Morgunblaðið - 07.11.1973, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NOVEMBER 1973
19
Hallgrlmur P. Guomundsson er fyrsti skósmiðurinn, sem útskrifast eftir hinni nýj.
skósmiða. Hér er hann til hægri á myndinni ásamt meistara sfnum, Gunnsteini Lárussyni.
Skósmiðir útskrifast
eftir nýrri námsáætlun
U lldlindct'llUII
LANDSS AMBAND skósmióa
hefur gefið út námsáætlun fyr-
ir skósmfðanema. Þessi náms-
áætlun er sett til þess að sam-
ræma nám í iðninni við kröfur
atvinnuvegarins um kunnáttu
skósmfðasveina. Einnig til þess
að nemar og meistarar geti átt-
að sig á þvf, hvað skuli kennt
eða numið á hverjum tíma. Lft-
ið hefur verið um það, að menn
hafi lagt stund á skósmfðanám
sfðustu árin, og er nú svo kom-
ið, að heilu landsfjórðungamir
eru skósmiðalausir.
A föstudaginn í síðustu viku
útskrifaðist fyrsti skósmíða-
sveinninn eftir þessari nýju
námsskrá. Hann heitir Hall-
grfmur P. Guðmundsson, og
lærði hjá Gunnsteini Lárussyni
skósmið að Tómasarhaga 46.
Sigurbjörn Þorgeirsson skó-
smfðameistari, íjm er formað-
ur dómnefndar Landssam-
bands skósmiða, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að skósmíða-
nemar væru nú sex talsins og
væru þeir allir við nám á
Reykjavikursvæðinu. Þörf væri
á að fjölga skósmiðum, því
margir þeir, sem eru starfandi
við skósmfði, væru orðnir gaml-
ir menn.
Hann sagði, að þessi nýja
námsskrá markaði tímamót,
hvað sveinsstykkið varðaði. Nú
væri sveinsstykkið fölgið i al-
mennum skóviðgerðum eins og
að sóla skó, festa hæla á þá og
gera annað, sem kæmi starfinu
við. Áður hefðu menn þurft að
smíða skó, þegar þeir voru að
ljúka námi. Það hefði bæði ver-
ið tímafrekt, og svo hefði það
ekki komið starfinu beint við.
Hefði það leitt til þess, að sumir
skósmiðir hefðu verið feimnir
við að taka nema, þar sem
menn kunnu ekki almennilega
að smíða skó, nema því aðeins
að leggja mikinn tíma í að rifja
það upp, enda væri það svo, að
aðalstaf skósmiðs væri að gera
við, en ekki smíða.
r
Aðalfundur Afeng’isvarna-
nefnda á Snæfellsnesi
Stykkishólmur,29. október.
AÐALFUNDUR félags áfengis-
varnanefnda í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu var haldinn f
Grundarfirði í safnaðarheimilinu,
sunnudaginn 20. okt. að aflokinni
fjölmennri fjölskylduguðs-
þjónustu, sem séra Magnús Guð-
mundsson hafði.
A fundinum mættu fulltrúar úr
hreppum sýslunnar svo og Ólafur
Ólafsson lögregluþjónn sem starf-
ar hér í sýslunni. Voru á fundi
þessum rædd vandamál byggðar
og lands, sem af áfengi og öðrum
eiturefnum stafa og það í vaxandi
mæli. Var það álit fundarins að
nú þyrfti nauðsynlega að virkja
öll góð öfl til baráttu fyrir
bindindissamara lifi og kristilegri
lífsviðhorfum. Vmsar tillögur
voru samþykktar og þar á meðal
áskorun til Alþingis um að sam-
þykkja tillögu Vilhjálms
Hjálmarssonar og fjögurra
annarra alþingismanna um afnám
vinveitinga á vegum hins opin-
bera. Telur fundurinn að með
samþykkt slíkrar tillögu sé stigið
stórt skref til fordæmis í þjóð-
lffinu. Þá taldi fundurinn brýna
nauðsyn á að veita Afengisvamar-
ráði ríflegra fé til starfsemi sinn-
ar og þá sérstaklega í þvf augna-
miði að ná meiri árangri með
Myndamark-
aðurinn —
verzlun og
verkstæði
MYNDAMARKAÐURINN sf.
hóf starfsemi sína fyrir nokkru
í gamalli, en nýinnréttaðri
vöruskemmu við Fischerssund,
en skemman var eitt sinn í eigu
Duus-verzlunar. Þarna er rekin
tvíþætt starfsemi, annars vegar
sýningarsaliir, hins vegar inn-
ri'mmunarverkstæði. Fyrsta
sölusýning stendur nú yfir,
sýning á eftirprentunum
frægra nútímamálara og einnig
nokkrum verkum eldri
meistara. Hún verður opin dag-
lega kl. 9-12 og 14-22 til 6. nóv.
