Morgunblaðið - 07.11.1973, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÖVEMBER 1973
| iÞBBTIAFRíniR MORCUMBLAÐSIiyS
r
Islandsmótið í handknattleik hefst í kvöld
Enn fiölgar þátttakendum
ISLANDSMÚTIÐ í handknattleik hefst f Laugardalshöllinni í kvöld
með leik Vals og Vfkings og að honum loknum leika Fram og Haukar.
Sfðan rekur hver leikurinn annan allt fram til 24. marz en þá er áætlað
að mótinu Ijúki. fslandsmót það, sem nú er að hefjast, er hið
umfangsmesta f sögu handknattleiksfþróttarinnar og aldrei hafafleiri
flokkar tekið þátt f mótinu en nú.
Vfkingar „tollera" félaga sinn Einar Magnússon, er hann hafði skorað
100 mörk f Islandsmótinu f fyrra.
Aukningin.
Alls senda 30 félög 153 flokka
til þátttöku í þessu móti og leika
flokkarnir alls um 550 leiki. Láta
mun nærri að um tvö þúsund
manns taki þátt í islandsmótinu í
hinum ýmsu flokkum. Mikil
aukning hefur verið í Islands-
mdtinu síðastliðin ár, t.d. voru
leiknir 260 leikir í mótinu
1968—69, en nú eru þeir helmingi
fleiri.
Ný íþróttahús.
Það gefur auga leið að undir
hina fjölmörgu leiki þarf mikið
húsrúm og nú sem áður stóð Móta-
nefnd HSÍ frammi fyrir miklum
vanda er raða skyldi leikjum
niður. Betur tókst þó til en á
horfðist og eru nú nýtt 10 íþrótta-
hús undír leiki mótsins, því miður
eru þó fæst þessara húsa lögleg
fyrir þá leiki sem þar eiga að fara
fram. Nú er í fyrsta skipti leikið í
Islandsmóti í þremur þessara
húsa, þ.e. í Njarðvfk, Eskifirði og
Norðfirði.
Atta lið í
þriðju deild
Til keppninnar í meistaraflokki
kvenna senda 15 félög lið til
keppni. Leika þessi lið í tveimur
deildum, sjö lið í 1. deild og átta í
annarri. 1 karlaflokki er leikið í
þremur deildum og eru átta lið í
hverri deild. 1 þriðju deild hefur
orðið veruleg aukning frá því í
fyrra, þá voru fimm þátttökulið,
nú eru þau átta. Tvö liðanna, sem
þátt tóku í fyrra eru með aftur
nú, en auk þess senda IA, Víðir,
Austri, Þróttur, Leiknir og
Huginn nú annaðhvort í fyrsta
skipti eða eftir nokkurt hlé lið til
þátttöku í Islandsmóti í elzta
aldursflokki karla.
Keppnistímabilin
ná næstum saman.
Þegar hefur verið getið um
hina fjölmörgu leiki, sem lands-
liðið þarf að glíma við í vetur og
ef að líkum lætur mun karla-
landslíðið leika á milli 25 og 30
landsleiki á þessum vetri. Auk
þess munu svo bæði kvennalands-
liðið og unglingalandsliðin verða
á faraldsfæti. Um mitt næsta
sumar munu Reykvíkingar leika
við Oslóarbúa hér á landi í tilefni
af 1100 ára afmæli íslands-
byggðar og má því segja, að
keppnistímabilin nái næstum
saman.
Leikskrá.
Þegar er komin út hjá HSI leik-
skrá og þótt hún sé óvenju
snemmborin virðist hún vandaðri
en oftast áður. I skránni er að
finna leikdaga í öllum deildum og
flokkum, stjórnir og nefndir
innan HSÍ, forsvarsmenn hand-
knattleiksdeilda og fleíra. Skrá
þessi er til sölu i íþróttahöllinni í
Laugardal, íþróttahúsinu í
Hafnarfirði og í Sportvöruverzlun
Ingólfs Öskarssonar.
1 sambandi við niðurröðun
leikja í 1. deild karla er rétt að
geta þess, að aðeins hefur verið
raðað niður fyrri hluta mótsins.
Er það gert til að reyna að halda
spennunni í íslandsmótinu allt
frá upphafi til enda. Sömuleiðis
hefur ekki verið ákveðið hvaða lið
leika á hvaða leikdegi í 1. deild
kvenna á Akureyri.
