Morgunblaðið - 07.11.1973, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1973
21
Sl. fimmtudag voru afhent f Mosfellssveit 33 fbúðarhús, sem reist eru á vegum Viðlagasjóðs. Er hér um að
ræða raðhús, og eru 3 og 4 fbúðir f hverju þeirra. Þessi viðlagasjóðshús eru finnsk að gerð og þykja mjög
vönduð. Ljósm. Mbl. : Ól. K. Magn.
2!li)t0imXiTní>ií»
óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST
Upplýsingar i síma 1 6801.
ÚTHVERFI
Nökkvavogur •— Hluta af Blesugrót
VESTURBÆR
Hjarðarhagi
AUSTURBÆR
Sjafnargata — Ingólfsstræti
Hraunteigur — Hverfisgata 63 — 125
Freyjugata 28 — 49
Þingholtsstræti
Bergstaðastræti
Laugavegur frá 101 — 171
— Heimslistinn
Framhald af bls. 13.
listaverka, sem eru sameign borg-
arbúa allra.: 1. Miðstöð málverka-
safns borgarinnar verði á Kjar-
valsstöðum. Þar verði til sýnis
myndir borgarinnar og verðiskipt
um þær reglulega. 2. Einstakar
borgarstofnanir fái heimild til
þess að hafa í húsakynnum
sínum, semalmenningur á aðgang
að, listaverk. 3. Nýtt verði til fulls
heimild til listskreytinga í skól-
um. 4. Borgarráð kanni, hvort
hentugt sé, að komið verði upp
safni eftirmynda og grafikmynda
til að skreyta með sjúkrastofur og
skólastofur.
Jafnframt verði kannað, hvort
ástæða sé til, að borgin komi upp
sérstöku eftirmyndasafni frægra
myndverka til notkunar í stofnun-
um borgarinnar.
Þessi síðasti liður þarfnast e.t.v.
skýringar. Eins og alkunna er
eiga tslendinar varla nokkurt
verk heimslistarinnar, og er þess
varla að vænta að úr rætist.
Ef við eigum að geta kynnst
slíkum verkum hér heima, verður
það ekki gert nema með safni
eftirmynda. Á erlendum söfnum
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
FIMMTUDAGINN 1. nóv. sl., kl.
11 — 18:30, var ekið á gráa Saab-
bifreið, Y-895, á bílastæði Land-
spítalans, Barónsstigsmegin, og
hægra afturbrettið dældað. Þeir,
sem kynnu að geta gefið upplýs-
ingar um ákeyrsluna, eru beðnir
að láta lögregluna vita.
eru oft til sölu slíkar eftirmyndir,
og til eru fyrirtæki, sem sérhæfa
sig í gerð slíkra eftirmynda.
Slíkt safn mundi fyrst og
fremst þjóna skólum þvf ekki er
síður mikilvægt, að nemendur
kynnist heimslistinni en islenskri
list. Að sjálfsögðu væri ekkert þvf
til fyrirstöðu, að slikt safn væri
einnig til afnota fyrir sjúkrahús
og aðrar stofnanir. Og áskilja
mætti safninu leigu fyrir verk,
sem það lánaði, þannig að það
stæði sjálft undir rekstri sínum.
Albert Guðmundsson <S): 1 til-
efni af þvf, sem Sigurjón Péturs-
son sagði, að hann hefði ekki
fengið að vita um fjölda lista-
verka í eigu borgarinnar, legg ég
til eftirfarandi: Borgarstjórn
samþykkir að fela forstöðumanni
Kjarvalsstaða að láta gera skrá
yfir listaverk í eigu borgarinnar
og númera þau. Skrá þessi skal
gefa upplýsingar um listaverkið,
höfund þess, og hvar það er geymt
hverju sinni. Þá skal og greina
frá því, hvernig og hvenær borgin
eignaðist hvert listaverk.
Tvö skip seldu
í Þýzkalandi
TVÖ íslenzk skip seldu ísfisk i
Þýzkalandi f gærmorgun og fengu
ágætt verð fyrir.