Eigendur fyrirtækisins eru
tveir ungir menn, Agúst Þor-
geirsson og Pétur Sturluson.
— Myndin er úr sýningarsaln-
um (Ljósm. Mbl. ól.K.Mag).
Sýning Gayets
framlengd
LISTASAFN ASl heldur um
þessar mundir sýningu á verkum
eftir franskan listamann, Vincent
Gayet. 17 verk eru á sýningunni
og eru þau af myndgerð, sem
flokkast undir grafíklist. Þessar
myndir eru unnar með öðrum
hætti en sú grafík, sem algengust
er, og verður aðeins til eitt eintak
af hverri mynd.
Aðsókn að sýningunni hefur
verið góð, og hefur nú verið
ákveðið, að hún verði opin til n.k.
sunnudagskvölds.
Athugasemd
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá Hlyni Sig-
tryggssyni, veðurstofustjóra:
Vegna ummæla i Morgunblað-
inu þann 4. þ.m. í grein undir
fyrirsögninni „Úrkoma í Reykja-
vik um 800 mm — í Bláfjöllum
3000 mm“ óska ég að eftirfarandi
atriði komi fram:
Veðurstofan hóf ýmsar mæling-
ar að Sóllandi í Fossvogi haustið
1966 og voru jarðvegsrakamæl-
ingar einn þáttur þeirra. Gert var
ráð fyrir, að mælingarnar gætu
ekki orðið þarna til langframa,
vegna væntanlegra bygginga-
framkvæmdaí grenndinni.
Þegar flytja þurfti mælingarn-
ar vegna framkvæmda við Heyrn-
leysingjaskólann vorið 1972 var
Veðurstofan látin vita um það
með nægum fyrirvara. Mælingum
var þá hætt í bili, en flestar þeirra
teknar upp aftur á löð Veðurstof-
unnar við Bústaðaveg. Engin tæki
skemmdust vegna byggingar-
vinnu. Jarðvegsrakamælingar
hafa ekki hafist að nýju vegna
vötnunar á hentugu landi þeirra.
erindrekstri út um byggðir lands-
ins.
í innanhéraðsmálum voru gerð-
ar samþykktir varðandi
skemmtanahald o.fl. I stjórn voru
kjörnir: Formaður séra Magnús
Guðmundsson Grundarfirði,
gjaldkeri Haraldur Jónsson
hreppstjóri, Gröf og ritari Ámi
Helgason, umdæmisstjóri
Stykkishólmi. Samþykkt var að
halda næsta aðalfund i Ólafsvík.
— Fréttaritari.
Selt fyrir 37 millj. í vikunni
Fritz Warncke setti nýlega
norskt met í 200 metra fjór-
sundi, er hann synti á
2:17,1 mín. á sundmóti sem
fram fór i Bergen. Gamla
metið átti Gunnar Gundersen
og var það 2:17,2 mín. Gunder-
sen varð annar í sundinu i
Bergen á2:21,0 mín.
ISLENZKU sfldveiðiskipin f
Norðursjó seldu alls 22 sinnum í
Danmörku f sfðustu viku fyrir
alls 37.8 millj. kr. Skipin seldu
1.170 lestir af sfld og meðalverðið
f vikunni var kr. 34.15. Hæsta
meðalverðið fékk Magnús NK, kr.
37.48. Loftur Baldvinsson EA var
sem oftar með hæstu heildar-
söluna, en Loftur seldi 2. nóvem-
ber fyrir 3.1 millj. kr.
A laugardaginn voru íslenzku
skipin búin að selja 41.407 lestir
af síld fyrir 1.038.683.00 millj. kr.
og meðalverðið, sem fengizt hefur
fram til þessa, er kr. 25.08. Á
sama tima í fyrra voru skipin
búin að selja 32.677 lestir af síld
fyrir 469.037.428 millj. kr. sem er
meira en helmingi minna en nú.