Loka-
staðan
VALSMENN urðu Islandsmeist-
arar í meistarafl. karla f fyrra
en lokastaðan f 1. deild varð
annars þessi:
Valur 14 12 o 2 282:198 24
Fram 14 10 1 3 277:249 21
FH 14 10 1 3 286:258 21
Vfkingur 14 6 2 6 299:297 14
IR 14 6 1 7 264:255 13
Ilaukar 14 4 2 8 235:257 10
Ármann 14 3 2 8 232:274 8
KR 14 0 1 13 226:313 1
Einar Magnússon náði þeim
frábæra árangri í markaskorun
síðastliðinn vetur að skora 100
mörk í leikjum Islandsmótsins,
en annars lftur listinn yfir mark-
hæstu leikmenn 1. deildar sfðast-
liðið keppnistímabil svona út:
Einar Magnússon, Vfkingi 100
Geir Hallsteinsson, FH 89
Brynjólfur Markússon, IR 75
Ingólfur Óskarsson, Fram 75
Bergur Guðnason, Val 73
Haukur Ottesen, KR 67
Ólafur Ólafsson, Haukum 62
Viðar Sfmonarson, FH 59
I einkunnnagjöf blaðamanna
Morgunblaðsins bar Ólafur H.
Jónsson sigur úr býtum og þvf
titilinn „Leikmaður tslands-
mótsins 1973“. Eftirtaldir leik-
menn urðu efstir á biaði í ein-
kunnagjöfinni:
Ólafur H. Jónsson, Val 3.31
Ólafur Benediktsson, Val 3.00
Björgvin Björgvinsson, Fram 2.92
Einar Magnússon, Vfkingi 2.86
Geir Hallsteinsson, FH 2.86
Hver vinnur hvern ?
Rabb um möguleika liða og líklegustu sigurvegara
1 UPPHAFI Islandsmótsins er
ekki úr vegi að setjast niður og
athuga möguleika hvers liðs
fyrir sig. Skoða hvaða lið séu
Ifklegust til að bera sigur úr
býtum í hinni hörðu keppni.
Ekki aðeins að raða félögunum
á ákveðna bása, heldur einnig
að sjá hvað breytzt hefur síðan
S fyrra. Fyrst skuium við lfta á
liðin í 1. deild karla, en í þá átt
beinist áhugi flestra hand-
knattleiksáhugamanna.
Valur.
Valsmenn hafa æft vel frá
því á miðju sumri meðþátttöku
í Evrópukeppninni í huga. Ein-
hverra hluta vegna virðast Is-
landsmeistararnir þó hafa
misst talsvert af áhuganum og
liðið er ekki eins sannfærandi
nú og á sama tíma í fyrra. Vals-
menn verða þó örugglega með í
baráttunni um íslandsmeistara-
titilinn að þessu sinni, en róður-
inn verður liðinu ekki auð-
veldur. Með Valsliðinu leika
nokkrir af okkar albeztu leik-
mönnum og vera kann að notk-
un landsliðsins á mörgum Vals-
mönnum bitni á Val, en verk-
efni landsliðsins hafa aldrei
verið eins erfið og á komandi
vetri.
Fram.
Öhætt er að spá því, að Fram-
arar verði í allra fremstu röð í
1. deildinni, getu sína sýndu
þeir í Reykjavíkurmótinu. Með
liðinu leika efnilegir leikmenn,
sem eflast með hverri raun, en
kjölfesta liðsins er fólgin 'í
landsliðsmönnunum Axel
Axelssyni og Björgvin Björg-
vinssyni, tveimur af hetjunum
frá landsleiknum við Frakka.
Þá má heldur ekki gleyma leik-
mönnum eins og Pálma Pálma-
syni og Arnari Guðlaugssyni,
en hvorugur þeirra lék með lið-
inu í fyrra. I markinu hafa
Framarar tvo góða leikmenn
Jón Sigurðsson og Guðjón Er-
lendsson.
FH.
FH-liðið hefur orðið fyrir
mikilli blóðtöku frá því í fyrra,
snillingurinn Geir Hallsteins-
son leikur ekki lengur með lið-
inu. Að FH-ingum takist að
fylla skarð hans er ólíklegt og
tæpast verður Hafnarfjarðar-
liðið ofar en um miðja deild —
en liðið fer heldur aldrei neðar
á stigatöflunni. Máttarstólpar
FH-liðsins verða í vetur að lík-
indum Viðar Símonarson, Auð-
unn Öskarsson, Gunnar Einars-
son, Hjalti Einarsson og Birgir
Finnbogason. Þá eiga FH-ingar
eínnig í sínum röðum efnilega
leikmenn eins og Sæmund Stef-
ánsson og Guðmund Stefáns-
son.
Víkingur.
