Morgunblaðið - 07.11.1973, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.11.1973, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NOVEMBER 1973 15 Poul P. M. Pedersen skáld 75 ára í dag Brúin sem tengir saman Straumey og Austurey. Stærstu eyjar Færeyja tengdar saman með brú 1 DAG, miðvikudaginn 7. nóvem- ber, er danska skáldið Poul P. M. Pedersen, 75 ára. Pedersen er Islendingum að góðu kunnur fyrir áhuga hans á íslenzkum málefnum, menningu landsins og þá ekki sízt ljóðlist. Hann hefur skrifað fjölda greina um Island, átt mörg samtöl við íslenzka forystumenn á mörgum undan- förnum árum og þýtt fjölda Ijóða eftir íslenzk Ijóðskáld. Má óhikað fullyrða, að enginn hefur kynnt íslenzka ljóðlist síðustu ára jafn- ötullega í Danmörku og af jafn- miklu listfengi og Pedersen. Hefur honum verið boðið hingað til lands, auk þess sem hann hefur verið sæmdur íslenzku fálkaorðunni fyrir kynningu slna á íslenzkum bókmenntum. Félag Poul P. M. Pedersen skátd íslenzkra rithöfunda hefur gert hann að heiðursfélaga sínum. Poul P. M. Pedersen er sjálfur þekkt ljóðskáld i heimalandi sínu. Ljóð hans hafa víða birzt í heildarsöfnum, auk þess sem hann hef ur gefið út margar f rum- samdar ljóðabækur, auk safna þýddra ljóða frá ýmsum löndum, m.a. Islandi og Færeyjum. Hann hefur gefið út sýnisbók íslenzks nútímaskáldskapar, Fra Hav til Jökel, þar sem eru ljóð eftir Davið Stefánsson, Tómas Guðmundsson, Halldór Laxness, Guðmund Böðvarsson, Jón Helga- son, Snorra Hjartarson, Matthías Johannessen og Hannes Péturs- son. Pedersen hefur auk þess þýtt ljóð eftir önnur íslenzk skáld, þ. á m. Nínu Björk og Jóhann Hjálmarsson, og hafa þýðingar þeirra, ásamt annarra íslenzkra ljóðskálda, verið lesin í danska útvarpið, auk þess sem þýðandinn hefur fjallað um einstök ljóð- skáld. Hafa þá þekktir danskir leikarar lesið ljóðin. Þýðingar Pedersens hafa hlotið mjög góðar viðtökur í Danmörku og lof gagn- rýnenda á Norðurlöndum. Þess má geta að Pedersen vinn- ur enn að þýðingum islenzkra ljóða og hefur í hyggju að gefa út allstórt heildarsafn þýðinga sinna úr íslenzku. Sérstakar bækur hefur hann þýtt og gefið út á dönsku með skýringum eftir Stein Steinarr, Hannes Pétursson og Matthías Johannessen og hafa þær komið út í sérstökum bóka- flokki á vegum Gyldendals og hlotið hinar beztu viðtökur. Poul P. M. Pedersen á ljóð í safninu ,,Mitbedstedigt“, þar sem saman er kominn hópur helztu Ijóðskálda Danmerkur og velur hver sitt „bezta“ ljóð. Pedersen velur ljóðið „Julebrev til en ung Pige“, sem snarað hefur verið á íslenzku og birtist í Lesbók Morgunblaðsins. Að því er Morgunblaðið hefur komizt næst hefur Pedersen þýtt ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum, sem send voru i keppni Norðurlandaráðs um bækur, aúk þess sem hann hefur þýtt mörg ljóð eftir Einar Öl. Sveinsson, en þau hafa ekki enn birzt í bók. Þá hefur hann gefið út merka antólógíu danskra ljóða. Heimilisfang