Morgunblaðið - 07.11.1973, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.11.1973, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1973 íslendingar á al- friðaða svæðinu SlÐASTLIÐINN fimmtudag stöð Landhelgisgæzlan 9 togara að veiðum á alfriðaða svæðinu norður af Kögri. Togarar þessir skiptust þannig eftir þjöðernum, að þar var einn Breti, þrfr Þjöð- verjar, einn Færeyingur með sjómenn, einkum vestfirzkir, mjög gagnrýnt Landhelgis- gæzluna fyrir að stugga ekki við eriendum togurum, sem verið hafa að veiðum innan þessa svæðis. Landhelgisgæzlan hefur fylgzt með þessu svæði upp á siðkastið, einkum og sér i lagi, vegna þess, að kvartanir hafa mjög borizt um veiðar erlendra togara á svæðinu. Áður hafði orðið vart við einn fslenzkan togara, en svo þessa 9 á fimmtudag. Landhelgisgæzlan rak alla togarana út af svæðinu og hafði varðskipið m.a. samband við vestur-þýzka eftirlitsskipið Meerkatze og spurði það, hvers vegna þýzkir togarar væru á veið- um á svæðinu, sem væri friðað allt árið, og stunduðu veiðar án afskipta eftirlitsskipsins. Meerkatze svaraði því þá til, að það hefði talið óhætt fyrir togarana að veiða innan svæðis- ins, þar sem Islendingar hefðu verið þar að veiðum. Bað eftirlits- skipið síðan afsökunar á þessu og Framhald á bls. 18 Ökumaður festist er bifreið valt STÓR vörubifreið, nánast alveg ný, valt út af Vesturlandsvegi við Alafossgatnamótin í Mosfellssveit um kl. 10 á þriðjudagsmorguninn, vegna hálku. Lenti bifreiðin á endanum á öryggisgrindverki og valt síðan á hliðina. Ökumaðurinn sat fastur f bifreiðinni og gat ekki losað sig og var þá sent eftir log- suðutækjum, en til þess kom þó ekki að nota þyrfti þau, þar eð með nokkru átaki tókst að losa ökumanninn. Talsverðar skemmdir urðu á bifreiðinni. ökumaðurinn hafði verið á leið til borgarinnar með malarfarm. Mikil rigning var á Suður- landi i gærdag. Stórir pollar mynduðust og sums staðar stöðvuðust farartæki vegna bleytu. Þá var heldur ekki sérlega skemmtilegt að missa eitthvað niður, en hér sjáum við móður og son hirða eitthvað upp af göt- unni. Ljósm: Mbl.: Sv. Þ. óbúlkuð veiðarfæri og fjórir tslendingar. Allir voru togaramir að veiðum nema Færeyingurinn. Islenzku togaramir voru Sólbak- ur, Júlíus Geirmundsson, Drangey og Skafti. Samkvæmt heimildum, sem Mbl. hefur, segjast skipstjóramir hafa verið sofandi, en stýrimenn við stjórn- völinn. Eins og kunnugt er, hafa KOMMUNISTAR HAFA FREST TIL MORGUNS ÓLAFUR JÓHANNESSON for- sætisráðherra lýsti þvf yfir á fundi rfkisstjórnarinnar í gær- morgun, að hann mundi biðjast lausnar fyrir hönd stjórnarinnar, Steypan vildi ekki harðna Breiðholt stöðvaðist í 3 vikur GALLAR komu fram við steyp- ingu húsa í sl. mánuði, sem lýstu sér f þvf, að steypa úr hraðsem- enti í byggingu Framkvæmda- áætlunar hjá Breiðholti vildi ekki harðna með eðlilegum hætti, og sprungur vildu myndast f steypu frá steypistöðvunum, þar sem notað var PortlandssemenL Varð að stöðva steypuvinnu hjá Breið- Viðlagasjóður vill kaupa húsin við hraunjaðarinn Viðlagasjóður hefur ákveðið að bjóða eigendum fjörutíu og þriggja húsa í Vestmannaeyjum að kaupa húsin af þeim fyrir brunabótamatsverð. Hér er um að ræða hús, sem standa við hraun- jarðarinn og hafa hingað til ekki verið dæmd úr leik, en eru flest mikið skemmd. Að sögn Hall- gríms Jónssonar hjá Viðlagasjóði er brunabótamat þessara húsa um 150 millj. kr. Kvað hann heillegu húsin Iátin standa, ef af kaupum yrði, en ónýt hús yrðu rifin. holti f 3 vikur og telur fram- kvæmdastjórinn, að fyrirtækið hafi orðið fyrir 3—4 millj. kr. tjóni, en verið er að undirbúa skaðabótakröfur á hendur Sem- entsverksmiðju rfkisins fyrir það tjón. Sfðan þetta var, hefur steyp- an verið f lagi, að þvf er virðist. Tæknilegur framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar segir, að ekki sé upplýst, hvað hafi komið fyrir og ekki sannað, að það sé sementið, sem um sé að kenna, en verksmiðjan hefur fengið þekkt- ustu sérfræðinga f Danmörku og Bandarfkjunum til að rannsaka málið. Þarna var um að