Ekkert lið hefur úr eins
miklu úrvali af leikmönnum að
velja og Víkingar, skyttur;
Einar Magnússon, Jón Hjalta-
lín, Magnús Sigurðsson, Guðjón
Magnússon, gegnumbrots-
menn; Stefán Halldórsson,
Viggó Sigurðsson, línumenn;
Sigfús Guðmundsson, Jón Sig-
urðsson. Þessir einstaklingar
ættu að geta myndað gott lið og
það gera þeir í sókninni, þar
stóð ekkert lið Víkingum á
sporði í fyrravetur. Stóra
spurningin er hins vegar vam-
arleikurinn, sem verið hefur
höfuðverkur Víkinga. Takist
þeim að bæta þá hlið mála
verður Víkingsliðið næstum
óvinnandi vígi. I markið hafa
Víkingar nú fengið mjög góðan
markvörð, Sigurgeir Sigurðs-
son, ef til vill tekst honum
ásamt Rósmundi Jónssyni að
Ioka fyrir lekann.
IR.
ÍR-ingar hafa löngum þótt
efnilegir, þeir eru það tæpast
lengur. Spurningin er hins
vegar hvort þeir séu orðnir
góðir. I Reykjavíkurmótinu
áttu ÍR-ingar mjög misjafna
leíki og það er einmitt það sem
hrjáir ÍR-liðið, alla festu vantar
í leik liðsins. Brynjólfur Mark-
ússon leikur ekki lengur með
ÍR-liðinu en í hans stað eru
komnir ungir leikmenn, sem
lofa góðu.
Haukar.
Ekki kæmi á óvart þótt Hauk-
arnir myndu blanda sér alvar-
lega í toppbaráttuna í 1. deild-
inni í vetur. Leikmenn liðsins
eru flestir jafnir að getu og
komast langt á baráttugleðinni.
Burðarásarnir eru Stefán Jóns-
son, Ólafur Ólafsson, Sturla
Haraldsson, og Sigurður Jóa-
kimsson, allt leikmenn með
mikla reynslu. Gunnar Einars-
son ver Haukamarkið og hann
hefur sýnt það i landsleikjum
sínum að hann er erfiður and-
stæðingur. Þá hefur Haukum
bætzt góður liðsauki þar sem er
landsliðsmaðurinn Hörður
Sigmarsson, ungur leikmaður
sem öðlast hefur sjálfstraust
eftir góða frammistöðu i lands-
leikjum sínum. Haukarnir
verða meðal efstu liðanna í
vetur, ef byrjunin hjá þeim
verður betri en undanfarin ár.
Arrnann.
Armannsliðið er ekki líklegt
til stórafreka í vetur og svo
virðist sem ýmsir af beztu
mönnum liðsins undanfarin ár
séu ekki komnir í mikla æfingu
nú. Líklegast verða Armenn-
ingarnir í baráttu á botninum,
en að þeir sleppi þó með
skrekkinn.
Þór.
Þór frá Akureyri leikur nú í
fyrsta skipti í 1. deild og verður
róðurinn án efa mjög erfiður
fyrir Þórsara. Liðið hefur jöfn-
um einstaklingum á að skipa, en
þó með frábæran markvörð,
Tryggva Gunnarsson. Helzta
von Þórs um stig er í leikjunum
á Akureyri og stig úr heima-
leikjunum geta ef tíl vill bjarg-
að þeim frá falli niður í aðra
deild.
2. deild karla.
Eins og í 1. deild karla er útlit
fyrir mjög opið mót í 2. deild-
inni. Þróttur, Grótta og KR
koma örugglega til með að berj-
ast hatrammri baráttu um sæti
í 1. deildinni og gjörsamlega er
útilokað að spá um hvaða lið
hefur meistaraheppnina með
sér. Ekki má heldur gleyma KA
á Akureyri, sem reynist að lík-
indum hverju liði erfitt og þá
einkum á Akureyri.
3. deild karla.
Stjarnan úr Garðahreppi er
sigurstranglegast í þriðju deild-
inni, en fær þó án efa keppni
frá liðum eins og IA og Austra,
en siðarnefnda liðið ætti eftir
öllum sólarmerkjum að dæma
að sigra I Austfjarðariðli
deildarinnar.
1. deild kvenna.
Valkyrjurnar úr Val hafa
verið óstöðvandi síðastliðin ár,
en nú eru t.d. Fram og KR að ná
upp mjög sterkum liðum, sem
vissulega geta meira en að ógna
veldi Valsstúlknanna. Ár-
mannsliðið getur meira en liðið
sýndi i fyrravetur og ætti að
verða meðal efstu liða deildar-
innar. Keppnin um fallið
kemur hins vegar til með að
standa á milli Víkings, FH og
Þórs frá Akureyri.
2. deild kvenna.
Þar liggur einna ljósast fyrir
hvaða lið muni sigra, Breiða-
blik hefur alltof góðu liði á að
skipa til að sitja lengi í 2. deild.