Poul P. M. Peder- sens er: Pensjon Thune, Hov- edvagtsgade 2, 1103, Köbenhavn, K. Vinir hans hérlendis senda skáldinu og Islandsvininum inni- legar hamingjuóskir á merkum tímamótum. AÐUR en Nixon Bandarfkja- forseti tilnefndi öldungadeildar- þingmanninn, William B. Saxbe frá Ohio, f embætti dómsmálaráð- herra, höfðu þeir rætt ftarlega saman um hin ýmsu mál, sem áður kölluðu á gagnrýni Saxbes í garð forsetans. Saxbe segist hafa tjáð forsetanum, að hann yrði að sætta sig við hann eins og hann væri, ella gæti hann ekki tekið við embættinu — og sýnilega hefur Nixon fallizt á það, jafn- framt sem honum tókst, að þvf er Saxbe sagði, að sannfæra hann um, að meðferð forsetans á Watergatemálinu hefði verið rétt. Saxbe kvaðst einnig sammála Nixon um, að það væri forsetans að skipa eftirmann Arehibalds Cox rannsóknardómara í Water- gatemálinu, en ekki þingsins — og fullviss kvaðst Saxbe um, að sú skipan yrði löngu afgreidd áður en öldungardeildin samþykkti BRÚ, sem tengir tvær stærstu eyjarnar á Færeyjum, Straum- ey og Austurey, var tekin í notkun skömmu fyrir mánað- armótin. Brúin, sem heitir Sundalags brúin, er fyrsta brú sinnar teg- undar á Færeyjum. Straumey og Austurey eru tvær stærstu eyjarnar á Færeyjum, og þar búa60% Færeyinga. skipan hans sjálfs i embætti dómsmálaráðherra. Saxbe kvaðst ekki sjá neina ástæðu til að ætla, að fyrri gagn- rýni sín á forsetann kæmi í veg fyrir, að hann starfaði fyrir hann af fullri hollustu. Saxbe hefur oft látið í ljós óánægju með gerðir Nixons, síðast gagnrýndi hann forsetann harðlega fyrir loftárásirnar á Norður-Vietnam í desember sl. og sagði þá, að ekki væri annað sýnna en hann væri genginn af vitinu. Um nánustu aðstoðar- menn forsetans, þá Robert Halde- mann og John Ehrlichmann, sagði hann þegar fyrir tveimur árum, löngu fyrir tilkomu Watergate málsins, að þeir væru eins og nasistar í starfsháttum sínum i Hvíta húsinu. William B. Saxbe er fæddur 25. júní árið 1916 í Mechanicsburg í Ohio. Hann hóf þingmennsku árið 1947 i fulltrúadeild Bandarikja- Færeyjar eru um 1400 fer- kílómetrar, en Straumey og Austurey eru 660 ferkiló- metrar. Dýpkunarframkvæmdir hóf ust í apríl 1970 og kostnað- urinn nam um tveimur milljón- um danskra króna. Brúarfram- kvæmdin sjálf hófst á marz 1971. þings og sat þar til 1954. Leiðtogi þingmeirihlutans var hann 1951—52 og forseti fulltrúa- deildarinnar 1953—54. Dóms- málaráðherra var hann í Ohio á árunum 1957—58, 1963—66 og 1967—70, en í öldungadeild Bandarfkjaþings tók hann sæti árið 1969. Hann hafði nýlega látið að þvl liggja, að hann hygðist hætta þingmennsku, að þessu kjörtfmabili loknu. Kvæntur er Saxbe Ardath Kleinhans og eiga þau þrjú börn, tvo sonu og eina dóttur. Síldarverð SILDARVERÐIÐ f Danmörku virðist nú fara daghækkandi og á mánudag komst meðalverð hæst í kr. 39.60. Var það Faxaborg frá Hafnarfirði, sem fékk það verð. Sex skip seldu í Hirtshals og Skagen i gær fyrir alls 10.1 