Búrfell ÁR seldi 38.2 lestir í
Cuxhaven fyrir 47.740 mörk, eða
1.6 millj. kr. Meðalverðið er kr.
42.58. Afli Búrfells var að mestu
leyti ufsi, en báturinn hefur
stundað netaveiðar.
Skuttogarinn Hvalbakur seldi
110.8 lestir í Bremerhaven fyrir
142 þús. mörk, eða 4.8 milljónir
kr. Meðalverðið er kr. 43.72.
Félagsmenn —
Félagssamtök
Til sölu 200 fm. glæsilegt hús á einni hæS með
húsmunum, ásamt 7000 fm. ræktuðu landi (mikill
trjágróður) á mörkum Rvíkurborgar. Tilvalið fyrir félags-
samtök. Einnig mjög gott sem íbúðarhúsnæði. Uppl. I
síma 2561 6 frá kl. 10—1 og eftir 5.
íbúff ðskast til kaups
Vil kaupa 2ja til 3ja herb. íbúð í góðu ástandi. Verður að
'vera í steinhúsi. Mikil útborgun. Tilboð sendist Mbl. fyrir
1 5 þm. merkt: íbúð 5211.
Sigurjón Pétursson (K): Ég get
ekki litið á tillögu Ölafs B. Thors
sem breytingartillögu við mfna
tillögu og mun því halda fast við
hana. Og varðandi upplýsingar
um f jölda málverka i eigu borgar-
innar þá er mér tjáð, að unnið sé
að slíkri skrá.
Birgir lsleifur Gunnarsson
borgarstjóri: Þar sem nú er unnið
að gerð skrár yfir listaverk
borgarinnar á svipaöan natt og
Albert Guðmundsson leggur til að
gert verði, sting ég upp á, að
tillögu hans verði visað til borgar-
ráðs.
Að loknum umræðum þessum
var tillaga Ólafs B. Thors sam-
þykkt með 8 atkvæðum gegn 5 en
tillögu Alberts vísað til borgar-
ráðs.
Landsþing
Landssambands Sjálfstædiskvenna
verður haldið í TjarnarbúS í Reykjavík, sunnud. 18. nóv. n.k. og
hefst kl. 9.00 árdegis.
Aðalmál þingsins verður:
Verkefnaskipting rlkis- og sveitarfélaga
Dagskrá:
kl. 9.00 Þingsetning. Ragnheiður GuSmundsdóttir, formaður
Landssambands Sjálfstæðiskvenna.
Skýrsla formanns, reikningar.
Skýrslur einstakra félaga.
Umræður.
kl. 1 2.00 — 1 3.45 Hádegisverður I boði miðstjórnar.
Geir Hallgrímsson, formaðir Sjálfstæðisflokksins flytur ávarp.
kl. 14.00 Verkefnaskipting ríkis og sveitarfélaga.
Framsögumenn:
Dr. Gunnar Thoroddsen, formaður þingflokks Sjálfstæðismanna
Frú Salome Þorkelsdóttir, hreppsnefndarfulltrui.
Páll Líndal, formaður Sambands sveitarfélaga.
Birgir ísleifur Gunnarsson, borgarstjóri.
Umræður og fyrirspurnir.
kl. 17 15 Kosningar.
Athygli skal vakin á því, að allar Sjálfstæðiskonur eru velkomnar á fundinn kl. 1 4.oo
til 1 7.00, þegar rædd verður verkefnaskipting ríkis- og sveitarfélaga.
Stjórnin.
GARÐAHREPPUR
Börn vantartil að bera út Morgunblaðið
á Flatirnar
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 52252.
GARÐUR
Umboðsmaður óskast í Garði. — Uppl. hjá
umboðsmanni, sími 71 64, og í síma 10100.
KÓPAVOGUR
Blaðburðarfólk óskast í Bræðratungu.
Upplýsingar hjá umboðsmanni i síma 40748.