Þá var meðalverðið kr. 14.35.
Loftur Baldvinsson EA er enn
sem fyrr langaflahæsta síldveiði-
skipið, hefur nú selt 2.362 lestir
fyrir 63.2 millj. kr. Næst afla-
hæsta skipið er Guðmundur RE,
sem búinn er að selja 1.885 lestir
fyrir47.9 milljónir kr. Þriðja afla-
hæsta skipið er svo Súlan, sem
búin er að selja 1.811 lestir fyrir
45.3 millj. kr.
Fyrirlestur
um menningar-
málastefnu
N.K. fimmtudag flytur Hugo
Jensen, fulltrúi í danska mennta-
málaráðuneytinu, fyrirlestur,
sem hann nefnir „Kulturpolitik
— teori eller praksis", og fjallar
hann um hið almenna inntak
orðsins menningarmálastefna og
það, hvernig þessu hugtaki hefur
verið beitt í framkvæmd.
Hugo Jensen er fulltrúi ráðu-
neytis síns í nefnd, sem hefur
undirbúning norrænnar
menningarmiðstöðvar i Færeyj-
um með höndum, og er hann
hingað kominn til þess m.a. að
kynna sér starfsemi Norræna
hússins.
Fyrirlesturinn verður i
Norræna húsinu, og hefst hann
kl. 20.30, en að honum loknum
verða almennar umræður um
efnið.
Norskt sundmet
Fundað um sund-
laug við Mývatn
Björk, Mývatnssveit, 2. nóv.
MIKIÐ hefur verið rætt á undan-
förnum árum um sundlaugarmál
hér f Mývatnssveit. Margar sam-
þykktir hafa verið gerðar um það
efni innan félagasamtaka í sveit-
inni, ennfremur f sveitarstjórn,
svo og meðal fbúa hreppsins,
bæði með undirskriftum og á al-
mennum sveitarfundum. Þrátt
fyrir allar slíkar samþykktir hafa
enn engar framkvæmdir verið
hafnar við sameiginlega sund-
laugarbyggingu í sveitinni.
I lok ágústmánaðar sl. var
sveitarstjórn sent skjal, undir-
ritað af 132 skattgreiðendum í
hreppnum, þar sem þess er
krafizt, að hafizt verði handa um
byggingu sundlaugar í Reykja-
hlíð. Eftir að hitaveita er komin
hér, er þar um að ræða mjög góða
aðstöðu og nægilegt heitt vatn til
slíkra hluta. Minnihluti sveitar-
stjórnar óskaði þess, að fundur sá,
þar sem hreppsnefnd tæki mál
þetta tii umræðu, yrði jafnframt
opinn íbúum sveitarinnar. í gær-
kvöldi var svo þessi fundur loks
haldinn í Skjólbrekku. Hófst
hann kl. 21:30 og stóð fram á nótt.
Segja má, aðfundurinn hafi verið
merkilegur að því leyti, að aldrei
fyrr hafa verið haldnir hér opnir
sveitarstjórnarfundir. Allmargt
fólk mætti á fundinum, enda láta
ýmsir sig þetta miklu varða.
Umræður urðu langar um sund-
laugarmál hér í sveitinni og var
saga þess rakin allítarlega frá
upphafi. í lok fundarins bar odd-
viti fram tillögu þess efnis, að
sveitarstjórnin tæki ekki afstöðu
til málsins á þessum fundi, heldur
vfsaði því til almenns sveitar-
fundar, sem boðað yrði til mjög
fljótlega. Tillaga þessi var sam-
þykkt með atkvæðum meirihluta
sveitarstjórnar.
Þess má að lokum geta, að
ungmennafélagið ■ Mývetningur
hóf á sl. sumri byggingu sund-
laugar á svokallaðri Álftabáru,
skammt frá barnaskólanum á
Skútustöðum. Hyggst félagið hita
vatn það, sem nota á í laugina,
með rafmagni. Nú er talinn
fyrirsjáanlegur rafmagnsskortur
hér á orkuveitusvæðinu. Því
spyrja margir: Er nokkurt vit í,
þegar þannig stendur á, að fara að
hita vatn með rafmagni i sund-
laug, þegar nægilegt jarðvarma-
vatn er til staðar í hreppnum og
mjög hagkvæmt til slíkra nota?
Fréttaritari.