millj- ón kr. Bátarnir er sem fyrr á veiðum austan við Hjaltland og ef síldin hagar sér eins nú og hin síðari ár, verður aðalveiðisvæðið þar fram að jólum, en þá koma sildarbátarnir heim. Skipin, sem seldu í gær, eru: Óskar Magnússon AK 2302 kassa fyrir 2.9 millj., Víðir NK 1455 kassa fyrir 1.9 millj., Dagfari ÞH 1596 kassa fyrir 2.1 millj., Harpa RE 740 kassa fyrir 640 þús„ Faxa- borg GK2614 kassa fyrir 3.5 millj. og Börkur NK 966 kassa fyrir 1.2 millj. Færeyingar fá eigin frímerki FÆREYSKA landstjórnin og danska póst- og símamálastjórnin hafa náð samkomulagi um útgáfu færeyskra frimerkja í stað I danskra. Akveðið hefur verið, að byrja á útgáfu 15 verðgilda, enmyndirnar, sem frímerkin sýna, verða fimm. Þær eiga að sýna landslag í Fær- eyjum. Gert er ráð fyrir því, að færeysk f rimerki verði tekin i notkun eftir eitt ár. Brúin er 220 metra löng og 9,5 metra breið. Siglingarhæð undir brúnni er 17 metrar og dýpið fjórir metrar. Kostnaður við brúarsmíðina var um 13 milljónir danskra króna. Atli Dam lögmaður sagði við opnun brúarinnar, að hún væri stærsta átakið, sem hefði verið gert i samgöngumálum Fær- eyinga. SVIAR BJARGA ÚLFUM STOKKHÓLMI — Sænska nátt- úruverndarfélagið hefur hafizt handa um áætlun um að bjarga norræna úlfinum frá útrýmingu, að sögn Miljöaktuellt, málgagns Sænska umhverfisverndunarráðs- ins. Um 20 úlfar verða notaðir til þess að koma á fót svokölluðum erfðabanka. Nefnd kunnra nátt- úrufræðinga og dýrafræðinga mun semja leiðbeiningar um úlfa- rækt. Svipaðar nefndir verða settar á fót i Finnlandi og Noregi og sam- starf verður milli 10 dýragarða á Norðurlöndum um áætlunina. Ulfurinn nýtur sérstakrar vernd- ar í Svfþjóð og Noregi, og Finnar hafa f athugun að friða hann. Miljöaktuellt hermir, að aðeins hafi verið skotnir 15 birnir og 37 gaupur 1972 — 73. Undanfarin fimm ár hafa að meðaltali verið skotnir 20 birnir og 50 gaupur á ári. Flóttamenn- irnir þrír óhultir? Belfast, 6. nóv. AP. TALSMAÐUR írska lýðveldis- hersins sagði í dag, að leiðtog- arnir þrír, sem flúðu með þyrlu úr fangelsi á Norður-Irlandi í síð- ustu viku, væru óhultir fyrir her- mönnum og lögreglumönnum, sem leita þeirra nú um allt land. Er talið, að þeir hafi verið fluttir til annars lands, en muni, áður en langt um líður, snúa aftur. Hinn ævintýralegi flótti úr fang elsinu hefur valdið stjórn Liams Cosgraves miklum pólitískum erfiðleikum, því stjórnarandstæð- ingar halda því fram, að hann sýni, að stjórnin valdi ekki öryggismálum landsins. Yfirvöld óttast, að flóttinn sé undanfari nýrrar bylgju hryðjuverka á Norður-Irlandi. Frá blaðamannafundinum sfðastliðinn fimmtudag: Nixon forseti tilkynntir, að hann hafi tilnefnt Saxbe, sem dómsmálaráðherra. Til hægri er Robert Bork, sem tók við embættinu til bráðabirgða, þegar Richardson sagði af sér. Nýr dómsmálaráðherra i Bandaríkjunum Hefur oft gagnrýnt gerðir Nixons

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.