefndir
foreldra, nemenda og kennara
eru vissulega nauðsynlegar,
ágreiningur er aðeins um,
hvernig að stofnun þeirra skuli
staðið. Ég leyfi mér því að leggja
til, að tillögu öddu Báru verði
vísað til f ræðsluráðs.
Sigurlaug Bjamadóttir (S):
Mér þykir sem samstarfsnefndir
þær, sem Adda Bára gerir hér
tillögur um, muni verða nokkuð
þungar í vöfum. Frumkvæðið i
þessum máium á að komaf rá fólk-
inu í skólunum og foreldrum. Það
sýna vel þau foreldrafélög, sem
þegar eru starfandi. Hvað snertir
matarsölu eða -gjafir i skólum og
hvernig börn eru búin að heiman
frá sér með nesti, þá er ég þeirrar
skoðunar, að því hlutverki eigi
heimilin fyrst og fremst að sinna.
En auðvitað er sjáfsagt að kanna
þessi mál til hlitar. Hvað varðar
aðgerðir gegn reykingum og vín-
neyzlu geta vísast allir verið sam-
mála, en mig langartil að benda á
athyglisverða starfsemi á vegum
læknanema fyrir 1—2 árum, en
þá fóru læknanemar út í skólana
og ræddu við nemendur um
skaðsemi tóbaksins. En bæoi í
þessu ef ni og enn frekar varðandi
áfengið þá verður almenningsálit-
ið jafnan sterkast, og í dag er það
bæði slappt og spillt f þessum
sökum.
Gerður Steinþórsdóttir (F)
kvaðst vilja stefna að einsetningu
i skóla borgarinnar og stórauknu
fyrirbyggjandi starfi í áfengis- og
fíkniefnamálum.
Tillögu öddu Báru Sigfúsdóttur
var stðan vfsað til fræðsluráðs
með 15 samhljóða atkvæðum.
geta keypt listaverk til að hafa f
húsakynnum, sem almenningur á
aðgang að. Nýttar verði til fulls
heimildir til listskreytinga f
skólum. Og kann.tð verði sérstak-
lega, hvort ástæða sé til þess, að
borgin komi sér upp safni eftir-
mynda af frægum listaverkum.
Sigurjón Pétursson (K): Eg
flyt hér tillögu um, að þeim mikla
fjölda listaverka, sem borgin á,
verði komið þannig fyrir, að al-
menningur geti fengið notið
þeirra. Vitað er, að til er mikið af
verkum frægra höfunda hjá borg-
inni, en ekki virðast vera fyrir
hendi upplýsingar um fjölda
þeirra eða verustaði.
Þessi verk á ekki að loka inni á
skrifstofum embættismanna eða í
fundarherbergjum, heldur á að
dreifa þeim t.d. til skóla, sjúkra-
húsa og bókasafna eða á aðra þá
staði, sem aðgengilegir eru al-
menningi.
Óiafur B. Thors (S): 1 reglu-
gerð fyrir Kjarvalsstaði er gert
ráð fyrir því, að þeir verði m.a.
notaðir til þess að kynna almenn-
ingi sérstaklega þau listaverk,
sem eru í eigu borgarinnar. Og er
þetta starf þegar hafið. Hinn 22.
október veitti borgarráð svo heim-
ild til þess að halda þar á næsta
ári yfirlitssýningu á listaverkum i
eigu borgarinnar. Þá er og fyrir-
hugað að hafa jafnan hangandi á
göngum hússins myndir úr safni
borgarinnar. Með þessu er ætlun-
in að gera listaverk borgarinnar
aðgengilegri fyrir almenning auk
þeirra verka, sem fólk á nú þegar
kost á að kynna sér í stofnunum
borgarinnar.
Þetta, sem að framan hefur
verið sagt, á einkum við um
myndlist.
Höggmyndir borgarinnar eru
flestar utan dyra, en nokkrum er
þó komið fyrir t.d. í anddyri
Heilsuverndarstöðvarinnar, Borg-
arspítalans, Slökkvistöðvarinnar,
Höfða og á Kjarvalsstöðum. Að
Ólafur B. Thors
sjálfsögðu er rétt að stefna að þvf,
að stofnanir borgarinnar eins og
skólar, sjúkrahús, bókasöfn, skrif-
stofur og vinnustofur hafi mynd-
verk til að prýða húsakynni sín.
Ég er hins vegar ekki sannfærður
um, að rétt sé að dreifa borgar-
safninu á slíkar stofnanir.
I fyrsta lagi á almenningur þess
ekki kost, nema að mjög takmörk-
uðu leyti, að sjá myndir t.d. í
skólum og spítölum, skrifstofum
og vinnustofum. Og í bókasöfnum
er varla nokkur aðstaða til að
setja upp myndir, a.m.k. eins og
nú er ástatt. I öðru lagi er erfitt
að hafa stjórn á og eftirlit með
safni, sem dreift er víðs vegar, og
þar að auki er myndaeign borgar-
innar ekki svo mikil, að hún henti
til mikillar dreifingar.
Af þessum sökum vil ég leggja
fram breytingartillögu við tillögu
Sigurjóns Péturssonar.
Tillaga mfn gerir ráð fyrir því,
að eftirfarandi verði gert til þess
að auðvelda almenningi að njóta
Framhald á bls. 21.
Fær BÚR fisk í vetur?
A SlÐASTA borgarstjórnarfundi
beindi Björgvin Guðmundsson
(A) þeirri spurningu til Birgis
Isleifs Gunnarssonar borgar-
stjóra, hvaða ráðstafanir hefðu
verið gerðar til þess að tryggja
fisk-iðjuveri BÚR hráefni f
haust og vetur. Jafnframt var
spurt að þvf, hvort Atvinnumála-
nefnd Reykjavíkur hefði verið
lögð niður.
Birgir Isleifur Gunnarsson
borgarstjóri:
Til þess að tryggja BUR hráefni
í vetur munu nokkrir bátar verða
í föstum viðskiptum við fyrir-
tækið, einsogjafnan hefurverið.
Þá munu eigin togarar BÚR og
landa þar, þegar stjórnendur út-
gerðarinnar telja heppilegt. En
þeir munu auðvitað stundum
sigla með afla sinn á erlenda
markaði. I þessu sambandi má og
geta þess, að Hafnarstjórn hefur
.gefið vilyrði fyrir þvi, að Ifð fáist
fyrir nýtt hraðfrystihús BUR á
hinni fyrirhuguðu
vestan við Grandann.
uppfyllingu
Spurningunni um, hvort At-
vinnumálanefnd hefi verið lögð
niður, svara ég neitandi. Hún hef-
ur fáa fundi haldið upp á sfðkast-
ið, en fundur mun verða haldinn
næsta miðvikudag.
Björgvin Guðmundsson (A)
þakkaði borgarstjóra svör hans.