ræða blöndu af innlendu gjalli og dönsku, sem áður hefur verið notað með ágætum árangri. En um þetta leyti, eða raun heldur fyrr, hafði magn danska gjallsins verið aukið, en nú hefur aftur verið hætt við það. Sýni, sem tek- in voru af sementinu f verksmiðj- unni, sýna ekki galla, þó að gallar hafi komið fram við steypinguna og er verið að reyna að íinna, hvað þarna var að. Mbl. fékk þær upplýsingar hjá Sigurði Jónssyni, framkvæmda- stjóra Breiðholts h.f., að farið hefði að bera á þessu 5. október. Þá var verið að steypa sambýlis- Framhald á bls. 18 ef allir ráðherrarnir samþykktu ekki samningsuppkastið við Breta. Ráðherrar Alþýðubanda- lagsins óskuðu þá eftir sólar- hrings fresti og var þeim veittur hann. Hins vegar kom f Ijós sfð- degis í gær, að þessi frestur mundi ekki nægja þeim, þar sem ekki reyndist unnt að ná mið- stjórn Alþýðubandalagsins sam- an til fundar fyrr en f kvöld. Hefur því rfkisstjórnarfundur verið boðaður á morgun, fimmtu- dag, og kemur þá væntanlega endanlega í ljós, hvort samstaða næst innan stjórnarinnar um samningsuppkastið. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, á Magnús Kjartansson mun erfiðara með að kyngja fyrri full- yrðingum og standa að samnings- uppkastinu en Lúðvík Jósepsson. 1 gærvarfullyrt iþingsölum, aðtil athugunar væri hjá Alþýðubanda- laginu, að Magnús Kjartansson segði af ser, ef hann fengist ekki til að greiða atkvæði með samningsuppkastinu í ríkis- stjórninni og Ragnar Arnalds tæki við ráðherraembætti hans. Væri þá að sögn hægt að full- Framhald á bls. 18 Aron vann sigur 1 Kauphallarnafnsmáli FYRIR skömmu var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í máli því, sem Aron Guðbrandsson höfðaði vegna fyrirtækis síns Kauphallarinnar gegn Hannesi hf. vegna Kauphallar Hannes- ar. Krafðist Aron þess, að Hannesi hf. væri óheimilt að nota nafnið eða heitið „Kaup- höll“ í firmanafni sínu, sem hafði fengizt skráð í firmaskrá Reykjavíkur. I undirrétti hafði Hannes hf. verið sýknað af kröfu Arons, en Aron áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og var þar kveðinn upp sá dómur, að Hannesi hf. skyldi óheimilt að nota nafnið „Kauphöll Hannes- ar“ í firma sínu og væri fyrir- tækinu skylt að láta innan 16 daga afmá það úr verzlanaskrá Reykjavíkur að viðlögðum 1 þús. kr. dagsektum, sem rynnu til Arons. Þá var Hannes hf. dæmdur til að greiða Aroni 40 þús. kr. málskostnað I héraði og fyrir Hæstarétti. —„Kauphöll Hannesar" er rekin af Hannesi Þorsteinssyni. Dæmdur í níu ára fangelsi fyrir morð 1 GÆR var kveðinn upp f Saka- dómi Skaftafellssýslu dómur I máli Guðna Oskarssonar bffreiða- stjórn, Miðtúni 23, Höfn, Horna- firði, en hann hafði verið ákærð- ur fyrir að hafa myrt Stefán Egilsson frá Volaseli f Lóni á heimili sfnu á Hornafirði að morgni sunnudagsins 28. jan sl. Var Guðni dæmdur f nfu ára fangelsi og til greiðslu alls saka- kostnaðar, þ.á.m. 90 þús. kr. máls- varnarlauna til Jónasar A. Aðal- steinssonar hrl., og 90 þús. kr. málssóknarkostnaðar til rfkissjóðs. Gæzluvarðhaldsvist Guðna frá 28. jan sl. kemur til frádráttar fangelsuninni. Guðni var dæmdur skv. 211. grein hegningarlaga. sem svo hljóðar: Hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki skem- ur en 5 ár, eða ævilangt. Dóminn kvað upp Einar Oddsson, sýslu- maður. Við rannsókn málsins á síiýum tíma játaði Guðni á sig verknaðinn. Þeir Stefán höfðu þekkzt vel og sátu heima hjá Guðna að drykkju aðfararnótt sunnudagsins. Er á leið urðu þeir ósáttir. svo að til átaka kom á milli þeirra, og kvaðst Guðni hafa hent gesti sín- um út. Að því búnu tók hann haglabyssu, sem hann átti, hlóð hana og skaut tveimur skotum á eftir Stefáni. Beið Stefán sam- stundis bana af, er annað skotið hæfði hann. — Var Guðni hand- tekinn á heimili sínu skömmu síðar, án mótþróa og hefur hann setið í gæzluvarðhaldi síðan. Hann er rúmlega fertugur, fjöl- skyldumaður. Stefán Egilsson var 33 ára að aldri, einhleypur. Hann hafði starfað við bifreiðaviðgerð- ir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.